Tíminn - 12.04.1988, Side 15
Þriðjudagur 12. apríl 1988
Tíminn 15
Gestur Magnússon
cand. mag.
Þann 31. mars s.l. lést á Landa-
kotsspítala Gestur Magnússon,
cand. mag. í íslenskum fræðum.
Gestur var fæddur að Túngarði í
Fellsstrandarhreppi í Dalasýslu
þann 20. desember 1923. Gestur var
kominn af mikilhæfu mannkosta-
fólki. Foreldrar hans voru hjónin
Björg Magnúsdóttir frá Staðarfelli
og Magnús Jónasson frá Köldukinn.
Þau bjuggu allan sinn búskap að
Túngarði, eða í rúm fjörutíu ár. Þau
Túngarðshjón fóru bæði til fram-
haldsnáms í æsku. Björg var lærð
ljósmóðir og gegndi því starfi í
Fellsstrandarhreppi á fimmta áratug
og fylgdi henni ætíð mikil gifta.
Magnús hafði á æskuárum sínum
mikinn áhuga á að öðlast einhverja
menntun. Þrátt fyrir erfiðan fjárhag
tókst honum að ljúka námi frá
unglingaskóla Sigurðar Þórólfssonar
í Hjarðarholti og eins vetrar náms
naut hann í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri.
Túngarður er ekki stór jörð, en
þrátt fyrir að gæði jarðarinnar væru
takmörkuð tókst þeim að bæta hana
svo að afkoma þeirra var góð. Hvort
sem var innan húss eða utan settu
reglusemi og snyrtimennska svip
sinn á búskap þeirra.
Túngarðshjónunum var það mál
hugleikið að börn þeirra tvö nytu
langskólanáms, svo sem löngun
þeirra sjálfra hafði staðið til. Árið
1938 hófu þau Gestur og systir hans
Soffía nánt í Gagnfræðadeild
Menntaskólans á Akureyri og luku
þau samtímis stúdentsprófi vorið
1944. Soffía starfar nú sem deildar-
stjóri í Hcilbrigðisráðuneytinu.
Eftir stúdentspróf fór Gestur til
náms í Norrænudeild Háskólá
íslands. Þaðan lauk hanncand. mag.
prófi í íslenskum fræðum 1949 og
námskeið í uppeldisfræðum við Há-
skóla íslands tók hann árið 1953.
Árið 1951 gerðist hann kennari og
kenndi samtímis við Gagnfræða-
skóla verknáms og Ármúlaskóla í
Reykjavík til ársins 1978. Á árunum
1958-1969 starfaði hann í Lands-
prófsnefnd miðskóla eða þar til að
störf þeirrar nefndar voru felld
niður. Árið 1978 hætti Gestur
kennslu og gerðist starfsmaður Al-
þingis. Þar vann hann m.a. að útgáfu
Alþingistíðinda. Því starfi gcgndi
hann þar til s.l. sumar, að hann lét
af störfum vegna veikinda sinna,
sern þá voru farin að setja mark sitt
á hann. Gestur var mjög góður
starfsmaður og bar þar margt til.
Hann var vel gefinn og vel menntað-
ur. Hann var afkastamikill og reglu-
samur og samskifti hans við sam-
starfsfólk voru með þeim ágætum að
á betra varð ekki kosið. Háttvís var
hann í allri framkomu, glaðsinna og
mikill húmoristi.
Síðast bar fundum okkar Gests
saman er við vorum báðir gestkom-
andi í Þórshamri, en þá varð mér
Ijóst að heilsu hans hafði hrakað
svo, aö til tíðinda gæti dregið fljót-
lega. Mér er því Ijúft að minnast
þessarar stuttu en ánægjulegu stund-
ar er ég átti þar með honum, ásamt
öðru tólki. Gleði hans þá og hófleg
fyndni var síst minni en okkar hinna.
Svo mikið var þrek hans og jafnvægi
að hann ræddi veikindi sín og horfur
um framgang þeirra við sína nánustu
eins og við hin ræðum dægurmáiin.
Þar sem ég þekkti vel hversu
miklum mannkostum og hæfileikum
Gestur var gæddur, leiddi ég oft
hugann að því Itvers vegna hann
sæktist ekki eftir umfangsmeiri
störfum. Ég vissi einnig til þess að
samstarfsmaður hans, sem gjör-
þekkti störf hans, ætlaði honuni
valdameiri og umfangsmeiri störf.
Meðfædd hlédrægni Gests og sam-
viskusemi réðu því að slíkt heillaði
hann ekki. Það skipti hann mestu
máli að leysa þau verk vel af hendi,
sem hann tók að sér. Það hefði hann
að vísu alltaf gert að mínu mati.
hvert sem starfssviðið hefði verið.
En vegtyllur voru ekki það sem hann
sóttist eftir.
Foreldrar Gests, þau Björg og
Magnús og börn þeirra Soffía og
Gestur, héldu saman heimili að
Drápuhlfð 41, Reykjavík, á meðan
heilsa foreldranna lcyfði. Magnús er
látinn fyrir mörgum árum síðan, en
Björg lést fyrir u.þ.b. þremurárum.
