Tíminn - 12.04.1988, Qupperneq 16

Tíminn - 12.04.1988, Qupperneq 16
16 Tíminn ■ -r.---;—-- FlnH(gvt*irf "" ~ - — -— — í umræðunni Hádegisverðarfundur verður á Gauki á Stöng þriðjudaginn 12. apríl frákl. 12 til 13. Gestur fundarins: Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri. S.U.F., F.U.F. SUFarar!! Tímamótafundur miðvikudaginn 13. apríl n.k. kl. 20 Norðurlandasamstarf: Tímaeyðsla og peningasóu Gissur Pétursson, formaður SUF, fjallar um Norð og baktjaldamakkið þar. Utanríkismálanefnd SUF 30 að Nóatúni 21 n? urlandaráðsþing ð Siglfirðingar Fundur verður haldinn miðvikudaginn 13. apríl að Aðalgötu 14 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kjördæmismál. 3. Miðstjórnarfundur. 4. Önnur mál. Stjórnin Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur fimmtudaginn 14. apríl kl. 20.30 að Nóatúni 21. Dagskrá: Margrét ívarsdóttir, starfsmaður LFK, segir fréttir af störfum LFK og Nordisk Forum. Sigríður Ingimarsdóttir ritstjóri segir frá Norrænu sumarorlofi að Laugum í Þingeyjarsýslu í júní. Mætið vel. Stjórnin Rabbfundir LFK í kjördæmum Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum í kjördæmunum í samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem hér segir: Vesturland, Hvanneyri fimmtudaginn 14. apríl kl. 9 Borgames, föstudaginn 15. apríl Vestfirðir, Önundarfjörður, Dýrafjörður, Flateyri og Þingeyri helgin 15.-17. april. Allar velkomnar. Framsóknarvist 3ja kvölda spilavist hefst í íþróttahúsinu við Strandgötu, Hafnarfirði, þann 14. apríl kl. 8.30. 36 spil, úrval góðra vinninga. Mætum öll. Framsóknarfélögin Hafnarfirði Selfoss - félagsfundur Framsóknarfélag Selfoss boðartil félagsfundar þriðjudaginn 26. apríl n.k. að Eyrarvegi 15, og hefst hann kl. 20.30. Dagskrá: Staða bæjarmála. Framsögur. Fyrirspurnir og almennar umræður. Kökur og kaffi. Mætum öll. Stjórnin Þriðjudagur 12. apríl 1988 DAGBÓK Félag eldri borgara Opið hús að Goðheimum, Sigtúni 3, í dag, þriðjudag. Kl. 14:00 - félagsvist, kl. 17:00 - söngæfing og kl. 19:30 - bridge. Migrenesamtökin halda aðalfund Aðalfundur Migrenesamtakanna verð- ur haldinn í Gerðubergi þriðjudaginn 12. aprílkl. 8:30. Venjulegaðalfundarstörf. Brynhildur Briem næringarfræðingur tal- ar um mataræði og svarar spurningum. Flautuleikari á einleikaraprófstónleikum Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur einleikaraprófstónleika í Norræna húsinu í kvöld, þriðjud. 12. apríl kl. 20:30. Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari flyt- ur verk eftir Couperin, Messiaen, Fauré, Kennan og Profkofieff. David Knowles leikur með á píanó og Elín Guðmunds- dóttir á sembal. Tónleikar þessir eru fyrri hluti einleik- araprófs Hallfríðar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Sinfóníuhljómsveit íslands: Don Quixote túlkaður í sellóeinleik Á næstu reglulegu tónleikum Sinfónfu- hljómsveitar íslands í Háskólabíói, fimmtudaginn 14. apríl kl. 20:30 verða flutt þrjú verk; Haustspil eftir Leif Þórar- insson, Sinfónía nr. 7 eftir Beethoven og Don Quixote eftir Richard Strauss. Stjórnandi verður Bandaríkjamaðurinn Gilbert Levine og einleikari ísraelinn Mischa Maisky. Stjórnandinn á tónleikunum, Gilbert Levine, hefur áður stjórnað á tónlcikum Sinfóníuhljómsveitarinnar hér og á Lista- hátíð. Ferill hans hófst fyrir alvöru 1975, þegar hann vann alþjóðlegu Karajan keppnina, eftir frábæran námsárangur í Bandaríkj- unum. Síðan hefur hann stjórnað fjöl- mörgum hljómsveitum vestan hafs og austan. Sellóleikarinn Mischa Maisky er fertug- ur, fæddist í Sovétríkjunum og vann þar til verðlauna fyrir sellóleik meðan hann var enn við nám, m.a. vann hann í alþjóðlegu Tchaikovsky keppninni í Moskvu. Hann var um tíma nemandi Rostropovich. 