Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 33
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 5fjármál heimilanna ● fréttablaðið ●
Katrín Jónsdóttir heldur utan um upplýsingasíðuna www.matarkarfan.is en þar setur
hún inn tilkynningar um tilboð á matvörum verslana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Á vefsíðunni www.matarkarfan.is
má nálgast upplýsingar um tilboð
á matvöru ýmissa verslana.
„Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
fékk hugmyndina að þessari vef-
síðu og ég tók að mér að setja hana
saman,“ útskýrir Katrín Jónsdótt-
ir, vefstýra síðunnar www.mat-
ar karfan.is.
Slagorð matarkörfunnar er að
vera „hlutlaus í dagsins önn og
bjóða þér að finna flest öll mat-
artilboð á einum stað á nokkrum
mínútum.“ Katrín leggur áherslu
á að síðan taki ekki afstöðu til
þróunar matarverðs í landinu né
hampi einni verslun fram yfir
aðra. „Við erum algerlega hlutlaus
og birtum einfaldlega þau tilboð
sem verslanir eru með. Við gerum
alls ekki verðkannanir. Síðan er
auðlesin en við setjum upplýsing-
arnar bæði inn myndrænt og upp
í töflu og sýnum þannig neytend-
um ekki bara hvar eru góð tilboð,
heldur líka hve mikill sparnaður-
inn er í krónum og prósentum. Við
höfum fengið mjög góð viðbrögð
við síðunni bæði frá neytendum og
kaupmönnum en það kemur þeim
ekki síður vel að koma tilboðum
sínum þarna á framfæri.“
Á síðunni gefst fólki einnig
tækifæri á að senda inn stuttar
ráðleggingar og segja frá því hvað
það gerir til að spara. „Þannig
fáum við heimilislega tengingu
inn í þetta og síðan verður líflegri.
En við pössum okkur þó á að gæta
alltaf hlutleysis.“ - rat
Hagsýnum til hagsbóta
Frístundakort sem reykvískir for-
eldrar geta nýtt til að greiða niður
íþrótta-, lista- og tómstundastarf
barna sinna voru tekin í notk-
un haustið 2007. Um síðustu ára-
mót stóð til að styrkurinn myndi
hækka úr 25.000 krónum í 40.000
krónur en þeim áformum var
frestað í ljósi efnahagsástands-
ins. Jafnframt var tekin ákvörð-
un um að rýmka reglurnar þannig
að foreldrar geta nú nýtt kortin til
að greiða niður dægradvöl barna
sinna eftir skóla.
Meginmarkmið Frístundakorts-
ins er að öll börn og unglingar í
Reykjavík geti tekið þátt í upp-
byggilegu frístundastarfi óháð
efnahag eða félagslegum aðstæð-
um. Í ljósi þess má spyrja hvort
breytingarnar leiði ekki til þess
að efnaminni foreldrar nýti kort-
in frekar til að greiða niður frí-
stundaheimili fyrir börn sín, sem
verði til þess að þau taki síður þátt
í starfsemi hinna 140 frjálsu félaga
sem eru aðilar að frístundakort-
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur, svarar því.
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
krónur á mánuði og dugar kortið
því ekki allt árið en ætti að geta
létt undir,“ segir Gísli.
Hann segir að til standi að bera
það saman hvort einhver breyt-
ing verði á skráningu barna í tóm-
stundastarf hinna frjálsu félaga
í ljósi rýmkunarinnar á notkun
kortsins en þær niðurstöður liggja
ekki fyrir. - ve
Rýmkaðar reglur
Gísli Árni Eggertsson hjá ÍTR telur breytingar á frístundakorti ekki ýta undir ójöfnuð.
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
52
14
0
2/
09
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál