Tíminn - 07.05.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 7. maí 1988
Eyðsluhlaup Reykjavíkurborgar formlega hafið með ákvörðun meirihluta borgarstjórnar:
Vetrargarður byggður
fyrir hitaveitugjöld
Það má segja að borgarstjórn hafi
á fundi sínum á fimmtudagskvöld
skotið af startbyssunni í eyðslu-
hlaupi því sem sjálfstæðismenn
höfðu boðað í fjárhagsáætlun borg-
arinnar fyrir þetta ár, en byggingar-
leyfi fyrir ráðhús og fyrir veitingahús
á Öskjuhlíð voru staðfest á fundin-
um. Ráðhúsið verður borgað beint
úr borgarsjóði en veitingahúsið á
Öskjuhlíð verður borgað með hita-
veitugjöldum Reykvíkinga því Hita-
veita Reykjavíkur fjármagnar þá
byggingu. Gert er ráð fyrir að til
þessara framkvæmda fari 1500 millj-
ónir á næstu þremur árum, þar af
tæplega 300 milljónir á þessu ári.
Þó formleg byggingarleyfi hafi
ekki verið endanlega afgreidd fyrr
en á fimmtudagskvöld, þá höfðu
bæði Reykjavíkurborg og Hitaveit-
an þjófstartað í framkvæmdum
sínum. Þurfti félagsmálaráðherra í
tvígang að stöðva framkvæmdir
Reykjavíkurborgar við ráðhúsbygg-
ingu þar sem ekki var farið að lögum
í þeim framkvæmdum. En eftir að
borgarstjórn staðfesti byggingarleyf-
ið geta framkvæmdir haldið áfram í
löglegan máta.
Borgarfulltrúar stjórnarandstöð-
unnar greiddu atkvæði gegn því að
Hitaveita Reykjavíkur fái leyfi til
byggingar vetrargarðs og veitinga-
húss á Öskjuhlíð. f bókun þeirra
kom fram að stjórnarandstaðan telji
fráleitt að nota fjármuni Reykvík-
inga til þess að reisa rándýra munað-
arbyggingu á Öskjuhlíð. í ljósi þess
að þeir Reykvíkingar sem nú eru
komnir á efri ár lögðu mikinn kostn-
að í uppbyggingu Hitaveitunnar á
Frá borgarstjómarfundi á fimmtudag.
Tímamynd: Gunnar
sínum tíma, þá telja borgarfulltrúar
stjórnarandstöðunnar mun eðlilegra
að nýta það fé Hitaveitunnar, sem
ekki þykir nauðsynlegt til starfsemi
hennar, í þágu aldraðra í Reykjavík.
Lögðu borgarfulltrúar stjórnar-
andstöðunnar því fram tillögu þess
efnis að fyrirhugað framlag Hita-
veitu Reykjavíkur til útsýnishúss
renni sem lán til íbúðasjóðs fyrir
fólk yfir 67 ára aldurs. Lánið skuli
síðan endurgreiðast samkvæmt láns-
kjaravísitölu á næstu 50 árum. Á
þessu ári myndu 125 milljónir renna
í þennan sjóð, en það er sú upphæð
sem Hitaveitan hyggst eyða í veit-
ingahúsið í ár.
Þessari tillögu var vísað frá með
atkvæðum sjálfstæðismanna. -HM
Upplýsingamiðstöð ferðamála:
Ferðakynning
um helgina
„Njótið sumarsins í íslenskri nátt-
úru“ er ein af yfirskriftum ferðak-
ynningar sem haldin verður í Upp-
lýsingamiðstöð ferðamála, Ingólfs-
stræti 5, um helgina.
Kynningin er sérstaklega ætluð til
að kynna fslendingum þá ferða-
möguleika sem þeim bjóðast hér á
landi, en einnig er hún hugsuð til að
hvetja fslendinga til að ferðast um
eigið land. Jafnframt munu fulltrúar
frá Ferðamálaráði Færeyja og
Ferðamálasamtökum á Grænlandi
verða viðstaddir og veita upplýsingar
um ferðaþjónustu landanna.
