Tíminn - 14.06.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 14.06.1988, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 14. júní 1988 Tíminn 5 Magnús Gunnarsson framkvæmdastj. SÍF: Saltf isktollar gætu orðið 1.215 milljónir Magnús Gunnarsson, framkværadastjóri SÍF. „Eftir inngöngu Spánar og Portú- gals í Evrópubandalagið, í ársbyrjun 1986, hafa innflutningshindranir, í formi tolla og kvóta, æ oftar skotið upp kollinum og nú er staðan ein- hver sú erfiðasta um langt árabil. Þá eru til staðar í einstökum löndum innan bandalagsins ýmsar viðskipta- hindranir, magntakmarkanir o. fl., sem íslenskur saltfiskiðnaður á við að glíma.“ Petta segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastj. SÍF m.a. í saman- tekt sem hann hefur gert til glöggv- unar á stöðu saltfiskútflutningsins til Evrópubandalagsins og þeim vanda- málum sem tollar, innflutningstak- markanir og viðskiptahindranir geta haft á þróun saltfiskverkunar í land- inu. Magnús bendir m.a. á að miðað við hámarkstolla gætu íslendingar þurft að gréiða yfir 1.200 milljónir kr., eða 14% af verðmæti alls útflutts saltfisks til EB. Það yrði hátt í þreföidun miðað við 444 milljónir sem áætlaðir tollar voru á síðasta ári. Undirboð í upphafi ársins Magnús bendir á að saltfiskur hafi verið um 6. hluti heildarútflutnings- verðmæta íslendinga á síðasta ári (62.000 tonn fyrir um 9 milljarða króna) og að nær allur sá fiskur hafi farið til landa Evrópubandalagsins. Horfur fyrir 1988 séu því miður ekki eins góðar. Norðmenn og Kanada- menn hafi selt saltfiskbirgðir sínar með verulegum undirboðum inn á hefðbundna markaði íslendinga. Skýringin felist í því að Brasilía, sem verið hefur stærsti markaður þeirra, hafi að mestu lokað fyrir innflutning á saltfiski, jafnframt því sem Norð- menn stefni nú markvisst að aukinni hlutdeild á markaði EB. Allt upp í 20% tollur Magnús bendir á að saltfiskur falli ekki undir ákvæði fríverslunarsamn- inganna við bandalagið, sem sé því í sjálfsvald sett hvernig það með- höndlar innflutning saltfisks til aðild- arlanda sinna. Mismunandi kvótar og meðhöndlun þeirra í helstu við- skiptalöndum íslendinga og síðan allt upp í 20% tollar geri saltfiskút- flytjendum hér erfitt fyrir. Fyrir árið 1988 hefur Evrópu- bandalagið ákveðið eftirfarandi kvóta og tolla innan þess: Á flöttum þorski er 25.000 tonna sameiginlegur kvóti tollfrjáls, 52.500 tonn með 5% tolli og síðan 13% tollur. Á öllum öðrum flöttum fiski er 13% tollur. Á öllum söltuðum þorskflökum er 20% tollur. Á söltuðum ufsaflökum er 4.000 tonna sameiginlegur kvóti með 5% tolli og síðan 16% tollur. Flækjur til að torvelda innflutning Magnús lýsir ýmsum aðferðum sem margar þær þjóðir sem saltfisk- seljendur hafa hvað mest viðskipti við beita til að torvelda innflutning. Spánverjar (sem keyptu héðan um 10.000 tonn í fyrra) leyfi aðeins innflutning á 15.000 tonnum af salt- fiski frá löndum utan Evrópubanda- lagsins á þessu ári. Því magni sé síðan skipt niður á ársfjórðunga og þar að auki settar flóknar reglur um úthlutun og meðhöndlun kvótans innan Spánar. Auk þess sem þetta geri íslenskum saltfiskútflytjendum erfitt fyrir megi búast við aukinni samkeppni frá Norðmönnum, eins Banaslys á Skúlagötunni: Drukkinn á stolnum bíl olli banaslysi Aðfaranótt laugardagsins varð banaslys á Skúlagötunni, er drukk- inn ökumaður á stórum amerískum bíl ók framan á Lödu, eftir að hafa farið yfir á rangan vegarhelming. Ökumaðurinn hafði stolið bílnum í miðbænum fyrr um nóttina og að sögn sjónarvotta var hann á yfir 100 