Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 48
32 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Dr. Gunni
Ég var í London á dögunum. Þetta var ferð eins og ég fór þegar ég
var tvítugur. Ég sá endurvakta nýbylgjuhljómsveit frá pönkárunum,
Magazine, á tónleikum og hékk í plötubúðum. Ég uppgötvaði löngu
gleymda gleði, þá að fletta plötum í plötustöflum. Ég enduruppgötv-
aði æsandi undraheim plötubúðanna.
Veröld plötubúðanna hefur sjaldan verið lýst eins vel og í bókinni,
og síðar bíómyndinni, High Fidelity. Það er
alveg ákveðin tegund af nördum sem
hanga í plötubúðum. Þeir hanga
ekki í hvaða búð sem er. Þeir
hanga lítið í sálarlausum stór-
verslunum og þær fara bara
á hausinn á endanum. Liðið
sem vill topp 10 fær sér
það bara stafrænt á net-
inu. Í stað Virgin Mega-
store á horni Oxford Street
og Tottenham Court Road
er komin búðin Zaavi. Þar
er ömurlegt um að litast og
greinilegt að búðin er á síð-
ustu metrunum.
Nördar vilja búðir rekn-
ar af áhuga og sérfræði-
þekkingu og því eru minni
búðir málið. Þar sem nörd-
isminn og leitin endalausa
að snilldinni lifir. Rough
Trade er gamalkunnugt
nafn. Byrjaði sem útgáfa
og búð í pönkinu og er enn
að. Gefur meðal annars út
Emilíönu Torrini og er með
tvær búðir í London. Ég fór
í báðar. Í þeirri minni var
verið að spila eitthvað sem
mér fannst æðislegt. Þetta var eins og í High Fidelity þegar Cusack
og Black spila eitthvað og veðja um að einhver í búðinni muni koma
og spyrja hvað þetta sé og kaupa plötuna. Ég spurði og hlóð svo plöt-
unni niður þegar ég kom heim. Fín plata með Marnie Stern. Stærri
búðin er við enda götu með eintómum indverskum veitingastöðum.
Þar var verið að spila „Orð, morð“ með Óðmönnum þegar ég kom
inn. Vá, hvílík tilviljun! Ég spurði og komst að því að lagið er á safn-
plötunni B-music, Drive in, Turn on, Freak out sem útgáfan Finders
Keepers gaf út í fyrra. Trúbrot á líka lag á plötunni. „Mind blowing
vintage vinyl discoveries from around the psychedelic globe,“ stend-
ur á umslaginu. Íslenskt hipparokk er greinilega óplægður akur fyrir
þá sem allt þykjast hafa heyrt.
Óðmenn eru aldrei á fóninum í Zaavi. Þar skilur á milli feigs og
ófeigs.
Undraheimur plötubúða
NÖRDAR HANGA Í PLÖTUBÚÐUM Undraheimi
plötubúða hefur aldrei verið lýst betur en í High
Fidelity.
„Upp með hendur, allir saman, Stál
og hnífur er nú meiri lygasagan,“
segir í texta lagsins Upp með hend-
ur frá hinum nýstofnaða dúett Blóð-
bræður. Ekki fer á milli mála að
lagið er ádeila á Bubba Morthens.
„Textinn segir nú bara alla sög-
una og lagið Stál og hnífur segir
alla söguna líka. Ef Bubbi lítur á
þetta sem skítkast er það aðal-
lega hans mál,“ segir Erling Bang,
annar meðlima Blóðbræðra. Hinn
heitir Hrafn Jónsson og er óreynd-
ur úr tónlistarbransanum, öfugt
við Erling sem er trommari þunga-
rokkssveitarinnar Celestine og
fyrrum trommari I Adapt. „Við
erum ekkert hljómsveit sem er í því
að skíta yfir fólk,“ segir Erling en
játar að tilfinningar sínar til Bubba
séu blendnar. „Bubbi hefur samið
haug af góðum lögum og haug af
lélegum lögum líka en okkur finnst
hann ekki samkvæmur sjálfum
sér.“
Næsta lag Blóðbræðra nefnist
Flóttamaður og fjallar um Íslend-
ing sem er bitur út í samfélagið og
heldur að eina vitið sé að hlaupa í
burtu og flýja land. „Það er blóð-
bragð af öllu þessu dóti hjá okkur,
við erum baneitraðir,“ segir Erling.
Dúettinn er í óða önn að semja nýtt
efni og stefnir á útgáfu sinnar
fyrstu plötu á næstu misserum.
Hægt er að sjá myndband við
Upp með hendur á síðunum Kvik-
mynd.is og Youtube.com. - fb
Stál og hnífur algjör lygasaga
BLÓÐBRÆÐUR Erling Bang (til vinstri) og Hrafn Jónsson eru meðlimir hljómsveitar-
innar Blóðbræðra.
