Tíminn - 07.05.1988, Síða 17

Tíminn - 07.05.1988, Síða 17
Laugardagur 7. maí 1988 Tíminn 17 IIIIIIIIIIIIIIH ÁRNAÐ HEILLA Þormóður Jónsson Sjötugur 28. mars 1988 Misjafn er manna háttur. Sumir nota hvert tækifæri til að kynna sig og afrek sín. Þormóður Jónsson er ekki í hópi þessara manna. Hann varð sjötugur 28. mars sl. í algjörri kyrrþey suður á Kanaríeyjum, þar sem hann dvaldi í sólinni, ásamt konu sinni Þuríði Sigurjónsdóttur, fjarri öllum þeim sem vildu þakka honum fyrir farna vegferð. Þetta er nær lífsskoðun Þormóðs en í fyrstu sýnist. Það er fjarri skapi hans að hafa uppi lúðrablástur og fyrirgang um þau verkefni, sem fallið hafa í hans hlut. Þetta er gagnstætt þeirri tímans rás sem við lifum á, þegar mestu skiptir skvaldur í fjölmiðlum og á mannamótum, en kjarni máls og tilgangur látinn gleymast í málatilbúnaði. Hér ætla ég mér ekki þá dul að rekja langfeðgatal Þormóðs. Það læt ég öðrum eftir, sem hafa meiri færni til þess en ég. Meginmálið er úr hvaða jarðvegi lífstré Þormóðs Jóns- sonar er sprottið og þau lífsviðhorf sem sett hafa svipmót sitt á mann- gerðina. Hann er sprottinn af þing- eyskri samhyggju og mótaðist af samvinnuviðhorfum, þegar þau voru ómenguðust í þessu landi. Hann er einn þeirra er gengu í lærdómssmiðju meistarans frá Hriflu, sem þótti ágæt menntun á þeirri tíð. Þar tileinkuðu menn sér nýja samfélagsmynd og lífsviðhorf, sem í senn skóp tilgang og veittu fyllingu ílífsbaráttunni. Margirþess- ara manna töldu sig hafa hlutverki að gegna til átaka í samfélaginu. Þessir menn voru tilbúnir að fórna persónulegum metnaði og meta hlut- verk sitt fyrir liðsheildina, til að framkvæma lífshugsjónina í köldum veruleikanum og gera hana hlutlæga í þjóðfélagskerfinu, sem áfanga að fjarlægari langsóttum þjóðfélags- markmiðum. Þormóður Jónsson er samvinnu- maður í þjóðfélagslegum skilningi á gamla góða vísu, eins og best þótt á dögum Björns á Brún og Péturs á Gautlöndum. Samvinnustefnan er honum þjóðfélagsleið, en ekki ein- vörðungu hagsmunasamtök neyt- enda og framleiðenda. Hann er einn þeirra mörgu, sem eru af sama bergi brotnir og töldu að samvinnustefnan ætti að gegnumsýra þjóðfélagsdeigl- una, með hugmyndafræði sinni, langt út fyrir ramma hefðbundinna samvinnusamtaka. Það er í samræmi við þetta grund- vallarviðhorf, sem Þormóður undi sér að mestu sína starfsævi við að vinna að samvinnumálum. Áður en hann snéri heim til átthaganna, til að gerast umboðsmaður Samvinnu- trygginga, hafði hann í störfum sín- um gengið í skóla hjá þremur svip- miklum kaupfélagsstjórum á sinni tíð. Á Húsavík biðu Þormóðs sundur- leit verkefni. Eitt þeirra var forysta fyrir íþróttafélaginu Völsungum. í því starfi, tókst honum að samhæfa sundurleitan hóp áhugamanna. Sjálfur hafði hann áhuga fyrir lík- amsmenntun og mikill metnaðar- maður í öllum íþróttakeppnum. Snemma tókust með okkur góð kynni á Húsavík. Hann tók við formennsku sjúkrahússtjórnar eftir að ég lét af starfi bæjarstjóra. Síðar fóru leikar svo, að ég tók við starfi framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Húsavíkur, og