Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 56
40 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin:
Man. Utd-Fulham 3-0
1-0 Paul Scholes (12.), 2-0 Dimitar Berbatov
(30.), 3-0 Wayne Rooney (63.)
STAÐA EFSTU LIÐA:
Man. Utd 25 18 5 2 44-10 56
Liverpool 25 15 9 1 42-17 54
Aston Villa 25 15 6 4 40-24 51
Chelsea 25 14 7 4 44-15 49
IE-deild kvenna (A):
KR-Haukar 72-83 (31-44)
Stigahæstar: Hildur Sigurðardóttir 19, Sigrún
Ámundadóttir 14, Guðrún Ámundadóttir 12,
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9, Margrét Kara
Sturludóttir 6 - Kristrún Sigurjónsdóttir 31, Slavica
Dimovska 21, Moneka Knight 9, Ragna Margrét
Brynjarsdóttir 7, María Lind Sigurðardótitr 7.
Hamar-Keflavík 76-81
Stigahæstar: Lakiste Barkus 29, Julia Demirer
21 (19 frák.), Fanney Guðmundsdóttir 8, Jóhanna
Sveinsdóttir 8 - Pálína Gunnlaugsdóttir 20, Birna
Valgarðsdóttir 14, Bryndís Guðmundsdóttir 14,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 13.
IE-deild kvenna (B):
Snæfell-Grindavík 78-63
Stigahæstar: Kristen Green 37, Sara Andrésdóttir
15 - Ólöf Pálsdóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 12.
UEFA-bikarinn:
Dynamo Kiev-Valencia 1-1
Kravchenko - Silva.
Zenit St. Petersburg-Stuttgart 2-1
Huszti, Tymoschuk - Gomez.
Aston Villa-CSKA Moskva 1-1
John Carew - Vagner Love.
Werder Bremen-AC Milan 1-1
Diego - Filippo Inzaghi
Bordeaux-Galatasaray 0-0
NEC Nijmegen-HSV 0-3
Sampdoria-Metalist 0-1
Meistaradeildin í handbolta:
Chambery-Rhein Neckar Löwen 25-23
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk, þar af
eitt úr víti, fyrir Löwen.
EHF-bikarinn:
Lemgo-Bjerringbro Silkeborg 28-25
Logi Geirsson var næstmarkahæstur í liði Lemgo
með fimm mörk. Bjerringbro vann fyrri leikinn,
26-23, og fer áfram á fleiri mörkum á útivelli.
ÚRSLIT
Gamla hörkutólið Árni Stefánsson er mættur aftur á hliðarlínuna í
handboltanum. Hann er orðinn aðstoðarmaður Gunnars Magnús-
sonar hjá HK og Árni mun væntanlega þenja raddböndin á hliðar-
línunni í kvöld þegar FH sækir HK heim í Digranesið í gríðarlega
mikilvægum leik og þá sérstaklega fyrir HK.
Gunnar segir það mjög gott að fá Árna á
bekkinn til sín. „Árni kemur í leiki og tvisvar
í viku á æfingar. Það er um að gera að nýta
hans krafta. Hann er mikill stemningskall
sem kemur mjög sterkur inn í þetta hjá
okkur,“ segir Gunnar en svo skemmtilega vill
til að þeir félagarnir búa í sömu blokkinni og
þekkjast vel. „Ég hitti hann á bílastæðinu og
nefndi þetta við hann og hann var sem betur
fer æstur í að vera með.“
Árni er fyrrverandi þjálfari liðsins og því í nýju hlutverki
að þessu sinni sem hann segist hafa gaman af.
„Ég er svo klikkaður að ég get ekki slitið mig frá þessu.
Það er líka þægilegt að aðstoða nágranna sinn. Ég get
fengið far hjá honum á æfingar og svona,“ segir Árni kátur en hann
þjálfar 3. flokk hjá FH sem er einmitt félagið sem HK leikur við í
kvöld. „Ég talaði náttúrlega við FH-ingana og þeir sáu ekkert að
þessu enda toppmenn sem gaman er að vinna fyrir. Ég þekki líka
marga af þessum FH-strákum enda oft uppi í íþróttahúsi þannig
að þetta verður fjör.“
Árni segir það vera erfitt að losna við hand-
boltabakteríuna. „Ég hélt ég hefði eitthvað lækn-
ast en svo er nú aldeilis ekki. Þetta er búið að
vera svaka gaman. Það kom mér á óvart hvað
það var lítið sjálfstraust og stemning í hópnum
þegar ég kom til HK og mitt hlutverk hefur því
verið að kveikja svolítið á mönnum.“
Árni útilokar ekki að byrja aftur að þjálfa á
fullu og segir handboltann hjálpa sér að mörgu
leyti. „Þetta er frábær útrás sem maður fær. Að geta öskrað
eins og vitleysingur í klukkutíma á leikjum og farið svo
heim sallarólegur og verið góður við konuna. Hún kvartar
því ekkert,“ segir Árni á gamansömum nótum og hlær dátt.
