Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 30

Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 30
 19. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna veitir fólki sem á í greiðsluerfiðleikum endur- gjaldslausa ráðgjöf og er mikil eftirspurn eftir þjónustunni um þessar mundir. „Við veitum fólki sem á í veru- legum greiðsluerfiðleikum og er komið í þrot með fjármálin endur- gjaldslausa ráðgjöf og hefur þessi starfsemi verið í gangi síðan í febrúar 1996,“ segir Ásta S. Helga- dóttir, forstöðumaður Ráðgjafar- stofu um fjármál heimilanna. Sextán aðilar koma að rekstri Ráðgjafarstofunnar, fjármála- stofnanir og félagslegar stofnanir, og gildir það samkomulag út árið 2012. „Ráðgjafarstofa um fjár- mál heimilanna var upphaflega tilraunaverkefni sem komið var á laggirnar af félagsmálaráðuneyt- inu árið 1996. Árið 2007 var und- irritað nýtt samkomulag til næstu fimm ára og er þetta samstarf mikill kostur,“ útskýrir Ásta. Ráð- gjafarstofan aðstoðar fólk við að fá yfirsýn yfir stöðu mála og hjálp- ar til við að útbúa greiðsluáætlan- ir. „Við reynum að finna lausnir á vandanum en margir aðilar koma að málum, bankar og fleiri. Þegar fólk leitar eftir aðstoð okkar þá er fyllt út umsóknareyðublað og út- búið fjárhagsyfirlit þar sem við tökum niður tekjur og eignir og vinnum út frá viðmiðunarneyslu- tölum okkar, en reyndar eru ekki til nein almenn neysluviðmið á Ís- landi,“ segir Ásta og bætir við að hluti vandans sé sá að fólk sé búið að missa tökin og skorti því nauð- synlega yfirsýn. Fólk fær fjárhagsyfirlit og til- lögu ef svo ber undir. Síðan er af- hent bréf þar sem þetta er allt skýrt út. „Við hugsum þetta sem ákveðið verkfæri til að fara með til kröfuhafanna til að þeir sjái heild- arstöðuna,“ segir Ásta og heldur áfram: „Fólk skuldar oft hjá svo mörgum þannig að heildarmynd- in hjálpar fólki sem ætlar að leita eftir samningum við kröfuhafa.“ Ýmsir sérfræðingar starfa hjá Ráðgjafarstofunni en þar vinnur fólk menntað í lögfræði, viðskipta- fræði, hagfræði, sálfræði, félags- fræði og fasteignasölu. „Hjá okkur starfa tólf manns og má segja að umhverfið sé mjög þverfaglegt,“ segir Ásta og brosir. Aðsókn í þjónustu Ráðgjafar- stofunnar hefur ríflega tvöfaldast milli ára og hafa myndast biðlist- ar. „Róðurinn var farinn að þyngj- ast í mars og apríl í fyrra en við hrunið þá fjölguðum við starfs- fólki. Samt eru enn biðlistar,“ segir hún og viðurkennir að eftirpurnin sé í raun meiri en Ráðgjafarstof- an getur sinnt. „Hins vegar erum við með símatíma í síma 551 4485 alla virka daga frá níu til fjögur og netspjall á rad.is þar sem kom- ast má í beint samband við okkur. Síðan má auðvitað senda fyrir- spurn með tölvupósti og á vefsíð- unni okkar eru ýmis eyðublöð sem hægt er að fylla út og nýta þannig tímann.“ Auk þessa geta þeir sem lenda á biðlista fengið eins konar fyrstu aðstoð til að koma sér af stað. „Segja má að öll flóran leiti til okkar en helsta breytingin er sú að nú leitar til okkar fólk sem hefur ekki verið í vanskilum áður en er að lenda í því núna.“ - hs Mikil aðsókn í þjónustu Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, leggur til að fólk haldi heimilisbókhald. Finna má einfalt skjal til að fylla út á vefsíðunni rad.is. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Gaia, nemendafélag meistaranema í umhverfis- og auðlinda- fræði við Háskóla Íslands, stendur fyrir Grænum dögum annað árið í röð. Verða hinir Grænu dagar fyrstu vikuna í mars og munu ýmiss konar málefni verða á dagskrá er lúta að umhverf- isvernd eins og aukin endurvinnsla í Háskóla Íslands og fleira. Fyrirlestrar og uppákomur af ýmsu tagi eru í boði og má þar nefna Græna tísku sem er fataskiptimarkaður. „Við ætlum að standa fyrir fataskiptimarkaði á Háskólatorgi 5. og 6. mars frá klukkan ellefu til tvö báða dagana,“ segir Taru Lehtinen, formaður nemendafélagsins Gaia, og heldur áfram. „Þá getur fólk komið með gömlu fötin sín, fengið fyrir þau skipti- miða og síðan er hægt að fá aðra flík í staðinn. Ef fólk á ekki föt til að skipta þá er líka möguleiki að greiða nokkur hundruð krón- ur fyrir flíkina.“ Nú þegar hefur safnast mikið magn fata og er fólki velkomið að mæta með föt hvenær sem er og fá skiptimiða. „Þeir sem hafa áhuga á því geta hringt í Ruth Shortall, gjald- kera, í síma 820 7687 en einnig má senda tölvupóst á ruderuth@ gmail.com,“ segir hún. Fatamarkaðir sem þessi tíðkast víða í háskólum erlendis og fór Taru á einn slíkan þegar hún var við nám í Gautaborg. „Mér þótti hugmyndin frábær og vildi gjarnan láta á hana reyna hér á Ís- landi,“ segir hún ánægð og bætir við að tilvalið sé að verða sér úti um föt fyrir vorið án þess að eyða fúlgum fjár í tískubúðum. „Hjá okkur kennir ýmissa grasa og erum við með mikið úrval af fínum fötum.“ Nánari upplýsingar um dagskrá Grænna daga má finna á nemendafelog.hi.is/Gaia/ en einnig er hægt að skrá sig í hóp á trýnu (facebook): Green Days - University of Iceland. - hs Fataskipti á Háskólatorgi Ruth Shortall gjaldkeri og Taru Lehtinen, formaður Gaia. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ● ÓKEYPIS LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ Lögmannavaktin er ókeypis lögfræðiráð- gjöf fyrir almenning. Það er Lögmanna- félag Íslands sem býður þessa þjónustu alla þriðjudagseftirmiðdaga nema í júlí og ágúst. Markmiðið með ráðgjöfinni er að veita upplýsingar um réttarstöðu og hvert er hægt að leita eftir nánari úrlausn mála. Starfandi lögmenn veita ráðgjöfina á skrifstofu félagsins að Álftamýri 9 en reiknað er með um það bil 15 mínútum á mann. Æskilegt er að þeir sem nýti sér þjónustuna undirbúi fyrirfram þær spurningar sem þeir ætla að leggja fyrir lögmanninn. Panta þarf tíma og er tekið við pöntunum alla virka daga frá 9 til17 í síma 568 5620. Íbúar höfuðborgarsvæðisins koma á skrifstofu félags- ins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík, en hringt er í íbúa landsbyggðar. Sjá www.lmfi.is.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.