Tíminn - 06.04.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn
DAGBÓK
Frjáls verslun
Einsöngvaraprófstónleikar
í Norrœna húsinu
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur
tvenna einsöngvaraprófs-tónleika í Nor-
ræna húsinu fimmtudaginn 7. apríl og
föstudaginn 8. apríl.
Fimmtudaginn 7. apríl kl. 20:30 cru
tónleikar Guðnýjar Árnadóttur, mezzó-
sópran. Hún flytur m.a. verk eftir
Schubert, Schumann, Brahms, Straussog
Rossini. Lára Rafnsdóttir leikur með á
píanó.
Föstudaginn 8. apríl kl. 20:30 eru
tónlcikar Mörtu G. Halldórsdóttur,
sópran. Hún flytur verk cftir Pál Isólfs-
son, Fauré, Wolf og Schubert. Anna
Guðný Guðmundsdóttir leikur með á
píanó.
Þessir tónleikar eru fyrri hluti einsöngv-
araprófs Guðnýjar og Mörtu.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Fréttabréf :.y
Öryrkjabandalags íslands ( (
Hársnyrti- og snyrtinámskeiðið
„IN FOCUS 88“
Sunnudaginn 10. april og mánudaginn
11. apríl standa yfir bæði hársnyrti- og
snyrtinámskeið í veitingahúsinu
EVRÓPU. Þar koma fram félagar úr
hópi „SEBASTIAN ARTISTIC
TEAM",- sem hafa ferðast um allan
hcim og sýnt og haft geysilcg áhrif á
tískuna - eins og scgir í fréttatilkynningu
frá umboðsfyrirtæki þeirra á Islandi.
Námskeiðin byrja kl. 14:00 báða dag-
ana og standa til kl. 18:00.
Þeir sem vilja skrá sig á þetta tveggja
daga námskeið geta gert það í síma
91-689977 og 91-689979. Aðgöngumiðar
eru afhentir hjá Kristu í Kringlunni.
við Ingibjörgu Haraldsdóttur rithöfund
og „Konan í karlasamfélagi" er yfirskrift
viötals við Ragnheiði Svcinbjörnsdóttur,
„hagyrðing mcð meiru," eins og scgir í
kynningu í blaðinu.
Þá er Pósturinn á sínum stað og m.a.
rætt þar um framhjáhald. Rissuð og
raupað cr framlag Ragnars Lár í sögum
og teikningum. Smásagan „Morðið á
föstudaginn langa" cr eftir Björn Preger
og grein cr um Michael Douglas lcikara._
Þá cru handavinnu-, tísku- og matar-'
þættir margs konar í blaðinu. Ritstjórar
eru: Þórarinn Jón Magnússon og Bryndís
Kristjánsdóttir.
Frjáls verslun
2. tbl. '88
„Samtíðarmaður" blaðsins að þessu
sinni er Gunnar Helgi Hálfdánarson,
framkvæmdastjóri Fjárfcstingarfélags
lslands. Þá er sagt frá steypuverksmiðj-
unni Ós og Ólafi S. Björnssyni forstjóra
hennar.
Grein er um ráðningarstofur, cn 10-12
slíkar eru starfandi hér á landi nú.
Greinar eru um bækur og fjarskipti.
Þórður Sverrisson, markaðsstjóri Vcrsl-
unarbanka lslands skrifar um nýjustu bók
Tom Peters, sem rekur eigið ráðgjafafyr-
irtæki í Kaliforníu, en í fjarskiptaþættin-
um er sagt frá myndsenditækjum, sem
ryðja sér til rúms hérlcndis.
Rætt er ( blaðinu um tölvuumhverfi og
tölvuvæðingu, einnig um ferðamál og
framboð á sætum í sólarlandaferðir, sem
er ca. 18-20 þúsund sæti í ár. Sagt er frá
nýjum tölvustýrðum trésmíðavélum, sem
nýlega voru teknar ( notkun hjá Tré-
smiðju Þorvaldar Ólafssonar í Keflavfk.
Ritstjórnargrein nefnist: Hlutabréfa-
markað vantar, en ritstjóri og ábyrgðar-
maður er Kjartan Stefánsson.
Brúðuleikhúsið
SÖGUSVUNTAN
Brúðuleikhúsið Sögusvuntan hcfurver-
ið mikið á ferðinni að undanförnu. Verð-
ur nú sami háttur hafður á og áður, - að
ieikhúsiö kemur á staðinn og sýnir í
daglegu umhverfi barnanna. Ef óskað er
cftir er sýnt bæði fyrir og eftir hádegi.
