Tíminn - 06.04.1988, Qupperneq 15
Miðvikudagur 6. apríl 1988
Tíminn 15
M1NNING
Þorbjörn Sigurgeirsson
prófessor
Fæddur 19. júní 1917
Dáinn 24. mars 1988
Nú er í garð gengin sú árstíð að
með hverjum degi rís sól hærra á
himni og mildari vindar strjúka um
vanga okkar. Við vörpum öndinni
léttar og senn er veturinn að baki.
Það er svo dásamlegt þegar dagana
lengir og myrkrið flýr í sjó. Gleðin
fyllir hjörtu okkar og þau tifa örlítið
hraðar og ímyndunaraflið svífur á
þöndum vængjum um loftin blá. Við
vitum að blessað vorið, sumarið og
sólin eru á næstu grösum. Það er sú
árstíð sem flestir þrá og unna og þá
ekki síst iífsglaðir athafnamenn upp-
fullir af áhuga á undrum veraldar.
En nú hefur einum sólargeislanum
verið svipt burt úr lífi okkar hinna
sem eftir stöndum. Miðvikudaginn
6. apríl kl. 10.30 verður tengdafaðir
minn Þorbjörn Sigurgeirsson próf-
essor jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju, en hann lést í Landspítalan-
um 24. mars.
Fyrir okkur í Álfalandi 2, er erfitt
að átta sig á því að Þorbjörn afi, eins
og við kölluðum hann ætíð, skuli
vera látinn og komi ekki oftar til að
taka litla Þorbjörn mcð sér í sund.
Andlát hans bar fremur brátt að og
óneitanlega hrærast í brjóstum okk-
ar tilfinningar og minningar sem
erfitt er að lýsa með orðum. Þor-
björn var fjölskyldunni afar mikils
virði og þótti mér mjög vænt um
hann og einmitt þess vegna langar
mig að minnast hans.
1111
þótt Halldór bættist í hópinn.
Heimili þeirra Heiðu stóð okkur
alltaf opið. Á fyrstu hjónabandsár-
um þeirra dvaldi ég langdvölum
erlendis og heimsóknir urðu því ekki
eins tíðar og við hefðum óskað. En
ég á samt minningar um margar
ánægjulegar samverustundir. Ég
minnist sérstaklega einnar fyrstu
heimsóknar minnar til þeirra er ég
var unglingur. Halldór brá þá á glens
og hélt því statt og stöðugt fram að
ég væri svo sem hálfum sentimetra
hærri en ég sagðist vera. Ég er ekki
há í loftinu svo að mig munar um
hvern sentimetrann. Hann tók síðan
fram tommustokkinn og sannaði mál
sitt. Segi ég þessa sögu hér þar sem
hún lýsir vel gamansemi Halldórs og
einnig nákvæmni. Síðastliðið sumar
voru ferðir okkar upp á Akranes
tíðari en oft áður. Einkum minnist
ég þess er við áttum með þeim
ánægjulegan sjómannadag. Halldór
leiddi okkur um byggðasafnið að
Görðum árdegis. Þar var hann á
heimavelli og fræddi okkur um
margt sem þar var að sjá. Síðdegis
nutum við hátíðahaldanna af svölum
húss þeirra, Sólbakka, þaðan sem
útsýnið er svo skemmtilegt yfir höfn-
ina.
Ég veit að Heiða og Halldór og
foreldrar mínir áttu saman margar
ánægjustundir, í Reykjavík, á
Akranesi og á ferðalögum um
landið. Síðasta minning mín um Hall-
dór er frá síðastliðnu hausti. Hann
og Heiða komu suður til þess að vera
með okkur er faðir minn lést. Heiða
lék á orgelið við kistulagninguna og
Halldór söng með sinni styrku rödd
þótt árin væru orðin 76. Skömmu
seinna veiktist hann sjálfur af þeim
sjúkdómi er varð banamein hans.