kílómetra hraða þegar árekst- urinn varð. í Lödunni voru hjón og ók eiginmaðurinn. Eiginkonan sat hins vegar í framsætinu og lést hún. Hún hét Anna Jóna Jónsdótt- ir, fatahönnuður, Ásvallagötu 15. Anna hefði orðið 32 ára í byrjun júlí. Hún lætur eftir sig 10 ára gamlan son og eiginmanninn sem var fluttur á Borgarspítalann og lá á gjörgæsludeild þar til á sunnudag. Hann er ekki lífshættulega meidd- ur. Áreksturinn var það harður að nota þurfti klippur til að ná hjónun- um út úr bílnum. Drukkni öku- maðurinn meiddist hins vegar sára- lítið og var fluttur í fangageymslur skömmu eftir áreksturinn. Þar sat hann þangað til á hádegi á laugar- dag er honum var sleppt eftir yfirheyrslu. -SÓL Anna Jóna Jónsdóttir, fatahönn- uður, lætur eftir sig 10 ára son og eiginmann. ogþegar hafi komið í Ijós í Portúgal. Grikkir (keyptu 3.620 tonn 1987) haga málum þannig að dreifa sínum tollfrjálsa kvóta á alla þá sem komið hafa nálægt saltfiskinnflutningi síð- ustu árin. Til að geta nýtt hann að fullu verða virkir innflytjendur að kaupa úthlutaða kvóta af þeim sem ekki hyggja á innflutning í ár. Jafn- framt er mjög ströng verðstöðvun í gangi í Grikklandi um þessar mundir. ítalir keyptu m.a. 1.740 tonn af söltuðum flökum í fyrra. Nú er 20% tollur á öllum söltuðum flökum, sem þýðir 75 millj. kr. miðað við sama magn >g verðmæti og 1987. Salta sjálfir íslenskan ufsa Pjóðverjar kaupa fyrst og fremst héðan söltuð ufsaflök, sem þeir nota til sjólaxframleiðslu sinnar. Heild- arnotkunin er 5-6.000 tonn á ári. Héðan keyptu þeir rúm 2.600 tonn í fyrra, sem var 400 tonnum minna en árið áður. Þann samdrátt segir Magnús stafa af aukinni söltun Þjóð- verja sjálfra, einkum á ufsa sem þeir kaupa frá íslandi. Frakkar keyptu um 2.160 tonn af saltfiski á síðasta ári. Par segir Magnús þegar hafa komið upp erfið- leika vegna tolla sem eru; 10% á þurrkuðum saltfiski, 5% á blaut- verkuðum og 20% á flökum. Auk þess keppi íslendingar þar við Norð- menn sem njóti þar sérstakra toll- fríðinda. Komið að „mögru“ árunum? Eftir tvö mjög hagstæð ár fyrir saltfiskútflytjendur segir Magnús stöðuna nú orðna mjög óvissa. Þó sé nú þegar ljóst að framleiðsla Norð- manna muni aftur aukast á þessu ári eftir nokkurra ára samdrátt. Norð- menn hafi í gegnum tvíhliða samn- inga náð mjög hagstæðum kjörum fyrir sinn saltfiskútflutning til Evr- ópubandalagsins. Síðustu tvö ár hafi þeir samið um rúmlega 30 þús. tonna tollfrjálsan kvóta hvort ár, auk þess að hafa aðgang að sameig- inlegum kvótum til jafns við íslend- inga og Kanadamenn, sem bæti samkeppnisstöðu þeirra til muna. í lok samantektar sinnar segir Magnús það umhugsunarefni fyrir þá sem áhuga hafa á þróun byggða- mála á íslandi, hvaða áhrif samdrátt- ur í saltfiskverkun muni hafa á ýmiss smærri byggðarlög víðs vegar um landið. - HF,I W Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Tækni- deildar Borgarspítalans óskar eftir tilboöum í múrhúöun útveggja eldri byggingar Grensásdeild- ar Borgarspítalans og viðgerð garðveggja. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 5.000 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. júní kl. 11.00. 1NNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sinji 25800 Tilkynning til launa- skattsgreiöenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina mars og apríl er 15. júní n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Til sölu traktorsgrafa Ford 4550 árg. 1975. Tilvalið fyrir bændur. Upplýs- ingar á kvöldin í síma 97-31216.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.