Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 46
30 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
„Þetta var skrítið,“ sagði
Sigurður Skúlason leik-
ari þegar hann kom út
af forsýningu á Karde-
mommubænum í gær. „Ég
er búinn að leika í Karde-
mommubænum reglulega
síðan 1960.“ Nú var hann
gestur í salnum sem fagnaði
leikendum á forsýningunni
fölskvalaust og vel og lengi
á þriðjudagskvöldið. Fullt
hús hamingjusamra gesta á
öllum aldri.
Á laugardag frumsýnir Þjóðleik-
húsið Kardemommbæinn eftir
Thorbjörn Egner í hinni sígildu
þýðingu þeirra Huldu Valtýs-
dóttur og Kristjáns frá Djúpa-
læk. Leikstjóri sýningarinnar er
Selma Björnsdóttir og er þetta
fimmta sviðsetning leiksins í Þjóð-
leikhúsinu. Alls hafa yfir 160.000
gestir heimsótt Kardemommu-
bæinn hér. Allt frá fyrstu sýning-
unni á Kardemommubænum árið
1960 áttu Þjóðleikhúsið og Thor-
björn Egner gott og náið samstarf.
Egner gerði leikmynd og búninga
við nokkrar sýningar á eigin verk-
um í Þjóðleikhúsinu og gaf Þjóð-
leikhúsinu búninga- og leikmynda-
teikningar sínar, en nokkrar þeirra
getur nú að líta á göngum leikhúss-
ins. Hann stofnaði einnig sjóð sem
veitt hefur reglulega starfsstyrki
til leikara og íslenskir áhorfendur
og Þjóðleikhúsið voru honum eink-
ar kær. Verk hans hafa enda notið
hér mikilla vinsælda frá því kynni
tókust fyrst með Karíusi og Bakt-
usi, fólkinu í Kardemommubæ,
dýrunum í Hálsaskógi og íslensk-
um börnum á öllum aldri.
Nú færir ný kynslóð leikhús-
listamanna okkur þetta dásamlega
verk. Boðskapur verksins um mik-
ilvægi umburðarlyndis og heiðar-
leika á alltaf við, og vísast geta
ræningjarnir þrír, Soffía frænka
og aðrir íbúar Kardemommubæjar
kennt okkur öllum sitthvað gagn-
legt.
Rúmlega þrjátíu leikarar og börn
á ýmsum aldri taka þátt í uppfærsl-
unni nú. Í hlutverkum ræningjanna
eru þeir Örn Árnason, Rúnar Freyr
Gíslason og Kjartan Guðjónsson.
Örn fer nú með hlutverk Kaspers,
en hann hefur áður leikið í tveim-
ur uppfærslum á Kardemommu-
bænum, fyrst í hlutverki Jónatans
og þá Jespers, og hefur hann því
leikið alla ræningjana þrjá. Edda
Björg Eyjólfsdóttir leikur svark-
inn Soffíu frænku, Sigurður Sig-
urjónsson leikur Tóbías í turnin-
um og Baldur Trausti Hreinsson
leikur Bastían bæjarfógeta. Höf-
undur leikmyndar sýningarinnar
er Brian Pilkington, María Ólafs-
dóttir hannar búninga og Jóhann
G. Jóhannsson annast tónlistar-
stjórn og útsetningar. Birna og
Guðfinna Björnsdætur sjá um
dans- og sviðshreyfingar og lýs-
ingu hanna Lárus Björnsson og
Ólafur Ágúst Stefánsson. Uppselt
er á sýningar á Kardemommubæn-
um langt fram eftir vetri.
Bókin um Kardemommubæinn
er nú fáanleg á ný og hljóðritun
frá frumuppfærslunni 1960 er til
á geisladiski. pbb@frettabladid.is
Fólkið og ræningjarnir
LEIKLIST Kardemommubærinn lifnar nú við í allri sinni litadýrð. MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/EDDI
ath. kl. 20.
Í sófaspjalli í fjölnotasal Hafnarhússins mun
listamaðurinn Ásmundur Ásmundsson bregða
upp svipmyndum af hugmynda- og vinnuferli
sínu, sýna verk sem tengjast sýningu hans
Holu í Hafnarhúsinu og spjalla við gesti um
tilurð hennar. Ásmundur hefur skrifað heilm-
ikið fyrir Viðskiptablaðið og verður tæpt á
umfjöllunarefni hans þar er snerta listir og
samfélagið séð með hans augum.
Danski heimildarmyndaleikstjór-
inn Christoffer Guldbrandsen
hefur fengið styrk upp á 950 þús-
und danskar krónur frá dönsku
Kvikmyndamiðstöðinni til að
gera mynd um baráttuna gegn
Efnahagsbandalaginu í Evrópu.
Myndina kallar hann Forsetann.
Síðasta mynd hans Dagbók frá
miðju vakti mikið umtal. Myndin
nýja er gerð með þátttöku allra
þeirra stjórnmálamanna Evrópu
sem setið hafa í forsæti Efna-
hagsbandalagsins. Megináhersla
er lögð á þróun hugmyndarinn-
ar um Lissabon-samkomulagið.
„Præsidenten“ er þegar seld til
fjölda Evrópulanda. - pbb
Gegn EB
KVIKMYNDIR Prodi hinn ítalski er einn
þeirra sem koma fram í heimildarmynd
um Lissabon-samkomulagið.
> Ekki missa af …
Sinfóníutónleikum í kvöld kl.
19.30. Einleikarinn sem kemur
fram, Leila Josefowicz, er svo
sannarlega ein af fiðlustjörnum
nútímans. Hún leikur fiðlukons-
ert Beethovens sem hefur verið
nefndur „drottning fiðlukonsert-
anna“.
Ljósmyndarinn Laxness
Þjóðmenningarhúsið og
Gljúfrasteinn – hús skáldsins, bjóða
til dagskrár í Þjóðmenningarhúsinu
í kvöld, 19. febrúar kl. 20.00.
Hún er haldin í tilefni af sýningunni
Síðbúin sýn, þar sem brugðið
er upp ljósmyndum sem Halldór
Laxness tók á ferðum sínum
innanlands og utan og heima
á Gljúfrasteini.
Halldór Guðmundsson, rithöfundur,
og Guðný Halldórsdóttir, kvikmynda-
leikstjóri og dóttir skáldsins, ganga
um með gestum og ræða um ljós-
myndir Laxness.
Þá munu Anna Guðný Guðmunds-
dóttir og Sigrún Hjálmtýsdóttir fl ytja
lög við ljóð Halldórs Laxness.
Enginn aðgangseyrir, allir velkomnir.
Sýningunni Síðbúin sýn í Þjóðmenningarhúsinu lýkur 8. marz nk.
BLAÐAÐ Í MYNDAALBÚMINU
Þjóðmenningarhúsið – The Culture House
National Centre for Cultural Heritage
Hverfi sgötu 15 · 101 Reykjavík
Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is
Sýningar - leiðsögn - verslun
Hart í bak
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Heiður
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is