Tíminn - 07.05.1988, Qupperneq 8

Tíminn - 07.05.1988, Qupperneq 8
Laugardagur 7. maí 1988 8 Tíminn ! Titnirm MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVIHNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 465,- pr. dálksentimetri. Verð í lausasölu 60,- kr. og 70,- kr. um helgar. Áskrift 700.- Einræði borgarstjórnar Starfsaðferðir meirihluta borgarstjórnar Reykja- víkur undir forystu Davíðs Oddssonar borgarstjóra vekja vaxandi undrun. í engu endurspeglast einræð- isaðferðir borgarstjórnarmeirihlutans betur en í ráðhúsmálinu. Margir stuðningsmenn þess að ráðhús mætti í sjálfu sér rísa í norðvesturhorni Tjarnarsvæðisins eru að fá sig fullsadda af aðförum íhaldsmeirihlutans, svo að víst má telja að almenningsálitið hafi í vaxandi mæli snúist gegn hugmyndinni um ráðhús við Tjörnina. Ofurkappið við byggingarhraða þessa húss er með ólíkindum. Nú er það að vísu áratuga „hefð“ íhaldsmeirihlutans í Reykjavík að hundsa lög og reglur varðandi byggingastarfsemi í borginni. Lang- dreginn einræðisferill íhaldsins í borginni, sem spannar meira en tvo mannsaldra að fornu tali, er varðaður slíku tillitsleysi við siðlega pólitík og embættismennsku að leitun er á öðru eins á nokkru byggðu bóli. íhaldið hefur komist upp með þessa hegðun og magnast auðvitað þeim mun meira sem einræðistíminn lengist. Það er því ekki nema ein lausn á þessu lýðræðislega vandamáli sem það er að láta íhaldið halda völdum í borginni áratug eftir áratug, að andstæðingar þess sameinist í því að fella þessa einræðisblokk í kosningum, þegar þar að kemur. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, er kunn fyrir það að taka málefnalega afstöðu til verkefna sem rædd eru í borgarstjórn. Hún hefur lýst stuðningi við hugmyndina um ráðhús við Tjörnina og fært skynsamleg rök fyrir þeirri afstöðu sinni. Hins vegar hefur hún frá upphafi staðið gegn því að ráðhúsbyggingin verði keyrð áfram með því offorsi sem íhaldsmeirihlutinn stend- ur fyrir. Hefur hún mótmælt því harðlega hvernig þessi meirihluti lendir sífellt í útistöðum við borgar- búa, skipulagsyfirvöld og ráðherra sveitarstjórnar- mála. í andmælum sínum gegn einræðisbrölti meirihlut- ans hefur Sigrún bent á, að borgaryfirvöld ætlist til þess að borgararnir hlíti settum reglum, þegar þeir ráðast í framkvæmdir á borgarlandinu. Það er því kaldhæðnislegt að ráðherra skuli þurfa aftur og aftur að beita valdi sínu til þess að borgaryfirvöldin hlíti þessum sömu reglum. Orðrett segir Sigrún Magnúsdóttir í bókuðum andmælum sínum gegn starfsaðferðum meirihlutans: „Ég hef stutt byggingu ráðhússins, en jafnframt varað við því að rasað verði um ráð fram í framkvæmdahraða. Ég hef bæði bent á að meira liggi á öðrum framkvæmdum í borginni og að undirbún- ingur fyrir útboð hafi hvergi verið nægjanlegur. Framkoma borgarstjóra í þessu máli er sterkasta vopn andstæðinga ráðhússins.“ Þetta er rétt metið hjá Sigrúnu Magnúsdóttur. Einræðisbrölt meirihluta borgarstjórnar í ráðhús- málinu hlýtur að enda með vaxandi andstöðu gegn framkvæmdinni. JL_^öngum hefur verið erfitt að dagsetja vorkomuna á ís- landi, enda breytilegt eftir landshlutum, hvenær hennar megi vænta. Þótt grænki í Mýr- dalnum snemma vors kann að vera grátt í Mývatnssveit hina sömu daga. Það var því ekki ófyrirsynju að einn af veður- fræðingum sjónvarpsins tók svo til orða, þótt greinilega hefði brugðið til vortíðar, að samt yrðu menn að „taka vorinu með varúð“. Oft er það svo og er aldrei nema satt, að íslenska vorið kemur eins og í áföngum. Það bíður álengdar og