Tíminn - 07.05.1988, Blaðsíða 18

Tíminn - 07.05.1988, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 7. maí 1988 MINNING Hólmsteinn Helgason Fæddur 5. maí 1893 Dáinn 29. apríl 1988 Afi hefur kvatt eftir langan og starfssaman dag. Við söknum hans sárt og finnum að héðan af getur orðið örðugra að halda áttum. En þakklæti er okkur einnig ofarlega í huga því Hólmsteinn afi hefur auðg- að líf okkar meir en orð fá lýst. Hann gaf það sem mest er um vert, hann gaf af sjálfum sér! í öllu umróti hins þversagnakennda íslenska nú- tíma höfðum við manninn fyrir norðan, manninn sem var eldri en öldin og bar með sér hljóða en fasmikla reynslu kynslóðanna. Við áttum ást hans og hægláta umvöndun og kynntumst gildismati sem var einatt utan við tímana sem við lifum. - Gildismati trúrrar samvinnuhug- sjónar þess atorku- og eljumanns, sem sjaldan leiddi hugann að eigin hag umfram nauðþurftir. Við scm fædd erum cftir miðja öldina og höfunt alist upp við vax- andi allsnægtir og neysluæði eigum ekki hægt með að setja okkur fyrir sjónir hvernig framtíðin hefur horft við afa okkar átta og níu ára gömlunt, þegar hann leggur upp með öldinni, fátækur bóndasonur á Langanesströndinni. Sjálfstæðisbar- áttan er enn í fullum gangi, 18 ár í fullveldi í kjölfar heimsstyrjaldar og 44 ár í lýðveldisstofnun að undan genginni heimskreppu, annarri heimsstyrjöld og hernámi íslands. Við getum samt Iátið okkur detta í hug, með kynnin af afa í Ituga, að verðmætin við upphaf aldarinnar hafi fremur en nú verið mæld í hugsjónum og óuppfylltum draum- um um eflingu lands og lýðs. Afi fæddist að Kálfaströnd við Mývatn en fluttist kornungur með foreldrum sínum austur á Langanes þar sem þau voru að hefja búskap. Á fyrstu manndómsárum sínum stundaði hann jöfnum höndum kennslu og sjómennsku, var formað- ur á vélbát um margra ára skeið, fyrst frá Gunnólfsvík og síðan Rauf- arhöfn, þar sem hann settist að og bjó alla tíð síðan. Hann kvæntist árið 1925 eftirlifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Björnsdóttur frá Grjótnesi og eignaðist með henni sjö börn. Afi lét sér annt um vöxt og viðgang Raufarhafnar og var virkur í atvinnulífi staðarins langt fram eftir aldri og enda kjörinn fyrsti heiðursborgari bæjarins. Kennarinn, bóndinn, útgerðar- maðurinn, kaupfélagsstjórinn og oddvitinn Hólmsteinn Helgason til- einkaði sér snemma hugsjónir sam- vinnuhreyfingarinnar og ungmenna- félagsskapar. Hann var á árum fyrr góður ræðumaður og sérlega vel ritfær. Pó hugur hans hneigðist að slíkum andans störfum kallaði lífs- baráttan og atorkan hann ávallt til annarra starfa. Hann vann ótal störf brautryðjandans og lagði hönd á plóginn við önnur er vörðuðu upp- byggingu síns litla bæjarfélags norð- ur við Dumbshaf. Hann var af samferðamönnum sínum kosinn til óteljandi erindareksturs og félags- starfa. Sat í stjórnum Kaupfélags N-Þingeyinga og síðan Kaupfélags Raufarhafnar og skoraðist ekki und- an því að taka að sér kaupfélags- stjórastarfið þegar í óefni var komið og ljóst að félagið fékk ekki risið undir rekstri. Hann sat í stjórn Búnaðarsambands