Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 47

Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 47
FIMMTUDAGUR 19. febrúar 2009 31 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 19. febrúar 2009 ➜ Tónlist 20.30 Tónleikaröð Jóns Ólafssonar „Af fingrum fram“ í Salnum við Hamraborg í Kópavogi, hefst í kvöld. Gestur Jóns er Magnús Eiríks- son en auk þess kemur fram Ellen Kristjánsdóttir. ➜ Fyrirlestrar 17.15 Bjarni Harðarson fjallar um íslenska fyndi í erindi sínu í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a. Allir vel- komnir og enginn aðgangseyrir. ➜ Námskeið 20.15 Yndislestur með Einari Kárasyni. Námskeið hefst í kvöld hjá Endur- menntun Háskóla Íslands við Dunhaga 7. Nánari upplýsingar og skráning á www.endurmenntun.hi.is ➜ Listamannsspjall 20.00 Í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu mun Ásmundur Ásmunds- son bregða upp svipmyndum frá hug- mynda- og vinnuferlinu við gerð sýning- arinnar Hola sem stendur þar yfir. ➜ Dagskrá 20.00 Blaðað í myndaalbúminu, dagskrá í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 15. Halldór Guðmundsson og Guðný Halldórsdóttir ræða ljós- myndir Halldórs Laxness á sýningunni Síbúin Sýn. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. ➜ Myndlist Í Gallerí Marló við Laugaveg 82 hefur verið opnuð sýning á frumgerðum blek- teikningum Halldórs Baldurssonar. Opið mið.-lau. kl. 14-17. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Bresku viðtalsþættirnir Grumpy old women þar sem rætt var við nokkrar mektugar breskar konur úr efri miðstétt sem allar voru kunnugleg andlit hefur nú alið af sér íslenska leiksýningu sem frumsýnd verður á Akureyri á morgun. Verkið kallast Fúlar á móti og þýðing og staðfærsla er í höndum Gísla Rúnars Jóns- sonar en leikstjórinn er María Sigurðardóttir leik- hússtýra þar nyrðra. Leikkonurnar Edda Björgvins- dóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Björk Jakobsdóttir eru „fúlar á móti“ og er verkið frumsýnt í gamla samkomuhúsinu annað kvöld. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar vinsælustu uppi- standsleikkonur þjóðarinnar og árshátíðardrottning- ar stíga saman á svið og einnig í fyrsta skipti sem þær leika hjá Leikfélagi Akureyrar. Þær skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara breytingaskeið- ið og gera óspart grín að sjálfum kvennaflokknum. Nú fá karlmenn loksins að vita hvers vegna eiginkon- ur, systur og mæður þeirra eru eins og þær eru. Höfundar verksins eru tveir af þekktustu uppis- töndurum Bretlands, þær Jenny Eclair og Judith Holder, en Fúlar á móti byggir á sjónvarpsþáttunum þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem verkið er sett upp utan Bretlandseyja og af því tilefni koma þær Jenny og Judith og verða viðstaddar frumsýninguna þótt ólíklegt sé að þær skilji mikið af bröndurunum. En hitt má bóka að aðrir viðstaddir gera það örugglega. -pbb Fúlt breytingaskeið LEIKLIST Þrjár konur á besta aldri, hver á sínum aldri og allar ansi fyndnar. MYND LEIKFÉLAG AKUREYRAR/ GRÍMUR Þjóðmenningarhúsið og Gljúfra- steinn, hús skáldsins, efna til dag- skrár í Þjóðmenningarhúsinu kl. 20.00. Dagskráin nefnist Blaðað í myndaalbúminu og er haldin í til- efni af sýningunni Síðbúin sýn, þar sem brugðið er upp ljósmynd- um sem Halldór Laxness tók á ferðum sínum innanlands og utan og heima á Gljúfrasteini. Halldór Guðmundsson rithöf- undur og Guðný Halldórsdótt- ir, kvikmyndaleikstjóri og dóttir skáldsins, ganga um með gestum og ræða um ljósmyndir Laxness. Þá munu Anna Guðný Guðmunds- dóttir og Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja lög við ljóð Halldórs Lax- ness. Allir