Við sem eftirerum geymum minn-
inguna um góðan dreng sem ætíð
vildi láta gott af sér leiða. Ég er
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast Halldóri og eiga með honum
margar ánægjulegar stundir. Ég vil
einnig þakka alla elskusemi hans við
fjölskyldu mína, foreldra mína og
systur og mín eigin börn. Heiða
mín, við sendum þér öll okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Pabbi
hefði einnig viljað að við óskuöum þér
til hamingju með að hafa átt slíkan
lífsförunaut.
Sigrún Helgadóttir.
Þorbjörn fæddist hinn 19. júní
1917 að Orrastöðum í Torfalækjar-
hrcppi í Austur-Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans voru þau hjónin
Sigurgeir Björnsson (Björnsi
Eysteinssonar) bónda þar og Torf-
hildar Þorsteinsdóttur. Þorbjörn var
elstur fimm bræðra.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1937
eða fyrir rúmum 50 árum sigldi
Þorbjörn til Kaupmannahafnar, þar
sem hann lauk magisterprofi í eðlis-
fræði frá Hafnarháskóla 1943. Eftir
námsdvöl í Svíþjóð 1943-1945 og
rannsóknardvöl í Bandaríkjunum
1945-1947 kom hann til íslands.
Árið 1948 kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni Þórdísi Aðalbjörgu
Þorvarðardóttur frá Stað í Súganda-
firði og eignuðust þau fimm syni,
sem allir eru uppkomnir. Þeir eru:
Þorgeir verkfræðingur f. 1949, Sig-
urgeir heyrnleysingjakennari f.
1950, Jón Baldur bifreiðaverk-
fræðingur f. 1955, Þorvarður Ingi
vélstjóri f. 1957 og Arinbjörn vcrka-
maður f. 1961.
Starfsferill Þorbjörns á Islandi
hófst með því að hann var ráðinn
framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins árið 1949 og gegndi því
embætti til 1957. Sama ár varð hann
prófessor í eðlisfræði við Verkfræði-
deild Háskóla íslands. Viðfangsefni
hans voru margvísleg. Þórbjörn var
formaður Kjarnfræðanefndar ís-
lands frá stofnun hennar 1956 þar til
nefndin hætti formlegum störfum
um miðjan sjöunda áratuginn. Þá
var Þorbjörn forstöðumaður Eðlis-
fræðistofnunar Háskóla íslands frá
upphafi, árið 1958, til ársins 1966, en
þá fluttist starfsemi hennar í nýtt
húsnæði Raunvísindastofnunar við
Dunhaga. Hann var í forsvari Eðlis-
fræðistofu við RH frá stofnun henn-
ar til ársins 1975. 1. desember 1968
var hann sæmdur Stúdentastjörnu
Háskóla íslands. Árið 1984 lét Þor-
björn af prófessorsembætti cftir far-
sælt starf. Háskóli íslands sýndi
Þorbirni þakklæti sitt og virðingu
með því að sæma hann heiðursnafn-
bót á sjötíu og fimm ára afmæli
skólans árið 1986.
I afmælisritinu f hlutarins eðli,
sem gefið var út til heiðurs Þorbirni
í tilefni sjötugsafmælis hans hinn 19.
júní 1987 segir meðal annars, að
Þorbjörn Sigurgeirsson hafi verið
farsæll og framsýnn maður. Að hann
hafi á sinn hæverska hátt kvatt yngri
menn til dáða og örvað þá í þeirra
eigin starfi. En að Þorbjörn hafi ekki
aðeins unnið stórvirki í uppbyggingu
rannsókna og kennslu, hann hafi
jafnframt ótrauður unnið að hagnýt-
ingu þekkingar á mjög eftirminnileg-
an hátt. Þorbjörn var frumkvöðull
að hraunkælingu við eldgos á
Heimaey árið 1973 og síðan að
hraunhitavinnslu til fjarhitunar.
Þar segir enn fremur að þessi
einstaki vísindamaður hafi þjónað
Háskóla íslands með slíkri atorku,
frumleik og frumkvæði, að hann
verði fyrirmynd þeirra sem í kjölfar-
ið koma. Ég vil nota tækifærið og
þakka öllum þeim sem unnu að
útgáfu afmælisritsins fyrir framlag
þeirra að í hlutarins eðli kom út á
þeim tíma að Þorbjörn gat sjálfur
notið bókarinnar.