lætur gjarnan á sér standa meðan eftirhreytur vetrarveðranna þrengja sér inn í vorþeyinn til að bæla sunnanvindinn og þíðuna. Þá er engu líkara en að vorið sé að standa af sér veðrin. Þó er ekki ástæða til annars nú en vænta góðrar vortíðar og farsæls sumars, sem á eftir kemur. Liðinn vetur var síður en svo harður, miklu fremur mildur um mest allt land, þótt fannfergi hafi gert á síðustu vikum vetrarins sums staðar á landinu og frostakafla á útmán- uðum. Miðað við veðurfars- reynslu íslendinga í þúsund ár var sá kafli hvorki langur né að hann þyrfti að koma neinum á óvart. Bjarndýr og hundar Annars er ekki fyrir það að synja að veðurfarið á íslandi sé farið að koma íslendingum sjálf- um á óvart. Er engu líkara en að menn verði steinhissa, ef hríðar- veður geisar nokkra daga á þorr- anum, hvað þá ef hleypur í skafla í Breiðholtinu dagpart á útmán- uðum. Menn ætla varla að trúa því að það hafi komið klofsnjór á Seyðisfirði upp úr páskum og að snjóskriða hafi grandað síma- staur á Siglufirði. Dæmi um hvað menn geta orðið hissa á íslenskri veðráttu og hnattstöðu landsins er sagan af því þegar ísinn rak að landi í Haganesvík í vetur og bjarndýr fór að spássera milli bæja í Fljótum sömu götur og börnin ganga í skólann sinn. Feður skólabarnanna í Fljótum tóku sig til og felldu björninn með þeim afleiðingum að dýravinir í höfuðborginni sögðu að réttast væri að kæra þennan grimma Fljótavarg fyrir sjálfri mannrétt- indanefndinni f Strassborg, sem margir setja von sína á gegn vonsku samfélagsins, m.a. vald- níðslu sýslumanna og öðrum leifum sveitamennskunnar á ís- landi. í höfuðborginni vita menn lítið af bjarndýrum, nema hvað menn hafa séð þessa aumingja engjast í gryfju í frægum dýra- garði suður í Hafnarfirði. Eng- inn fæst til að trúa því að bjarndýr gætu unnið skaða á skólalóðum og skíðaslóðum norður í landi. Hins vegar banna Reykvíkingar hundahald hjá sér af ótta við það að lausbeislaðir kjölturakkar glefsi í fólk og hræði börn, sem eru á leið í skólann. Landið og sagan Hvað vita íslendingar annars um sitt eigið land? Hér verður ekki lagt út í það að gagnrýna þá fræðslu sem látin er í té í skólun- um um náttúrufar og landshætti sjálfs föðurlandsins og hvernig daglegt líf og atvinna lands- manna hlýtur að mótast af nátt- úrlegum aðstæðum og eðli þess lands sem þeir búa í. Hér verður reyndar gengið út frá því að námsefni skólanna í náttúru- fræði, þjóðarsögu og samfélags- fræðum stefni allt að því að gera ungu fólki grein fyrir grundvall- arstaðreyndum um hnattstöðu og veðurfar á íslandi, hverjar séu náttúruauðlindir landsins, þ.e.a.s. hvaða lífsbjörg sé að hafa í þessu landi, - en einnig hverjir séu ókostir landsins, ef menn vilja orða það þannig, þ.e. hvers sé ekki að vænta á Islandi og þá hvers menn geta ekki krafist af landinu. En hvað sem segja má um námsefnið, sem ætlað er aði upplýsa skólafólk um náttúru og sögu síns eigin lands, þá bendir því miður margt til þess að þessar upplýsingar í skólabók- unum komist ekki til skila í fræðslunni og uppeldinu. Þegar þannig stendur á er kannske auðveldast að skella skuldinni á skólana og kennarastéttina,* enda finnst mörgum það hand- hægast og tiltækast. Vafalaust er skólunum og kennarastéttinni skylt að taka á sig sinn hluta af ábyrgðinni á því að engu er líkara en að þjóðin sé í mörgum efnum að fjarlægjast sinn eigin veruleika. Hins vegar er ósann- gjarnt að kenna skólum og kenn- urum einum um, ef svo skyldi reynast að þessi firring sé út- breiddur veruleiki á íslandi. Skólarnir eru ekki