Tíminn - 06.04.1988, Side 20

Tíminn - 06.04.1988, Side 20
Sparisjóösvextir á tékkaigKningB hávaxtakjörum SAMVINNUBANKI fSLANDS HR Auglýsinsadeild hannar auglýsinguna fyrir þig ■111 1 "■ 11 *.... Okeypis þjónusta HRESSA KÆTA Fjórír bensínlausir jeppar norðan Hofsjökuls. Far- þegum bjargað til Hveravalla. Fróðárheiði ófær og tugir bíla sátu fastir í snjónum og urðu farþegar að þiggja aðstoð björgunarsveita og snjóbíls. Maður á vélsleða lést, þegar hann hrapaði fyrir björg í Grjótárdal á Tröllaskaga. Fóru saman á sex vél- sleðum. Bræður höfðust við næturlangt í skafli í Geldingadal. Voru á tveimur vélslcðum. Þeirra leitað á 12 vélsleðum og snjóbíl. Jeppi féll í sprungu og skorðaðist milli brúna á Langjökli. Fjórir jeppar héldu frá Hvera- völlum til bjargar. I Drengur lést, þegar jeppi hrapaöi í sprungu I í Fitjahnúkum a Snæ- felli. AIJs flinm jeppar | í leiðangrinum. Snjó- bfllinn Tanni kom til lv vrgar og þyrla sótti Ifluð og hina slösuðu upp á jökul. Tveir biðu bana og tveir liggja þungt haldnir á Borgarspítala: Slys skyggðu á páska Tvö banaslys skyggðu á hclgi páskavikunnar. Hið fyrra varö um miðjan föstudaginn langa, þegar vélsleðamaður ók fram af klettasnös í Grjótárdal á Trölla- skaga og hlaut af bana. Hann hét Ásgeir Bentsson, var 22ja ára gamall og bjó á Sauðárkróki. Hann lætur eftir sig barnshafandi unnustu. Hann fór við fimmta mann á vélsleðum kunna slóð upp af Grjótárdal, sem er þverdalur á Hjaltadal. bar sem þeir hringsól- uðu í sólskini og logni uröu félagar hans varir við, að Ásgcir hefði orðið viðskila við hópinn. Þeir fundu hann látinn neðan viö klettana eftir ógnarhátt fall. Talið er að hann hafi fengið snjóblindu, eða að móða hafi sest innan á hjálmglerið, og hann ekki séð hvert stefndi. Níu ára drengur lést Níu ára drengur lést í síðara slysinu, sem átti sér stað á laugar- dagskvöld um sjöleytið. Jeppa- bifreið, sem hann var farþegi í, hrapaði ofan í átta metra djúpan og fimmtán metra breiðan gil- skoming í Fitjahnúkum á Snæ- felli. Drcngurinn hét Vilhjálmur Birgisson og bjó í Kópavogi. í bíl með honum voru faðir hans og kunningi föður hans, sem báðir komust lífs af, en liggja nú þungt haldnir á Borgarspítalanum. Þeir eru úr lífshættu. Farið var á fimrn jeppum í þann leiðangur. Ekki var unnt að gera sér grein fyrir djúpu gilinu, fyrr en um seinan, og hrapaði fremsti jcppinn í bílalestinni ofan í það. Snjóbíllinn Tanni var ekki fjarri slysstað og hélt þegar til aðstoðar, þegar kallið barst. Með í för var hjúkrunarkona, en verkjastillandi lyf skorti. Ferða- félagar þeirra, er hröpuðu í skorninginn, náðu þeim upp og var lík drengsins, og hinir slösuöu menn, flutt með Tanna í skála Ferðafélags Fljótdalshéraðs í Snæfelli. Þar var beðiö þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vegna vonskuveðurs tafðist hún og varð að bíða á Hornafirði langt fram eftir nótt. Ekki var fært að sækja hina slösuðu fyrr en árla morguns á sunnudag. Voru þeir fluttir til Egilsstaða, þar sem þeirra biðu flugvélar, sem fluttu þá til Reykjavíkur. Ókeypis tilkynninga- þjónusta Athygli hefur verið vakin á ókeypis tilkynningaþjónustu Sec- uritas. Ferðamenn um öræfi og hálendi geta gefið vaktmönnum hjá Securitas upplýsingar um ferðir sínar og tilkynnt sig þangað um hvaða fjarskiptabúnað sem er, með rcgíulegu millibili. Hjá Securitas fengust þær upplýsingar að umtalsvert fleiri hafi notfært sér þjónustu þeirra um þessa páska en í fyrra. En það væru yfirleitt þeir, sem væru best búnir og vanastir fjallaferðum, sem baktryggðu sig með þessu móti. Þeir, sem þarnast þess mest. hafa ekki samband. Það viðraði víða illa til ferða- laga þessa miklu ferðahelgi. Þeg- ar á skírdag urðu margir að hverfa frá bifreiðum sínum, sem festust á Holtavörðuheiðinni. Öðrum tókst að snúa heim, eftir margra klukkustunda langa bar- áttu við veðuröflin. Sem hendi v»ri veifað varð ófært yfir heið- ina. Jörðin opnaðist undir jeppa Jeppaferð um Langjökul end- aði snarlega, þegar jörðin opnað- ist undir bifreið og skorðaðist milli brúna. Bílstjóri og farþegar forðuðu sér úr bílnum og engan sakaði. Ekki þótti ráðlegt að reyna að draga jeppann úr sprungunni, þar sem hann hékk, því að menn óttuðust að hann hrapaði og drægi með sér aðra bíla í dýpið. Beðiðvar stórvirkari tækja. Á laugardag lenti fólk á ferð um Fróðárheiði í miklum hrakn- ingum, en margir voru illa búnir til ferðar í miklum snjó. Urðu sumir að láta fyrir berast á heið- inni klukkustundum saman og komust hvorki fram né aftur í blindbyl og hríð. Björgunarsveit- ir frá Grundarfirði, Hellissandi og Ólafsvík lögðu á heiðina til hjálpar vandastöddum auk snjó- bíls frá Akranesi. Að auki var fólki á fjórum bensínlitlum jeppum norðan Hofsjökuls hjálpað til Hvera- valla. Ferðalangar norðan Tind- fjallajökuls áttu einnig í erfiðleik- um og nutu aðstoðar við að komast til byggða. Leituðu skjóls í snjóskafli Hrakningasögur fólks á ferða- lagi um páskana eru fleiri en rúmast hér. Að síðustu skal nefnt, að björgunarsveitin Hjálp- in frá Akranesi leitaði tveggja bræðra aðfaranótt páskadags, sem fóru upp af Svínadal á tveim- ur vélsleðum um kl. hálfþrjú á laugardag. Þeir eru 22 og 18 ára gamlir og þekktu gjörla þessar slóðir. Þeirfundust í Geldingadal á Botnsheiði kl. hálfsex um morg- uninn, en þá höfðu 12 vélsleðar og einn snjóbíll verið kallaðir til leitar. Til stóð að kalla á liðsauka. Bræðurnir villtust, þegar hið versta veður skall á svo ekki sá úr augum, og því leituðu þeir skjóls í skafli og gistu þar um nóttina. Þeir voru vel haídnir, en kaldir, þegar hjálpin barst. Þj

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.