Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 42
26 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
voru veitt síðastliðinn þriðjudag, 17.
febrúar, við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum. Verkefnið Gönguhermir hlaut
nýsköpunarverðlaunin þetta árið en
þau eru veitt ár hvert háskólanemum
sem unnið hafa framúrskarandi starf
við úrvinnslu sumarverkefna sem
styrkt eru af Nýsköpunarsjóði náms-
manna.
„Hugmyndin kviknaði hjá Þjóðbjörgu
Guðjónsdóttur, barnasjúkraþjálfara og
lektor við sjúkraþjálfunarskor, og hún
hóf samstarf með tveimur verkfræði-
prófessorum við Háskóla Íslands, Karli
S. Guðmundssyni og Fjólu Jónsdóttur,“
segir Jóna Guðný Arthúrsdóttir sjúkra-
þjálfari, en hún vann verkefnið með
Andra Yngvasyni, nema í rafmagns- og
tölvuverkfræði við Háskóla Íslands og
Bjarka Má Elíassyni, vélaverkfræði-
nema við Háskóla Íslands, sem stund-
ar nú nám í Danmörku. „Þau óskuðu
eftir nemum til að vinna sumarverk-
efni sem fólst í hugmynda- og hönnun-
arvinnu fyrir gönguherminn,“ segir
Jóna Guðný áhugasöm.
Markmið verkefnisins var að koma
með hugmynd að tæki sem hermt gæti
eftir breytilegum þungaburði sem
aukið gæti beinþéttni barna með al-
varlega hreyfihömlun. „Tækið virk-
ar þannig að börnin eru sett í tækið
þannig að þau standa upprétt með
þunga á fótum. Tækið hreyfir síðan
fæturna og líkir eftir eðlilegri göngu-
hreyfingu,“ útskýrir Jóna Guðný og
heldur áfram: „Börnin sem tækið er
hannað fyrir eru öll bundin við hjóla-
stól og eru líklegri til að hljóta beinbrot
en heilbrigð börn. Hingað til hafa þau
verið í stöndum sem þau standa kyrr
í en rannsóknir um árangur þess eru
misvísandi. Nýja tækið ætti hins vegar
að veita þeim meiri hreyfingu og eðli-
legri sem stuðlað gæti að aukinni bein-
þéttni.“
Rætt var við fólk sem vinnur með
hreyfihömluðum börnum og þekkir þá
standa sem til eru í dag. „Við fengum
fram kosti og galla og fórum í mikla
hugmyndavinnu til að finna út hvernig
tækið myndi vinna best,“ segir hún og
nefnir að hugmyndin sé að þróa tækið
enn frekar þannig að það geti líka nýst
unglingum og fullorðnum.
Hafin er vinna við að sækja um
einkaleyfi og leita að styrkjum fyrir
áframhaldandi þróun gönguhermisins
og eru leiðbeinendurnir, Karl og Þjóð-
börg, í þeirri vinnu um þessar mundir.
„Við vonumst til að Nýsköpunarverð-
launin auðveldi okkur að fá styrki en
auk þess eru verðlaunin mikil hvatning
og viðurkenning fyrir okkur nemend-
urna. Við erum því afskaplega stolt og
ánægð og fengum líka fallegan verð-
launagrip eftir Jónas Braga glerlista-
mann,“ segir Jóna Guðný og brosir.
Samkvæmt umsögn dómnefnd-
ar liggur styrkur verkefnisins meðal
annars í því hversu þverfaglegt það er.
„Samvinnan gekk einstaklega vel, sér í
lagi í ljósi þess að við þekktum lítið inn
á fræði hvors annars og náðum við að
samnýta krafta okkar. Verkefnið hefði
aldrei orðið að veruleika nema með
þessu samstarfi,“ segir Jóna Guðný og
bætir við að allir sem að verkefninu
komu hafi lært mikið af samstarfinu.
Vegna stóraukins framlags frá
Reykjavíkurborg er heildarfjármagn
Nýsköpunarsjóðsins árið 2009 nærri
fjórðungi hærra en árið 2008. Í því
atvinnuástandi sem blasir við náms-
mönnum er umsjónarmönnum sjóðs-
ins mikið gleðiefni að geta styrkt fleiri
verkefni í sumar en í fyrra en umsókn-
arfrestur rennur út 9. mars næstkom-
andi. hrefna@frettabladid.is
VERKEFNIÐ GÖNGUHERMIR: HLÝTUR NÝSKÖPUNARVERÐLAUN FORSETA ÍSLANDS
Bætt heilsa hreyfihamlaðra
VERÐLAUN FYRIR FRAMÚRSKARANDI STARF Nýsköpunarverðlaunin voru afhent af forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Jóna
Guðný og Andri veittu sínum verðlaunagripum viðtöku en Bjarki Már er við nám í Danmörku og því tók faðir hans, Elías Jóhannsson, á móti
verðlaununum fyrir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TILBOÐSDAGAR
30-50% afsláttur
af völdum legsteinum
á meðan birgðir endast
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Ólason
húsasmíðameistari, Hlíf II, Ísafirði,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 17. febrúar,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
20. febrúar kl. 14.00.