Þeir sem hafa áhuga á að fá „Sögu-
svuntuna" í heimsókn geta skrifað eða
hringt til Hallvcigar Thorlacius, Lauga-
læk 38, 105 Reykjavík. Síminn er 91-
83695.
Nýttlíf
2. tbl. 11. árg.
Á forsíðu þessa blaðs er mynd af Ingva
Hrafni Jónssyni, fréttastjóra Sjónvarps,
og sonum hans. Grímur Bjurnason tók
myndina. Langt viðtal við Ingva Hrafn er
í ritinu og ncfnist „Skítkast og rósir". Þar
er rætt um ýmis vandamál viðvíkjandi
fréttastjórastarfi hans.
„Reyni að vcra ég sjálf" ncfnist viðtal
við Guörúnu Helgadóttur alþingismann.
Sárin sem aldrci gróa er fyrirsögn á
umfjöllun um sorg og sorgarviðbrögð.
Þar cru líka viðtöl við fólk, bæði hjúkrun-
arfólk og syrgjendur.
Flciri viðtöl eru í ritinu: Góð söngrödd
- gjöf frá guði, en þar er rætt við Ounnar
Guöbjörnsson söngvara og Sundið styrkir
sjálfsagann - viðtal við Bryndísi Ólafs-
dóttur sundkonu.
I blaöinu er líka umfjöllun um hljóm-
plötur og músík, tískuþáttur. handa-
vinnuþáttur og köku- og mataruppskrift-
ir.
Ritstjóri er Gullveig Sæmundsdóttir.
FREYR
- 5. tbl. ’88
Skipan leiðbeiningaþjónustu í land-
búnaði nefnist ritstjórnargrein, þar sem
fjallað er um nýútkomna skýrslu. Þá cr
viðtal við Sigurð Jónsson á Kastalabrekku
í Ásahreppi í Rangárvallasýslu um Stétt-
arsambandsfundinn. Brcytt afurðacin-
kunn kúa ncfnist grein eftir Jón Viðar
Jónmundsson nautgriparæktarráðunaut
hjá BÍ.
Greinar eru um refarækt, og heilræði
til kúabænda. Þá cr búnaðarþáttur eftir
Gunnlaug A. Júlíusson: Versnandi hagur
bænda í Evrópubandalaginu.
Margar faggreinar og fréttir cru auk
þess í blaðinu. Útgefendur eru Búnaðar-
félag íslands og Stéttarsamband bænda,
en ritstjórar Matthías Eggertsson og Júlí-
us J. Daníclsson. Á forsíðu blaösins cr
mynd af Borg á Mýrum.
Samúel nr. 118og 119
Tvö blöð hafá okkur borist af tímarit-
inu Samúel. Á forsíðum eru nektarmynd-
ir af fallegum stúlkum og mynd af Arnóri
Diego, Herra Islandi, í sundskýlunni sem
hann kcppti í um titilinn.
Efni blaðanna er svipað og venjulcga.
Viðtöl og léttar fréttir. Myndskreyttar
síðurog sumar í lit,-einkum af skrautleg-
um, fáklæddum píum.
Fyrirsögnin á frásögn í blaði nr. 118 af
kjöri „Herra Islands" á Akureyri cr:
„Hann hefur dýrlegan kropp", og síðan
fylgja myndir til sönnunar því og nokkrar
aðrar myndir frá þessari samkomu. Þá
eru bílaþættir í blöðunum; um Porsche-
bíl og vélsleðaþáttur með mörgum
myndum. Grein er um skuggahliðar New
York borgar, eins og tvær íslenskar
stúlkur hafa kynnst þeim. Viðtal er við
bítilinn Georg Harrison og sagt er frá 100
ára afmæli grammófónsins.
Þarna segir frá Tangókvöldi f Nausti og
eru meðfylgjandi myndir frá samkvæm-
inu, fangafrásaga frá Spáni, grein er um
aðferðir við aftöku sakamanna, þá er
grein um „rúmræfla og sneglu-Sigga" .
Viðtal er við spænska unglinga um Island.
Island - hvað? Er það víntegund?
Smásagan eftir Edmond Can, Stöðugt
undanhald, segir frá flótta ungs manns
undan lögreglunni.
Útgefandi Samúels er Sam-útgáfan og
ritstjóri og ábm. Þórarinn Jón Magnús-
son.