Fríð og rík skal foldin Ijóma
fögrum gróðri klœdd.
Pjóðin efld að orku og sóma,
upp við melnað fœdd.
Fram skal sótt með frjálsum höndum,
fram með hug og starf.
Ei að baki öðrum löndum
ísland standa þarf.
(Jón Trausti)
Eftir að Þorbjörn lét af störfum
sem prófessor gat hann sinnt öðrum
hugðarefnum sínum af enn meiri
atorku en áður. Undanfarin 35-40 ár
vann hann mikið að skógrækt. Þær
eru ekki fáar ferðirnar sem
Þorbjörn, Þórdís og bræðurnir og
fjölskyldur þeirra fóru í gróðursetn-
inga ferðir. Fyrst suður í Straums-
hraun en þar hefur fjölskyldan
gróðursett tré alit frá árinu 1950 og
ætíð síðan. Enda er þar yndislcgur
skógarreitur og merkilegur minn-
isvarði um eljusemi Þorbjörns, Þór-
dísarogsona þeirra. Nú njóta barna-
börnin eljusemi afa og ömmu og fá
lifandi „jólatré" úr þeirra eigin
gróðurreit á hverjum jólum. En eftir
að fjölskyldan var búin að fylla
Straumshraunið þ.e. að ekki var
pláss fyrir fleiri plöntur þar, útvegaði
Þorbjörn fjölskyldunni nýtt gróður-
setningarland. Það var austur í
Skarfanesi í Landssveit. Þar hafa nú
verið gróðursettar tugir þúsunda
plantna á þeirra vegum. Ætti það
framtak að vera öðrum landsmönn-
um til hvatningar, um að klæða
landið skógi.
Af kynnum mínum af Þorbirni
skynja ég vel hversu mikill gæfumað-
ur hann var bæði í starfi og í
einkalífi. Allir sem kynntust honum
eiga ákveðnar minningar um hann.
Þegar hugurinn fer yfir farinn veg,
er margs að minnast. Ég gleymi því
aldrci hversu hreykinn og glaður
hann var þegar hann kom í heimsókn
til mín á fæðingardeild Landspítal-
ans, að sjá nýfæddan sonarson sinn
sem var svo tillitssamur við hann afa
sinn að fæðast 19. júní þ.e. á af-
mælisdaginn hans. Enda sagði ég við
Þorbjörn að hann mætti kalla hann
Þorbjörn, þar með var hann búinn
að eignast alnafna. Ég hef aldrei séð
hann vera eins glaðan og þá, það lá
við að hann væri montinn og þá er
mikið sagt um svo hófsaman mann.
Sjálf er ég þakklát fyrir að hafa orðið
þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa eign-
ast Þorbjörn fyrir tcngdaföður.
Hann var mér, Sigurgeiri og Þorbirni
mikils virði og ég vil þakka honum
allan þann hlýhug sem hann sýndi
okkur. Þorbjörn var lifandi dæmi
um það að heiðarlegur maður er
göfugasta verk skaparans.
Kristín .lónsdóttir
Kveöja nágranna
Fátt er eins notalegt og eiga góða
nágranna til beggja handa í götunni.
Það er eins og skjólbelti í mannlíf-
inu, fólk sem maður hittir til spjalls
á góðum stundum, fólk sem veit
hvert af öðru og bregður við til
hjálpar eða hleypur undir bagga
þegar þörf er á, fólk sem gaman er
að heimsækja á gamlárskvöldi og
öðrum tyllidögum og njóta glaðra
hlátra með því.
Á árunum 1950-1960 byggðum
við kofa okkar innarlega á Digranes-
hálsi við Digranesveg einir tíu eða
tuttugu krakkar á ýmsum aldri. Þetta
varð samstæður hópur þar sem hver
rétti öðrum hjálparhönd og naut
gleðistunda saman þegar færi gafst.
Fólk heimsótti hvert annað á góðum
stundum og börn þess léku sér
saman eins og við hin cldri.
