Tíminn - 14.05.1988, Side 15
Laugardagur 14. maí 1988
Timinn 27
ARNAÐ HEILLA
Vilborg Krístjánsdóttir
Nú eru senn liðin 15 ár frá því
fundum okkar Vilborgar Kristjáns-
dóttur bar saman í fyrsta sinn. Pað
var síðsumarkvöld á ágúst 1973. Ég
var að koma norðan úr landi og
þreyttur eftir langa ferð og hafði
verið boðin gisting á Ölkcldu. Á
þeim tíma var búandi á Ölkeldu
Guðbjartur Gíslason, sonur Vil-
borgar og kona hans Ásdís Þor-
grímsdóttir og börn þeirra hjóna,
Vilborg löngu orðin ekkja og hætt
búskap, enda stóð hún þá á áttræðu.
Ég sé hana fyrir mér þessa öldruðu
konu, fíngerða og fágaða í fasi,
höfðinglega og fríða sýnum þrátt
fyrir háan aldur. Og nú eru senn
liðin 15 ár frá þessu kvöldi og
Vilborg á Ölkeldu er enn meðal
okkar og engu líkara en öll þessi ár
hafi látið hana ósnortna á ytra
borðið, þótt hún hafi orðið fyrir
þeirri sáru reynslu að sjá á bak syni
sínum Guðbjarti í blóma lífsins nú
fyrir 4 árum. Ég veit að það var
henni þungbær raun, en á langri ævi
hefur hún lært það sem mest er um
vert, að taka því sem að höndum ber
með jafnaðargeði og í fullkomnu
trausti til höfundar lífsins, hvort sem
það er gleði eða sorg, meðlæti eða
mótlæti.
í okkar fámennu kirkjusókn að
Staðastað eru þeir fáir sem hafa látið
sér jafnannt um kirkju sína sem
Vilborg á Ölkeldu. Vart hefur liðið
svo ár síðan ég kom hingað vestur
sem prestur þessa safnaðar, að Vil-
borg hafi ekki á einn eða annan hátt
minnst kirkju sinnar með því að færa
henni fjárupphæð af sínum litla
lífeyri eða höfðinglegar gjafir, nú
síðast á liðnu ári forkunnarfagran
altarisdúk ofinn. Fyrir allt þetta færi
ég henni þakkir nú á 95 ára afmælinu
og eins fyrir ógleymanlegar sam-
verustundir á heimili hennar að
Ölkeldu og vináttu alla við okkur
hjónin og heimili okkar. Enn kemur
hún til kirkju og gengur óstudd til
sætis síns, þótt öldina eigi hún senn
að baki. Það er ævintýri líkast að
eiga slíkt fólk í hópi sóknarbarna og
viss munaður að hafa fengið að
kynnast því.
Vilborg var á yngri árum ákaflega
fríð kona og glæsileg, bar hógværa
reisn og höfðingsbrag í fasi, og þótt
hún hafi lagt öll þessi ár að baki og
mikla lífsreynslu þá fylgir henni enn
þetta höfðinglega yfirbragð sem fyrr,
hógværð og festa í hennar skæru og
gáfuðu augum og röddin lág og hlý.
Ég minnist þess hversu skemmtilega
ræðu hún flutti í 90 ára afmæli sínu,
skýra og rökhugsaða, hógværa og
hnitmiðaða, þar voru nú ekki elli-
glöpin á. Og enn er hugur hennar
tær og minnið ófölskvað.
{ 73 ár hefur Vilborg átt heima hér
á Ölkeldu eða allt frá því hún giftist
Gísla Þórðarsyni bónda þar árið
1915, en þá var Vilborg á 22. ári.
Vilborg kom frá Hjarðarfelli í Mikl-
holtshrepi, hálfsystir Guðbjarts
Kristjánssonar bónda og hreppstjóra
þar. Foreldrar hennar voru þau
hjónin Kristján Guðmundsson
bóndi á Hjarðarfelli (d. 1902) og
Elín Árnadóttir frá Stafholti. Gísli á
Ölkeldu eiginmaður Vilborgar var
einn af merkustu bændum sinnar
tíðar hér vestra og vann hér mikið
að félagsmálum bænda og framfara-
málum héraðsins. Hann átti sæti í
hreppsnefnd um langt árabil eða frá
1919-46 og var hér oddviti um 12 ára
skeið og formaður skólanefnda var
hann frá 1934-47. Þau Vilborghéldu
skóla á heimili sínu um fjölmörg ár
og var það lengstum 6 mánaða skóli
og stór hluti barnanna úr sveitinni
því í heimavist á Ölkeldu. Öllum
þessum bömum var Vilborg sem
besta móðir, og ég minnist þess sem
vinkona mín ein sagði um Vilborgu
er hún minntist þessara löngu liðnu
vetra sem hún var í skóla ung telpa
á Ölkeldu: - hún Vilborg var eins og
móðir okkar, hún hefði ekki getað
verið okkur betri þótt við hefðum
verið börnin hennar. - Og þannig
hefur Vilborg Kristjánsdóttir reynst
öllum sínum samferðamönnum,
börnum öllum sem móðir og öðrum
ráðhollur vinur, einlæg, hlý og góð.