Sigríður Halldórsdóttir
Kristján Bjarni Guðmundsson Helga Kristjana
Einarsdóttir
Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir Örn Sveinbjarnarson
Salvar Finnbogi Guðmundsson Jóna Þórdís Magnúsdóttir
Vignir Guðmundsson Rebekka Rut Rúnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Snæbjörn Ármann
Björnsson
fyrrverandi bóndi á Nolli,
Grenilundi, Grenivík,
lést á Grenilundi fimmtudaginn 12. febrúar.
Jarðarförin fer fram laugardaginn 21. febrúar nk.
kl. 13.30 í Laufáskirkju.
Björn Snæbjörnsson Magga Kristín Björnsdóttir
Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir
Stefán Sigurður Snæbjörnsson Súsanna Poulsen
Kristinn Snæbjörnsson Kristín Sigurbjörg
Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
frá Sætúni, Fáskrúðsfirði, síðast til heimil-
is að Dvalarheimilinu Grund,
lést aðfaranótt 12. febrúar á Dvalarheimilinu Grund.
Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 20.
febrúar kl. 13.00.
Kristín A. Gunnþórsdóttir Sigurgeir Þór Sigurgeirsson
Guðmundur Þór Gunnþórsson
Guðjón Gunnþórsson Helen Medvedeva
Eygló Sara Gunnþórsdóttir
Rut Gunnþórsdóttir Eiður Sveinsson
Rakel Gunnþórsdóttir Ævar Agnarsson
Þorgils Garðar Gunnþórsson Helga Steinunn Hauksdóttir
Rebekka Gunnþórsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigbjörn Gunnarsson
sveitarstjóri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 15. febrú-
ar. Útför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 23. febrúar, klukkan 13.30. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Minningarsjóð Jakobs Jakobssonar hjá
Knattspyrnufélagi Akureyrar. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja efnilegt íþróttafólk á Akureyri.
Guðbjörg Þorvaldsdóttir
Guðrún Sigbjörnsdóttir
Hildur Björk Sigbjörnsdóttir Stefán Geir Árnason
Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir Magnús Jónsson
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson Katrín Jónsdóttir
Rósa María Sigbjörnsdóttir
Björn Þór Sigbjörnsson Ástríður Þórðardóttir
Afabörnin Jökull Starri, Sölvi, Egill Darri, Hrafnhildur Ýr,
Eva María og Auður Ýr.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vinarhug og kærleika við andlát og útför
elskulegs föður okkar, afa og langafa,
Aðalsteins P. Maack
húsasmíðameistara og fv. forstöðumanns
Byggingareftirlits ríkisins, áður til heimilis
að Hvassaleiti 56, Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 24. janúar
sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Aðalheiður Maack Óðinn Geirsson
Pétur A. Maack Kristjana Kristjánsdóttir
Þórhallur Maack Gyða Bárðardóttir
Gísli Maack Kara Margrét Svafarsdóttir
Sigríður Maack Már Másson
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON, PRÓFESSOR
Í STJÓRNMÁLAFRÆÐI, ER 56
ÁRA Í DAG.
„Sjálfstæðismenn eru
menn sem vilja græða á
daginn og grilla á kvöld-
in.“
Hannes er þekktur fyrir ein-
dreginn stuðning við frjáls-
hyggju og er virkur þátttak-
andi í stjórnmálaumræðu á
Íslandi.
Stóra bomban var það
kallað þegar Helgi Tóm-
asson, yfirlæknir á
Kleppi, og Jónas Jóns-
son frá Hriflu áttu í úti-
stöðum sem hófust
árið 1930.
Stóra bomban byrj-
aði með heimsókn
Helga til Jónasar sem
þá var dómsmála-
ráðherra og hafði á
þessum tíma bakað
sér töluverðar óvinsældir meðal
lækna. Sú deila fólst aðallega í
skipan lækna en teygði sig einn-
ig inn í starfsmannamál á Vífils-
stöðum. Jónas varð í framhald-
inu afar óvinsæll meðal lækna og
í viðleitni til að bæta úr
málinu skipaði Jónas
rannsóknardómara
til að kanna afskipti
lækna af veitingu lækn-
isembætta og hófst
rannsóknin um svipað
leyti og stóra bomban
kom fram.
Hápunktur deilunn-
ar varð þegar Helgi lýsti
því yfir að hann teldi
Jónas bera merki um
geðveiki og ætti hann því að láta
af embætti dómsmálaráðherra
tafarlaust. Oft er þetta mál kall-
að geðveikismálið en Jónas nefndi
þennan atburð stóru bombuna og
hefur það nafn fest við það.
ÞETTA GERÐIST: 19. FEBRÚAR 1930
Upphaf stóru bombunnar
AFMÆLI
Hörður
Magnússon
íþróttafrétta-
maður er 43
ára.
Jeff Daniels
leikari er 54
ára.