Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 62
46 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. eyja í asíu, 6. vírus, 8. tilvist, 9. sigað, 11. ekki, 12. dimmt, 14. áburður, 16. skóli, 17. tækifæri, 18. for, 20. í röð, 21. þjappaði. LÓÐRÉTT 1. íþróttafélag, 3. bor, 4. ríki í Suðaustur-Asíu, 5. ái, 7. fælinn, 10. traust, 13. óvild, 15. hóta, 16. flík, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. java, 6. rs, 8. líf, 9. att, 11. ei, 12. myrkt, 14. gúanó, 16. fg, 17. lag, 18. aur, 20. mn, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. fram, 3. al, 4. víetnam, 5. afi, 7. styggur, 10. trú, 13. kal, 15. ógna, 16. fat, 19. ró. „Klukkan sex er það Cheerios án sykurs, með AB-mjólk með perubragði og vatnsglas. Þetta virkar í 90 prósentum tilvika. Ég borðaði alltaf AXA-kornmat með súkkulaðibragði í vatni, en eftir að pakkinn hækkaði úr 380 krónum í 500 kall finnst mér það ekki réttlætanlegt.“ Heimir Karlsson fjölmiðlamaður VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8. 1 Skúli Helgason. 2 Um 100 milljónir króna. 3 Góða dátann Svejk. „Við erum þrjár stelpur sem var sagt upp vinn- unni hjá fjármálafyrirtæki einn föstudaginn í lok janúar. Við ákváðum fljótlega að snúa leiðindun- um upp í ævintýri. Sex klukkustundum eftir aftöku var hugmyndin komin. Næsta dag settumst við yfir landakortið. Á mánudeginum var vaðið í sprautur og flugmiðinn keyptur á miðvikudegi,“ segir Katrín Atladóttir, bloggdrottningin katrin.is. Katrín flýgur til Suður-Afríku í dag með vin- konum sínum, Margréti og Ástu, og ætlar að vera í svörtu heimsálfunni í minnst tíu vikur. „Ég ætla að sniðganga íslenskar fréttir og það verður frábært að losna við allar kosningafréttirnar. Við komum ekki aftur fyrr en eftir kosningarnar. Það verður mjög gott að fá frí frá neikvæðninni sem er í gangi á Íslandi. Það er alveg margt gott í gangi en margir á netinu einblína aðeins of mikið bara á það slæma. Það væri svo miklu uppbyggilegra að fókusa frekar á jákvæðu hlutina.“ Katrín segir ferðina svo sem ekki ákveðna í þaula. „Við byrjum í Cape Town, sem mér skilst að sé ein hættulegasta borg heims. Það verður lítið mál því við erum svo svalar. Síðan förum við í þriggja vikna bakpokaferðalag með ensku fyrirtæki til Namibíu, Botswana og Zambíu. Eftir það er eigin- lega allt opið en okkur langar í sólbað á Zanzibar, górillutrek í Rúanda og til Kenýa.“ En hvað með peninga? „Peninga?“ hnussar í Katr- ínu. „Það er eitthvað svo 2007 að vera með vinnu og hugsa um peninga. Maður er ekkert að stressa sig, maður verður bara að nýta svona tækifæri til að gera eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt. Ætli maður fái nokkuð aftur vinnu fyrr en í næsta góð- æri? Nei, djók.“ Hægt verður að fylgjast með Afríkuferð Katrínar og kó á katrin.is/afrika. - drg Atvinnulausar í Afríkuferð „Við erum að taka yfir þáttinn Mér finnst. Eitt af flaggskipum ÍNN,“ segir Lára Ómarsdóttir blaðamaður. Lára, ásamt blaðamönnunum Berg- ljótu Davíðsdóttur og Katrínu Bessa- dóttur, er nýr umsjónarmaður þáttarins Mér finnst sem áður var í umsjá þeirra Ásdísar Ólsen og Kolfinnu Baldvinsdótt- ur á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Lára segir þær stöllur leggja upp með að láta sér ekkert mannlegt óviðkomandi og stefn- an er að fjalla um allt milli himins og jarðar. „Við gerum ráð fyrir því, vegna þess að við komum úr þessum heimi blaða- og fréttamennsku, að vera meira fréttatengdar en þær sem fyrir voru. En samt, við ætlum líka að tala um ýmis- legt sem kemur fréttum ekkert við.