Sveitarstjórnarmál
Ár breytinga ncfnist forystugrein þessa
blaðs. Þá er kynning svcitarfélaga: Reyk-
hólahrcppur hinn nýi og viðtal er við
síöasta oddvita Múlahrcpps, scm samein-
aður hefur vcrið ( Rcykhólahrepp ásamt
flciri hreppum. Greinar eru um stjórn-
sýslu, fræðslumál, svo scm framhaldsnám
í dreifbýli. Sagt er frá Dvalarheimili
aldraðra á Eyrarbakka. Bókasafn Kópa-
vogs cr kynnt og nýtt útlánakcrfi þcss. Þá
er rætt um þjóöarátak í umfcrðaröryggi,
brunavarnir, heilbrigðismál, umhverfis-
mál o.fl.
Margar myndir cru í blaðinu og á
forsíðu er mynd sem Mats Wibe Lund tók
af Rcykhólum.
Ritstjóri er Unnar Stefánsson.
Fréttabréf
öryrkjabandalags íslands
1. tólublað l.árg. 1988
Fyrsta tölublað fyrsta árgangs Frétta-
bréfs Öryrkjahandalags (slands er ný-
komið út. Ábyrgðarmaður er Helgi
Seljan.
Árnþór Helgason, formaður stjórnar
Öryrkjabandalags Islands, fylgir ritinuúr
hlaði með formálsorðum. Þarvekur hann
athygli á þvi. að með fréttabréfi þessu sé
brotið blað í sögu íslenskrar blaðaútgáfu.
því að það vcrður gcfið út bæði prentað,
á hljóðsnældunt fyrir sjónskerta og á
myndbandi fyrir heyrnarlausa.
I blaðinu er sagt frá starfi Ö.B.l. á
síðasta starfsári og grein er um Odd
Ólafsson, fyrrum alþingismanns og yfir-
lækni og núverandi heiðursformanns
Ö.B.Í.
Helgi Seljan skrifar Á léttari nótum -
og þó, en þar er sagt frá starfsfólki
bandalagsins. Ásgerður Ingimarsdóttir
framkvæmdastjóri bandalagsins er kynnt
í greininni Af Ásgerði og önn daganna.
Þá eru margar fréttir af sérsamböndum
innan Ö.B.l. og upplýsingar fyrir félags-
menn.
VIKAN - 9. tbl. >88
Vikan er orðin nærri 70 bls. og prentuð
á glanspappír. Af efni þessa blaðs má
m.a. nefna: Kynningu á afmælishapp-
drætti Vikunnar. Þá er grein um grasa-
lækningar og viðtal við grasalæknana
Arnbjörgu Lindu Jóhannesdóttur og ■
John Smith. Lýst er Lúxemborgarferð,
sem heppnir áskrifendur Vikunnar
hrepptu. Rætt er um fermingargjafir fyrr
á árum. Sagt er frá „frtstælkeppni" í
hárgreiðslu og leiðbeiningar um megrun
á einni viku eru í þessari Viku. Viðtal er
Miðvikudagur 6. apríl 1988
Hérna fer fram kennsla (saumaskap fyrir
holdsveika á Indlandi. Hjálparstarf á
Islandi fyrir holdsveik börn á Indlandi
- undir forustu Þóru Einarsdóttur - stóð
að þessari framkvæmd.
Hjálp frá íslandi
-til holdsveikra á Indlandi
(slenska barnahjálpin fyrir holdsveik
börn á Indlandi hefur staðið að endur-
hæfingarstöð fyrir holdsveika á Indlandi.
Þar fer fram kennsla, m.a. (saumaskap
og er meðfylgjandi mynd frá staðnum.
Með myndinni fylgir bréf frá alþjóð-
lcgri stofnun sem vinnur gegn holdsveiki
í heiminum. Þar segir m.a.:
„ Fyrir hönd stofnunarinnar viljum við
þakka frú Þóru Einarsdóttur, formanni (
íslensk/indverska félaginu, fyrir hjálp
hennar og félagsins við að koma á stofn
þeirri kennslu- og saumastofu sem stofn-
uð var 3. febr. sl. Við þökkum einnig
innilega stuðning félagsins „Islensk
barnahjálp fyrir holdsvcik börn". Þetta
fyrirtæki verður til mikillar hjálpar fyrir
fjölskyldur holdsveiks fólks. Sérhver
sjúklingur sem nýtur hér aðstoðar mun
aldrei gleyma Þóru Einarsdóttur og henn-
ar aðdáunarverðu starfsemi hér og þeir
munu ávallt minnast íslensku barnahjálp-
arinnar fyrir holdsveik börn."
Pennavinur í Nígeríu
Frá Nígeríu hefur borist ágætt bréf, þar
sem fertugur maður óskar eftir pennavini
eða vinkonu á Islandi. Hann segist lesa
mikið og skrifa, predika guðs orð og
syngja sálma. Hann hefur áhuga á heims-
fréttunum og ferðalög eru ofarlega á
blaði hjá honum.
Nafn og heimilisfang:
Mr. Raphael Olajire Egbetunce
co Iwo C.T.C.U. Ltd.
P.O. Box 759,
Iwo
Oyo State,
Nigeria
W/Africa
Bjarmi
2. tbl. 82. árgangur
Sigur er „1 brennidcpli" þessa blaðs.
Þar er um að ræða páskahátíðina og
upprisu Jcsú. Sr. Lárus Halldórsson
skrifar: Höldum lífsins hátíð nú! Krossinn
og ég er fyrirsögn á huglciðingu eftir
ÖnnuJ. Hilmarsdóttur.
Formálsorð cru eftir ritstjórann Gunn-
ar J. Gunnarsson og nefnast Sátt við guð.
Þar hugleiðir hann framtíðina og hvað
hún bcri f skauti sér.
Opnuviðtal er við sr. Stínu Gísladóttur
og er fyrirsögn þess: Send mcð fagnaðar-
crindi, sem er til allra.
Fleiri grcinar, hugleiðingar og fréttir
eru í blaðinu.
ABC - Barna-
og tómstundablað
ABC blaðið cr málgagn Bandalags
íslcnskra skáta á Islandi. I þessu blaði er
margbreytilegt efni. Það cr mikið um
þrautir og föndur, einkanlega páskafönd-
ur. Þá cru sögur og viðtöl, svo sem viðtal
við Hófí um dúkkurnar hennar o.fl.
Einnig er viðtal með myndum við söngv-
arann Stcfán Hilmarsson, sem kcmur til
með að syngja lagið eftir Sverri Stormsker
sem fer í Evrópusöngvakeppnina. Nokkr-
ar smásögur fyrir börn og margir brandar-
ar eru í blaðinu. Ritstjórar eru Margrét
Thorlacius og Benjamín Árnason.
Ásgrímssafn
Ásgrímssafn er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 13:30-16:00.
BILALEIGA
með útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Vera - málgagn
kvenfrelsisbaráttu
I forsíðugrein blaðsins segir bb, að f
þessu blaði sé fjallað um hlutverk karla í
kvenfrelsisbaráttunni, og að umfjöllun
þcssi sé framhald af líkum skrifum í
síðasta tölublaði Veru. Nú eru karlmenn
spurðir álits á könnun þeirri sem um cr
fjallað í síðasta blaði.
Auk þcss er (blaðinu viðtal við Andreu
Gylfadóttur söngkonu, um feril hennar
sem tónlistarkonu og fleira. I blaðinu er
smásaga eftir Stellu Hauksdóttur. grein
um kvennasögu eftir Helgu Sigurjóns-
dóttur, Sam/and/staðan - hugleiðing um
baráttuna eftir Valgerði Bjarnadóttur og
margar aðrar greinar. Þingmál og borg-
armál eiga sinn sess ( blaðinu, svo og
umfjöllun um bækur.
Vcra er gefin út af Kvcnnaframboðinu
og Samtökum um Kvennalista og kemur
út scx sinnum á ári. Aðsetur Veru cr á
Vesturgötu 3 ( Hlaðvarpanum, áskriftar-
síminn er 22188 og tekið er á móti
áskriftum allan sólarhringinn. Vera fæst á
mörgum blaðsölustöðum.
Mynd á forsíðu: Anna Gunnlaugs - úr
myndaröðinni „7 dagar".
LISTASAFN ÍSLANDS
Frá 1. aprfl verður Listasafn íslands
opiö daglcga nema mánudaga kl. 11:00-
17:00.
Leiðsögn um sýninguna „ALDAR-
SPEGILL" er alla sunnudaga kl, 13:30.
Kynning á mynd mánaðarins er á
fimmtudöeum kl. 13:30. Mynd aprflmán-
aðar er ISLANDSLAG eftir Svavar
Guðnason, frá árinu 1944.
Kaffistofa safnsins er opin á sama t(ma.
Aðgangur að safninu er ókeypis.
Ferðastyrkir
Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs ætlar að veita
félagskonum tvo ferðastyrki til Oslóar á
NORDISK FORUM. Einnig einn styrk á
orlofsviku Norræna húsmæðrasambands-
ins á Laugum. Félagskonur leiti nánari
upplýsinga um styrkina hjá stjórninni, en
umsóknarfrestur er til 10. apríl.
Stjórnin