N-Pingeyinga um 20 ára skeið, átti sæti á fiskiþingi svipað lengi og var fulltrúi á aðal- fundum SÍS unt margra ára skeið. Þannig mætti lengi telja en maður- inn sjálfur er það sem mestu varðar og þar fór einstakur maður og okkur öllum óumræðilega kær. í návistum við afa fannst manni sem maður væri kominn afar nálægt hinum innstu rökum, a.m.k. eins og þau höfðu verið fléttuð um langa hríð áður en svo margt tók á rás út og suður. Sennilega var hann mikill og góður fulltrúi þeirrar n-þingeysku sveita- menningar sem blómstraði á síðustu öld og frant á þessa og ól af sér séríslenska róttækni og manngildis- hugsjón. Þótt mildi, gleði og umburðar- lyndi væru ríkur þáttur í þeim eðlis- eiginleikum sem við barnabörnin kynntumst hjá honum þá þekktum við einnig og tókum mark á skoðun- unt hans og áhyggjum af þróun þjóðmála. Við vissum að það hafði blásið um hann og hugsjónir hans og hann hafði ekki alltaf setið á friðar- stóli. Við sáum glimta í baráttu- manninn í verkalýðsfélaginu sem ekki fékk að starfa fyrir Alþýðu- flokknum af því að þar fór framsókn- armaður fremstur í flokki. Og við þekktum athafa- og eljumanninn sem vegna skoðana sinna var einatt settur til hliðar af þeim forkólfum atvinnulífsins sem lögðu traust sitt og trú á rétt hins sterka til að hyggja eingöngu að sjálfs sín hag. í lifanda lífi var hann orðinn þjóðsagnapersóna á sínum heima- slóðum og þótt víðar væri leitað. Af honum fóru margar sögur og þær jafnvel sagðar af misjöfnum hvötum. Allar áttu þær þó það sameiginlegt, að það voru gamansögur reistar á áberandi persónuleika og í flestum leyndist virðingin fyrir eljusemi, æðruleysi og stefnufestu eínnar mannssálar. Svo er um söguna þegar hann átti að hafa fallið útbyrð- is þegar hann réri einn á kænu og þurfti að sinna kalli náttúrunnar. Hann á þá að hafa tautað í barm sér: „Ooh, hann kemur aftur!“ - Sem og varð, því báturinn fór í stórum sveig og kom aftur til mannsins sem svaml- aði í sjónum og lagði traust sitt á hin æðri rök. Eins var það lengi orðatiltæki á þessum slóðunt, ef einhver bar sig illa undan ólagi á vélum, „hvort hann ætti ekki spotta“. Var þar vísað til annarrar sögu af afa, sem sönn mun vera. Hann hafði einu sinni í formennskutíð sinni lent í vélarbilun í ofsavcðri úti á sjó. Bátsverjar bjuggust við dauða sínum þar sem bilunin var alvarleg og engir varahlutir um borð. Afi var ekki sama sinnis heldur dundaði lengi við vélina og kom henni að lokum aftur í gang. Þegar hann hafði skilað báti og áhöfn heilum í höfn kom í ljós, ■er kíkt var ofan í vélarhúsið, að þar var allt bundið saman með spottum. Sjálfsbjargarviðleitnin var kyn- slóð hans í blóð borin og eflaust hefur hörð lífsbaráttan fyrr á öldinni kennt honum sem fleirum þá nægju- semi og aðhaldssemi sem vekur eftirtekt okkar sem vaxið höfum úr grasi á tímum meiri velmegunar. Það vekur sömu undrun hjá okkur, að sjá gamlan mann beygja sig með erfiðismunum eftir spotta sem verð- ur á vegi hans og honum blöskraði sóunin og innihaldsleysi þess efnis- lega lífsgæðakapphlaups sem við nútímafólkið gerum okkur öll sek