Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 64

Fréttablaðið - 19.02.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 19. febrúar, 50. dagur ársins. 9.09 13.41 18.15 9.01 13.26 17.53 Sorry seems to be the hard-est word, söng Elton John um árið. Hann hitti í mark því flest- ir kannast við þetta: Það er bara svo fjári erfitt að biðjast afsökun- ar. Sérstaklega ef manni finnst maður ekki hafa gert neitt rangt. Hversu mörg pör hafa ekki setið í þrúgandi þögn yfir sjónvarpinu eftir að annað lét eitthvað van- hugsað út úr sér eða gerði ein- hverja vitleysu sem hitt er hund- fúlt yfir? Ekkert fær haggað þannig þögn nema eitt almenni- legt „fyrirgefðu“. Og hvílíkur léttir sem það er. ÞAÐ er ekki í íslenskum þjóð- arkarakter að biðjast afsökunar. Meira svona fyrir Kana sem allt- af eru vælandi. Að þessu komst Felix Bergsson þegar hann sá um vonlausan þátt á Skjá einum um árið, Fyrirgefðu. Þetta var pín- legt prógramm og fáir þættir. Það fannst bara ekkert fólk sem vildi koma og biðjast afsökunar. NÚ ætti ekki að vera erfitt að finna fólk í Fyrirgefðu. Stjórn- málalið, bankakarlar og aftur- bata peningapungar gætu viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, mætt með tárin í augunum og sagst vera sorrí. Elsku þjóð, viltu fyrirgefa mér fyrir að hafa komið Íslandi á hausinn? Ég vissi ekki betur. Ég var bara svona gráðug- ur og heimskur. Allt sem ég stóð fyrir er della. Nú skal ég taka mig á. Alveg satt! ÉG spái hrinu afsökunarbeiðna. Þótt Geir sé enn harður af sér er járnkarlinn Árni Mathiesen byrjaður að bogna. „Við þurfum að gæta hófs og virða gömul gildi og gæta þess að fara ekki yfir þau strik sem ofbjóða umhverf- inu. Samskipti við nágranna eiga ekki að vera í formi keppni um hver eigi stærsta garðinn eða stærsta bílinn. Við eigum að leitast við að láta okkur líða vel saman í okkar umhverfi og sýna hvert öðru meiri umhyggju,“ segir Árni í Mogganum eins og hver annar afturhaldskomma titt- ur. Nei, sko! SKÆRASTA stjarna annars frumskógarlögmáls, Annþór Karlsson, kemur líka sterkur til leiks, alveg bullandi sorrí, strok- inn og lítandi út eins og hann ætli að biðja mann um að styrkja Amnesty frekar en að berja mann í klessu. Húrra fyrir því! Auðvitað á að gefa öllum – flest- um – séns. Batnandi mönnum er best að lifa. Svo er bara að vona að menn byrji ekki aftur að hand- rukka þegar þeir sleppa úr stein- inum. Eða verða kosnir aftur á þing. Fyrirgefðu Klikkaður í Cocoa Puffs! ÍS L E N S K A S IA .I S / N A T 3 7 7 1 4 0 5 /2 0 0 7

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.