1973 fluttist hann til ísrael og vann skömmu síðar alþjóðlegu Cass- ado sellókeppnina á Ítalíu. Hann kom fyrst fram í Bandaríkjunum stuttu síðar með Sinfóníuhljómsveitinni í Pittsburgh og hefur síðan leikið með mörgum þekkt- um hljómsveitum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi. Mischa Maisky lcikur einleik í vcrkinu Don Quixote eftir Richard Strauss. BILALEIGA meö útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendi$ interRent Bíialeiga Akureyrar Rannsóknastofnun uppeldismála: Baldur Kristjánsson sálfræðingur flytur erindi í dag, þriðjudaginn 12. apríl flytur Baldur Kristjánsson sálfræðingur fyrir- lestur á vegum Rannsóknastofnunar upp- eldismála er nefnist: Kynning á rannsókn um barnæsku og samfélagsbreytingar. Fyrirlesturinn verður haldinn í Kenn- araskólahúsinu við Laufásveg og hefst kl. 16:30. Öllum heimill aðgangur. Myndakvöld F.í. í Risinu Á morgun, miðvikudaginn 13. apríl kl. 20:30, heldur Ferðafélag fslands mynda- kvöld í Risinu, Hverfisgötu 105. Á dagskrá verða myndir frá stöðum víðs vegar um landið, sem hægt verður að kynnast í sumarleyfisferðum F.f. á kom- andi sumri. Sýndar verða myndir frá Lónsöræfum, Þórisdal í Lóni, Ströndum, Mývatnssveit og Mývatnsöræfum o.fl. stöðum. M.a. segir Vilhelm Andersen frá „Ferð um Bárðargötu“ og sýnir myndir frá þeim slóðum. Allir velkomnir, félagar og aðrir. (aðg. 100 kr.) Veitingar í hléi. Ferðafélag fslands Aðalfundur Kvenfélaga- sambands Kópavogs 21. aðalfundur Kvenfélagasambands Kópavogs verður haldinn að Hamraborg 5 í Kópavogi í sal Framsóknarfélaganna, laugardaginn 16. apríl og hefst hann kl. 09:30 (f. hádegi). Opinn fundur hefst svo kl. 14:00. Anna Lea Björnsdóttir flytur erindi, sem hún nefnir „f formi ævilangt". Öllum er heimill aðgangur að opna fundinum og er fólk hvatt til að mæta. Stjóm Háskólatónleikar: Gunnar Kvaran sellóleikari - leikur svítu eftir Bach Á síðustu Háskólatónleikum vetrarins, sem haldnir verða í Norræna húsinu miðvikudaginn 13. apríl kl. 12:30-13:00, flytur Gunnar Kvaran sellóleikari svítu no 5 í c-moll fyrir einleiksselló eftir J.S. Bach. Gunnar Kvaran sellóleikari hlaut tón- listarmenntun sína hér á landi hjá Heinz Edelstein og Einari Vigfússyni. Hann lauk síðan einleikaraprófi frá Tónlistar- háskólanum í Kaupmannahöfn þar sem kennari hans var Erling Blöndal Bengtsson. Á árunum 1968-1974 var hann aðstoðarkennari Erlings. Gunnar hefur leikið í tólf löndum sem einleikari og í kammertónlist. Hann starfar sem kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og við Tónlistarskólann í Garðabæ. Framhaldsnám stundaði Gunnar við Tónlistarháskólann í Basel hjá Reine Flaschot. Bach samdi svítur sínar fyrir einleiks- selló, sex að tölu, í kringum 1720. ÚTVARP/SJÓNVARP Þriðjudagur 12. apríl 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Heimir Steinsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Ragnheiði Ástu Péturs- dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.03 Morgunstund barnanna: „Lárus, Lilja, ég og þú“ eftir Þóri S. Guðbergsson. Höfundur les (7) 9.30 Dagmál Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur Umsjón: Pórarinn Stefánsson (Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti). 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. Tónlist. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist. i 13.05 í dagsins önn - Framhaldsskólar Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. (Einnig útvarpað nk. þriðjudagskvöld kl. 20.40). 13.35 Miðdegissagan: „Fagurtmannlíf", úrævi- sögu Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les (12). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Djassþáttur Umsjón: Jón Múli Árnason. (Endurtekinn þáttur frá miðvikudagskvöldi). 15.00 Fréttir. 15.03 Þingfréttir 15.20 Landpósturinn - Frá Vesturlandi Umsjón: Ásþór Ragnarsson. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi a. „Dardanus", svíta fyrir hljómsveit eftir Jean-Philippe Rameau. Hljóm- sveit átjándu aldarinnar leikur; Franz Brúggen leikur. b. Danstónlist frá endurreisnartíma. Ul- samer Collegium hópurinn flytur; Konrad Rag- ossnig stjórnar og leikur einleik á lútu. c. Hirðsöngvar frá seinni hluta fimmtándu aldar. Kórinn „Gotnesku raddirnar" syngur; Christo- pher Page stjórnar. 18.00 Fréttir. 18.03 Torgið - Byggðamál Umsjón: Þórir Jökull Þorsteinsson. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.35 Glugginn-Leikhús. Umsjón: ÞorgeirÓlafs- son. 20.00 Kirkjutónlist Trausti Þór Sverrisson kynnir. 