um. Nú þegar við kveðjum öldunginn góða er þakklætið förunautur sorg- arinnar og óskin um að okkur auðn- ist að varðveita þig í hjörtum okkar. Svo mikið er víst að það voru mikil forréttindi samvistirnar við þig, að þiggja á hlýju og gestkvæmu heimili ykkar ömmu uppeldi og uppfræðslu um margra ára skeið. Það er gott að búa að þvf veganesti að hafa lært að lesa á fornaldarsögur Norðurlanda á hnjám fræðarans og hafa hlotið lif- andi forsögn í andlegri og líkamlegri eljusemi og manngildishugsjón. Takk afi og hvíl í friði. Kjartan Jónasson. Heiðursborgari Raufarhafnar, sá fyrsti og eini, er genginn. Vegferðin var löng, en nú er henni lokið, sæmdarferð og vaxið af verki hverju og þau voru mörg. Engan held ég mig hafa þekkt sem vísa Stefáns G. hæfir betur: Löngum var ég lœknir minn, lögfrœðingur, prestur, smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur. Hólmsteinn Helgason hét hann, fæddur að Kálfaströnd í Mývatns- sveit 5. maí 1893, dáinn að Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt 29. apríl 1988 eftir skamma dvöl þar eða frá í byrjun febrúar sl. Foreldrar Hólmsteins voru Helgi Sigurður Pálsson, Mývetningur að ætt, síðast bóndi að Ásseli á Langa- nesi, og kona hans Arndís Karítas Sigvaldadóttir frá Grund, sömu sveit. Hólmsteinn var af traustum bændaættum í báðar ættir, þrek- mönnum og búhöldum, sumum góðum. Hann var af ættum alþýð- unnar í landinu, þeirrar sem allt lifði af, ísavetur og óáran, danska áþján og sóttir alls konar. Hann var grisjaður óspart stofninn góði sem hér óx upp eftir landnám. Þar urðu fá fúasprek eftir að minnsta kosti í lundi alþýðunnar. Höfðingjar og embættismannaaðall síðar, ásamt bændum á vildisjörðunt voru nokk- uð í stakk búnir til að verjast hungur- vofunni, en hvað um hina? Þeir féllu nema þeir albest gerðu. Af slíkum stofni var Hólmsteinn Helgason. Hann var meiðurinn sem bar hæst í frændgarðinum. Það er margs að minnast að leiðar- lokunt. Myndir birtast og hverfa. Það er bjart yfir þeim öllum. Ég sé Hólmstein fyrst fyrir mér í stofunni hennar ömmu minnar á Ásseli. Það var að kvöldi til, og ég mun hafa verið að koma með föður mínum inn úr fjárhúsununt og fór beint inn til ömmu eins og venjulega. Hann sat á rúmstokknum hennar og hafði lagt upp frá Raufarhöfn um ntorguninn, fótgangandi. Vegalengdin er um 70 km. Ég vissi aðeins að hann var langt að kominn stóri sonur hennar ömmu minnar og bróðir hans pabba míns, góður gestur. Mun þetta hafa verið í skammdeginu fyrir jólin 1936 og ég fimm ára, fyrsta veturinn eftir að afi dó. Þetta lýsir Hólmsteini nokkuð. Þrekið var mikið og hann frár á fæti, þarna þó þegar kominn af léttasta skeiði. Ég heyrði að hann hefði verið mikill fjörkálfur sem krakki og snemma liðtækur. Má því til sönnun- ar og nefna að hann var ungur tvö ár vinnumaður hjá Daníel stórbónda á Eiði á Langanesi og fékk á ári hverju mánaðarleyfi á fullu kaupi, og það í ágúst. Gerði Daníel víst ekki svo við neina verkskussa. Ekki var leyfið þó til hvíldar eða letilegu heldur til að hjálpa föður og yngri bræðrum við heyskapinn. Foreldraheimilið var