einir um að miðla fræðslu til fólksins í land- inu. Skólarnir hafa ekkert upp- eldislegt einræði. Hugarheimur æskunnar mótast auðvitað af fleiru en skólunum. Eitthvað hljóta heimili og foreldrar að koma við þá sögu, að ekki sé minnst á áhrif fjölmiðla og af- þreyingarheimsins sem er and- legt stórveldi á sína vísu. Auk þess er í raun gerð allt önnur meginkrafa til skólanna en að þeir séu þjóðlegar fræðslu- og uppeldisstofnanir. Raunar sést ekki betur en að uppeldisfræði sem slík sé vanmetin af ýmsum og eigi undir högg að sækja hjá almenningi og ráðamönnum. Það hefur kostað talsvert um- stang og miklar fortölur að fá lagalega viðurkenningu á því að gera nám í uppeldis- og kennslu- fræði að skilyrði fyrir því að menn geti kallast kennarar. Má slíkt þó sýnast undarleg afstaða gagnvart fagmenntun og sérhæf- ingu, sem á öðrum sviðum er talin svo nauðsynleg, m.a. í iðnaðar- og tækninámi og flest- um öðrum menntagreinum. Það er því eðlileg krafa kennarastétt- arinnar að allir starfandi kennar- ar hafi stundað formlegt kennaranám, þ.á m.nám í upp- eldis- og kennslufræðum. Kennaraháskóli íslands. Þróun eða bylting? Þótt enn eimi eftir af þeim hugsunarhætti, að hægt sé að gera hvern þokkalega gefinn og sæmilega fróðan mann að kennara, þá er slík afstaða til kennarastarfs ekki sem best rökstudd. Hitt mun sönnu nær að í fáum störfum sé jafn auðvelt að komast af með fúsk eins og í kennslustörfum. Enda er kennslufúsk algengt á öllum skólastigum hér á landi, allt upp í háskóla . Þó hlýtur það að eiga við á íslandi eins og í öllum öðrum löndum, að vanda þurfi til menntunar og starfsundirbún- ings kennara. Því er það fagnaðarefni að margra ára vinnu við endurskoð- un laga um Kennaraháskóla ís- lands skuli lokið. Alþingi hefur haft frumvarpið til meðferðar á þessu þingi og var það samþykkt sem lög nú í vikunni. Eins og jafnan þegar ráðist hefur verið í endurbætur sem varða fræðslu- kerfið, beint eða óbeint, tók alllangan tíma að undirbúa um- rætt frumvarp um kennarahá- skólann, enda brýnt að ekki sé ráðist í breytingar í málum af þessu tagi nema að vel athuguðu máli. Fræðslu- og skólamál eru engin upphlaupsmál. Þar gildir sú regla, sem fræðslu- og skóla- yfirvöld hafa yfirleitt haft í heiðri, að breytingar á fræðslu- kerfinu skuli byggjast á stöðugri endurskoðun laga og lagafram- kvæmdar, sem leitt geti til þró- unar og nauðsynlegra endurbóta í stað kerfisbyltinga með ára eða áratuga millibili. Laugardagur 7. maí 1988 Tíminn 9 LAUGARDAGURINN 7. MAI 1988 Neikvæðar umræður En þrátt fyrir nauðsyn þess að ekki sé hrapað að breytingum á fræðslukerfinu, námsefni skóla og kennaramenntun, eða hlaup- ið eftir tískukenningum og póli- tískum patentlausnum í skóla- og fræðslumálum, þá má þessi mikilvægi málaflokkur ekki lenda í útideyfu og áhugaleysi stjórnmálamanna og almenn- ings eða sinnuleysi af hálfu fjöl- miðla. Þó jaðrar við að allt þetta sé fyrir hendi. Stjórnmálamenn hafa yfirleitt sýnt öðrum þjóðmálaflokkum meiri fagleg- an skilning en skóla- og mennta- málum. Umræður um þessi mál á almennum umræðuvettvangi eru að jafnaði einhæfar og oft mengaðar hleypidómum, enda ekki óalgengt að til þeirra sé stofnað af einhverju annarlegu tilefni eða afmörkuðum áhuga fremur en heildarsýn og þeirri þörf að upplýsa almenning um mikilvægi skóla- og mennta- mála, um gildi skólanna fyrir þjóðfélagið, hvað þar fer yfir- leitt fram. Gott dæmi um þessa einhæfni áhugans á fræðslu- og mennta- málum er fjaðrafokið, sem varð kringum fræðsluskrifstofuna á Akureyri fyrir ári eða