Tíminn - 07.05.1988, Page 13
12 Tíminn
Laugardagur 7. maí 1988
Laugardagur 7. maí 1988
Tíminn 13
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Pöntunarfélag Eskfirð-
inga, Eskifirði er laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 25. maí n.k.
Skriflegum umsóknum er greini aldur, menntun og
fyrri störf sé skilað til Þorsteins Sæmundssonar,
kaupfélagsstjóra, sem veitir upplýsingar um starfið
í síma 97-61200 ásamt Helga Hálfdánarsyni í
síma 97-61272.
PÖNTUNARFÉIAG ESKFIRÐINGA
ESKIFIRBI
Aðstoðarverkstjóri
Fóðurblöndunarstöð Sambandsins óskar eftir að
ráða ábyggilegan og traustan starfsmann til fram-
búðarstarfa.
Starfið felur í sér m.a. aðstoð við fermingu og
affermingu af bílum, nótuútskrift, símavörslu og
fleira.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af vöruaf-
greiðslu.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannastjóra, sem
veitir nánari upplýsingar
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉLAG A
STARFSMANNAHALD
Til sölu
Til sölu uppgerðir tjónabílar vegna Iðnskólans í
Reykjavík ef viðunandi tilboð fást.
1. Volvo 244 GL. 1979
2. Daihatsu Charade árg. 1980.
Bílarnir verða til sýnis í porti Iðnskólans í Reykja-
vík frá og með mánudeginum 9. maí milli kl. 9-16,
daglega.
Tilboð berist skrifstofu Innkaupastofnunar, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík eigi síðar en þriðjudaginn
17. maí.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Sölustjóri
Fyrir Efnaverksmiðjuna Sjöfn, lager í Garðabæ
óskum við eftir að ráða sölustjóra. Starfsvið hans er
stjórnun á sölu og markaðsmálum lagersins.
Við leitum að manni með góða framkomu og
skipulagshæfileika og æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu í markaðsmálum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Starfsmanna-
stjóra er veitir upplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Útboð
Byggingarnefnd Foldaskóla óskar eftir tilboðum í
lokafrágang annars áfanga Foldaskóla í Grafar-
vogi. Um er að ræða allan lokafrágang hússins
sem er um 1.900 m2, að undanskildum föstum
innréttingum.
Útboðsgögn eru afhent á Teiknistofu Guðmundar
Þórs Pálssonar, Óðinsgötu 7, 3. h. til hægri, gegn
kr. 15.000,00 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
18. maí nk., kl. 11.00.
Byggingarnefnd Foldaskóla
Útboð
Byggingarnefnd Foldaskóla óskar eftir tilboðum í
gerð fastra innréttinga í annan áfanga Foldaskóla
í Grafarvogi. Umeraðræðafastaskápa, borðo.fl.
Útboðsgögn eru afhent á teiknistofu Guðmundar
Þórs Pálssonar, Óðinsgötu 7, 3. h. til hægri, gegn
kr. 5.000,00 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
18. maí nk., kl. 11.30.
Byggingarnefnd Foldaskóla
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐA FERÐ
UMFÆRÐAR
RÁÐ
VORGJALDDAGI
HÚSNÆÐISlÁNA \AR 1. MAÍ SL.
16.
leggjast dráttarvextir
ntaí | á lán með lánskjaravísitölu.
L
leggjast dráttarvextir
Jóm | á lán með byggingarvísitölu.
g W
Œ
FORÐIST ÓÞARFA AUKAKOSTNAÐ
VEGNA DRÁTTARVAXTA
Húsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00
.....Illl.....illl......II ÍÞRÓTTIR llllillllilillllllllíllllilllillllllllll^ ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
iwsgý
Slobodan Kuzmanovski er einn þeirra júgóslavnesku handknattleikslandsliðsmanna sem verða í leikbanni fram yfir Ólympíuleikana s
Seoul. Hér er hann í landsleik gegn íslendingum og tekur Pál Ólafsson föstum tökum. Tímamynd Pjetur.
Handknattleikur - júgóslavneska landsliðið
Vujovic, Isakovic
og Kuzmanovski í
bann fram yfir ÓL
Þrír af þckktustu handknattleiks-
mönnum Júgóslavíu, þeir Veselin
Vujovic, Mile Isakovic og Slobodan
Kuzmanovski, hafa verið dæmdir í
leikbann eftir slagsmálaleik í júgó-
slavnesku deildinni í fyrra mánuði.
Bannið þýðir að þeir mega ekki
keppa á Ólympíuleikunum í Seoul
en þar eru Júgóslavar reyndar i sama
riðli og íslendingar.
Leikmennirnir þrír eru þeir
þekktustu af 10 leikmönnum sem
dæmdir voru í leikbann eftir að upp
úr sauð í leik Metaloplastika og
Pelister í júgóslavnesku deildinni
24. apríl. Einn leikmanna Pelister,
Cane Krstevski. var dæmdur í lífs-
tíðarbann frá handknattleik fyrir
sinn þátt í látunum.
