Tíminn - 10.06.1988, Page 3
Laugardagur 11. júní 1988
að hann greip broddstaf sinn, og
miðaði honum á drenginn; hann gat
aðeins vikið sér til hliðar, en stafur-
inn stóð blýfastur í húsþili, er dreng-
urinn stóð upp við, og mundi hafa
sært hann, eða jafnvel drepið, ef í
hann hefði komið.
Vilhelm Hölter var Iaunsonur
Diðriks Hölter skósmiðs og Mar-
grétar Óiafsdóttur, systur Valgerðar
Robb. Hann var mjög drykkfelldur
og fremur illa kyntur, oflátungur og
montinn í meira lagi; hélt sig vel í
klæðaburði, var venjulega í einskon-
ar ,,diplomat“ frakka úr svörtu
klæði, og dökkbláum yfirfrakka utan
yfir að vetrarlagi. Hann flakkaði um
ýmsar sveitir lands, og vildi láta hafa
mikið við sig. Hann var dálítið
hagmæltur, en þóttist vera stórskáld,
og vildi Iáta skoða sig svo. Hann gat
opt verið talsvert fyndinn og ill-
skældur í kveðlingum sínum. Einu
sinni orkti hann „píuballs“-brag um
þemudansleik í bænum, sem þá
voru mjög tíðkaðir. Því miður er
ekki hægt að prenta braginn, og á
Eyjólfur Ijóstollur. Hann innheimti
reikninga fyrir Dómkirkjuna og
þannig fékk hann auknefnið.
hann það þó skilið, en samt má
láta þessa vísu fokka:
En mörg var mæðin þunga,
fyrír Möngu „sunnan á“,
hún sat með sorgardrunga,
sífelt yfir þá.
Fauk í flestöll skjólin
fyrir menjagná,
þá sá hún skilkikjólinn,
Siggu „blönku“ á.
Þessum brag reiddust „píurnar"
ákaflega, og þóttu sér illa launaðir
margir bitar og sopar, sem þær
höfðu stunið að Hölter í „heim-
sóknar“-ferðum hans. Var hann um
langt skeið eptir þetta gjör útlægur
úr öllum eldhúsum heldra fólksins í
bænum, en þar hafði hann áður
verið tíður gestur. Fór hann þá að
leggja leiðir sínar til tómthúsmanna,
og gjörðist meiri alþýðuvinur en
áður.
Stjúpu átti Hölter, er Elín Egils-
dóttir Sandholt hét; ekki voru miklir
kærleikar milli þeira, og orkti Hölter
ýmislegt um hana, þar á meðal þetta:
„Mín er stjúpa músagrá,
mjög er illileg að sjá,
hún er bráðum fallin frá,
fjörgömul með rauðan skjá“.
Og enn:
„Senn mun stjúpa lífið láta
og leysast heimi frá,
Vilhjálmur mun varla gráta,
veizlu fær hann þá,
Hrókur alls fagnaðar
Hensi hjá Smith. Hinrik þessi
Árnason, ætíð kallaður „Hensi“,
var nokkurskonar undirpakkhús-
maður hjá Smith. Hann var mjög
einkennilegur náungi, lítill vexti en
knálegur, eldrauður ( andliti, því
honum þótti „sopinn" mjög góður.
Hensi var síkátur og spriklaði af
fjörinu, og var sjálfsagður forkólfur
og „fordansari“ á öllum píuböllum,
enda dansaði hann ágætlega. Hensi
var því hrókur alls fagnaðar, hvar
sem hann var staddur. Hann hafði
mikla rödd, og söng altaf, þegar
hann varð hýr. Yrði Hensi verulega
kendur, þá „marcheraði" hann um
göturnar, einkum um bakarastíginn,
því hann átti heima fyrir „ofan læk“,
venjulega með brennivínsflösku í
hægri hendi, sem hann veifaði í
kringum sig og brúkaði jafnframt
sem nokkurskonar taktstokk. Þá
söng hann altaf með miklum krapti
þessa vísu:
Kalifornien er et Land
uden Lige,
der kan hver en Mand
blive rige,
hvis man kender Sand frá Guld,
det er Sá’en (Sagen),
saa kan man bære en Pose fuld
hjem om Dá’en (Dagen).
Gjörólíkur þessum mönnum, sem
nú hafa verið nefndir, var Halldór
nefndur Absalon, en hversvegna
veit ég ekki. Hann var einhver
fráasti göngumaður á sinni tíð, alt
fram á efri ár, og var mikið í
ferðalögum, en er hann tók að eldast
gerðist hann vatnsberi. Hann var
alla æfi ókvæntur og barnlaus. Hann
var annálaður þrifnaðarmaður, en
nokkuð gamaldags í klæðaburði, í
buxum, sem náðu upp undir herða-
blöð, og batt þær saman að neðan,
líkt og hjólreiðamenn gjöra, í
klæðistreyju, sem náðu rétt buxna-
strengnum, með lambhúshettu á
höfðinu, sem hann tók aldrei af sér,
nema þegar hann fór í kirkju, en
þangað fór hann á hverjum helgum
degi, og sat altaf á sama stað, á
krókbekk uppi, bak við orgelið.
