Tíminn - 07.05.1988, Síða 15

Tíminn - 07.05.1988, Síða 15
Tíminn 15 Laugardagur 7. maí 1988 Frelsishetja eða hryðjuverkamaður? - Sikhi sem tekinn var af lífi fyrir tæpum 50 árum veldur nú deilum í Hounslow-hverfínu í London er nú höfð uppi herferð til að heiðra Sikha, sem á sínum tíma réð af dögum breskan ofursta. Ekki líta þó allir íbúar hverfísins málið sömu augum. Deilurnar hafa tvístrað fylgismönnum Verka- mannaflokksins, sem hafa meirihluta í borgarstjórn, valdið því að einn borgarstjórnarmeðlimur hefur sagt sig úr flokknum í mikilli reiði og valdið klofningi meðal fólks af asískum uppruna í hverfínu en það er um 20% íbúanna. Hefndi fjöldamorðsins í Amritsar 1919 Ágreiningurinn stendur um hvort nefna eigi götu eða opinbera byggingu í höfuðið á Udham Singh. f augum fylgismanna hans er hann frelsishetjan sem hefndi fjöldamorðsins í Amritsar 13. apríl 1919. í augum andstæðinga þessar- ar hugmyndar er hann hryðju- verkamaður. Hann var hengdur fyrir tæpum 50 árum fyrir morðið á sir Michael O’Dwyer, sem var aðstoðarlandstjóri Breta í ind- verska héraðinu Punjab á þeim tfma sem fjöldamorðið fór fram. Fjöldamorðið var sá atburður sem mestu olli um að skipta fólki í andstæðar fylkingar á Indlandi meðan það laut stjórn Breta. A.m.k. 379 Indverjar, karlar, kon- ur og börn voru drepnir og 1500 særðust þegar Reginald Dyer hers- höfðingi og yfirmaður bresku her- sveitanna, gaf fyrirskipun um að skjóta að friðsamlegum mótmæla- fundi, sem haldinn var á auðu svæði í Amritsar. Dyer tók þá ákvörðun að sýna yrði ósveigjanlega festu til að koma í veg fyrir að bylting brytist út, en á því þóttu líkur, og á 10 mínútum var hleypt af 1650 skotum á mann- fjöldann úr aðeins tæplega 100 metra fjarlægð. O’Dwyer, sem bar pólitíska ábyrgð á Punjab-héraði, átti ekki upptökin að skothríðinni en veitti Dyer stuðning eftir þenn- an atburð. Réð sig í vinnu hjá fórnarlambinu og beið í þrjú ár Dyer var rekinn með skömm úr hernum og dó á sóttarsæng í Bret- landi 1927. En Singh leit svo á að O’Dwyer ætti raunverulega sök á því sem gerðist. Hann leitaði þess vegna O’Dwyer uppi í London 1937 og réðst í þjónustu fórnar- lambs síns sem einkaþjónn og bflstjóri. Þegar O’Dwyer hafði lokið við að halda „fyndna“ ræðu um Afgan- istan á opinberum fundi 13. mars 1940 skaut Singh hann tvívegis af stuttu færi. Að loknum tveggja daga réttarhöldum við Old Bailey, þar sem The Times sagði að sýnd hefði verið „þolinmæði", og synjun á áfrýjun var Singh, þá 37 ára garnall, tekinn af lífi í Pentonville fangelsinu 1940. Hann var greftr- aður við fangelsisvegginn. „Pólitísk aðgerð" - eða morð? Nú vill þrýstihópur í Hounslow, undir forystu Sanjivs Vedi, 27 ára gamals borgarstjórnarmanns, sýna rúinn aliri æru. O’Dwyer var aðstoðarlandstjóri í Punjab þegar fjöldamorðin fóru fram og tók á sig alla ábyrgð. Fyrir það varð hann að gjalda með lífinu. Udham Singh var tekinn af lífi sem sýna nafni hans virðingu. Singh heiður. Vedi fluttist til Bret- lands frá Kenýa 1970 og hann heldur því fram að drápið á O’Dwyer hafi ekki verið „framið með köldu blóði né hafi það verið einfaldlega morð“. Hann segir hér hafa greinilega verið „pólitísk aðgerð" á ferðinni. Samkvæmt frásögnum frá réttar- höldunum er augljóst að Singh var þeirrar skoðunar að hann væri að fórna lífi sínu fyrir Indland. „Ég hef horft upp á fólk svelta til bana í Indlandi undir breskri heimsveld- isstjórn," sagði Singh í yfirheyrsl- um lögreglunnar. „Ég biðst ekki afsökunar á því að mótmæla. Það var skylda mín að gera það, lands míns vegna.