Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 50
34 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
> DANSA Á ÓSKARNUM
Talið er að kynnir Óskarsverðlaun-
anna, Hugh Jackman, muni taka þátt
í dansatriði á hátíðinni ásamt söng-
og leikkonunni Beyonce Knowles.
Zack Eftron og Vanessa Hudgens úr
High School Musical taka einnig þátt
í atriðinu. Leikstjóri verður landi Jack-
mans, Baz Luhrmann.
Skömmu eftir afsögn Richards
Nixon Bandaríkjaforseta vegna
Watergate-málsins hafði David
Frost, ástralskur þáttastjórnandi,
samband við umboðsmann Nixons
og óskaði eftir opinskáu viðtali við
hann. Nixon samþykkti viðtalið
gegn vænni greiðslu og nokkr-
um skilmálum, meðal annars að
umræðu um Víetnamstríðið og
Watergate-málið væri haldið í lág-
marki. Almenningur horfði á þetta
viðtal og lagði mat sitt á forsetann.
Sjálfur horfði Nixon á viðtölin sem
tækifæri til að skýra mál sitt. Sjón-
varpsviðtalið var það fyrsta og síð-
asta sem Nixon veitti eftir forseta-
tíð sína.
Frost/Nixon er byggð á sam-
nefndu leikriti eftir Peter Morg-
an frá 2006 sem sýnt var í rúm tvö
ár, bæði í Lundúnum og á Broad-
way. Morgan aðlagar sitt eigið leik-
rit á hvíta tjaldið. Hann hefur að
sjálfsögðu mun frjálsari hendur í
myndinni og getur gert umgjörð
hennar mun flottari, þó að leikrit-
ið hafi verið mestmegnis undirbún-
ingurinn fyrir viðtalið svo og við-
talið sjálft.
Líkt og leikritið er myndin drifin
áfram af samtölum og þrátt fyrir
að vera „samtalsmynd“ þá er varla
nokkur einasti dauður punktur í
henni. Samtölin eru mjög hnyttin
og áhugaverð og sama tempói er
haldið út myndina. Morgan hefur
auðvitað haft nægan tíma til þess
að fínpússa öll samtöl og kemst það
vel til skila á hvíta tjaldinu.
Ron Howard er við stjórnvöl-
inn og fer það ekki á milli mála að
Frost/Nixon skipar sér sess með
Cinderella Man og A Beautiful
Mind sem ein af hans bestu mynd-
um. Howard hefur gert slappar
myndir inn á milli, en framleiðsl-
an hefur alltaf verið í sama gæða-
flokki. Howard nær því allra besta
út úr leikurum sínum og sömuleið-
is samstarfsfólki í þessari. Mynda-
takan spilar mikinn þátt í mynd-
inni og þá sérstaklega í viðtölunum.
Viðtöl Frosts við Nixon eru meðal
merkustu sjónvarpsviðburða fyrr
og síðar, og meðhöndlar Howard
myndina í samanburði við það. Í
raun er þetta ein hans mikilvæg-
asta mynd hingað til.
Bæði Frank Langella og Michael
Sheen, sem fara með hlutverk Nix-
ons og Frosts, endurtaka hlutverk
sín úr leikritinu. Langella er stór-
góður sem Nixon og nær algjör-
lega töktunum hans. Þegar líða fór
á viðtölin mátti sjá neistaflug hjá
Langella, og þá sérstaklega í síð-
asta viðtalinu þar sem Nixon við-
urkennir mistök sín, fullur iðrunar
og eftirsjár. Sheen er mjög góður í
hlutverki glamúrgosans Frosts. Um
miðbik myndarinnar fyllist maður
vorkunn yfir Frost vegna erfið-
leika hans við að fjármagna viðtöl-
in, og þá skína í gegn leikhæfileik-
ar Sheens. Í öðrum hlutverkum eru
m.a. Oliver Platt og Sam Rockwell
sem rannsóknarmenn framleiðslu-
teymisins kringum viðtalið. Slegið
er á létta strengi og tekst vel til.
Frost/Nixon er afbragðsmynd
sem er drifin áfram af vönduðu og
áhugaverðu handriti Morgans og
magnaðri frammistöðu Langella
sem Nixon. Ef það væri ekki næst-
um fyrirfram ákveðið að Mickey
Rourke muni taka Óskarinn sem
besti karlleikarinn væri það Lang-
ella sem ég væri til í að sjá taka
styttuna heim.
Vignir Jón Vignisson - Topp5.is
Forseti svarar fyrir sig
KVIKMYNDIR
Frost/Nixon
Leikstjóri: Ron Howard. Aðal-
hlutverk: Frank Langella, Michael
Sheen, Oliver Platt, Sam Rock-
well.
★★★★★
Afbragðsmynd frá Ron Howard.
Áhugaverð og vel leikin.
Fjórar myndir verða frumsýnd-
ar í bíó á morgun og ber þar hæst
Milk sem hefur verið tilnefnd til
átta Óskarsverðlauna.