20.40 Hvað segir læknirinn? Umsjón: Lilja Guö- mundsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi úr þáttaröðinni „I dagsins önn"). 21.10 FRÆÐSLUVARP: Þáttur Kennaraháskóla íslands um íslenskt mál og bókmenntir. Þriðji þáttur af sjö: Islenskur framburður. Umsjón: Indriði Gíslason. 21.30Útvarpssagan: „Móðir snillingsins“ eftir Ólöfu frá Hlöðum Guðrún Þ. Stephensen les (3). 22.00 Fréttir . Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Leikrit: „Sigur læknislistarinnar“ eftir Jules Romains Þýðandi: örn Ólafsson. Leik- stjóri: Benedikt Árnason. Leikendur: Sigurður Skúlason, Rúrik Haraldsson, Herdís Þorvalds- dóttir, Þórhallur Sigurðsson, Árni Tryggvason, Pálmi Gestsson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Jón Gunnarsson, Mar- grét Guðmundsdóttir, Aðalsteinn Bergdal, Ása Hlín Svavarsdóttir, Þórarinn Eyfjörð og Ellert Ingimundarson. (Endurtekið frá laugardegi). 24.10 Fréttir 24.15 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson (Endurtekinn þáttur frá morgni). 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00 og9.00. Veðurfregnirkl. 8.15. Leiðarardagblað- anna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Fregnir af veðri, umferð og færð og litið í blöðin. Viðtöl og pistlar utan af landi og frá útlöndum og morgun- tónlist við allra hæfi. 10.05 Miðmorgunssyrpa M.a. verða leikin þrjú uppáhaldslög eins eða fleiri hlustenda sem sent hafa Miðmorgunssyrpu póstkort með nöfnum laganna. Umsjón: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar 12.12 Á hádegi Dagskrá Dægurmáladeildar og hlustendaþjónusta kynnt. Sími hlustendaþjón- ustunnar er 693661. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Á miili mála Umsjón: Rósa Guðný Þórsdótt- ir. 16.03 Dagskrá Flutt skýrsla dagsins um stjórnmál, menningu og listir og það sem landsmenn hafa fyrir stafni. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Bláar nótur Djass og blús. 23.00 Af fingrum fram - Snorri Már Skúlason. 24.15 Vökudraumar 01.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúf- lingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnk frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,15.00, 16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.10. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands Þriðjudagur 12. apríl 17.50 Rltmálsfréttlr 18.00 Bangsl besta sklnn (The Adventures ol Teddy Ruxpin) Breskur teiknimyndaflokkur um Bangsa og vini hans. Sögumaður Órn Árnason. Þýðandi. Þrándur Thoroddsen. 18.25 Háskaslóðlr (Danger Bay) Kanadískur myndaflokkur fyrir börn og ungl- inga. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir. 19.00 Poppkom. Endursýndur þáttur frá 6. apríl sl. Umsjón: Jón Ólafsson. Samsetning: Jón Egill Bergþórsson. 19.30 Matarlyst - Alþjóða matreiðslubókin. Klnaréttir: Lamb á mongólska vlsu, græn- metissúpa og fiskréttur. Umsjónarmaður Sig- mar B. Hauksson. 19.50 Landlð þltt - Island. Endursýndur þáttur frá 9. apríl sl. 20.00 Fréttlr og veður 20.30 Auglýslngar og dagskrá. 20.35 ðldln kennd við Ameríku - Þriðjl þáttur (American Century) Kanadískur myndaflokkur I sex þáttum. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. Þulur ásamt honum er Þuríður Magnúsdóttir. 21.30 Vatnallf I vanda (Vannet som drukner) Þáttur frá norska sjónvarpinu um Hellsjövatn, skamml frá Osló. Mikil gróðursæld er umhverfis vatnið og fjölskrúðugt fuglalif. Vatnið og um- hverfi þess er friðað sem þó dugar ekki til. (Nordvision - Norska sjónvarpið) 22.00 Helmsveldl h/f (Empire, Inc.)— Fyrsti þáttur - Glópagjald. Nýr, kanadiskur myndaflokkur í sex þáttum. Leikstjórar: Denys Arcand og Douglas Jackson. Aðalhlutverk Kenneth Welsh, Martha Henry, Jennif er Dale, Joseph Ziegler og Peter Dvorsty. Myndin fjallar um athafnamann sem svlfst einskis þegar auður og völd eru annarsvegar. Fylgst er með honum og fjölskyldu hanns frá árinu 1929 til 1960, en á þeim tíma tekst honum að byggja upp voldugt fyrirtæki Þýðandi Oskar Ingimarsson. 22.50 Útvarpsfréttir i dagskrárlok

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.