þar vorum við nánir samstarfsmenn um fimm ára skeið. Bygging nýja sjúkrahússins á Húsavík var framúrstefnuátak, sem átti sér fáa líka hér á landi í sinni tíð. Þeir möguleikar, sem hið nýja sjúkrahús skóp, var stærsta tækifæri landsbyggðarinnar til að ráða bót á viðvarandi læknaskorti. Þetta var í raun fyrirmynd að hinu mikla átaki, sem gert var síðar í uppbyggingu heilsugæslustöðva og sjúkrastofnana víðs vegar um landið. Á Húsavík voru skilyrði til að samhæfa háþró- aða heilsugæslu rekstri sjúkrastofn- ana á héraðsvísu, sem gerði gagn- kvæmt samstarf lækna auðvelt, þannig að séð væri fyrir fagkröfum sjúkrahúss og heilsugæslu í senn, með aukinni þjónustu og nægu fram- boði lækna. Örlögin höguðu því svo að á Húsavík brotnaði ísinn. Saman fóru hugsjónir framsýnna manna, eins og Páls Kristjánssonar og starfs- draumar ungu læknanna. Uppgjörið var óumflýjanlegt. Reynslan hefur sannað að rétta leiðin var valin. Þegar samstarf okkar Þormóðs hófst við sjúkrahúsið var starfsemi eldra sjúkrahússins, sem næst því að leggjast niður. Til aðstoðar við þá ungu lækna, sem brutu ísinn, réðust tímabundið sérfræðingar af Borgar- spítalanum til að annast vandasam- ari verkefni við sjúkrahúsið. Það tókst að rétta við fjárhag rekstursins og efla þjónustu stórlega við erfiðar aðstæður. Ekki er hægt að minnast á lífs- hlaup Þormóðs Jónssonar, svo að lausn læknadeilunnar á Húsavík beri ekki á góma. Lyktir þessa máls eru þær að Húsavík og nálægar sveitir búa við eina bestu og ódýrustu heilsugæslu á landinu. Sjúkrahúsið er í fremstu röð sjúkrastofnana á sínu sviði. Læknakostur hefur verið nægur og tryggari á Húsavík, en almennt gerist utan stærstu þéttbýl- isstaða á íslandi. í læknadeilunni reyndi mjög á sjúkrahússtjórn og einstaka stjórn- armenn persónulega. Þetta á sér- staklega við um Þormóð Jónsson, formann sjúkrahússtjórnar. Það var hlutverk sjúkrahússtjórnar að vera þeir fáu, sem sáu betur. Það fer ekki á milli mála, að sjúkrahússtjórn undir forystu Þor- móðs Jónssonar var vandanum vaxin, þegar á reyndi á örlagastund. Vill nokkur hugsa þá hugsun til enda, ef sjúkrahússtjórn hefði brugðist skyldu sinni við stofnunina og héraðið. Brugðist þeim mörgu, sem vegferð sína áttu undir ákvörð- un stjórnarinnar. Það vinnulag og þau úrræði er dugðu best, er það sem einkennir Þormóð Jónsson og marga aðra slíka. Þeir byggja ákvarðanir sínar á félagslegri rétt- sýni, sem á rætur í djúpstæðri sam- félagshyggju, og er hafin yfir tilfinn- ingasemi og persónulega vild við sjálfan sig og aðra. Þetta er sú mikla reisn sem einkenn- ir mann eins og Þormóð Jónsson, þegar lffsstarf hans er metið og dæmt af sögunni. Þormóður vinur minn verður von- andi langlífur, svo sem hann á ættir til. Þrátt fyrir sjötíu ára markið hefur hann ekki lokið leik sínum. Hann hefur af miklum manni að má og fjarri því að hann standi í víta- spyrnukeppni um örlög sín. Ég óska Þormóði heilla á nýjum vettvangi meðal þingeyskra fræða og við ritstjórn blaðs Benedikts á Auðnum, Boðbera K.