Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 52
36 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VILL ÞRIÐJA HUNDINN
Fergie, sem giftist leikaranum
Josh Duhamel í síðasta mánuði,
vill nú taka að sér golden ret-
reiver-hund. Fyrir eiga skötuhjú-
in dachs-hundana Zoe og Dylan
sem þau sjást reglulega með á
gangi, en eru nú sögð vilja fá
stærri hund í hópinn. Fergie og Du-
hamel eru einnig sögð vera að íhuga
að ættleiða barn þar sem söngkonan er
ekki tilbúin til að gera hlé á vinnu sinni.
Knattspyrnufélag Reykja-
víkur hélt upp á 110 ára
afmæli sitt fyrr í vikunni í
KR-heimilinu í Frostaskjóli.
Fjölmargir KR-ingar mættu
í hófið til að halda upp á
áfangann og skemmtu þeir
sér prýðilega.
KR á sér langa og merkilega sögu,
enda elsta knattspyrnufélag lands-
ins og elsta samfellt starfandi
íþróttafélagið. Í hófinu voru meðal
annars veittar heiðursviðurkenn-
ingar til félagsmanna í KR og Ell-
ert B. Schram rakti sögu félagsins
í stuttu máli.
Auk hófsins er ætlunin að minn-
ast afmælisins með veglegri fjöl-
skylduhátíð vestur í bæ í samvinnu
við Vesturgarð laugardaginn 6.
júní og með afmælishátíð 3. okt-
óber.
Vel heppnað
afmælishóf KR
RÚNAR OG ERLING Fótboltakappinn fyrrverandi, Rúnar Kristinsson, ásamt Erling
Aðalsteinssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
RAUÐA LJÓNIÐ Bjarni Felixson, eða
Rauða ljónið eins og hann hefur verið
kallaður, ásamt eiginkonu sinni.
BROSMILDAR Þessir brosmildu KR-ingar
létu sig ekki vanta í afmælishófið.
„Já, ég heyrði í honum og útskýrði
þetta fyrir honum. Ég var veru-
lega óánægð með hann því þetta
var tekið úr öllu samhengi,“
segir Brynhildur Ólafsdóttir, for-
stöðumaður samskiptasviðs Saga
Capital, um ummæli Stef-
áns Einars Stefánssonar
viðskiptasiðfræðings í
Silfrinu á sunnudaginn.
Stefán Einar sagði
þar að fjármálafyr-
irtæki nokkurt „úti í
bæ“ hefði látið skreyta
húsakynni sín með
sandblásnum fleygum
orðum núverandi for-
stjóra fyrirtækisins og
taldi það merki um
„firringu“. Marg-
ir þóttust kann-
ast við umrætt
fyrirtæki,
Saga Capi-
tal, en áletr-
anir þessar
tengjast þó ekki „mikilmennsku-
brjálæði“ fyrirtækisins að sögn
Brynhildar heldur er hér einfald-
lega um að ræða verkefnið Brostu
með hjartanu sem Akureyrarbær
og ýmsir aðilar á Akureyri standa
fyrir en hjörtu og fleyg orð úr
bókum, ljóðum og munni
skólabarna hafa verið
límd víðs vegar um
bæinn. Verk- efnið
sprettur upp úr kreppu-
tal inu og snýst um að
senda skilaboð í anda jákvæðni og
bjartsýni.