svo. Eins og stofnað var til þess deilumáls var að vísu augljóst að með því voru málsaðilar að búa til end- ingargott fréttaefni, þótt ekki væri samtímis stuðlað að því að hefja umræður um fræðslumál á hærra stig. Kennarastéttin sem slík sinnir því minna en skyldi að halda uppi heildstæðum og upplýsandi umræðum um skólamál. Þótt ekki skuli lítið gert úr nauðsyn kjarabaráttu kennarastéttarinn- ar, þá getur sú mikla áhersla, sem á hana er lögð í blaðaskrif- um kennara og í umræðum þeirra í öðrum fjölmiðlum um málefni sín, varla talist eðlileg og eykur hróður kennarastéttar- innar minna en efni standa til. Hin mikla nauðsyn þess að kennarastéttin og forysta hennar hafi frumkvæði um að halda uppi faglegum umræðum í þjóð- félaginu um skóla- og fræðslu- mál, ætti ekki að þurfa að drukkna í kjarabaráttunni. Þá baráttu verða allar starfsstéttir að heyja. Kennarar róa þar ekki einir á báti. Langvinnar kjaradeilur Kjaradeilur hafa sett mikinn svip á þjóðfélagið þar sem af er þessu ári. Hér skal ekkert fullyrt um það, hvort þessar deilur séu umfangsmeiri en oft áður, enda af mörgu að taka í þeim efnum. í samningaumræðunum hefur hver lotan tekið við af annarri. Eftir á eru menn að hugga sig við það, að ekki hafi komið til langdregnari eða afdrifaríkari verkfalla en sögur eru af frá fyrri tíð. Eigi að síður hefur atvinnu- og þjónustustarfsemi verið meira og minna í hers höndum mánuðum saman. Stundum hef- ur ekki munað nema hársbreidd að hvert verkfallið skylli á eftir annað. Þannig urðu formgallar á verkfallsboðun fremur til þess að koma í veg fyrir vinnustöðv- un í sumum tilfellum en vilja- leysi hjá forystumönnum stétt- anna til þess að knýja þau fram. Það á a.m.k. við um kennara- stéttina. Við borð lá að mest allt skólastarf félli niður á versta tíma með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. Reyndar erekki ann- að að sjá en að kennarar séu enn í viðbragðsstöðu og búnir til átaka þegar færi gefst. Verkfall verslunar- og skrifstofufólks varð langvinnt og á ýmsan hátt afdrifaríkt. Þjóðin hefur því fengið sinn fulla skerf af vinnu- deilum og verkföllum það sem af er þessu ári. Sú grundvallarregla lýðræðis- þjóðfélags verður auðvitað ekki sniðgengin, að kaup og kjör launastétta skuli ráðast af því sem um semst milli launþega og atvinnurekenda hverju sinni. Eigi að síður er nauðsynlegt, og getur ekki á neinn hátt talist óeðlilegt, að um samningamál á vinnumarkaði gildi fastar laga- reglur, sem virða ber, enda eru í gildi hér á landi sem annars staðar lög um stéttarfélög og vinnudeilur, að vísu nokkuð gömul og e.t.v. úrelt um sumt og ófullkomin á öðrum sviðum. Þá er heldur ekki hægt að útiloka það að aðilar vinnumarkaðarins verði að lúta stjórnvaldsákvörð- unum, ef þannig stendur á, eða sérstökum, tímabundnum lög- um um tilteknar vinnudeilur ef Alþingi ákveður að svo skuli vera. Ótal dæmi eru um það að Alþingi hafi leyst vinnudeilur með lögum. Þann rétt er ekki hægt að taka af Alþingi. Hitt er annað mál að öll þess háttar íhlutun í samningamál krefst markaðra þjóðfélagshópa, sem ekki geta haldið rétti sínum til streitu nema með því að ein- hvers konar íhlutun í samnings- rétt á vinnumarkaði eigi sér stað. Þess vegna verður að gera þá kröfu til aðila vinnumarkaðarins að þeir viðurkenni að rétti þeirra til kröfugerðar og frjálsra launa- samninga fylgja skyldur, sem kunna að takmarka rétt þeirra, þjóðfélagslegar skyldur, sem að vísu er erfitt að skýrgreina í lagatexta og öðrum opinberum fyrirmælum, en eru til þrátt fyrir það. Það hlýtur