Tíminn - 28.05.1988, Síða 16
HELGIN
Laugardagur 28. maí 1988
I
ekkert svikinn af viðbrögðum
bílsins. Hins vegargeturhann látið
hana halda við í öðrum gír, t.d.
þegar farið er niður brekkur. Hann
getur ekki gert eins og maður gerir
gjarnan í kraftspyrnuleik, að taka
af stað með látum í fyrsta gír og
hleypa honum ekki upp fyrr en á
miklum snúning. Þetta er ekki
hægt á Hondu-skiptingu og það
sem meira er, þetta er algjör
óþarfi. Skiptingin er alls ekki eins
seig og aflíðandi og við þekkjum í
öðrum bílum. Hún er frekast í ætt
við sérhannaðar sportskiptingar.
Fjórði gírinn á skiptingunni er svo
fyrir þjóðvegaakstur og annan
akstur á yfirgír.
Stýriseiginleikar
Þá er vökvastýrið einkar þægi-
legt í allri notkun. Það er stillanlegt
á hæðina, þannig að maður hefur
það uppi þegar verið er að gera
innanbæjaræfingar og niðri þegar
verið er í þjóðvegaralli. Stýrið er
ótrúlega næmt á allt sem bílstjórinn
vill að það geri og það er ekki með
neinar óvæntar uppákomur við
krítískaraðstæður. Gottstýri það.
Hvernig tókst að troða?
Þá er komið að vélinni og verð
ég að viðurkenna strax að ég kann
engar viðhh'tandi skýringar á því
hvernig hönnuðum hefur tekist að
troða henni ofan undir vélarhlíf-
ina. Það er með ólíkindum hvernig
90 hestafla, fjögurra strokka, 16
ventla og 1398 rúmsentímetra vél-
inni hefur verið pakkað saman
undir húddinu án þess að láta hana
dragast niður á milli framhjólanna.
Sama hvernig
honum var snúið
Aksturshæfni Civic er með all
sérstæðu lagi. Það er sama hvernig
bílnum er svínað í beygjur og
snúið í hringi. Aldrei var hægt að
finna að hann ætlaði að taka völdin
eða rífa af ökumanni stýrið.
Það verður þó eitt að segja
honum til hnjóðs í þessu sambandi.
Þegar konan mín ágæta ók bílnum,
en hún ekur öllum bílum einhvern
spöl sem ég prófa, lenti hún í
vandræðum með það hversu lítið
pláss er fyrir falleg hnén. Varð ég
einnig var við þetta þótt ekki séu
mín hné eins falleg. Kemur þetta
út eins og Akkilesarhæll á góðri
hönnun, þar sem t.d. er vel hátt
fyrir hávaxna menn að sitja upp-
réttir. Fylgir þetta sjálfsagt þeim
lága framenda sem bíllinn er
búinn. Hann er einfaldlega lágvax-
inn til hökunnar. Kemur þetta
heim og saman við kappaksturslegt
útlitið.
Þrjú stór af Skaganum
Ég nefndi hér á undan að vel
hefði farið um þá fjóra farþega sem
ég plataði með mér í ökuferð og
sama verður að segja um mig
sjálfan. Þá var bílnum ekkert
brugðið hvað þyngdina varðar,
jafnvel þótt ekki væri um neitt
smávaxið fólk að ræða. Reyndar
voru farþegar okkar hjónanna
frekar stórvaxið fólk á ýmsa lund,
allt ofan af Skaga. Með þessar
klyfjar varð ekki heyrt að aurhlíf-
arnar drægjust til baga eftir malbik-
inu. Gerðist það ekki nema í
dýfunum sem hann tók eftir dúandi
ökulagi vegagarðarmannanna, sem
á heitum sumrum þessa kalda lands
leggja nótt við dag að greiða okkur
götuna, sofandi og vakandi með
velferð okkar í huga bundnum
malbiki og olíusvækju.
Kristján Björnsson
Aksturseiginleik-
ar, stýri, sjálf-
skipting, fjöðrun,
rými, stjórntæki.
Hæð undir
botninn, hæðin á
stýrinu.