ÁRNI STEFÁNSSON AFTUR Í HASARINN: AÐSTOÐAR NÁGRANNA SINN, GUNNAR MAGNÚSSON, MEÐ HK
Er svo klikkaður að ég get ekki slitið mig frá þessu
KÖRFUBOLTI Lokaspretturinn í Ice-
land Express-deild karla er fram
undan og er mikil spenna um alla
deild.
KR og Grindavík berjast um
deildarmeistaratitilinn, Snæfell og
Keflavík keppa um 3. sætið og þá
eiga sex lið möguleika á að tryggja
sér hin fjögur sætin inn í úrslita-
keppnina. Staðan er hins vegar
vonlaus hjá botnliði Skallagríms
og hún er líka allt annað en góð hjá
Þórsurum. Norðanmenn eru núna
í 11. sæti og í raun sex stigum frá
öruggu sæti þar sem þeir eru með
verri innbyrðisstöðu gegn FSu.
Fréttablaðið leitaði til körfu-
boltaáhugafólks úr öllum áttum og
fékk það til þess að spá í hvernig
umrædd einvígi innan deildarinn-
ar enda. Spámennirnir sem tóku
þátt eru Einar Bollason, Yngvi
Gunnlaugsson, Hrannar Hólm,
Torfi Magnússon, Signý Her-
mannsdóttir, Jón Halldór Eðvalds-
son, Snorri Örn Arnaldsson, Guð-
jón Skúlason, Bárður Eyþórsson,
Pálína Gunnlaugsdóttir, Jón Björn
Ólafsson, Guðjón Þorsteinsson,
Guðbjörg Norðfjörð og Ágúst
Björgvinsson.
Deildarmeistaratitillinn
KR og Grindavík berjast um deild-
armeistaratitilinn. KR er með
tveggja stiga forskot á Grinda-
vík en Grindvíkingum mun duga
að verða jafn þeim að stigum þar
sem Grindavík er með betri stöðu
í innbyrðisleikjum.
Spáhópur: KR 100%, Grindavíkza 0%
Þriðja sætið
Snæfell og Keflavík berjast um
3. sætið og Snæfell er ofar vegna
betra gengis í innbyrðisleikjum.
Spáhópur: Snæfell 86%, Keflavík
14%
Síðustu sætin inn í úrslitakeppni
Sex lið berjast um fjögur síðustu
sætin inn í úrslitakeppnina. Njarð-
vík og Stjarnan eru í bestu stöð-
unni en FSu í þeirri verstu og er
í raun enn í harðri fallbaráttu við
Þórsara.
Breiðablik, ÍR og Tindastóll eru
hins vegar öll jöfn með 14 stig í 7.
til 9. sæti.
Árangur í innbyrðisleikjum
kemur líklega til með að ráða í
lokin og þar standa Blikar vel að
vígi gagnvart ÍR og Tindastól en
þeir hafa unnið alla þrjá leiki sína
gegn þessum tveimur liðum. Stól-
arnir hafa hins vegar tapað öllum
þremur leikjum sínum gegn Blik-
um og ÍR-ingum.
Spáhópur: Njarðvík 100%, Stjarnan
93%, ÍR 86%, Tindastóll 71% en
Breiðablik 50% og FSu 0%.
Fallbaráttan
Fallbaráttan stendur á milli FSu
og Þór Akureyri. Breiðablik, ÍR og
Tindastóll eru ekki alveg sloppin
en það verður að teljast líklegast
að fallbaráttan standi á milli Þórs
og FSu.
Spáhópur: Þór 71%, FSu 29%.
ooj@frettabladid.is
Barist úti um alla deild
Fram undan er spennandi lokasprettur í Iceland Express-deildinni. Fréttablaðið
fékk körfuboltaáhugafólk til þess að spá um hvernig þetta fer allt saman.
STAÐAN Í DEILDINNI
KR 17 16 1 1626-1250 32
------------------------------------------------------
Grindavík 17 15 2 1676-1372 30
Snæfell 17 11 6 1411-1237 22
Keflavík 17 11 6 1464-1300 22
Njarðvík 17 9 8 1387-1447 18
Stjarnan 17 8 9 1452-1447 16
Breiðablik 17 7 10 1327-1477 14
ÍR 17 7 10 1414-1426 14
------------------------------------------------------
Tindastóll 17 7 10 1388-1454 14
FSu 17 6 11 1382-1419 12
------------------------------------------------------
Þór Ak. 17 4 13 1369-1525 8
Skallagrímur* 17 1 16 1055-1597 2
Skallagrímur er fallinn í 1. deild.
