Tíminn - 14.06.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 14.06.1988, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 14. júní 1988 Tíminn 11 ' MINNING ......... ... ... ■ ... HalldórS. Þormar Fæddur 23. júlí 1921 Dáinn 17. mars 1988 Kynningin við samferðafólkið orkar misjafnt á okkur. Hér verður minnst eins þessara samferðamanna og rifjaðir upp atburðir úr Iífssögu hans. Þótt Halldór væri fáorður og dulur - alltaf sem ólesin bók - leyndi sér ekki, að í honum bjó viðkvæm og góð sál. Græskulausar kímnisögur hans, stungu alveg í stúf við alvöru- gefið andlitið. Innra bjó þó fleygur andi, sem leitaði útrásar í bráð- fyndnum gamansögum, sem oft hittu í mark. Skáldskapurinn varpottþétt- ur og reiprennandi þegar honum tókst vel upp. Auðvitað gengu sög- urnar út á lífið í kringum okkur, eftir því sem á fjörurnar rak. Stundum tókst honum svo vel að segja frá atburðum, að hlutsandann grunaði ekki húmorinn í frásögninni. Oftast var hann sjálfur aðalpersónan, en þó ekki alltaf sú snjallasta. Það var Halldóri meðfæddur hæfileiki að búa til grínsögur og má segja að þar kippti hann í kynið til afa síns, Halldórs Benediktssonar á Skriðu- klaustri. Sögur Halldórs voru aldrei sagðar í niðrunarskyni, en þó held ég að margur hafi getað þekkt sig í þeim. Ætla má að ævibraut Halldórs hefði orðið önnur, ef hann væri ungur að árum um þessar mundir. Hann útskrifaðist úr skóla lífsins, sem algengast var, og settist aldrei á skólabekk að barnaskólanámi loknu. Sjálft lífið verður ætíð besti fjölbrautaskólinn. Halldór fékk snemma að kynnast mótlætinu. Ungur veiktist hann á fæti og hafði það töluverð áhrif á lífsferil hans. Bagaði fóturinn hann jafnan við erfið störf, en ekki heyrð- ist hann kvarta yfir því. Hann var þrautseigur maður og kjarkgóður. Þó fór svo, að lífsstarfið réðist af þessum æskuveikleika hans. Halldór var elstur af fjórum son- um þeirra Klausturhjóna, Sigríðar Halldórsdóttur og Sigmars G. Þormars. Sigríður var dóttir Hall- dórs Benediktssonar bónda á Skriðuklaustri og Arnbjargar Sigfús- dóttur (Stefánssonar). Þau Halldór og Arnbjörg höfðu búið á Kláustri við mikla rausn í um það bil fjóra áratugi, virt og vinsæl á sinni tíð. Var Halldór eldri frumkvöðull í ýmsum búnaðarframförum og endurbótum hinna gömlu hefð- bundnu bygginga, enda orðlagður smiður. Gamansemin var honum í blóð borin og fara af því ýmsar sögur. Sigmar var sonur Guttorms Vigfússonar búfræðings í Geita- gerði, sem var fyrsti skólastjóri Bún- aðarskólans á Eiðum og síðar alþing- ismaður. Sigmar hafði numið garð- yrkjufræði við erlenda skóla. Þau Sigmar og Sigríður byrjuðu búskap á Skriðuklaustri árið 1921, og var þar vissulega ekki í kot vísað. Engin furða var þótt vandasamt reyndist að halda uppi þeim stórbú- skap sem Halldór gamli hafði komið á fót, að hluta til með aðstoð annars tengdasonar síns, Halldórs Stefáns- sonar, síðar alþingismanns. Heilsu- far Sigríðar var ekki sem best á þessum árum, og mun það m.a. hafa valdið því, að þau Klausturhjón ákváðu að selja jörðina Gunnari Gunnarssyni skáldi, sem þá var að flytjast heim í átthaga sína og vildi hefja búskap á einhverri góðjörð. Árið 1940 fluttu þau svo í Arnheið- arstaði, þar sem móðursystir Sigríð- ar hafði búið fram að þessu, ekkja Sölva Vigfússonar, föðurbróður Sigmars. Þar urðum við Halldór Þormar samtíða um tveggja ára skeið, og síðan nágrannar til 1945, þegar foreldrar hans hættu búskap og fluttu til Reykjavíkur. Þegar Halldór kom í Arnheiðar- staði 1940, var hann 19 ára gamall