Þó að hér sé Honda Civic (jögurra dyra GL við bryggjusporð, er ekki þar með sagt að hann sé svo dýr að enginn hafi efni á honum nema ráðsettir farm
enn eða skipstjórar. Tímamyndir Pjetur
Reynsluakstur: Honda Civic, fjögurra dyra, sjálfskiptur, GL
Eins og límdur
niður í öll horn
Þá er runnin upp sú tíð að flugurnar fara að safnast
í óumdeilda afmyndun uppí framrúðuna mína. Sumar-
ið er komið og blíðan ríkti þegar Tíminn tók sér tak og
Ireyndi til þrautar einn af léttari sportbílum fjöl-
skyldumanna, Hondu Civic, fjögurra dyra, Sedan. Var
I ekki að sökum að spyrja að vel var hann í stakk búinn
I til að leggjast í allar þær stellingar og brettur sem
| fylgir því að vera tekinn til kostanna á leirum ímyndun-
Iarinnar og sléttu fjöruborði hugmyndaauðgis þess
manns er fæddist til að sitja góðhestinn sinn á
| fljúgandi skeiði vortíðarinnar, þegar himinn og jörð
Ieiga það til að renna saman í einn og hinn sama
sjónarflöt andans.
I
I Tókst það held ég
Það var sem sagt gaman að
■ reyna Honda Civic. Engu er líkara
I en upphafsmanninum að bílafram-
Ileiðslu Honda hafi tekist ætlunar-
verk sitt. Minnir mig að það hafi
| verið á þá leið að búa til bíl sem
Ihann gæti grætt vel á og hann yrði
því að vera rennilegur, sportlegur,
Iskemmtilegur í akstri og umfram
allt varð hann að gefa ökumanni þá
I tilfinningu að hann væri að aka um
J á frekar aflmiklum kappakstursbíl.
| Ekki skal ég dæma um hvernig
■ Hondumönnum hefur gengið að
| græða fé á framleiðslu sinni, þó að
Imér skiljist að svo sé, en hitt er
ljóst að bíllinn er eftirsóknarverður
fyrir þá sem vilja eiga góðan götu-
bíl í þéttbýlinu og rennilegan hrað-
brautarbíl sem þrátt fyrir það getur
tekið fimm fullorðna í sæti.
Sterka hlið þessa knáa ökutækis er á
lengri. Hér sést vel hvernig framendinn
gæti verið einkunn hans.
stuttum hraðbrautum sem og þeim
límir sig við götuna, rétt eins og það
Sama hvernig honum var snúið eða þeytt hring eftir hring. Alltaf voru hjólin
í snertingu og aflið var ekkert að snúa upp á sig í samkeppni við stýrið.
I
■ Ekkimikiðútámalarvegi
Ég vildi samt ekki þurfa að fara
| á þessum bíl mikið út á malarvegi
og satt best að segja þorði ég ekki
að reyna hann á slíkum vegum
nema að litlu leyti. Maður fer allt
svo ekki með svona bíla út af þeirri
beinu braut sem þeir eru hannaðir
fyrir.
Tíminn ákvað að skreppa til
Þingvalla og borða úti eins og það
heitir þegar farið er á „vertshús“
og setið inni í blíðviðri við kertaljós
og góða þjónustu. Þar fengum við
um leið reynslu af lítillegum akstri
á malarvegi. Gekk það furðu vel,
en niðurstaða mín verður sú að
ekki er ráð að aka nema sem allra
minnst á misjöfnum malarvegum.
Veldur þar mestu um að frekar lágt
erundiralla hluti í undirvagninum.
Honda-sjálfskipting
Vélin í Hondunni átti ríkastan
þátt í því að gera allan akstur
skemmtilegan og kem ég að henni
síðar. Hins vegar verður það ekki
af henni skafið að stýriseiginleikar
og skipting eru með allra besta
móti. Byrja ég því á skiptingunni,
en í prufubílnum var dæmi um
sjálfskiptingu sem er sérstök hönn-
un Honda verksmiðjanna. Hún er
ekki eins og sjálfskiptingar eru
flestar. í fyrsta lagi er hún fjögurra
þrepa og í öðru lagi er hún ekki
með möguleika á að halda bílnum
í fyrsta gír. Það er ekkert D fyrir
„drive“ eins og á evrópskum og
amerískum skiptingum. Ökumað-
ur tekur af stað í „þriðja gír“ á
sjálfskiptingunni og hann verður
J