KÖRFUBOLTI Það verður flottur
leikur í DHL-Höll þeirra KR-
inga í kvöld þegar topplið Ice-
land Express deildar karla tekur
á móti nýrkrýndum bikarmeistur-
um Stjörnunnar. Nýkrýndir bik-
armeistarar hafa aðeins unnið
fyrsta leik eftir bikarúrslitaleik-
inn í 3 af 9 skiptum frá árinu 2000
og allir sigrarnir þrír hafa komið
á móti neðsta liði deildarinnar.
Þetta verður í þriðja sinn á síð-
ustu fjórum tímabilum þar sem
bikarúrslitaliðin þar sem bikar-
úrslitaleikurinn er endurtekinn
aðeins nokkrum dögum seinna. Í
fyrra fóru nýkrýndir bikarmeist-
arar Snæfells illa með Fjölnis-
menn á þeirra eigin heimavelli og
unnu þá með 53 stigum eftir að
hafa unnið 23 stiga sigur í bikaúr-
slitaleiknum fjórum dögum áður.
Tveimur árum áður náðu Keflvík-
ingar hefndum fyrir tap í bikaúr-
slitum með því að vinna nýkrýnda
bikarmeistara Grindavíkur með
25 stigum fimm dögum eftir 15
stiga tap í bikaúrslitum.
Stjörnumenn hafa þegar spillt
fyrir deildarmeistaradraum-
um Grindvíkinga og nú er að
sjá hvort þeir geri hið sama með
drauma KR-inga sem eru væntan-
lega vaknaðir efrir bikarmartröð
sína síðasta sunnudag. - óój
FYRSTI LEIKUR BIKAR-
MEISTARA SÍÐUSTU ÁR:
2008 Snæfell-Fjölnir (úti) 114-61
2007 ÍR-KR (ú) 81-89
2006 Grindavík-Keflavík (ú) 84-109
2005 Njarðvík-Snæfell (ú) 84-88
2004 Keflavík-Breiðablik (ú) 105-98
2003 Keflavík-Grindavík (ú) 92-105
2002 Njarðvík-Stjarnan (h) 102-75
2001 ÍR-Skallagrímur (h) 84-86
2000 Grindavík-Haukar (ú) 60-73
Nýkrýndum bikarmeisturum hefur ekki gengið vel í fyrsta leik undanfarin ár:
Bikarúrslitaliðin mætast aftur
SÁRT Leikmenn KR eftir tapið í bikarúr-
slitaleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka
þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið.
SENDU SMS EST BCD Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
VINNINGAR ERU: 100 ÍSLENSKAR BALLÖÐUR, GOS,
GEISLADPLÖTUR, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
WWW.SENA.IS/100SERIA
9. HVERVINNUR!
Allar uppáhalds ballöðu
rnar
þínar á 5 geislaplötum!
> Sextán deildarsigrar Haukakvenna í röð
Bikarmeistarar KR náðu ekki að stöðva sigurgöngu
deildarmeistara Hauka í Iceland Express-deild
kvenna. Haukar höfðu gott forskot nær allan
leikinn og unnu að lokum með 11 stigum,
83-72. Þetta var sextándi deildarsigur Hauka
í röð en liðið er það eina sem hefur unnið
KR-konur á þessu ári. Kristrún Sigur-
jónsdóttir, fyrirliði Hauka, átti stórleik,
skoraði 31 stig og tók 13 fráköst.
Leikurinn var mjög grófur og voru
fleiri en einn leikmaður bornir út af
eftir meiðsli, alvarlegust eru þau þó
líklega hjá Sigrúnu Ámundadóttur í
liði KR sem meiddist á hné.
FÓTBOLTI Manchester United
vann í gær sinn tíunda sigur
í röð í öllum keppnum og náði
fimm stiga forskoti á toppi
ensku úrvalsdeildarinnar
með 3-0 sigri á Fulham.
Edwin Van der Sar hélt
hreinu í 14. deildarleikn-
um í röð og hefur alls hald-
ið marki sínu hreinu í 1.302
mínútur.
Paul Scholes, sem átti
mjög góðan leik, skoraði fyrsta
markið strax á 12. mínútu en þetta
var fyrsta mark hans í 18 mán-
uði.
Búlgarinn Dimitar Ber-
batov jók muninn í 2-0 á
30. mínútu og Wayne Roon-
ey (t.v.) innsiglaði síðan sig-
urinn á 63. mínútu, tveimur
mínútum eftir að hann hafði
komið inn á sem varamaður.
- óój
Sigurganga Man. United hélt áfram í ensku deildinni:
Fimm stiga forskot
BLÓÐ SVITI OG TÁR Þorleifur Ólafsson
fékk slæmt högg í leik um daginn en
lét það ekki aftra sér að fara aftur inn
á þegar hann var búinn að tjasla sér
saman.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍEL