Tíminn - 07.05.1988, Page 24

Tíminn - 07.05.1988, Page 24
Sparisjóðsvextir qg yf irdráttur á téKKareiKnirgum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ókeypis þjónusta HRESSA KÆTA Tíminn íslenskur rannsóknarlögreglumaður ráðinn til alþjóðalögreglu: INTERPOL í PARÍS „Gamall draumur er að rætast,“ segir Smári Sigurðsson, rannsóknarlögreglumaður hjá RLR, en hann er fyrsti íslendingur- inn, sem ráðinn er til starfa í höfuðstöðvum Alþjóðasamtaka sakamálalögreglu, Interpol, í París. Smári er ráðinn til þriggja ára. „Ég hef lengi haft hug á að komast til Interpol. Svo gafst kostur á þessu núna og þá sló ég til. Ég fer utan 30. maí og byrja 1. júní.“ Spurður hvað tæki við að þessum þremur árum hjá Interpol liðnum, sagði Smári að hann hefði ckki hugsað svo langt fram í tímann. Tiltölulega stutt væri liðið frá því hann hefði verið ráðinn. Smári hóf störf í lögregluliöi Kópavogs í maí 1968, en færðist til RLR við stofnun 1977. Þar hcfur hann mest fengist við rannsóknir á fjársvikum, skjalafalsi o.þ.h., enda mun hann fyrst um sinn starfa í undirdeild fjársvikadeildar hjá Int- erpol, sem fæst við peningafals. „Þetta leggst mjög vel í mig,“ segir Smári, sem er fjölskyldumað- ur, en aðrir fara ekki með honum til Parísar. „Ég verð einn til að byrja með. Fólk hefur skyldum að gegna hér heima.“ Interpol var stofnað árið 1923. ísland gerðist aðili árið 1971 og er eitt 146 aðildarríkja. Meginhlut- verk Interpol er að stuðla að aðstoð aðildarríkjanna við lausn saka- mála. Par er mikilsverðum upplýs- ingum safnað, sem aðildarríkin eiga aðgang að þegar þörf krefur. Ein mikilvægasta skráin er fingra- farasafnið. Aðalstöðvar Interpol verða fluttar til Lyon í Frakklandi á næsta ári. þj Smári Sigurðsson, rannsóknarlögreglumaður, með hundinn Kóp, á heimili sínu í Kópavogi. Aldrei fyrr hefur íslenskur lögreglumaður verið ráðinn til Interpol. (Tíminn: Gunnar) Jaröskjálfti á Reykjanesi í gær: Von á fleiri jarðskjálftum á Reykjanesinu Vægur jarðskjálfti fannst í Reykjavík um klukkan hálf þrjú í gær og fylgdu nokkrir litlir kippir í kjölfarið. Hér var um að ræða jarðskjálfta sem átti upptök sín rétt vestan Kleifarvatns og mældist hann rúmlega þrjú stig á Richter-kvarða. Að sögn Ragnars Stefánsson- ar, jarðskjálftafræðings, var þetta ekki fyrsta hrinan á svæðinu, því að nokkrir smákippir fundust þar aðfaranótt fimmtudags. „Þetta er nú frekar algengt á þessum svæðum. Að vísu eru nokkur ár síðan það hafa komið hrinur líkar þessari, en þetta er nokkuð sem er viðbúið á Krísu- víkursvæðinu. Skjálftinn í gær var heldur stærri en hefur verið þarna á síðustu árum, en ef við lítum lengra aftur í tímann, þá voru mjög stórir kippir á þessu svæði 1973 og nálguðust þeir fimm stig á Richter," sagði Ragnar. Hann sagði að mjög líklegt væri að fleiri kippir væru væntan- legir á næstu dögum, líklega frá laugardegi til mánudags. Þeir skjálftar yrðu að öllum líkindum af sömu stærð og sá sem varð í gær. -SÓL Aöalfundur Kaupfélags Eyfiröinga á Akureyri í gær: Viðunandi afkoma, miðað við aðstæður Fra Halldóri Inga Aspeirssjni, fréltarilara Tímans á Akureyri Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga hófst í gærmorgun á Akureyri. Rétt til setu á fundinum eiga 264 fulltrúar frá 24 deildum. I skýrslu Jóhannesar Sigvaldasonar, stjórnarformanns KEA og Vals Arnþórssonar, kaupfélagsstjóra, kom fram að reksturinn var réttum megin við 0-ið á síðasta ári, sem nam 49,9 milljónum. Heildarvelta KEA á sl. ári var 7,3 milljarðar. Velta verslunar- deildar var 2,3 milljarðar, land- búnaðargeirans 1,7 milljarðar, sjávarafurðadeildar 708 milljónir, iðnfyrirtækja 560 milljónir og þjón- ustufyrirtækja 303 milljónir'. Hagnaður KEA á sl. ári fyrir skattalegar ráðstafanir var 49,7 milljónir króna. Sambærileg tala í árslok 1986 var 8,8 milljónir. Eigið fé KEA jókst um 257,9 ■ milljónir auk þess sem stofnsjóður félagsmanna hækkaði um 5 mill- jónir. Eigið fjárhlutfall hefur hins- vegar lækkað nokkuð vegna mis- vísunar í vísitölu. Hlutfallið í árs- lok 1987 var 47,9%, en var 49,8% í iok fyrra árs. Hreint veltufé jókst um 103,4 milljónir og veltufjárhlutfall hækk- aði úr 1,19 í 1,24. Grciðslustaðan batnaði því, en þess ber að geta að útistandandi skuldir hafa vaxið verulega og veldur áhyggjum og getur orskað tímabundna greiðs- luerfiðleika hjá félaginu. Útistand- andi skuldir jukust um 252,3 millj- ónir króna. Á árinu fjárfesti félagið í varan- legum rekstrarfjármunum upp á 68,5 milljónir króna. Keypt voru hlutabréf fyrir 63,6 milljónir og munar þar mest um 40 milljóna hlutafjárframlag til Útgerðarfélags KEA vcgna kaupa á nýju Snæfeili. Einnig var hlutafé aukið í Hafnar- stræti 87-89 hf., sem byggir Hótel KEA. Þá yfirtók félagið AKVA, sem staðsett er í Mjólkursamlagi KEA, og tók við eignum þess og skuldum, sem hvort um sig voru um 30 milljónir króna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.