Þ., sem enn í dag er félagsblað þingeyskra sam- vinnumanna. Þuríði óska ég til hamingju með bónda sinn sjötugan, um leið og ég færi henni þakkir fyrir góðan gerning á heimili þeirra í Gamla sýslumanns- húsinu í Húsavík, sem enn er höfð- ingjasetur, sem á dögum Júlíusar Hafstein sýslumanns. Heimkynni þeirra hjóna setur svip sinn á Húsavík, þar sem bærinn skiptist við Búaðarána. Þetta er svipmót varanleikans og minnir á hina góðu gömlu tíð, þegar í heiðri voru hafðar fornar dyggðir og upp- tendruðust þær hugsjónir, sem enn í dag eru í senn markmið og leiðin að markinu. Áskell Einarsson. Útboð Siglufjarðarvegur um Gljúfurá, 1988 ''A'WA W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum (ofangreint f verk. Lengd vegarkafla 2,4 km, efnismagn 23.000 m3. Verki skal lokið 1. júlí 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 9. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 24. maí 1988. Vegamálastjóri • Útboð Hvammstangavegur, Norður- landsvegur - Hvammstangi, 1988 ''/v/m w Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint r verk. Lengd vegarkafla 4,5 km, efnismagn 63.000 m3. Verki skal lokið 15. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 9. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 24. maí 1988. Vegamálastjóri 5AMVINNU LJTV TRYGGINGAR vZ/TL'\\j ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK SlMI (91)681411 ^ Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum: Dodge Dynasty Le árgerð 1988 Peugeot 205 árgerð 1987 Daihatsu 1000 Cap árgerð 1986 Skoda 120 LS árgerð 1986 MMC Galant 1800 GLX Diesel árgerð 1985 Skoda 120 LS árgerð 1985 Daihatsu Charade árgerð 1984 MMC Tredia árgerð 1984 Honda Accord árgerð 1983 Honda Accord árgerð 1983 Fiat Uno árgerð 1983 Toyota Corolla 1300 GL árgerð 1982 Peugeot 504 árgerð 1982 Mercedes Benz sendi árgerð 1981 Mercedes Benz 280 S árgerð 1980 Fiat 127 árgerð 1980 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, mánudaginn 9. maí 1988, kl. 12-16. A sama tíma: Á Akranesi: Subaru E 10 árgerð 1983 Skoda árgerð 1983 Á Hvolsvelli: Daihatsu Rocky 4x4 árgerð 1985 í Ólafsvík: Mazda 626 árgerð 1982 Á Djúpavogi: Ford Granada árgerð 1982 í Borgarnesi: Subaru station árgerð 1987 Skoda 120 L árgerð 1986 MMC Galant Sapparo GLS árgerð 1981 Á Grund í Skorradal: Ford Bronco árgerð 1978 Á Eskifirði: Toyota Carina árgerð 1979 Á Patreksfirði: Skoda 120 árgerð 1987 Toyota Cressida árgerð 1981 í Grundarfirði: Ford Sierra árgerð 1986 Á Sauðárkróki: Subaru hatchback árgerð 1983 Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t., Ármúla 3, Reykjavík, eða umboðsmanna fyrir kl. 12, þriðjudaginn 10. maí 1988. Samvinnutryggingar g.t. Bifreiðadeild m REYKJKfJÍKURBORG »1 >>S M ____ ps «■* «-* ^ ■ Jlautevi Stidcvi '1* Heimilishjálp Starfsfólk óskast í heimilishjálp. Heilsdagsstörf eða hlutastörf eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 18800. Skipa- og vélaþjónusta Viljum ráða fagmenn og aðstoðarmenn vana viðhaldsvinnu við skip og vélar. Vélsmiðja Hafnarfjarðar sími 50145

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.