Hann var reglumaður, og safnaði
peningum, og lét ýmsa höfðingja
bæjarins geyma þá fyrir sig á víxl, en
skömmu fyrir dauða sinn tók hann
þá til sín. Við uppskipti eftir hann
fundust þessar eignir: Heilfatnaður
úr útlendu efni, 12 nýjar lérepts-
skyrtur, er hann hafði aidrei komið
í, og 14 nærbuxur, flestar alveg
nýjar, önnur föt eptir þessu, einkum
sokkaplögg. Fötin voru kyrfilega
samanbrotin í kistu hans, og var reyr
lagður í hann til góðrar lyktar, en í
peningum fundust aðeins - 5 rdl.
Var mikil eptirgrenslun gjörð eptir
þeim, en þeir komu aldrei fram.
Á sextán skóm
Frægastur allra þessara einkenni-
legu manna var Sæfinnur í Glasgow
Hannesson. Hann var ættaður aust-
an úr Árnessýslu. Um þrítugsaldur
mun hann hafa farið í Hafnarfjörð,
eptir að hafa verið til sjóróðra fyrir
sunnan, þaðan fluttist hann til
Reykjavíkur með Levinsen factor
við Glasgowverslun. Sögur fara af
því, að hann hafi snemma farið að
nurla saman peningum á ýmsan
hátt, með því að láta gárunga narra
sig til hins og þessa fyrir nokkra
skildinga, t.d. að gleypa þá, og
eignast þá svo, er þeir komu aptur
sækja þá ofan í vatnsílát með
munninum, með því að stinga höfð-
inu ofan í það svo að lá við köfnun;
einnig að sækja þá á sama hátt ofan
í tjöruílát, o.s.frv.
Um Sæfinn orktu strákarnir þenn-
an bögustúf.
Sæfinnur með sextán skó
sækir vatn og ber inn mó,
og ekki er unt að lýsa honum betur
í fáum orðum. Það var aðalstarf
hans í lífinu að sækja vatn og bera
inn mó, og það var bókstaflegur
sannleiki, að hann hafði sextán skó,
eða réttara sagt skóparta á fótunum.
Það er alveg ótrúlegt, en samt satt,
að Sæfinnur hafði ótal skóræfla eða
parta af þeim á fótunum; vöðlaði
hann eða batt þessa parta saman á
óskiljanlegan hátt, og yzt hafði hann
iðulega í þurru veðri afdankaða
brauðbakka úr tré. Fótabragð hans
var því harla kynlegt, og hlaut
hverjum manni að verða starsýnt á
fætur hans. Að ofan var hann svo
búinn, að hann var ekki í vesti,
heldur mörgum vestispörtum eða
boðungunum hverjum utan yfir
öðrum, þar yfir í frakka og girtur
svarðreipi. Á höfði hafði hann vana-
legan, gamlan flókahatt, sem hafði
verið „móðins" á dögum Jörundar
hundadagakonungs. Sæfinnur var
fremur hár maður og þrekinn, með
mikið dökt skegg, og sópaði því
talsvert að honum. Hann var hinn
mesti geðprýðis- og stillingarmaður,
svo enginn maður sá hann nokkurn
tíma reiðast.-Hann var því yfirleitt,
lítið ásóktur af götustrákunum, því
það er lítil ánægja í því að stríða'
mönnum sem aldrei bregða skapi.
Hann hirti alt og hélt til haga öllu
því, sem hann eignaðist eða fann, og
bar það heim í dyngju sína og gróf
það þar, - niður - í skarn og mold á
heimili sínu, en það var á salerninu
bak við Glasgow.
Þegar Glasgow var reist, var þar
sett upp heljarmikil verzlun, og
niðursuða á lax fór þar fram í
geymsluhúsinu. Það voru því mörg
salerni í bakhýsi þar, en þegar alt fór
um koll rétt fyrir 1870, urðu salernin
óþörf, og þá lagði Sæfinnur, sem þá
var nýkominn til bæjarins, undir sig
tvö salerni, og hafði bólfestu sína
þar upp frá því. - Sæfinnur var mesti
reglumaður, og drakk aldrei brenni-
vín, nema hann fengi það ókeypis.
Það var því í almæli, að hann ætti
drjúgum peninga, því margan skild-
ing innheimti hann. Um 1890 var
bæli hans rifið og haugurinn rofinn.
Það var hlaði, mannhæðarhár, og
gildur faðmur á hvern veg, af alls-
konar rusli. Það var götusorp og
fjörurusl, fataræflar, flöskubrot og
hverskonar ónýtt skran, og silfur og
gull. Þar fundust rúmar 300 kr. í
gulli og silfri, auk fúlgu af ógjald-
gengum, gömlum peningum: specí-
um, ríkisdölum, ríkisortum,
mörkum, skildingum o.s.frv., sem
þá voru úr gildi fyrir 15 árum.