Myndin segir sanna og áhrifa-
mikla sögu Harvey Milk sem var
fyrsti opinskái homminn sem var
kjörinn í mikilvægt opinbert emb-
ætti í Bandaríkjunum. Leikstjóri
er Gus Van Sant og Sean Penn fer
með hlutverk Milks. Báðir eru þeir
tilnefndir til Óskarsins. Mynd-
in fær 8,1 af 10 í einkunn á Imdb.
com.
Rómantíska gamanmyndin He´s
Just Not That Into You segir nokkr-
ar samtengdar sögur af vandamál-
inu við að lesa í mannlega hegð-
un og túlka, eða mistúlka, orð
og gjörðir karlmanna. Með aðal-
hlutverk fara Ben Affleck, Jenni-
fer Aniston, Drew Barrymore og
Jennifer Connelly. Myndin fær 6,6
á Imdb.com.
Sjálfur James Bond, Dani-
el Craig, fer með aðalhlutverk-
ið í Defiance sem gerist í seinni
heimsstyrjöldinni. Fjallar hún um
þrjá bræður sem tekst að sleppa
undan nasistum og dvelja í skógi
nokkrum þar sem þeir léku sér á
æskuár sínum. Einkunn: 7,4.
Steve Martin endurtekur hlut-
verk sitt sem seinheppni lögreglu-
maðurinn Jacques Clouseau í Pink
Panther 2. Úrvalsleikarar eru í
öðrum hlutverkum, eða Jean Reno,
John Cleese, Andy Garcia og Jer-
emy Irons. Myndin fær 4,3 á Imdb.
com.
Áhrifamikil saga Harvey Milk
MILK Sean Penn er tilnefndur til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í
Milk.
Óskarsverðlaunin verða
afhent í 81. sinn aðfaranótt
mánudags í Kodak-leik-
húsinu í Hollywood. Flestir
telja að Slumdog Milli-
onaire verði kjörin besta
myndin.
Slumdog Millionaire er tilnefnd
til tíu Óskarsverðlauna og hefur
rakað til sín viðurkenningum að
undanförnu. Telst það vitaskuld
góð vísbending um það sem koma
skal.
Bafta- og Golden Globe-verð-
launin féllu henni í skaut á dög-
unum sem besta myndin auk þess
sem leikstjórinn Danny Boyle
hefur fengið fjölda verðlauna.
Ekki skemmir það fyrir að Banda-
ríkjamenn eru yfirleitt hrifnir
af Öskubuskusögum á borð við
Slumdog Millionaire og sú stað-
reynd að myndin er uppfull af áður
óþekktum leikurum eykur einnig á
sjarma hennar.
The Curious Case of Benjamin
Button er tilnefnd til þrettán
Óskarsverðlauna en ólík-
legt þykir að hún vinni í
stærstu flokkunum. Á
undangengnum hátíð-
um hefur hún unnið í
minni flokkum á borð
við bestu förðunina og
bestu tæknibrellurn-
ar og telja margir
að þar verði hún
öruggur sigur-
vegari á Ósk-
arnum.
Flest-
i r t e l j a
næsta víst
að Mick-
ey Rour-
ke hreppi
styttuna
fyrir
hlutverk sitt í The Wrestler. Endur-
koma hans í sviðsljósið hefur heill-
að marga og frammistaða hans í
myndinni er sérlega góð, enda
hefur hann sópað til sín verðlaun-
um síðustu mánuði. Sá eini sem er
talinn eiga einhvern möguleika í
Rourke er Sean Penn í Milk.
Helst er veðjað á að annað-
hvort Meryl Streep (Doubt) eða
Kate Winslet (The Reader) fái
Óskarinn sem besta aðalleikkon-
an. Streep hefur fimmtán sinnum
verið tilnefnd og unnið tvisvar á
meðan Winslet hefur sex sinnum
verið tilnefnd en aldrei unnið. Sú
staðreynd gæti auðveldað val Ósk-
ars akademíunnar.
Hinn sálugi Heath Ledger er tal-
inn öruggur sem besti auka leik-
arinn sem Jókerinn í The Dark
Knight en meiri óvissa er um bestu
leikkonuna í aukahlutverki. Viola
Davis þykir standa sig sérlega vel í
Doubt auk þess sem Marisa Tomei
(The Wrestler) og Penélope Cruz
(Vicky Cristina Barcelona) eiga
góða möguleika.
Besta teiknimyndin verður hugs-
anlega Wall-E og besta heimildar-
myndin Man on Wire. Fjallar
hún um mann sem labbaði á
línu á milli tvíburaturnanna
áður en þeir hrundu. Síðan er
því spáð að hin ísraelska Vals
Im Bazir eða hin franska
Entre les murs berjist
um hituna sem besta
erlenda myndin.
Slumdog líklegur
sigurvegari í ár
SLUMDOG MILLIONAIRE Flestir telja að Slumdog Millionaire verði valin besta myndin
á Óskarsverðlaununum.
MICKEY ROURKE
Endurkoma
Rourke í The
Wrestler er
með hreinum
ólíkindum.
40-80
afsláttur
%