og vinnumaður á búi föður síns. Þetta voru breytingatímar. Heimsstyrjöld- in var gengin í garð og landið hertekið, en peningar nógir í „Breta- vinnu“. Að púla fyrir 40-50 kinda frá Skriðuklaustri árskaupi datt nú fáum í hug néma sérvitringum. Erfiðlega gekk að fá vinnufólk. Fór þá að reyna á Halldór í búskapnum, enda aðeins einn vinnumaður við búið auk hans, og yngri bræðurnir í skóla yfir veturinn. Halldór varalinn uppviðsauðfjár- búskap í Klaustri og hjarðir stórar, enda bar hann glöggt skyn á kindur, þekkti svipbragð þeirra og var ánægja að umgangast þær. Þá bundu ungir menn í sveitum landsins fram- tíðardrauma sína við stór og mynd- arleg fjárbú, og sjálfsagt stóð hugur Halldórs ekki til annars, þótt fleira kunni að hafa blundað þar í ranni. Þegar fram í sótti reyndist honum kindastjáið erfitt. Göngur eru lang- sóttar í Fljótsdal, sem kunnugt er, og á þeirn tíma var heyjanna aflað með orfi og hrífu á flestum bæjum. Sem fyrr segir, var Halldór dálítið bækl- aður á fæti, og aldrei neinn hestur til heilsu að öðru leyti. Þegar foreldrar hans fluttu til Reykjavíkur var bústofninn seldur og jörðin öðrum byggð. Var þá útséð um að Halldór yrði bóndi í Fljótsdal, þótt hugur hans stæði líklega mest til þess. Forlögin verða aldrei fiúin. Á haustdögum 1945 flutti Halldór einnig til Reykjavíkur. Hann var þá búinn að taka bílpróf og keypti sér bíl, sem hann ók í leiguakstri næstu árin, en vann fyrir austan á sumrum. Hann átti bágt með að samlagast borgarlífinu, svona í einni lotu, og enn um sinn var hugur hans bundinn sveitinni, sem hann hafði varla stigið fæti sínum út af, fyrr en þetta, enda bauðst þar brátt tækifæri til vinnu. Einu eða tveimur árum síðar keypti Búnaðarfélag Fljótdals- hrepps dráttarvél til jarðvinnslu, með plóg og herfi, og bauðst Hall- dóri sá starfi að fara með verkfærin um sveitina og vinna hjá bændum. Þannig gat hann notið sveitasælunn- ar að sumrinu. Og ekki leið á löngu þar til Halldór settist upp á jarðýtu, sem Búnaðarsamband Norður-Hér- aðs keypti. Var hann við það í nokkur sumur og kynntist þá fólki á fjölda bæja á Héraði. Hann hlakkaði jafnan til að koma austur að vorinu, meðan hann bjó í Reykjavík. Árið 1953 urðu þáttaskil í lífi Halldórs, er hann kvæntist Unni E. Kjerúlf. Hún var sveitungi hans úr Fljótsdalnum, dóttir Eiríks J. Kjer- úlfs og Sigurbjargar Þorsteinsdóttur, sem tóku við búskap á Arnheiðar- stöðum þegar Sigmar og Sigríður fiuttust þaðan. Var sambúð þeirra innileg og hjónabandið alla tíð hið farsælasta. Þau komu sér nú upp heimili í Reykjavík og hætti Halldór þá að vinna á jarðvinnsluvélum á Héraði, en sneri sér alveg að leigu- bílaakstri, sem varð atvinna hans í hálfan þriðja tug ára. Var ekki að undra þótt hann væri þá orðinn þreyttur á þeim starfa, og varð að ráði að þau hjónin keyptu sjoppu, ágætlega staðsetta í Reykja- vík. Við hana störfuðu þau bæði í nokkur ár, en sjoppuvinnan er líka erilssöm og krefst langs vinnutíma, auk þess sem ’ henni fylgir mikill akstur, svo þetta var lítil bót. Halldór var nú farinn að kenna verulegs heilsubrests og þau bæði orðin leið á borgarlífinu. Hugurinn leitaði til átthaganna, í Fljótsdalinn fagra, þar sem þau höfðu slitið barnsskónum. Teningunum er kastað, og einn góðan veðurdag yfirgefa þau borgina fyrir fullt og allt og flytja búferlum austur á Hérað. í Fljótsda! reyndist ekkert hús- næði falt þá stundina. Þau settust því að á bænum Strönd í Vallahreppi (Skógum), og leigðu þar góða og nýlega íbúð. Þangað komu þau 5. júlí 1984, og þar