Á ferðakynningunni verða veittar
upplýsingar um þá fjölmörgu mögu-
leika sem bjóðast í ferðalögum
innanlands og verður starfsfólk upp-
lýsingamiðstöðvarinnar ásamt full-
trúum frá landsbyggðinni við kynn-
ingu, en hún verður opin á laugardag
frá 10-18 og sunnudag 13-18.
Upplýsingamiðstöð ferðamála var
opnuð í júní á síðasta ári og er
hlutverk hennar að veita jafnt ís-
lendingum sem útlendingum alhliða
upplýsingar um allt sem viðkemur
ferðamálum á fslandi. í miðstöðinni
Áslaug Alfreðsdóttir í húsakynnum Upplýsingamiðstöðvar ferðamála, að Ingólfsstræti 5. (Tímamynd Pjetur)
er alla jafnan hægt að fá upplýsingar
um gististaði, rútuferðir, flug, auk
þess eru veittar upplýsingar um það
sem er að gerast í Reykjavík á
tilteknum tímum, s.s. opnunartíma
safna, sýninga og hljómleika.
Að rekstri Upplýsingamiðstöðvar
ferðamála standa Ferðamálaráð
fslands, Reykjavíkurborg og Ferða-
málasamtök landsbyggðarinnar.
Framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar
er Áslaug Alfreðsdóttir. -ABÓ
dr/JDar
Nato skólastjórar
fara til Rússlands
Reykvísku skólastjórarnir Björn
Jónsson (Hagaskóla), ErlingTóm-
asson (Langholtsskóla), Ingi Krist-
insson (Melaskóla), Kristján Sig-
tryggson (Hvassaleitisskóla) og
Þráinn Gnðmundsson (Lauga-
lækjarskóla) fóru fyrir skömmu ■
kynnisferð til Sovctríkjanna. Slíkt
værí í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi ef þessir sömu skólastjórar
hefðu ekki áður faríð í umdcilda
ferð til NATO-stöðva í Brusscl og
lögðu þá á sig að hossast í óinnrctt-
aðri herfiugvél á leiðinni út.
Dropateljarí hcyrir nú kennara
velta því fyrir sér hvort skólar hafi
verið skoðaðir í þcssari ferð eða
hvort þeir hafi cinungis viljað fá
mótvægi við Nato-hugmyndir aust-
an járntjalds, en hitt er víst Ijóst að
Rússar léðu ekki herþotu undir
skólastjórafiutninga í þetta sinn.
Sérstæö fundarstjórn
Við kynningu fyrirhugaðrar
ferðar í fræðsluráði í lok mars lét
Þorbjöm Broddason bóka í fund-
argerð ánægju sína yfir því að ferð
þessi væri kynnt fyrirfram öfugt,
við sumar fyrri ferðir skólastjóra.
Síðan virðist sem fjör hafi færst
í leikinn því samkvæmt fundargerð
bókar Þorbjörn: „Ég mótmæli því
að formaður fræðsluráðs slítur um-
ræðu i miðjum klíðum þegar
fræðslustjóri hefur beðið um orðið
um þennan lið. Formaður sýnir
þannig enn einn vott um vaxandi
vanhæfni sína til fundarstjórnar.“
Formaður fræðsluráðs er enginn
annar en Ragnar Júlíusson sem er
líka formaður hins vafasama skóla-
málaráðs, skólastjóri Álftamýrar-
skóla, stjómarformaður Granda,
o.fl. Ragnar lét þó ekki fipa sig í
fundarstjórninni og bókaði að
bragði „ réttlætingu“ á því að hann
þaggaði svo dónalega niður í
fræðslustjóranum: „Skammir frá
Þorbirni Broddasyni tek ég ekki
nærri mér. Þvcrt á móti. Skætingur
úr þeirri átt má vera hvcrjum
manni örugg vísbending um að
hann sé á réttu róli.“ Ætli formað-
ur firæðsluráðs hafi verið cins
snaggaralegur þegar hann stýrði
þeim stjómarfundi Granda sem
ákvað að kaupa Saabinn góða fyrir
stjórnarformanninn?
Guðjón Einarsson
næsti fréttastjóri?
Og áfram halda menn að spá í
mögulega kandidata til fréttastjóra
sjónvarps í stað krummans á
skjánum. Frestur til að sækja um
fréttastjórann rennur út á morgun.
