Fréttablaðið - 19.02.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 19.
febrúar, 50. dagur ársins.
9.09 13.41 18.15
9.01 13.26 17.53
Sorry seems to be the hard-est word, söng Elton John um
árið. Hann hitti í mark því flest-
ir kannast við þetta: Það er bara
svo fjári erfitt að biðjast afsökun-
ar. Sérstaklega ef manni finnst
maður ekki hafa gert neitt rangt.
Hversu mörg pör hafa ekki setið
í þrúgandi þögn yfir sjónvarpinu
eftir að annað lét eitthvað van-
hugsað út úr sér eða gerði ein-
hverja vitleysu sem hitt er hund-
fúlt yfir? Ekkert fær haggað
þannig þögn nema eitt almenni-
legt „fyrirgefðu“. Og hvílíkur
léttir sem það er.
ÞAÐ er ekki í íslenskum þjóð-
arkarakter að biðjast afsökunar.
Meira svona fyrir Kana sem allt-
af eru vælandi. Að þessu komst
Felix Bergsson þegar hann sá um
vonlausan þátt á Skjá einum um
árið, Fyrirgefðu. Þetta var pín-
legt prógramm og fáir þættir. Það
fannst bara ekkert fólk sem vildi
koma og biðjast afsökunar.
NÚ ætti ekki að vera erfitt að
finna fólk í Fyrirgefðu. Stjórn-
málalið, bankakarlar og aftur-
bata peningapungar gætu viku
eftir viku, mánuð eftir mánuð,
mætt með tárin í augunum og
sagst vera sorrí. Elsku þjóð, viltu
fyrirgefa mér fyrir að hafa komið
Íslandi á hausinn? Ég vissi ekki
betur. Ég var bara svona gráðug-
ur og heimskur. Allt sem ég stóð
fyrir er della. Nú skal ég taka mig
á. Alveg satt!
ÉG spái hrinu afsökunarbeiðna.
Þótt Geir sé enn harður af sér
er járnkarlinn Árni Mathiesen
byrjaður að bogna. „Við þurfum
að gæta hófs og virða gömul gildi
og gæta þess að fara ekki yfir
þau strik sem ofbjóða umhverf-
inu. Samskipti við nágranna
eiga ekki að vera í formi keppni
um hver eigi stærsta garðinn
eða stærsta bílinn. Við eigum að
leitast við að láta okkur líða vel
saman í okkar umhverfi og sýna
hvert öðru meiri umhyggju,“
segir Árni í Mogganum eins og
hver annar afturhaldskomma titt-
ur. Nei, sko!
SKÆRASTA stjarna annars
frumskógarlögmáls, Annþór
Karlsson, kemur líka sterkur til
leiks, alveg bullandi sorrí, strok-
inn og lítandi út eins og hann
ætli að biðja mann um að styrkja
Amnesty frekar en að berja
mann í klessu. Húrra fyrir því!
Auðvitað á að gefa öllum – flest-
um – séns. Batnandi mönnum er
best að lifa. Svo er bara að vona
að menn byrji ekki aftur að hand-
rukka þegar þeir sleppa úr stein-
inum. Eða verða kosnir aftur á
þing.
Fyrirgefðu
Klikkaður
í Cocoa Puffs!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
/
N
A
T
3
7
7
1
4
0
5
/2
0
0
7