“ Í Mér finnst var áður, með fulltingi hjálparkokka á borð við Ellý Ármanns, Björk Jakobsdóttur og Sigríðar Kling- enberg, talað fjálglega um ýmislegt sem gæti flokkast undir reynsluheim kvenna. Og ef karlkyns blaðamað- ur gerði svo mikið sem tilraun til að útskýra yrði það afgreitt snarlega sem klúrheit. „Verður kynferðisleg umræða? Við ætlum bara að vera einlægar og skemmtilegar og tala um það sem okkur þykir áhugavert. Við erum allar mjög opnar og hressar en við ætlum ekki að gera út á erótík,“ hlær Lára. Lára nefnir sem ákveðna fyrirmynd þekkta þætti sem hafa verið lengi á skjánum vestanhafs, The View, þar sem Barbara Walters og Goldie Hawn fara á kostum. Þættirnir verða á dagskrá tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtu- dögum, og hefjast í næstu viku. - jbg Ætla ekki að gera út á erótíkina SJÓNVARPSSTJÓRINN Í KVENNAFANS Hinir nýju umsjónarmenn Mér finnst ætla að fjalla um allt milli himins og jarðar. Frá vinstri eru Lára, Katrín og Bergljót ásamt Ingva Hrafni Jónssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVO 2007 AÐ VERA MEÐ VINNU OG HUGSA UM PENINGA Margrét Ágústa Sigurðardóttir, Katrín Atladóttir og Ásta Mekkín Pálsdóttir á Laugaveginum. Þær verða í Afríku á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM gullsmiðjan.is Ástandið í þjóðfélaginu hefur orðið til þess að fólk úr ýmsum áttum veltir því nú fyrir sér að fara fram í komandi alþingiskosningum og ein þeirra er Sirrý Sigfús spá- og útvarpskona. Horfir hún einkum til þess að ganga til liðs við sjálfstæðismenn á Suðurnesjum. Sirrý er einn helsti aðdáandi Davíðs Oddssonar og fer hvergi leynt með þá skoðun sína að Jóhanna Sigurðardóttir og Stein- grímur J. Sigfússon standi að baki meintri aðför á hendur honum. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að aðdáendur góða dátans Svejks; Davíð Ingason, dr. Óttar Guðmundsson, Sigmar B. Hauksson og fleiri, ætluðu að koma saman á veitingastaðnum Kryddlegnum hjörtum, fá sér einn bjór og jafnvel stinga úr einu staupi – og minnast æðruleysis Svejks. Leikarinn Þór Tulinius ætlar að lesa úr bók Haseks. Einhverra hluta vegna skolaðist dagsetningin til en íslenskir Svejk-aðdá- endur ætla að hittast í kvöld klukkan 21.00 en ekki 21. febrúar eins og fram kom. Samfélag tónlistarmanna á Íslandi er lítið og þar eru flestallir vinir. Stundum getur þó slest upp á vinskapinn eins og gerðist skömmu fyrir jól á skemmtistaðnum Alþjóða- húsinu við Hverfisgötu. Þar tóku tal saman Örvar Þóreyjarson Smárason úr múm og Atli Bolla- son, hljómborðsleikari Sprengju- hallarinnar. Örvar virðist hafa verið ósáttur við skrif Atla um krúttkyn- slóðina í Morgunblaðið skömmu áður, því áður en nokkur viðstaddra fékk að gert hafði hann ráðist að Atla og skallað hann þrisvar sinnum í andlitið. Sem betur fer sá lítið á Atla og þeir félagar sættust fullum sáttum daginn eftir. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég lít ekki á mig sem neina fyrir- mynd nema kannski dóttur minnar og hennar vegna er hræðilega leið- inlegt að þessu máli sé nú slegið upp. Ég hefði kannski betur hugs- að málið. Þegar ég var ungur var Bubbi Morthens mín fyrirmynd. Þetta er kannski afleiðing af því,“ segir Björn Jörundur, tónlistar- maður og dómari í Idol-Stjörnu- leit á Stöð 2. Mjög hitnaði í kolum á netmiðl- um í gær eftir að Vísir greindi frá því upp úr hádegi að nafn Björns Jörundar Friðbjörnssonar hefði komið upp í tengslum við dóm sem birtur var yfir Þovarði Davíð Ólafssyni. Þar var endurrit sam- tals þeirra tveggja sem fengið hafði verið með hlerun fíkniefna- deildar lögreglunnar. Þorvarð- ur Davíð var dæmdur fyrir sölu fíkniefna og ómögulegt er annað en ætla að Björn Jörundur hafi verið meðal viðskiptavina hans. Vísir fékk sjálfan Bubba Mort- hens, sem var með böggum hildar vegna málsins, til að þýða þau orð sem brúkuð eru í samtölum þeirra tveggja. Og samkvæmt því þýðir „ás“ kókaín og „tvíburabróðir“ er slanguryrði yfir amfetamín. Björn Jörundur hafnaði því í samtali við Vísi að um eiturlyfja- viðskipti hefði verið að ræða, hann hafi verið yfirheyrður vegna máls Þorvarðar Davíðs en ekki verið fundinn sekur um neitt ólögmætt. Björn segir þau viðbrögð sín ekki réttmæt – en spurning blaðamanns Vísis hafi komið sér í opna skjöldu. „Það er á engan hátt hægt að mis- skilja hvað þarna fer fram. Ég hef gert mörg mistök í lífinu, ekki síst þarna. Ég var á slæmum stað. En þetta var fyrir um ári síðan.“ Einkum er það staða Björns Jör- undar sem dómara í Idolinu sem tengd hefur verið þessum frétt- um. Vísir hefur eftir áðurnefnd- um Bubba að Stöð 2 gæti minnk- að skaðann með því að láta Björn fara. Og mun málið sem slíkt vera til skoðunar hjá yfirstjórn Stöðv- ar 2. Björn segist aðspurður ekki hafa hugleitt það að hætta sem slíkur þrátt fyrir að þetta mál hafi komið upp. „Nei, ég held að það myndi orka mjög tvímælis ef maður segði sig frá öllum störfum og vinnu þegar það kemst í hámæli hvernig maður hefur hagað sér í fortíðinni. Ég vissi alveg hver ég var þegar ég réði mig til starfs- ins. Það hefur engin áhrif á mín störf í dag, það breytist ekkert né hefur áhrif á það hvernig ég ætla að sinna mínum störfum þó aðrir viti það hvernig ég hef hagað mér fortíðinni.“ Þegar Fréttablaðið náði tali af Birni Jörundi var hann staddur á Siglufirði en þar dvelur hann við að semja tónlist. „Ég var einmitt núna í dag, þegar þetta kom allt upp, að semja gott lag. Sem er eitt- hvað á þessa leið: ‘Ég ætla að brosa til þín/því allt verður betra ef þú brosir til mín’. Já, á kassagítar- inn,“ segir Björn Jörundur. jakob@frettabladid.is BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON: FLÆKTUR Í KÓKAÍNMÁL Ég er ekki góð fyrirmynd BJÖRN JÖRUNDUR Segist hafa vitað hvern mann hann hafi að geyma þegar hann réði sig til starfa sem Idol-dómari. Hann ætlar ekki að láta gamlar syndir ráða því að hann hætti þar nú. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.