Þeir leikmenn sem dæmdir voru í
leikbann og eru ekki gjaldgengir í
landsliðið í Seoul eru þessir:
Pelister: Cane Krstevski (lífstíð),
Zoran Zecevic (3 ár), Slobodan
Nikolic, Dragan Marinkovic og
Pctko Boseoski (allir 2ár). Metalop-
lastika: Slobodan Kúzmanovski (2
ár), Mihailo Radosavljevic og Mile
Isakovic (1 ár), Veselin Vujovic (9
mánuði) og Pero Milosevic (3 nrán-
uði). Þá var Mikola Jercmovic þjálf-
ari Pelister dæmdur í 4 mánaða bann
og liðið fær ekki að leika á heimavclli
sínum í Bitola næstu 5 leiki.
Bæði þessi júgóslavnesku félagslið
eru íslcndingum kunn, FH-ingar
hafa keppt við Metaloplastica í Ev-
rópukeppninni og Pelister keppti í
Jugoslavian Trophy, handknatt-
leiksmóti í Júgóslavíu í fyrrasumar
þar senr íslendingar voru meðal
keppenda og lögðu einmitt júgó-
slávneska landsliðið að velli.
íslendingar og Júgóslavar keppa
sem fyrr sagði í sama riðli á Ólym-
píulcikunum í Seoul í haust. Ekki er
gott að segja hver áhrif fjarvera
þremenninganna sterku liefur á
júgóslavneska iiðið en vart getur
hún þó sakað fyrir íslendinga.
- HÁ/Reuter.
Unglingalandsliö kvenna
í handknattleik:
Stórmót
framundan
Valdar hafa verið 45 stúlkur til æfinga með
unglingalandsliði kvenna í handknattleik, 19 ára
og yngri. Þá stendur til að velja stóran hóp stúlkna
16 ára og yngri. Stefnt er að því að keppa á mótum
á þessu ári og því næsta en að auki er ætlunin að
byrja frá grunni með stúlkurnar og byggja þannig
upp A-landslið framtíðarinnar.
Það eru Dr. Slavko Bambir og aðstoðarþjálfari
hans, Kristján Halldórsson íþróttakennari sem sjá
um þjálfun stúlknanna. í eldri hópnum sem þegar
hefur verið valinn eru stúlkur úr Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ,
Seltjarnarnesi og Vestmannaeyjum. Búast má við
að stúlkur frá Akureyri og fleiri stöðum úti á landi
bætist í hópinn. Æft er fjórum sinnum í viku.
Fyrsta keppnisferðin sem 19 ára landsliðið fer í
er á Ítalíu í júlí. Þar verður keppt á tveimur
alþjóðlegum unglingamótnm. Norðurlandamót 19
ára stúlkna verður í Finnlandi í nóvember og í maí
1989 hefst forkeppni fyrir Heimsmeistaramót 20
ára stúlkna. Þá er áætlað að fara fjórum sinnum í
æfingabúðir út fyrir höfuðborgina fram að Norður-
landamóti.
f yngri flokknum verður mót sem kallað er
Atiantic-cup væntanlega næsta haust. Þar keppa
Bretar, Færeyingar, írar og íslendingar og Bene-
lux-Is keppnin með þátttöku Hollands, Belgíu,
Lúxemborgar og fslands verður um páskana 1989.
Reykjavíkurmótiö 'HÁ
w í knattspyrnu:
Úrslitaleikur
Fram og KR
Framarar og KR-ingar leika til úrslita á Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu sunnudagskvöldið 8.
maí og hefst leikurinn á gervigrasvellinum í
Laugardal kl. 20.30. Þessi félög hafa bæði marg-
sinnis orðið Reykjavíkurmeistarar, KR-ingar 26
sinnum en Framarar 20 sinnum. KR vann siðast
árið 1979 en Framarar árið 1986. Valsmenn eru
hinsvegar núverandi Reykjavíkurmeistarar.
Fram og KR iéku í sama riðli fyrr í mótinu og
urðu úrslit í innbyrðis leik liðsins 2-0 Fram í hag.
Framarar unnu Víkinga 5-3 í undanúrslitum eftir
framlengingu og vítaspymukeppni en KR vann
Val 1-0.
Þjálfari KR er Ian Ross en Ásgeir Elíasson
heldur um stjórntanmana hjá Fram. I liðunum era
7 leikmenn sem leika í Ólympíulandsliöinu sem
hefur verið á faraldsfæti að undanförnu. - HÁ
Já, Kjörbókareigendur góðir, það kom að
því. Þeir sem átt höfðu innstæðu, eða hluta
hennar, óhreyfða í 16 mánuði fengu
reiknaða fyrstu þrepahækkunina nú um
mánaðamótin: 1,4% viðbótarvextir voru
reiknaðirá innstæðuna 16 mánuði aftur í
tímann, samtals 70 milljónir króna. Á
hverjum degi þaðan í frá bætast svo
fleiri og fleiri Kjörbókareigendur við,
sem ná 16 mánaða þrepinu.
Átta mánuðum síðar hefst á sama
hátt, útreikningur á afturvirka 24
mánaða vaxtaþrepinu.
Kjörbókin ber háa vexti auk verð-
tryggingarákvæðis, verðlaunar þá
sérstaklega sem eiga lengi inni, en
er engu að síður algjörlega
óbundin.
Landsbanki
íslands
Banki allra iandsmanna
Um mánaðamótin stigu
28.480 Kjörbókareigendur
eittþrepuppávið.
Og fengu 70 milljónir í staðinn.