„Við hjá Saga Capital ákváð-
um sem sagt að vera með og ég
persónulega fékk þá hugmynd að
taka þetta inn í hús og gera þetta
um leið svolítið lókal fyrir okkur
starfsmennina. Krepputalið hefur
auðvitað líka áhrif hér. Við höld-
um starfsmannafund einu sinni í
viku með forstjóranum, Þorvaldi
Lúðvíki Sigurjónssyni, og hann
talar svolítið kjarnyrt mál. Þess-
ar línur sem við hengdum upp eru
línur sem við sem vinnum hér
þekkjum öll úr hans munni.“ Bryn-
hildur segir að Þorvaldur hafi ekki
verið hafður með í ráðum heldur
hafi þetta átt að koma á óvart og
um leið að vera hluti af verkefn-
inu. „Þetta var innanhússgrín á
Þorvald og eru tilvitnanir eins og
„það er dimmast fyrir dögun“, og
„enn hefur ekki komið það él sem
ekki styttir upp“ útskýrir Bryn-
hildur. .- jma
Misskilið innanhússgrín hjá Saga Capital
„Jú, við erum komin með nýja
Lottu. Þetta er fjórða Lottan
okkar Íslendinga. Og hún er
stafræn, það er að segja það
er flaga inni í hverri kúlu,“
segir Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri Íslenskr-
ar getspár, en síðastliðið laug-
ardagskvöld var ný lottóvél
tekin í notkun ásamt nýjum
stafrænum lottókúlum. „Við
vorum svona á síðasta snún-
ingi með að skipta út vélinni
en öryggiskröfur gera ráð
fyrir að ný vél sé tekin í notk-
un á 7-9 ára fresti. Sú sem við
kveðjum var sennilega orðin
átta ára.“
Íslendingar lottuðu í fyrsta
skiptið árið 1986 og það er
mikill munur frá þeim hætti
sem þá var hafður á drætt-
inum þegar Lottómeyjar og
-sveinar klæddu sig í hvíta
hanska og teygðu sig hand-
virkt eftir kúlunum. Stefán
segir að lottóvélarnar séu
keyptar af sama fyrirtæki og
fyrri vélar hafa verið keypt-
ar af. „Þetta er svipuð vél og
er að finna annars staðar á
Norðurlöndum. Nýja vélin er
mjög kröftug og búin nýjasta
búnaði og nú geta ekki orðið
mistök við álestur kúlnanna
því það er tölva sem gerir
það út frá flögunum og full-
trúi dómsmálaráðuneytisins
les tölurnar af skjá í hverjum
úrdrætti.“
Gamla vélin er enn uppi í
Efstaleiti en hún
skilaði Íslending-
um um 4,5 millj-
örðum króna.
„ Hú n kemur
hingað bráðum
og fer þá niður
í kjallarann
og verð -
ur geymd
sem sögu-
legur
munur.“
- jma
Lottókúlurnar orðnar stafrænar
VORU Á SÍÐASTA SNÚNING Gamla
lottóvélin var orðin átta ára gömul.
Kings of Leon-rokkarinn Caleb
Followill hefur ákveðið að selja
hús sitt í kjölfar ógnvekjandi
aðdáendapósta. Í viðtali við
breska dagblaðið The Sun segist
Followill fá gjafir og ýmiss konar
furðulegar sendingar á heimili
sitt í Nashville í Bandaríkjunum
eftir að Kings of Leon slógu í gegn
í Evrópu, en krakkar hafa gert sér
ferð frá Bretlandi til Bandaríkj-
anna til að fara með gjafir á heim-
ili hans.
Followill fékk sig þó fullsadd-
an þegar hann kom heim til sín
á dögunum eftir að hafa skropp-
ið frá í stutta stund, en þá hafði
fjórum kóngaspilum með nöfnum
hljómsveitarmeðlimanna verið
komið fyrir við útidyrnar og seg-
ist rokkarinn þar með hafa ákveð-
ið að setja húsið á sölu.
Óttasleginn rokkari
OFSÓTTIR Rokkararnir í Kings of Leon hafa orðið fyrir miklu áreiti eftir að þeir slógu í
gegn í Evrópu, bæði með óvæntum heimsóknum og ógnvekjandi aðdáendapóstum.
STEFÁN
KONRÁÐSSON
ÖRG ÚT Í STEFÁN Brynhildur
Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi
Saga Capital, segir að enginn
hafi misskilið áletranir
á húsakynnum
Saga Capital
hingað til,
nema Stefán
Einar Stef-
ánsson í
Silfrinu.
Aðeins sex sýningar:
05/02 08/02
15/02 22/02
01/03 08/03
Sýnt í Borgarleikhúsinu.
Miðasala í síma 568 8000
og á www.id.is.
Nýtt verk eftir Katrínu Hall, Peter
Anderson og Cameron Corbett.
Tónlist eftir Sigtrygg Baldursson,
Pétur Ben og Frank Hall.
Leikmynd eftir Aðalstein Stefánsson.
Traustur bakhjarl Íslenska dansflokksins
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Íslenski dansflokkurinn býður atvinnulausum
ókeypis miða á sýninguna - nánar á www.id.is
ID
.IS
“fjörug, kraftmikil og
oft falleg (sýning) og
minnir okkur enn einu
sinni á hversu öflugur
og fjölhæfur Íslenski
dansflokkurinn er”
Martin Regal,
Morgunblaðið 8. feb.