Þannig hafa árið liðið. Þorbjörn,
Þórdís og synir þeirra tóku þátt í
leiknum af lífi og sál. En nú er
Þorbjörn látinn, og nágrannarnir
finna vel hvað þeir hafa misst. Hann
fagnar þeim ekki lengur með drengs-
legu gleðibragði á gamlárskvöldi,
kemur ekki framar með broshýrri
vinarhlýju í heimsókn til nágranna.
Við eigum góðs nágranna að sakna
og minni gleði að vænta.
Þorbjörn Sigurgeirsson var
óvenjulegur afbragðsmaður í augum
okkar sem annarra er þekktu hann
vel, og þótt hann væri landskunnur
prófessor og vísindamaður var hann
einn af okkur hérna í gamla genginu,
eins og við segjum, fremstur meðal
jafningja. Þcgar hann kom úr há-
skólanum undir kvöld hérna á árun-
um, var hann fljótlega kominn í
vinnufötin og út að sýsla við garð
eða önnur áhugaverk, eða farinn á
fjöll, orðinn bóndi eða verkamaður.
Eysteinn Björnsson, afi hans á
Réttarhóli, segir einhvers staðar í
sjálfsævisögu sinni, að sér hafi eigin-
lega alltaf liðið illa inni í húsnm Múr
datt það stundum í hug, að líklega
hefði eitthvað af þeim arfi lent hjá
Þorbirni. Og þau voru samrýnd um
þennan útivistarþorsta hjónin. Eitt
sinn er Þórdís kom af sjúkrahúsi bað
hún mann sinn að aka með sig upp
á hciði eða fcll í nágrenni Rcykjavík-
ur svo að hún gæti litast um þaðan
áður cn hún færi hcim. Það þurfti
ekki að biðja Þorbjörn tvisvar um
það.
Skógræktaráhugi Þorbjörns Sig-
urgeirssonar var alla tíð vakandi og
afkastamikill. Hann efndi til mikillar
skógræktar með tveimur frændum
sínum í hrauninu milli Sveifluháls og
Straumsvíkur, og mátti ætla að það
væri viðhlítandi æviverk skógræktar-
manns í hjáverkum. En þegar lokið
var verki jaar réðst hann upp á Land
í Rangárþingi og fckk sér þar skóg-
ræktarland og hófst handa með sonum
sínum.
Heima sinnti hann einnig uppeldi
plantna og gerðist fróður maður um
þá hluti. Hann lagði eitt herbergi í
húsi sínu undir sáðreit fyrir furu eða
grcni. Skógrækt var honum hugsjón
sem átti við landið allt en ekki aðeins
blettinn hans sjálfs. Mér fannst sem
kveðin um hann vísa Guðmundar
skálds Böðvarssonar:
Ég á mér draum um garð sem grœr
og gildir einu hvar hann er,
því hann er í mínu hjarta nœr
en hœðin sem á milli ber.
Nágrannarnir scm nutu návistar
hans hér í gamla hópnum þrjá eða
fjóra áratugi ciga honum mikið að
þakka og við kveðjum hann með
söknuði um leið og við sendum
Þórdísi og sonum þeirra einlægar
samúðarkvcðjur.
Andrés Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
foreldra okkar og tengdaforeldra
Sólveigar Sigurðardóttur
og
Hallgríms Guðmundssonar
Háholti 25, Akranesi
Gunnar
Inga Lóa Hallgrímsdottir
Sigurður H. Hallgrímsson
Guðmundur J. Hallgrímsson
Hallgrímur Þór Hallgrímsson
Jónas B. Hallgrímsson
Pétur S. Hallgrímsson
.. Jónsson
Guðrún Jakobsdóttir
Áslaug Rafnsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Guðný Aðalgeirsdóttir
+
Konan mín og móðir okkar
Eyrún Eiríksdóttir
Suðurgötu 12, Keflavík
er látin.
Sigtryggur Árnason og börn.
+
Faðir okkar
Tryggvi Hjálmarsson
húsgagnasmiður, Heiðarási 1
lést á Borgarspítalanum þann 4. apríl 1988.
Börnin.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á af-
mælis- og eða minningargrein-
um í blaðinu, er bent á, að þær
þurfa að berast a.m.k. tveim
dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.