Dropateljari hefur eins og aðrir
góðborgarar þessa lands heyrt að
mætir menn með völd og áhrif hafi
gengið á eftir nokkrum útvöldum
kandidötum til að sækja um frétta-
stjórastöðuna. Heitastur af öllum
heitum í „djobbið“ mun vera mað-
ur að nafni Guðjón Einarsson.
Guðjón þessi er nú ritstjóri
þeirra mætu blaða, Sjávarfrétta og
Fiskifrétta. Endur fyrir löngu las
hann landsmönnum hinsvegar
fréttapistilinn, einmitt fyrir framan
upptökuvélar ríkissjónvarpsins.
Saklaus lítill fugl hvíslaði því að
dropateljara að Guðjón hefði ekki
sýnt starfinu áhuga. En maður veit
jú aldrei. Mönnum getur náttúr-
lega snúist hugur...
Greiðslukorta
vítahringur
Dropateljari heyrði fyrir
skömmu af hinum cina sanna
greiðslukortavitahríng sem að sögn
mun einkum skeinuhættur flug-
fólki og öðrum þeim sem starfa
síns vegna fara oft utan eða þá eiga
auðvelt með að skreppa til útlanda
á góðum kjörum. Sem kunnugt er
endar úttektartímabilið þann 18.
hvers mánaðar en reikninginn þarf
ekki að greiða fyrr en í byrjun
næsta mánaðar. Hefst þá vítahring-
urinn með því að á nýju úttcktar-
tímahili bregður þctta fólk sér til
útlanda og tekur út peninga á
kortið í banka erlcndis. Að því
loknu kemur það heim og borgar á
tilsettum tíma reikning fyrra tímab-
ils með úttektinni úr erienda bank-
anum. Ekki fara sögur af því
hversu lengi unnt er að stunda
þennan leik, en hann endar með
ósköpum. Ekki er á íslendinga
logið þegar möguleiki á lánsfé er
annars vegar.
Vogur hefur
vinninginn
Alveg voru óborganlegar um-
ræður í Kastljósþætti sl. fimmtu-
dagskvöld um vanda veitingahús-
anna. Til leiks voru mættir þrir
veitingamarskálkar úr „fyllerís-
bransanum" í Reykjavík. Dropa-
teljarí verður að viðurkenna að
það tók hann dágóðan tíma að átta
sig á um hvað þetta röfi snerist. Þó
þykist teljarinn vita, svona eftirá,
að fræðingarnir þrír hafi verið að
leita skýringa á því af hverju fólk
nennir ekki lengur að fara á
skemmtistaðina til að drekka sig út
úr fullt og dilla sér eftir taktföstum
tónum Stormskers eða Halibjöms
Hjartarsonar.
Þrátt fyrir að stjórnandinn, Óli
Sig., tæki skýrt fram að dregið
hefði svo og svo mikið úr aðsókn á
veitingastaðina, samkvæmt töl-
fræðiupplýsingum, var engu tauti
við þremenningana komið. Að
þeirra sögn bjóða þeirra hús upp á
stórkostleg „sjóv“ og því sé fullt út
úr dyram hjá þeim heigi eftir helgi
og mánuð eftir mánuð. Að vísu
viðurkenndi Óli nokkur Laufdal,
íslandsráðherra, að eilítið hefði
drcgið úr aðsókninni á hans veit-
ingastaði síðan á gullaldarárunum.
Skýringin sem kóngurinn gaf var í
hæsta máta grátbrosleg, sumsé að
öflugasta samkeppni við veitingast-
aðina kæmi frá alkaheimilinu
Vogi. Þangað munu um 7000
manns hafa lagt leið sína á undan-
förnum árum, eftir því sem Laufdal
segir. Og eftir sitja veitingakón-
garnir og gráta með tóma kass-
ana...
Elskulegt en
einkar furöulegt
Roskin kona í Reykjavík,
sem venur komur sínar í ákveð-
ið kaffihús, segir að þar sé
afgreiðslufólk frámuna kurteist
og einkar alúðlegt og vill allt
fyrir hana gcra. Þangað finnst
henni gott að konta.
Þó þykir henni það furðu-
legra en orð fá lýst, að þetta
unga elskulega fólk sogar
sykurinn gegnum rör upp í
nefið ... !