á Ölkeldu, 95 ára
Vilborg og Gísli eignuðust 7 börn
og ólu að auki upp einn son sem þau
gengu í foreldra stað. En börn
Vilborgar og Gísla á Ölkeldu eru
þessi:
Þórður, búfræðingur, bóndi á
Ölkeldu II, kvæntur Margréti Jóns-
dóttur. Elín Guðrún, húsfreyja, gift
Þórði Kárasyni lögregluvarðstjóra í
Reykjavík. Alexander, ókvæntur
heima á Ölkeldu. Kristján Hjörtur,
búfræðingur, áður bóndi á Fossi í
Staðarsveit, nú búsettur í Borgar-
nesi, kvæntur Rannveigu Jónsdótt-
ur. Ólöf Fríða, húsfreyja, gift Sverri
Gunnarssyni bónda í Hrosshaga í
Biskupstungum. Guðbjartur (d.
1984), búfræðingur, bóndi á Öl-
keldu, kvæntur Ásdísi Þorgríms-
dóttur. Lilja, sjúkraliði og húsfreyja,
gift Marteini F. Níelssyni, járnsmið
í Reykjavík. Fóstursonurinn er
Kristján Guðbjartsson, nú búsettur
á Akranesi.
Fátt er dýrmætara í lífinu en
barnalán og barnaláni hefur Vilborg
sannarlega átt að fagna. Hún nýtur
þeirrar gæfu að geta enn í sinni háu
elli búið í skjóli sonar síns Þórðar og
Margrétar konu hans á sínu fagra
heimili á Ölkeldu, þar sem hún
hefur lifað sínar bestu stundir. Þar
dvelst hún nú ásamt Önnu Olgeirs-
dóttur og einu af sínum fjölmörgu
barnabarnabörnum. Og á Ölkeldu
vonum við að hún fái að hverfa
okkur er þar að kemur, þessum stað
þar sem hennar langa og farsæla
lífsstarf hefur verið unnið. Við hér á
Staðastað færum þér, Vilborg, okkar
innilegustu þakkir fyrir góð kynni og
biðjum við þér blessunar á 95.
afmælisdegi þínum.
Rögnvaldur Finnbogason
I ■ ■
'I'
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í eftirfarandi:
1. Nesjavallaæð pípulögn 2. áfangi, leggja skal 0
800 mm stálpípu yfir Mosfellsheiði. Lögnin er
alls tæpir 13.6 km, þar af eru 0.3 km neðanjarð-
ar en 13.6 km ofanjarðar.
2. Nesjavallaæð, pípulögn 3. áfangi, leggja skal
2.6 km af 0 900 mm pípu og 1.2 km 0 800 mm
pípu milli Nesjavalla og lokahúss 3, sem er
austanlega á Mosfellsheiði.
Hitaveita Reykjavíkur býður væntanlegum bjóð-
endum í skoðunarferðávinnusvæði fimmtudaginn
19. maí 1988. Lagt verður af stað frá bækistöð
hitaveitunnar að Grensásvegi 1, kl. 13.15. Þátttaka
óskast tilkynnt Hitaveitu Reykjavíkur í síma 82400
fyrir kl. 16. miðvikudaginn 18. maí.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu fyrir hvort verk fyrir sig.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
31. maí kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Starfsmenntun
í atvinnulífinu
Á vegum ráöuneytisins eru komin út í fjölriti erindi sem flutt voru á
ráðstefnu um starfsmenntun í atvinnulífinu er haldin var 28.
nóvember 1987. Það hefur verið sent til þátttakenda. Þeim, sem ekki
gátu setið ráðstefnuna en hafa áhuga á að kynna sér erindin, er bent
á að snúa sér til Bóksölu stúdenta, Félagsheimili stúdenta við
Hringbraut, sem hefur fjölritið til sölu.
Félagsmálaráðuneytið
13. maí 1988
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK SlMI (91)681411
Alhliða skrifstofustarf
Óskum eftir skrifstofumanni á aðalskrifstofu félagsins nú þegar.
Starfið erfólgið í alhliöa skrifstofustörfum. Upplýsingar og umsóknar-
eyðublöð hjá starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411.
Samvinnutryggingar g.t.
■nmrr
mykjutæki
Mykjudælan og dreifarinn leysa
mykjuvandann í eitt skipti fyrir öll.