eru velkomnir á dagskrána og aðgangseyrir er enginn. pbb Halldór í myndatöku HALLDÓR LAXNES Mynd sem hann tók Borgarbókasafnið heldur úti miklu og skemmtilegu barnastarfi og er Sögubíllinn Æringi hluti af því sem fram fer á vegum safnsins. Sögu- bíllinn heldur nú áfram ferð sinni um borgina en þetta er í annað eða þriðja sinn sem Æringi kemur á leik- skóla borgarinnar. Fyrir jól heim- sóttu ömmur leikskólana og sögðu sögur af jólunum í gamla daga en í þetta sinn er það sögukonan Sóla sem segir sögur. Sóla er dótt- ir Grýlu en ekki hefur farið mikið fyrir henni undanfarið enda hefur hún verið í útlöndum undanfarin 100 ár. Hún hefur lært heil ósköp af sögum og fékk vinnu hjá Borg- arbókasafninu við að segja sögur en fær í staðinn að búa í Æringja. Henni þykir afskaplega vænt um börn og það er ástæðan fyrir því að hún strauk að heiman fyrir 100 árum. Í þetta sinn er frístundaheim- ilum boðið að fá Sögubílinn í heim- sókn og hefur það gefist vel og bíll- inn hefur undartekningalaust verið pantaður fyrir yngstu börnin. Þetta framtak Borgarbókasafnsins hefur mælst vel fyrir enda bæði skemmti- leg og gott innlegg til aukins mál- þroska fyrir börnin. -pbb Æringinn Sóla BÓKMENNTIR Æringinn Sóla heimsækir frístundaheimili Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is FORRÉTTIR Saltfiskbollur og dill Aioli í salatlaup Brasseraðir folaldaskankar „Oriental“ í opnu ravíolí Innbökuð gæsalæri í smjördeigi umlukin íslenskum aðalbláberjum Ekta frönsk lauksúpa að hætti Parísarbúa AÐALRÉTTIR Steikt klaustursbleikja, sveppir og beikon í döðlum ásamt flauelismjúkum kartöflum Gufusoðin lúða á pottaelduðu grænmeti í engiferkrydduðu soði Íslenskar sjávarafurðir og kanadískur humar í humarsósu að hætti „Fernand Point“ Dádýrasteik ásamt kremuðum villisveppum, steiktum kartöflum og rauðvínssósu EFTIRRÉTTUR Kirsuber í eigin safa ásamt vanilluís og vöfflu Crème Brûlée Gallery Restaurant býður 15% afslátt af matseðli, a la carte, öll kvöld vikunnar. Gallery Restaurant, Hótel Holti, státar af einstökum hópi fagmanna sem töfra fram ómótstæðilega málsverði í anda hins franska eldhúss þar sem lögð er áhersla á íslenskt hráefni. Borðapantanir í síma 552 5700 og á gallery@holt.is Opið alla daga í hádeginu og á kvöldin. B HÓTEL HOLT A HÁDEGISSEÐILL & TILBOÐSKVÖLDSEÐILL SUNNUDAGA/MÁNUDAGA/ÞRIÐJUDAGA Verð á tilboðskvöldseðli: Þriggja rétta matseðill á aðeins 4.200 kr. Verð á hádegisseðli: Frá 1.980 kr. LEIKHÚSMATSEÐILL Leikhúsmatseðill er framreiddur frá kl. 18-20 alla daga vikunnar og er í boði fyrir alla matargesti. Borðapantanir til kl. 19. Gufusoðin Klausturbleikja með sveppum og beikoni ásamt döðlugljáa Steikt dádýr eða fersk smálúða, sellerírótarflauel og rauðvínssósa Hálfbökuð karamellukaka og vanilluís Verð aðeins 4.990 kr. BOMBAY 2 FYRIR 1 Bombay-kvöld alla fimmtudaga í febrúar. Tveir fyrir einn af öllum Bombay-drykkjum. HAPPYHOUR alla daga milli 15 og 18. Öl á aðeins 399 kr. FJÖLSKYLDUBOÐ LAMBALÆRI & BÉARNAISE Yndisleg fjölskylduhádegi um helgar og sunnudagskvöld Hefðbundinn hádegisseðill ásamt lambalæri og Béarnaise-sósu. Börn yngri en 12 ára borða á hálfvirði og þau allra minnstu fá frítt. Allir krakkar fá að heimsækja eldhúsið og velja sér ís. Nú er gaman á Hótel Holti. Bombay-kvöld öll fimmtudagskvöld. Leikhúsmatseðillinn okkar hefur slegið rækilega í gegn og nú gerum við enn betur og bjóðum þriggja rétta tilboðsmatseðla í hádeginu og á kvöldin. Um helgar bjóðum við alla fjölskylduna velkomna í gourmet lambalæri og Béarnaise. Verið hjartanlega velkomin, starfsfólk Hótel Holts, Gallery Restaurant.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.