“ Vedi, sem vinnur á stofnun sem veitir ókeypis lagalega ráðgjöf, er ekki á sama máli og hvítir fulltrúar Verkamannaflokksins í borgar- stjórn, sem halda því fram að ekki sé hægt að heiðra minningu morð- ingja. „Ef sú röksemdafærsla ætti rétt á sér ættum við að gefa ný nöfn strætum sem bera nöfn Welling- tons og Cromwells," segir Vedi óhagganlegur. í broddi fylkingar þeirra sem ekki vilja sýna Singh þennan heið- ur er annar borgarfulltrúi Verka- mannaflokksins, Peter Smith, kennari í stjórnmálafræðum við King’s College í London. Hann heldur því fram að Singh hafi framið „persónulega hefndarað- gerð, sem ekki hafi verið hluti af pólitískri herferð í víðara sam- hengi. Hann var hryðjuverkamað- ur, ekki tengdur neins konar fjöldahreyfingu í Indlandi." Skjólstæðingur Vedi's í borgar- stjórn, Heston West, flutti tillögu sem er runnin undan rifjum Peters Pitt, fyrrverandi formann listaráðs Lundúnaborgar, þess efnis að „undir engum kringumstæðum ætti nokkrum stað í Hounslow að vera gefið nafn Udham Singh vegna þess að hann var, samkvæmt endanlegri skilgreiningu, morð- ingi.“ En þegar fulltrúar Verkamanna- flokksins í kjördæminu felldu að gera tillögu Pitts að sinni, gekk Pitt morðingi árið 1940. Nú vilja ýmsir úr flokknum. Pitt er 45 ára sögu- kennari og kenndi Vedi í skóla. Hann viðurkennir nú að milli hans og fyrrverandi nemanda hans sé „fjandskapur“. Pitt er reyndar sem stendur að íhuga að ganga í íhaldsflokkinn. „Nafn Udhams Singh minnir á hatur“ Margir Asíumenn sem njóta mikillar virðingar hafa líka lýst því yfir að þeir séu á öndverðum meið við Vedi. Inder Singh Uppal, sem starfar að málefnum eldri borgara í Hounslow og er sjálfur Sikhi segir: „Nafn Udhams Singh minnir á hatur. Þessi vanhugsaða hug- mynd skemmir tilraunir okkar til að koma á góðu samlífi kynþátt- anna“. En þrátt fyrir þessa háværu and- stöðu á hugmyndin um að heiðra Singh sífellt meiri hljómgrunn í Bretlandi. Leikritið Vengeance (Hefnd) er sem stendur á leikferð um Bretland og vekur áhuga á málinu. Og í Gullna hofinu í Amritsar, mesta helgistað Sikha, hangir mynd Singhs meðal mynda af öðrum virtum þjóðernissinnum. Jarðneskar leifar Singhs voru grafnar upp 1974 og sendar til Delhi. Þegar þangað kom veittu indverskirráðamenn.þ.ám. Indira Gandhi þáverandi forsætisráð- herra, þeim móttöku eins og um píslarvott væri að ræða. En vegna þess hvað málið er „viðkvæmt" að sögn talsmanna breska innanríkisráðuneytisins, eru skýrslur frá réttarhöldunum í Old Bailey svo og önnur plögg málinu viðkomandi geymdar undir lás og slá og bannaður að þeim aðgangur til ársins 2016. í stórkvikmyndinni um Gandhi var sýnt áhrífamikið atríði frá fjölda- morðinu í Amrítsar. Dyer hershöfðingi tók hina örlagaríku ákvörðun um skothríðina á fólkið. Hann dó á sóttarsæng,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.