Tíminn - 07.05.1988, Side 2

Tíminn - 07.05.1988, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 7. maí 1988 Kaþólskur maöur vill aö ríki endurgreiði sér skatt, sem runnið hefur til þjóökirkju: Kirkjan til Strassborg tapist málið fyrir dómi „Um er að ræða greiðslur til þjóðkirkju, til presta, prófasta, söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og aðrar greiðslur, sem upp eru taldar í fjárlagabálki hvers árs og eru greiddar úr sameiginlegum og óskiptum sjóðum landsmanna einu trúfélagi til framdráttar, en utan- þjóðkirkjumenn fá ekki eyri, en verða hins vegar með opinberum gjöldum sínum að taka þátt í fjár- mögnun þjóðkirkjunnar," segir Þór- ir Gunnar Ingvarsson um bæjar- þingsmál, sem hann rekur gegn fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og kirkjumálaráðherra til réttargæslu. Þórir flytur mál sitt sjálfur, - hann segir málið „of hjartfólgið" sér „til að vilja leyfa öðrum að annast það“ - en munnlegur málflutningur fer fram í borgardómi á miðvikudag. „Taka skal fram, að málið er ekki höfðað gegn innheimtu sóknar- gjalda. Þau renna til einstakra kirkna og eru þessu máli óviðkom- andi,“ segir hann. Þórir telur, að með greiðslum þessum til þjóðkirkjunnar, sé brotið í bága við 64. grein stjórnarskrárinn- ar, þó einkum aðra málsgrein hennar, sem hann vitnar sérstaklega til. Sextugasta og fjórða greinin hljóðar svo: „Enginn má neins missa af borgaralegum og þjóðlegum rétt- indum fyrir sakir trúarbragða sinna, né heldur má nokkur fyrir þá sök skorast undan almennri félags- skyldu. Enginn er skyldur til að inna af hendi persónuleg gjöld til neinnar annarrar guðsdýrkunar en þeirrar, er hann sjálfur aðhyllist. Nú er maður utan þjóðkirkjunnar, og geldur hann þá til Háskóla íslands, eða einhvers styrktarsjóðs við þann skóla, eftir því sem á verður kveðið, gjöld þau, er honum ella hefði borið að greiða til þjóð- kirkjunnar, enda heyri hann ekki til öðrum trúarbragðaflokki, er viður- kenndur sé í landinu." Þórir er sjálfur kaþólskur. Hann telur að ekki sé hægt að réttlæta fyrirkomulagið með tilvitnun til 62. greinar stjórnarskrárinnar, þar sem sagt er að hin evangelíska-lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja og skuli ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. „Ríkið getur stutt þjóð- kirkjuna og verndað með öðrum hætti, en að mokapeningum íhana,“ segir Þórir. „Það stenst ekki, að skattleggja aðra söfnuði vegna þjóð- kirkjunnar. Á meðan svo er, tel ég ekki að fullt trúarbragðafrelsi sé í landinu. Ég byrjaði á því um vorið 1985, að hafa samband við stjórnvöld, sem vildu ekkert eiga við málið. Ég talaði bæði við lúterska biskupinn og dómprófastinn, sem vildu ekki hlusta á þetta. Þess vegna fór ég í mál. Ég var búinn að leita sátta og hef boðið þær allan tímann, á meðan á málarekstrinum hefur staðið. Ólafur heitinn Jóhannesson segir í Stjórnskipun íslands að samkvæmt fyrstu málsgrein 64. gr. stjórnar- skrárinnar sé bannað að mismuna mönnum vegna trúarbragða. Þetta hlýtur að teljast mismunun og þar að auki brot á mannréttindasáttmála Evrópuþjóðanna. Tapi ég málinu í báðum dómstigum hér er það fyrir- fram ákveðið að fara með það fyrir mannréttindanefndina í Strass- borg.“ Þórir krefst kr. 5.864,00 endur- greiðslu á hluta af persónulegum gjöldum, sem hann hefur innt af hendi til þjóðkirkjunnar sl. 4 ár og málskostnað sér að skaðlausu. Guðrún Margrét Árnadóttir, Iög- maður við embætti ríkislögmanns, er verjandi. Hún vildi ekkert um málið segja að svo stöddu. Dómari verður Allan V. Magnússon. þj Fullursaluraf fallegum bílum. — Verið velkomin í sýningarsal okkar að Rauðagerði. Alltaf heitt á könnunni. Einnig sýnum við, um helgar á sama tíma, í nýja sýningarsalnum hjá BSV. að Óseyri 5, Akureyri. Ingvar | Helgason hf. m Sýningarsalurinn, Rauðagerði Sími: 91 -3 35 60 Jón Kristjánsson, forseti neðri deildar Alþingis: Númera- spjöldin verst af- greiðslu Senn fer að hilla undir þinglok og er búist við að það geti jafnvel orðið á þriðjudaginn. Tíminn ræddi við annan deildarforseta Alþingis um framgang mála í þeirri deild. Jón Kristjánsson, forseti neðri deildar, sagði að líklega yrðu mestu átökin um frumvarp að umferðarlögum. Það mál hefur verið afgreidd frá efri deild og í fyrradag lauk fyrstu um- ræðu seint um kvöldið. Var mikill ágreiningur strax áberandi og er Páll Pétursson einn helsti andmælandi þess í neðri deild. Umferðarlögin eru nú í nefnd og bjóst Jón forseti ekki við að það kæmi til endanlegrar afgreiðslu fyrr en á síðustu dögum þingsins eftir helgi. Þó að hér sé á ferðinni stjórnar- frumvarp, var Halldór Blöndal á móti því í efri deild líkt og Páll er orðinn í neðri deild. Það verður því að kallast nokkuð þverpólitískt mál. Er einkum skipst á skoðunum um þau ákvæði er fela í sér grundvallar- breytingar á rekstri Bifreiðaeftirlits ríkisins og breyttu formi númera- spjalda bifreiða og skráningarhátta. Ágreiningur hefur orðið það mik- ill að dómsmálaráðherra er farinn að tala um að setja reglugerð er heimil- ar mönnum að kaupa sér ákveðin bílnúmer eða sérkenni sveitar sinnar. Önnur mál sem greinilega ætla að verða að miklu ágreiningsefni er frumvarpið um virðisaukaskattinn. Það er nú í nefnd sem tekur að minnsta kosti alla helgina til að kanna það mál. Ekki bjóst Jón Kristjánsson, forseti neðri deildar, við því að fjárhags- og viðskipta- nefnd skilaði af sér virðisaukanum fyrr en á síðasta degi þingsins. Þetta frumvarp væri það viðamikið að ekki væri stætt á öðru en að fjalla mjög ítarlega um það í nefndinni. Þriðja stóra ágreiningsefni í neðri deild er að sögn Jóns, stjórnarfrum- varpið um viðskiptabanka. Er fullv- íst talið að það frumvarp verið ekki að lögum á þessu þingi, en Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hef- ur lagt á það mikla áherslu að það komist a.m.k. frá nefndarumfjöllun neðri deild. Það var til fyrstu um- ræðu á fimmtudag og á eftir að fara til efri deildar, svo ekki er tæknilegur möguleiki á að hægt verði að Ijúka endanlegri afreiðslu þess núna. Mikill fjöldi frumvarpa annarligg- ur nú fyrir og bíður afgreiðslu. Þegar Jón Kristjánsson var spurður um afdrif þessara frumvarpa, sagðist hann halda að fjöldinn segði ekki allt. „Flest þessara frumvarpa eru þess eðlis að þau eru ekki veruleg ágreiningsefni og því fljótafgreidd." KB

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.