t.d. að vera grundvallaratriði varðandi al- menn kjaramál að meta efna- hagshorfur í þjóðfélaginu, þegar tekist er á um kaup og kjör. Kjaradeilur er ekki hægt að leysa af neinu viti nema tekið sé tillit til efnahagsástandsins almennt. Það er afar óskynsam- legt metnaðarmál „að gera verð- bólgusamninga“, eins og það er kallað. Launþegum er enginn greiði gerður með því. Öðru nær. Engir tapa meira á verð- bólgu en launþegar. í frjálsum samningsrétti felst ekki réttur- inn til þess að afneita efnahags- lögmálum eða látast ekki sjá fyrir endann á því sem verið er að stofna til. Kjarabarátta og efnahagsþróun Forystumenn launþega eru augljóslega farnir að átta sig á því að einstefnuakstur í kjara- málum er ekki leiðin til kjara- bóta fyrir láglaunahópana. Greinilega má ráða af orðum forystumanna Alþýðusambands íslands að réttar- og kjarabætur fyrir verkafólk verða ekki allar gerðar með beinum samningum við vinnuveitendur, heldur verð- ur einnig að ná slíkum bótum fram með iöggjöf og stjórnarað- gerðum. Þessi sannindi eru ekki ný. íslenskt velferðarþjóðfélag hefur ekki síður orðið til fyrir löggjafarstarf og almenna póli- tíska stefnu í atvinnu- og félags- málum en þá kjarabaráttu, sem launþegar hafa háð á vinnu- markaði beint við atvinnurek- endur. Reyndar er ekki laust við að stundum fari ofsögum af baráttu íslenskra launþega við „atvinnurekendavaldið“ a.m.k. á síðari árum. íslenskt atvinnu- rekendavald hefur lengi verið eins og tannlaust ljón. Það er fásinna að ætla að skilja algerlega að kjarabaráttu launþega og stjórnmálaaðgerð- ir. Þvert á móti á að samhæfa þetta tvennt eftir því sem frekast er kostur. Þeirri hugsun var framfylgt í verki með febrúar- og desembersamkomulaginu 1986. Þá var stofnað til skynsam- legra samráða um kjaramál og þróun ýmissa efnahagsþátta. Af einhverjum ástæðum hefur sam- ráðsstefnan runnið út í sandinn. Það viðræðusamband, sem kom- ið var á fyrir tveimur árum, hefur slitnað. Forsætisráðherra þarf að hafa frumkvæði um að endurvekja samráðsstefnuna. Landinu verður ekki farsællega stjórnað nema öll áhrifaöfl þjóð- félagsins vinni saman á viður- kenndum samskiptagrundvelli. vandlegrar athugunar og hóf- semi í lagasetningu og valdbeit- ingu. Réttur og skylda Þrátt fyrir þá viðurkenningu á samningsrétti, sem staðfest er með lögum og studd er lýðræðis- hefðum, þá eru það öfgar að stjórnvöldum séu samningamál óviðkomandi. I lögbundnu þjóðfélagi, hversu frjálst og lýð- ræðislegt sem það er, getur ríkis- valdið ekki setið hjá og þvegið hendur sínar af öllu sem snertir samskiptamál þegnanna. Má vera að slíkt þætti við hæfi í óskalandi anarkista, þar sem lög eiga að vera óþörf eða í þjóðfé- lagi afskiptaleysisins, sem öfga- sinnaðir frjálshyggjumenn boða. Þótt menn haldi eðlilega fast við samningsréttinn sem mann- réttindamál, þá er eigi að síður heimilt að setja fram þá kröfu að þessum rétti sé ekki misbeitt af þröngsýni og oftúlkun á því hversu víðtækur hann sé. Það er engan veginn útilokað að samn- ingafrelsi á sviði vinnuréttar geti skaðað aðra hagsmuni, sem ekki er síður réttindamál að hljóti þjóðfélagslega vernd. Slíkir hagsmunir geta verið af ýmsum toga. Þar þarf ekki endilega að vera um að ræða beina hagsmuni þeirra viðsemjenda sem tekist er á við í það og það sinnið í vinnudeilu. Þar geta allt eins komið til almannahagsmunir, þeir hagsmunir sem snerta þjóð- félagið í heild eða stóran hluta þess. Þar getur einnig verið um að ræða sérstaka hagsmuni af- b r.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.