Peningarnir voru vafðir innan í bréf,
hver peningur fyrir sig, bréfunum
stundum potað niður í frálausa þum-
algarma, og þeim aptur og bréfunum
potað hingað og þangað innan um
alt skranið og sorpið. Auk pening-
anna, vatnspeninganna, vatnsburð-
arkaupsins fyrir 20 ár, og nokkurra
hattræfla og tómra flaskna, var ekki
nokkur hlutur í hinu mikla safni,
sem metinn myndi tvfeyrings virði.
En þar fundust mörg hundruð skó-
bætur, mörg hundruð flöskubrot,
skeljabrot svo þúsundum skipti,
mörg hundruð þumalsmokkar, mörg
hundruð ónýtar pjötlur.
Eigandinn stóð lengst af hljóður
og hógvær yfir, meðan hervirkið var
framið, haugurinn rofinn. Geðprýð-
inni hallaði aldrei. En loks fór hann
að gefa sig að vinnu með hinum, og
tína saman hitt og þetta úr haugnum,
er honum var sárast um, og reyna að
forða því undan glötun. Einhverju
smávegis var honum lofað að halda
sér til hugfróunar, en annars var öllu
hreiðrinu, að peningunum frátekn-
um, ekið til sjávar og fórnað Ægi.
Peningasöfnun
Það er annars einkennilegt, að
margir aurasafnarar vefja hvern
skilding, sem þeim áskotnast, inn í
sérstakar umbúðir, og geyma hann
þannig; þetta gerði t.a.m. Hannes
prestaskólakennari Árnason, sem að
mörgu leyti átti skylt við þessa
menn, sem hér er lýst að framan.
Þegar hann kom f búð, og keypti
eitthvað, gekk afarlangur tími til
þess að borga, þvf hver peningur var
margvafinn innan í pappír og Iá
þannig í buddu hans, og stundum
dró hann þá út úr fylgsnum hingað
og þangað í fötum sínum.
Marga fleiri einkennilega menn
og konur mætti nefna, svo sem
systkinin Áa (Árna) á Hól og Jóku;
Imbu næpu, Eyfa tónara, sem ekki
átti heima í Reykjavík, en kom
þangað á hverju sumri; var víst
ættaður ofan af Hvalfjarðarströnd;
Hann hermdi svo vel eptir ýmsum
prestum, bæði er þeir voru fyrir
altarinu og í stólnum, að það var
hrein og bein ánægja að hlusta á
hann og var hann þó sjálfur ankana-
legur, bæði í fasi og málfæri.
Síðastur allra þessara einkenni-
legu manna, var Eyjólfur ljóstollur;
hann var af góðum ættum og hafði á
unga aldri verið komið fyrir til
bókbandsnáms hjá Egli Jónssyni í
Reykjavík. Egill hafði þá fjárhald
dómkirkjunnar á hendi, og sendi
hann Eyjólf út með reikninga kirkj-
unnar og lét hann heimta þá inn;
þaðan er viðumefnið komið. Eyjólfi
var margt vel gefið. Hann var hag-
mæltur vel, jafnan glaður og skemti-
legur, en hann átti við þann djöful
að dragast, sem þjáði flesta menn,
sem hér hafa verið rxfndir, nefnilega
drykkjuskapar-ástríðuna, er gjörði
hann aðallega að þeim ræfli, sem
hann var.
HELGIN T
BASAMOTTUR
FRÁ ALFA-LAVAL
Sterkar og einangra mjög vel.
Stærð: 1400x1100 mm.
BUNADARDEILD
I : I ■« Ki I : Lr
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Auglýsing um lögtökfyrirfast-
eigna- og brunabótagjöldum
í Reykjavík
Aö kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar
í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, upp-
kveðnum 6. þ.m. verða lögtök látin fara fram til
tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og bruna-
bótaiðgjöldum 1988.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hefjast að 8
dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 6. júní
1988.
Laus staða
Staða deildarbókavarðar í Listasafni íslands er
laus til umsóknar. Um er að ræða 70% stöðugildi.
Umsækjendur hafi háskólapróf í bókasafns- og
upplýsingafræði og er áhugi á myndlist æskilegur.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu hafa borist Menntamálaráðuneyt-
inu fyrir 6. júlí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 6. júní 1988.
Kaupfélagsstjóri -
Framkvæmdastjóri
Starf kaupfélagsstjóra Kaupfélags Húnvetninga
og framkvæmdastjóra Sölufélags Austur-Hún-
vetninga er laust til umsóknar.
Nánari upplýsingar gefur Árni S. Jóhannsson í
síma 95-4200 og stjórnarformenn félaganna.
Umsóknir skal senda til Björns Magnússonar,
Hólabaki, Austur-Húnavatnssýslu sími 95-4473
stjórnarformanns K.H. eða Magnúsar Ólafssonar,
Sveinsstöðum, Austur-Húnavatnssýslu sími 95-
4495 stjórnarformanns S.A.H.
Umsóknarfrestur er til 27. júní 1988.
Kaupfélag Húnvetninga
Sölufélag Austur-Húnvetninga.