Síðustu árin dvaldist Björg á Hrafn-
istu og veit ég vel að Gestur reyndist
henni mjög vel þann tíma, sem fyrr.
Gestur Magnússon var ókvæntur
og barnlaus. Um nokkurt árabil
f. 27.09.1918
d. 28.03.1988
Mánudaginn 28. rnars s.l. lést á
Landspítalanum föðurbróðir minn
Kristján Guðmundsson, bóndi á
Brekku á lngjaldssandi, eftir erfið
veikindi. Hann var fæddur 27. sept-
ember 1918 og hefði því orðið sjö-
tugur á árinu hefði hann lifað. Mér
finnst Kitti frændi hafa farið frá
okkur allt of snemma, því hann var
ungur í mínum augum og átti svo
mikið til að gefa og miðla öðrum.
Kitti var kvæntur móðursystur
minni, Árelíu Jóhannesdóttur. Það
gefur því auga leið að tengsl og
samgangur milli heimilanna var
mikill. Ekki svo að skilja að skroppið
hafi verið í sunnudagsbíltúr út á
Sand. Nei, hvorugt heimilið hafði
bíl til umráða á þeim tíma. En
afskaplega man ég vel eftir þeim
ferðum sem farnar voru í heimsókn
út á Sand. Þær jöfnuðust á við
heimsreisu nú til dags.
Það var í einni slíkri ferð sem ég
reyndi fyrst hversu traustur og Ijúfur
hann var. Ég veit ekki hve gömul ég
var, varla meira en þriggja til fjög-
urra ára. Ég vaknaði upp um nóttina
og auðvitað skinu engin götuljós inn
um gluggana eins og heima, því
ekkert rafmagn var þar. Ég rak upp
einhver óhljóð, og um leið var Kitti
kominn og tók mig upp. Ég heimtaði
pabba og mömmu, en hann sagði að'
við skyldum bara lofa þeim að sofa.
Ég var nú ekki á því, en ég man enn
þann dag í dag, þegar hann gekk
með mig um gólf og róaði mig.
Sjálfsagt hef ég sofnað í fanginu á
honum.
Já, ég á margar ljúfar og góðar
minningar um hann. Ekki voru þær
sfðri stundirnar, þegar ég fór út á
Sand í fyrsta sumarfríinu mínu, þá
átján ára. Það var í júnílok. Á
kvöldin fórum við í fjallgöngur og
allskonar gönguferðir. Kitti var mik-
ill náttúruunnandi og fagurkeri, að
ég tali ekki nú um tækisfærisræðurn-
ar sem hann flutti, þær voru frábær-
ar.Eitt sinn þegar við vorum komin
hátt upp í fjallið fyrir ofan Brekku-
bæinn, lagðist þoka yfir allan dalinn.
Miðnætursólin skein ofar skýjum.
Kyrrðin og friðurinn minntu á ein-
hvern æðri stað. Aðeins fuglakvakið
heyrðist. Við sátum lengi og nutum
þessarar stundar.
Nú gæti einhver haldið að ég hafi
ein setið að Kitta frænda. Ekki
aldeilis. Þau hjón eignuðust tólf
börn. Tvö misstu þau ung. Börnin
þeirra eru: Eygló f. 1946, Guðrún
Jóna f. 1949, Elísabet Alda f. 1951,
Guðnýf. 1952, Guðmundur f. 1954,
Jóhannes f. 1955, Kristján Sigurður
f. 1957, Finnbogi f. 1958, Helga
Dóraf. 1960ogHallaSignýf. 1964.
Kitti var börnunum sínum góður
faðir, það sýndi sig á margan hátt,
enda sóttu börnin heim í öllum
fríum sínum. Engan félagsskap kusu
þau frekar en foreldra sína. Það er
heldur ekkert skrýtið. Þarna var
spilað, sungið, dansað og farið í
útileiki á nóttunni þegar bjart var að
gömlum sið. Bæði hjónin sungu vel
og Adda frænka jafnvel efni í óperu-
söngkonu. Og auðvitað kunnu þau
kynstrin öll af textum, gömium og
góðum, sem þau kenndu börnunum
sínum. Einu sinni sýndi Kitti ásamt
Elísabet dóttur sinni og fleirum
vikivakadansa á árshátíð Ingjalds-
sandsfélagsins.
Þau ciga dýrmætan fjársjóð minn-
inga um pabba sinn, Brekkubörnin.
Þau launuðu hann líka vel börnin,
þegar á reyndi. í þrjá mánuði stóðu
þau við sjúkrabeð hans með mömmu
sinni, sem ekki lét sig vanta einn
einasta dag á sjúkrahúsið. Tvisvar
sinnum fóru þau öll upp á sjúkrahús
með gítar og sátu hjá honum og
spiluðu og sungu. í seinna skiptið
aðeins nokkrum dögum fyrir andlát
hans.
Kitti var jarðaður á Ingjaldssandi 5.
apríl. Við jarðarförina sáu börnin
hans um sönginn ásamt móður sinni,
og ein dóttirinn, Elísabet spilaði á
gítar. Ég er viss um að slíkt er
einsdæmi. Þau sungu fallegu ljóðin
sem þau höfðu svo oft sungið sér-
staklega fyrir hann, af því að honum
þóttu þau svo falleg. Þau sungu
„Heimþrá" Jóhannesar úr Kötlum,
og „Þú gafst mér vængi" eftir æsku-
vin Kitta, Jón I. Bjarnason. Kristján
sonur hans söng einsöng, sálminn
„Fyrirbæn". Þetta var falleg kveðju-
stund.
Ég sendi frænku minni, börnum
og öllu skyldliði, innilegar samúðar-
kveðjur. Kitta frænda kveð ég með
söknuði.
Blessuð sé minning hans.
Guðrún Helea Jónsdóttir
hefur hann átt góða vinkonu, Gyðu
Guðmundsdóttir, sem búsett er hér
í borginni. Hún er ekkja, en á eina
uppkomna dóttur. Þau áttu ýntis
sameiginleg áhugamál, svo scm
fjallafcrðir í Þórsmörk og á fleiri
staði. Gyða reyndist Gesti mjög vel
í veikindum hans og það var honum
mikils virði.
Við hjónin minnumst kynna okkar
af Gesti með miklu þakklæti og
vottum aðstandendum ínnilega
samúð.
Halldór E. Sigurðssun
Fyrir tíu árum hóf Gestur Magn-
ússon að starfa hjá Alþingi við
útgáfu Alþingistíðinda. Hann hafði
þá unnið við kennslu í 27 ár og ntun
hafa leitað eftir léttara og áhyggju-
minna starfi af heilsufarsástæðum.
Skólakennsla er öðrum þræði upp-
eldisstarf og uppeldisstörf valda oft
samviskusömum manni ærnum
áhyggjum.
Gestur var ákjósanlegur ntaöur í
hið nýja starf, öruggur maður við
prófarkalestur og nákvæmnisverk
eins og að setja saman registur.
Við voruni ekki beinlínis sam-
starfsmenn en góðir málvinir urðum
við. í fjögur ár áttum við samveru-
stund flesta virka daga að morgni
áður en dagsvcrk var hafið. Og það
voru góðar stundir.
Gestur var dagfarsprúður og vel
að sér um marga hluti. Dómgreind
hans og smekkvísi mátti treysta og
því var ómetanlegt að heyra álit
hans. Hann var ágæta vel skemmti-
legur í viðræðum, hafði næmt kímni-
skyn og góðlátlega glettni. Alltaf
léttur og hlýr á sinn hógværa, hæg-
láta hátt.
Það er dýrmæt gjöf að njóta
návistar slíks manns. Ekki cr það
síst mikilsvert þegar að höndum ber
mótlæti og hugraun utan daglegra
skyldustarfa svo sem ol't vill verða.
Vænti ég að ég rnæli fyrir munn
samstarfsmanna Gests almennt þeg-
ar ég vík að þessari hlið samverunn-
ar. Það cr eins og návist slíkra
manna fylgi hulinn kraftursem hugg-
ar og græðir.
Minnisstæðar verða mér síðustu
stundirnar sem ég var mcð Gesti og
talaði við hann. Hann var þá sjúkur
maður, mjög af honum dregið,
þrótturinn lítill og honum Ijóst að
engin ráð voru kunn gcgn sjúkdómi
hans. Samt var hann léttur í máli að
vanda, hugsunin skýr og kímnin og
glcttnin líkt ogáður. Örlögum sínum
tók hann af æðruleysi og jafnaðar-
geði að því er séð varð.
Gestur Magnússon er kvaddur
með söknuði og eftirsjá. Samveru-
stundanna er minnst með gleði og
frá þeim stafar birtu og hlýju. Til
hans verður nú ekki leitað ráða cða
leiðbeininga. En skylt er að mcta og
muna það sem af honum mátti læra
og þá ekki síst það sem sncrtir
mannlega hegðun og heýrir undir
siðfræði.
11.Kr.
VOR ’88
G/obusa
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
GUFFEN dreifarinn frá Kverneland
hefur svo sannarlega fengið góðar
viðtökur hjá íslenskum bændum.
Hann er sterkur, en léttbyggður og
hentar á þunna og þykka mykju.
Fáanlegur í stærðunum
2.600 1 - 6.500 1.
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær hf., Andakílshr. S. 93-51252
Ólafur Guðmundsson
Hrossholti Engjahr. Hnapp. S. 93-56622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-41191
Guðbjartur Björgvinsson
Kvennaholl, Fellsstrandarhr. Dal. S.
41475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-4198
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
93-
Bílav. Pardus. Hofsósi S. 95-6380
Bilav. Dalvíkur, Dalvík S. 96-61122
Dragi, Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. S. 97-81540
Vikurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson
Stóra-Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts, Iðu S. 99-6840
-JÉT'
+
Konan mín
Svanborg Þ. Ásmundsdóttir
verður jarðsett frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Ólafur Ketilsson