honum alltaf mjög kært, og hann ástríkur sonur. Hólmsteinn heitinn var að mestu sjálfmenntaður. Þó var hann í ungl- ingaskóla á Vopnafirði veturinn 1909-1910 og í eldri deild Hvítár- bakkaskóla 1916-1917. Útgerð sína hóf hann á Skálum á Langanesi sumarið 1916 á ofurlítilli lánskænu og reri einn. Eftirtekjan nægði þó fyrir skólavist á Hvítár- bakka. Heimkominn þaðan keypti hann færeyska bátsskel, laskaða, og gerði við svo sjófær varð. Já, mjór er oft mikils vísir og sjómaður eða útgerðarmaður var hann löngum síðan. í Noregi dvaldist hann við síld- veiðar og könnun forna slóða frá íslendingasögunum veturinn 1924 til 1925 og kom til baka að vori með bát og byggingarefni í hús sitt á Raufar- höfn. Það var fokhelt í júlí 1925 og þann 25. dag sama mánaðar kvæntist hann frændkonu sinni, Jóhönnu Björnsdóttur frá Grjótnesi á Mel- rakkasléttu, hinni ágætustu konu. Voru þau systkinabörn. Þau eignuð- ust sjö vel gerð börn, öll á lífi, og eru þau þessi: Björn Stefán, framkvæmdastjóri, Raufarhöfn (f. 21. janúar 1926), Aðalbjörg Jakobína, kennari, Reykjavík (f. 21. janúar 1926), Helgi Sigurður, skipstjóri, Raufar- höfn (f. 3. maí 1928), Arndís Sigur- björg, ljósmóðir, Reykjavík (f. 12. febrúar 1931), Jónas Maríus, aðal- bókari hjá Innkaupastofnun ríkisins, Reykjavík (f. 8. júlí 1934), Gunnar Þór, viðskiptafæðingur, skrifstofu- stjóri, Reykjavík (f. 6. mars 1936), Baldur, útgerðarmaður, Raufarhöfn (f. 24. september 1937). Barnabörn- in eru 21 og barnabarnabörn 15. Hólmsteinn Björnsson, sonarson- ur hans, er framkvæmdastjóri fyrir útgerðarfélag og fiskiðju sveitarfé- lagsins á Raufarhöfn og Pétur bróðir hans umboðsmaður fiskseljenda í Hull. Vil ég síðan ekki hafa þá þulu lengri, þótt vert væri. Bræður átti Hólmsteinn fjóra og eru tveir þeirra látnir, þeir Jónas Aðalsteinn, faðir minn, og Jón. Enn eru lifandi og ernir bræðurnir, Valdi- mar, leikari í Reykjavík, og Páll, þúsundþjalasmiður, á Raufarhöfn. Já, hvernig leit út á Raufarhöfn 1925, þegar Hólmsteinn byggði hús sitt þar á klöppunum og nefndi Sjávarborg? Ibúar voru fáir, aðeins nokkur hús, algjör vegleysa á landi og komur strandferðaskipa strjálar. Eiginlega var Raufarhöfn bújörð, en þó miklum annmörkum háð, ræktun vantaði og var erfið viðfangs, aðeins um fenjamýri að ræða. Þurra- búðarmennirnir leystu mjólkur- vandræði sín með geitahaldi. Geit- urnar voru þurftarminni en kýrnar, en hálfgerðir vandræðagripir, stukku yfir allt. Þess vegna beitti Hólmsteinn sér fyrir að fá hjóladrátt- arvél, þá fyrstu í Norður-Þingeyjar- sýslu, og ræsa fram mýrarnar. Það var upphaf að Jarðræktarfélagi Raufarhafnar. Þess má geta að fyrir Noregsförina hafði Hólmsteinn keypt í félagi við Sigurð Árnason á Oddsstöðum 7 lesta þilfarsbát úr eik. Var það hin mesta happafleyta og hét Fönix, en sökk að síðustu í fárviðri á legunni á Raufarhöfn. Hafði Hólmsteinn þá átt hann einn um áratug. Sigurð Árnason þekkti ég sem strákur. Hann var orðsnillingur þeirra Rauf- arhafnarbúa og lét enga aðkontna slordóna kveða sig í kútinn. „Alltaf má fá annað skip“, segir Hannes Hafstein í kvæðinu Áfram