Tíminn - 10.06.1988, Side 14

Tíminn - 10.06.1988, Side 14
m 14 m HELGIN 111« ÍTÍMANSRÁS llllllllllllllllllllllinillllllllllllll ■■ áiiiiiiiiiiiiffi Vor - garðar - KRISTÍN LEIFSDÓTTIR -veður n Líklega blundar eitthvað af sveitamanninum í okkur öllum og öll horfum við með velþókn- un til hækkandi sólar og vorsins, sem við vitum að þýðir að sumarið er á næstu grösum. Það fylgja að vísu ýmsir gallar þessum yndislega árstíma og ber þar hæst blessuð prófin, sem eru að hálfdrepa þjóðina allan maímánuð. En prófin taka enda og þá taka við bjartari dagar, út- skriftarhátíðir og fleira gaman. Og þá fer líka garðurinn að kalla á líknandi hendur. Því að efst á óskalista okkar allra er garðhola, sem við getum kallað okkar, þó að obbinn af þjóð- inni búi að öðru leyti við stræti borgar, bæja og kauptúna. Eða hvað? Undirrituð er sú lánsmann- eskja að hafa umráð yfir lítilli grasflöt sunnan við hús og annarri norðan við hús. f verk hefur komist að pota niður nokkrum birkihríslum, sem nú eru reyndar orðnar býsna háar og búa í þéttu nábýli. Svo er brekkuvíðigerði á lóðarmörk- um og einhver merki sjást önnur um viðleitni til að fegra og prýða í kringum sig. Já, meira að segja voru settar niður nokkrar rósir eitt árið og hafa staðist furðanlega rok og rigningar og vanhirðu á sumrin, og frosthörkur og snjóþyngsli á vetrum. Mig grunaði það ekki þegar ég hófst handa fyrir rúmum 10 árum með garðræktina, full orku og áhuga, að ekki liði á löngu þar til öll ræktun væri komin úr böndunum, og frum- skógarlögmál hefðu tekið völd- in í garðholunni minni. Þrátt fyrir vanmáttuga viðleitni af minni hálfu til að reyna að Snyrtilegir garðar eru reglulegt augnayndi og þeir með „grænu puttana“ vita reyndar ekkcrt skemmtilegra en að dunda í görðum sinum og gera þá sífellt fallegri og yndislegri. En það er mikil vinna að halda görðum í góðu horfi og þar stendur hnífurinn í kúnni hjá mörgum garðeigandanum. halda grasinu í skefjum, þar sem það átti alls ekki að vera, og stuðla að því að það ríkti alvalda á blettunum sem því voru ætlaðir, er nú svo komið að það er akkúrat þveröfugt. Alls staðar þar sem ég vil ekki sjá gras í snyrtilegum garði, þrífst mitt gras með ágætum, en á flötunum fínu skarta fíflar, hrafnaklukkur og ýmis annar gróður, sem ég kann varla að nafngreina. Nú er ég vís með að halda því fram að þetta sé bara afleiðing þeirrar ónáttúru veðurfarsins að bregða sér allt- af í rigningar, já og jafnvel slagviðri um helgar þegar úti- vinnandi fólk hefur loks tíma til að sinna garðstörfum. Sem sagt að þetta ágæta gróðrar- veður á vorin, rigningar um helgar og sólskin og hiti á virkum dögum, henti mér ekki alls kostar. En hvernig má það þá vera að þegar ég geng um götur Reykjavíkur blasa hvarvetna við vel hirtir garðar og puðandi fólk á fjórum fótum að hlynna að jurtunum sínum. Það hlýtur þó að búa við sömu dyntina í veðurfarinu og ég! Nú er ég staðráðin í því að næsta vor skuli ég sjá við ofvextinum í garðinum mínum og byrja af öllum kröftum á garðstörfunum á réttum tíma, sama hvernig viðrar og sama hvaða hátíðir eru á boðstólum en þær gera að sjálfsögðu ekki annað en að glepja fyrir sönnu garðyrkjufólki og tefja það frá þessu „gefandi tómstunda- starfi“ sem fullnægir sveita- manninum í mér eins og öðrum. En innst inni í hjartaleynum veit ég að þetta hef ég oft sagt á liðnum árum við sjálfa mig án sýnilegs árangurs! Kristín Leifsdóttir Laugardagur 11.'juní 1988 GETTU NÚ í síðustu getraun voru það Veiðivötn sem á myndinni voru og hefur trúlega mörgum áhuga- sömum veiðimanninum reynst létt að bera kennsl á staðinn. En hér er það fjall sem við biðjum menn að virða fyrir sér. Það hefur verið vinsælt af fjali- göngumönnum, enda sameinar það þá kosti að leiðin upp er fögur og hvorki of erfið né of létt fyrir þá sem sæmilega eru á sig komnir. KROSSGÁTA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.