Tíminn - 30.03.1988, Page 3

Tíminn - 30.03.1988, Page 3
Miðvikudagur 30. mars 1988 Tíminn 3 Allt á suðupunkti hjá Sjónvarpinu: Hótunarbréf, málshöfðun ritskoðanir og tímahrak „Jú, það er því miður rétt að ég fékk áminningarbréf fyrir nokkru frá aðstoðarframkvæmdastjóra Sjónvarpsins, Ingimar Ingimarssyni. Par sagði að ef ég léti ekki af stuðningi við fréttamenn í kjaradeilu þeirra við Sjónvarpið, þá gerðist ég sekur um vanrækslu í starfi sem opinber embættismaður og í fram- haldi af því kæmi brottvikning. Á þeim tíma afhenti ég málið Félagi fréttamanna sem, því miður, er núna í samráði við lögfræðing BHM að undirbúa málarekstur á hendur Sjónvarpinu til að endur- heimta réttindi sín,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri Sjón- varps í samtali við Tímann í gær, en þessa dagana logar allt í illdeilum innan veggja stofnunarinnar og ríkir sannkallað styrjaldarástand á staðnum. Deila um gjaldskrárnefnd „Ég hef fyrir sið að ræða ekki einstök áminningarbréf til starfsm- anna við fjölmiðla. En þessi deila snerist um að gjaldskrárnefnd RÚV taldi ekki að greiðslur fyrir ákveðna þætti, t.d. Kastljós, þyrftu að hækka sjálfkrafa með vísitölu hækkun launa, heldur væri hér um að ræða gjaldskrá sem væri endurskoðuð tvisvar á ári. Fréttastjóri mótmælti þessu og bréf Ingimars snerist unt að það væri fásinna að hann væri að senda greiðslubeiðnir sem sjálfkrafa var síðan breytt hér,“ sagði Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps um þetta atriði. Ingvi Hrafn mun ekki vera sá eini sem fengið hefur áminningarbréf, eða hótunarbréf, eins og starfsfólk Sjónvarpsins kallar þessi bréf, og munu þeir vera fáir eftir sem ekki hafa fengið slíka sendingu. Fréttir kláraðar I útsendingu „Mórallinn er í samræmi við þetta. Við erum nú fimm færri á fréttastof- unni en við vorum í september á síðasta ári. Það er ekki tími fyrir matarhlé eða kaffihlé og það nær enginn að fullvinna fréttirnar. Á meðan á útsendingu stendur erum við að baksa við að klára þær,“ sagði einn fréttamanna Sjónvarpsins í samtali við Tímann. Þannig er t.d. lesið inn á fréttir og þær klipptar til meðan verið er að sýna aðra frétt. „Það eru alger undantekningartil- felli og það er með þetta eins og hverja aðra skipulagningu. Vissu- lega væri betra að hafa fleiri frétta- menn, en eitt af því sem upp kom í sambandi við krappan fjárhags- ramma var að fjöldi starfsmanna var bundinn við ákveðna tölu og það þýðir að fréttastofan verður að haga sínum störfum í samræmi við það,“ sagði Pétur. Fréttir ritskoðaðar Innanhússheimildir Tímans herma að fréttir fréttamannanna séu ritskoðaðar, samkvæmt skipunum að ofan, sérstaklega ef um er að ræða fréttir sem snerta stjórnmál, og er ekki vel séð af yfirmönnum ef reynt er að flytja jákvæðar fréttir af vinstri væng þjóðlífsins og menn jafnvel spurðir um hver tilgangur fréttarinnar sé eiginlega. „Ég er nú ekki rétti maðurinn til að svara þessu, en ef þetta er í gangi, þá er það eitthvað sem ég þekki ekki til,“ sagði Pétur um þetta. Launagreiðslur munu einnig vera í miklum ólestri innan Sjónvarpsins. Þannig voru fréttamenn að fá greidd laun fyrir janúar og febrúar fyrir nokkrum dögum og er viðkvæðið jafnan að ekki séu til peningar. Þá er til að mynda nýbúið að fella niður greiðslur til fréttamanna fyrir frétta- lestur, en 22 ára hefð var fyrir því. Fréttamönnum var ekki tilkynnt um þessar breytingar, heldur fréttist um þær á göngum Sjónvarpsins og ríkir mikil reiði meðal fréttamanna að þannig skyldi hafa verið staðið að niðurskurðinum. Pétur sagðist ekki kannast við þetta mál. Föstu starfsfólki væri alltaf greitt um hver mánaðamót, lausráðnu mánaðamótin á eftir og dagskrárgreiðslur væru greiddar eft- ir hendinni. Ingvi Hrafn fer ekki einn „Ef Ingvi Hrafn verður látinn fara, þá fer hann ekki einn. Það fara með honum fleiri," sagði einn frétta- mannanna. En er Ingvi Hrafn að hætta? „Nei, ekki svo ég viti,“ sagði Ingvi. Heimildir Tímans herma að Ingvi muni ekki hætta sjálfviljugur hjá Sjónvarpinu og því sé beðið eftir að hann geri mistök til að hægt sé að reka hann. Sumt starfsfólk Sjónvarpsins er nú byrjað að huga að eftirmanni Ingva Hrafns og segja heimildir Tímans að allir séu á varðbergi gagnvart öllum, enginn treysti nein- um og eru sumir farnir að gera hosur sínar grænar fyrir þeim sem þeir veðja á sem næsta fréttastjóra. Þeir fréttamenn sem Tíminn ræddi við sögðust óhikað geta skrifað undir viðtal það sem birtist í nýjasta ein- taki Nýs lífs, ef nokkur óheppileg orð væru strikuð út. -SÓL Timamynd Pjetur Skýrsla um skreloarmál komin til ríkisstjórnar: Algert trúnaðarmál Á ríkisstjórnarfundi í gær, lagði Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra, fram skýrslu svo kallaðrar skreiðarnefndar, en það var nefnd sem skipuð var til að fara yfir stöðu mála í skreiðarviðskipt- um. Hvorki Þorsteinn Pálsson né Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra, vildu nokkuð tjá sig um innihald skýrslunnar og bentu á að niðurstöður hennar væru enn algert trúnaðarmál. „Skýrslan hefur verið send til umsagnar í Seðlabankanum. Þcir hafa haft stuttan tíma til að fara yfir hana, og því geri ég ráð fyrir að hún verði aftur rædd í ríkis- stjórninni eftir páska og eftir þann fund verði greint frá innihaldi hennar,'1 sagði Þorsteinn. Aðspurður hvort að skýrslan væri á einhvern hátt sláandi, svar- aði Þorsteinn að hún væri algerlega lyktarlaus. Skýrslan væri yfirgrips- mikil, nákvæm og í alla staði hin bestá. Steingrímur tók undir þessi orð Þorsteins og sagði að þar sent í henni væru upplýsingar viðskipta- legs eðlis, væri ekki hægt að gefa upp efni hennar að svo stöddu. -SÓL Styrjaldarástand ríkir nú innan veggja Sjónvarpsins og viröist ekki langt í aö uppgjör fari fram innan veggja stofnunarinnar. Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri, segist ekki vera að hætta, eftir því sem hann viti best, fréttamenn undirbúa málshöfðun á hendur Sjónvarpinu til að fá leiðréttingu launamála, stjórnmálafréttir eru ritskoðaðar og launin eru greidd ailt að tveimur mánuðum seinna en vera ber.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.