og Hólmsteinn Helgason var maður sem alltaf hélt áfram. Hann var enginn uppgjafarsinni og fleyin hans urðu fleiri. Ég hirði ekki um að rekja það nánar enda skip og sjómennska ekki mín sterka hlið. Hólmsteinn lagði víða hönd á plóg. Hann fékkst oft við kennslu- störf á vetrum, fyrst farkennslu og heimiliskennslu og sfðar kennslu við unglinga- og barnaskóla Raufar- hafnar, þar sem hann var prófdómari í 20 ár (1943-1963) og lengi formaður skólanefndar. Hann sat í hrepps- nefnd Presthólahrepps um árabil eða frá 1928 til 1945, en þá varð hann hreppsnefndarmaður og oddviti hins nýstofnaða Raufarhafn- arhrepps og var það löngum til 1962, þó ekki oddviti árin 1950-1958, er Leifur Eiríksson var það. Hann var formaður Jarðræktarfélags Raufar- hafnar frá stofnun 1930-1940 og einnig Búnaðarfélags Austur-Sléttu í nokkur ár. Þá var hann hvatamaður að stofnun Akurs og framkvæmda- stjóri frá 1946. Var það heyöflunar- félag sem nokkrir menn frá Raufar- höfn stóðu að. Formaður og gjald- keri Sjúkrasamlags Raufarhafnar var hann f um tuttugu ár, frá stofnun þess 1950. í stjórn Kaupfélags Norð- ur-Þingeyinga var hann frá 1938, uns því var skipt, en síðar formaður Kaupfélags Raufarhafnar og kaup- félagsstjóri þess 1965-1967, er félag- ið hætti störfum. Fulltrúi var hann á aðalfundum S.f.S. bæði fyrir Kf. N.-Þing. og síðar Kf. Raufarhafnar. Þá var hann afgreiðslumaður Eim- skipafélags íslands frá 1930 og Skipaútgerðar ríkisins frá stofnun til 1948. Hann barðist einnig ötullega fyrir byggingu stórrar síldarverk- smiðju á Raufarhöfn, og var hún reist 1940 en Norðmaður hafði áður komið þar upp lítilli verksmiðju 1925 og selt ríkinu tíu árum síðar, 1935. Hólmsteinn sat og á frumbýl- ingsárunum í stjórn fyrsta verka- mannafélags Raufarhafnar. Á Fiski- þingi átti hann sæti frá 1953-1972, gerður heiðursfélagi Fiskideildar í Norðlendingafjórðungi 1974 og heiðursborgari Raufarhafnar 1975. Riddarakrossi hinnar íslensku fálka- orðu var hann svo sæmdur, níræður, 1983, fyrir sveitarstjórnar- og fé- lagsmál. Um árabil stóð hann í útgerð og hafði eigin síldarverkun 1950-1962. Bóksölu rak hann og búskap, hafði kýr og síðast kindur sem hann hirti sjálfur, sér til andlegrar og líkam- legrar heilsubótar eins og hann sagði. Ég hef drepið á þetta hér til sönnunar lofi um Hólmstein látinn og til að sýna fram á hvers virði hann var Raufarhöfn og íbúum. Annars leiðast mér þurrar upptalningar. og þeir sem til þekkja þurfa ekki á þeim að halda. Þó vil ég bæta við að hann fékkst einnig nokkuð við ritstörf allt frá 1915 að barnasaga kom í Æsk- t Alúðarþakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Kristjáns Guðmundssonar bónda Brekku, Ingjaldssandi Virðing sú sem minningu hans hefur verið sýnd er mikils virði. Árelfa Jóhannesdóttir börn, tengdabörn og barnabörn t Móðir okkar Sigríður Gísladóttir Esjubergi, Kjalarnesi verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. maí n.k. kl. 15. Jarðsett verður í Mosfellskirkjugarði. Árni Snorrason Oddný Snorradóttir Gísli Snorrason

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.