Hafdís Huld tekur nú upp
nýja plötu í hljóðveri í
Norður-Yorkshire og er
langt komin. Nokkrar
hljóðverskempur eru henni
innan handar. Trommar-
inn Martyn Barker var
einu sinni í hljómsveitinni
Shriekback og bassaleik-
arinn Simon Edwards var í
Fairground Attraction. Um
hljóðupptökur sjá Calum
MacColl, sem hefur komið
nálægt plötum Backstreet
Boys, og Phill Brown, sem
hefur samstarf með Robert
Plant og Bob Marley á fer-
ilskánni. Þá er Alisdair
Wright sem lengi hefur
spilað með Hafdísi ekki
langt undan. Red Grape
Records gefur nýju plötuna
út eins og þá fyrri (Dirty
Paper Cup, kom út 2006) og
má búast við fyrstu smá-
skífunni í apríl.
Hafdís Huld tekur upp
> Plata vikunnar
Evil Madness - Demoni
Paradiso
★★★★
„Kraut-rokk, b-myndatónlist og
gamalt syntapopp eru á meðal
þess sem kemur upp í hugann
þegar hlustað er á Demoni
Paradiso.“ TJ
> Í SPILARANUM
The Prodigy - Invaders Must Die
Swan Lake - Enemy Mine
Andrew Bird - Noble Beast
Bon Iver - Blood Bank EP
Morrissey - Years of Refusal
THE PRODIGY MORRISSEY
NÝ PLATA Á ÁRINU
Hafdís Huld.
Plötuútgefandinn Baldvin
Esra á Akureyri hefur
stofnað nýja útgáfu sem
gefur út ódýra íslenska
tónlist.
„Brak er undirútgáfa Kimi Rec-
ords og sinnir verr seljanlegri
tónlist en Kimi. Enn verr seljan-
legri,“ segir Baldvin Esra Einars-
son, plötuútgefandi á Akureyri, um
nýjastu hugmynd sína, Brak Rec-
ords. „Framleiðsluferlið miðast við
illseljanleikann. Samt er auðvitað
haldið í gæðin. Brak gefur bara út
gæðaefni.“
Öll framleiðsla Brak-útgáfunnar
fer fram á Íslandi. „Það er kappi á
Ólafsfirði sem brennir diskana, en
við stefnum á að kaupa brennslu-
vél í framtíðinni. Plöturnar koma
í vasa og svo fylgir ljósritað blað
með.“
Íslenskir geisladiskar eru oftast
pressaðir í geisladiskaverksmiðj-
um í útlöndum enda ekki slíkar
vélar til hérlendis. Baldvin segir
engan gæðamun á pressuðum og
brenndum diskum, hljómgæðin og
endingin sé sú sama. „Menn hafa
verið að pressa diskana erlendis
af því að það hefur verið ódýrara
ef gerðir eru 500 eða fleiri disk-
ar. Ef upplagið er undir 500 ein-
tökum kemur betur út að brenna
hérna heima. Þá sleppur maður við
flutningskostnað og svo er gengið
náttúrlega óhagstætt. Brak-disk-
arnir verða seldir ódýrt, á þetta
1600-1700 kall út úr búð. Þetta er
íslensk framleiðsla frá A til Ö.“
Fyrsta platan frá Braki er Music
from soul með Carpet show. „Það
er hljómsveit Brynjars Helgason-
ar, 17 ára nemanda í MH. Hann er
búinn að dunda við þessa plötu í
nokkur ár. þetta er lág-hljómgæða
þjóðlagatónlist og má líkja henni
við listamenn á borð við The Mic-
rophones, Danielson og Daniel
Johnston,“ segir Baldvin.
Hann segir Brak komið til að
vera og mikið af úrvalsefni bíði
útgáfu. „Upprunalega stóð til að
gefa út á tveggja mánaða fresti,
en mér sýnist að nýjar plötur muni
koma oftar út en það. Þetta er svo
lítið vesen. Það tók viku frá því að
búið var að mastera Carpet show
plötuna þar til að hún var komin
í búðir.“
Fram undan hjá Braki eru plöt-
ur með hávaðarokksveitinni Skelk
í bringu, döpru gleðipoppsveitinni
Létt á bárunni (Berglind og Svav-
ar úr Skakkamanage), Faðirvor og
Reykjavík! lite, sem er órafmagn-
aða útgáfan af Reykjavík!
drgunni@frettabladid.is
Ódýrt, íslenskt og illseljanlegt
CARPET SHOW Er band Brynjars Helga-
sonar, 17 ára nema í MH.
BRAK MIÐAST VIÐ ILLSELJANLEIKANN Baldvin Esra, plötuútgefandi á Akureyri, hefur
stofnað nýja útgáfu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
ESKIMOS