var heimili þeirra næstu þrjú árin. Þaðan blasir Fljóts- dalurinn við, þótt í nokkurri fjarlægð sé, og Snæfellið skartar sínu fegursta á björtum dögum. Þarna undu þau Halldór og Unnur vel hag sínum, sem nærri má geta. Á síðastliðnu ári urðu þau samt að flytja sig um set yfir Lagarfljótið, að Hofi í Fellum, jaar sem þau leigðu íbúðarhúsið Neðra-Hof. Þar er vina- legt og fagurt útsýni inn yfir Fljótið. Dvölin á báðum þessum bæjum var Halldóri mikil uppbót á erfiðum lífsferli. Naut hann og mikillar um- hyggju konu sinnar, sem á þessum árum helgaði honum alla sína krafta. í desember síðastliðnum varð Halldór að leggjast inn á sjúkrahúsið á Egilsstöðum, og þaðan lá Ieiðin til baka, á sjúkrahús í Reykjavík, cins og nú er algeng saga. Þar andaðist hann 17. mars sl., á sextugasta og sjöunda aldursári. Halldór var jarð- aður í Valþjófsstaðarkirkjugarði 26. mars 1988, skammt frá fæðingarstað sínum. Lífs og liðinn vildi hann hvíla í faðmi Fljótsdalsins. Þarstóð vagga hans og þar vildi hann hljóta gröf. Ég minnist Halldórs Þormars sem góðs drengs og það er bjart yfir okkar kynnum. Ég bið Unni ekkju hans og öðrum aðstandendum bless- unar og velfarnaðar í framtíðinni, með þökkum fyrir gömul og góð kynni. Hallgrímur Helgason Droplaugarstöðum. Afgreiðslustarf byggingarvörur Óskum eftir að ráða afgreiðslumann í Bygginga- vöruverslun sem fyrst. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í hliðstæðu starfi. Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannastjóra er veitir nánari upplýsingar. SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉLAGA STARFSMANNAHALD Útboð - Lóðargerð Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölvhóls- götu 4, 101 Reykjavík, óskar eftir tilboði í frágang á lóð við væntanlegt skrifstofuhús að Kirkjusandi í Reykjavík. Um er að ræða m.a. eftirtalda verkþætti: • Fyllingar um 3.000 m3. • Malbik, um 3.500 m2. • Kantsteinar, um 600 m • Hellulögn, um 1.600 m2 • Snjóbræðslulögn, um 6.600 m Verkið skal hefjast í lok júní 1988 og skal því lokið 15. október 1988. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurð- ar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4, 108 Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 28. júní 1988 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Vatns- veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í fram- kvæmdir við lagningu nýrrar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavíkur frá lokahúsi við Skálará við Reykja- nesbraut að tengingu við Bústaðaveg. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 29. júní kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAS. Frikirkjuvtgi 3 — Simi 25800 RWl i|i Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Vatns- veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í fram- kvæmdir við lagningu nýrrar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavíkur við Elliðavog norðan með Suður- landsbraut og að Holtavegi. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 29. júní kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Tilkynning til sölu- skattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir maímánuð er 15. júní. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. íbúð óskast Undirrituð óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð á leigu fyrir hafnfirsk hjón með 2 börn. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Upplýsingar í síma 53444 hjá Kolbrúnu Oddgeirs- dóttur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.