Tíminn - 14.06.1988, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 14. júní 1988
FRÉTTAYFIRLIT
BANGKOK - Matarskortur
í Víetnam, sem virtist ætla að
leiða til hungursneyðar, er nú
ekki eins mikill og áður vegna
mikillar kornuppskeru í vor, er
haft eftir dagblöðum á
staðnum.
MANILA - Corason Aquino
forseti Filippseyja er nú stödd
í Vestur-Evrópu. Áður en hún
lagði af stað í ferðina er hún
sögð hafa beðið landa sína um
að halda friðinn á meðan hún
væri í burtu.
TEL AVIV - Ariel Sharon
viðskiptaráðherra sagði eftir
bensínsprengjuárás í verslun-
arhverfi í Tel Aviv að ísraelar
ættu að skjóta eldsprengjum.
Enginn særðist í sprengjuárás-
inni.
NICOSIA -Hafter eftirhinni
opinberu fréttastofu í íran,
IRNA, að íranar hafi brotist í
gegn um vörn íraka og drepið
og sært fjölmarga menn úr
röðum (raka.
PEKING - Allt að því fjórð-
ungi vinnuafls í borgum í Kína
er ofaukið og gengur því at-
vinnulaus. Atvinnuleysi er
bæði óhjákvæmilegt og gott
fyrir efnahag landsins, er haft
eftir opinberum fréttastofum í
landinu.
'S/SÆ/r.
NEW YORK - Jesse Jack-
son neitar því harðlega, í við-
tali sem birtist fyrir skömmu í
tímaritinu Newsweek, að hon-
um beri að hafna tilboði um að
vera meðframbjóðandi Dukak-
is til varaforsetaembættis í
Bandaríkjunum, þar sem það
geti kostað ósigur demókrata í
kosningunum.
STOKKHÓLMUR - Bú
ast má við því að ein milljón
manna smitist af alnæmi á
næstu fimm árum, að sögn
forstjóra Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO).
STUTTGART - Óeirðir
brutust út í Vestur-Þýskalandi
eftir óvæntan ósigur Breta fyrir
Irum á Evrópumeistaramótinu
í fótbolta, sem haldið er þar í
landi þessa dagana. Allt að 30
óeirðasegair voru teknir til
fanaa í óeirðunum og einn
maour var stunginn til bana.
MOSKVA - Sovéskir Arm-
enar hófu í gærdag tveggja
daga verkfall til að krefjast
opinberra aðgerða vegna Nag-
orno-Karabakh héraðsins,
sem þeir vilja að verði innlimað
í Armeníu.
MICHIGAN - Forsetafram-
bjóðandi demókrata Mikhael
Dukakis og blökkumanna-
leiðtoginn Jesse Jackson hafa
komist að samkomulagi varð-
andi stefnu gagnvart S-Afr(ku.
Þeir eru hins vegar mjög ósam-
mála varðandi skatta- og varn-
armál.
ÚTLÖND
Enginn flokkur hefur nú hreinan meirihluta á franska þinginu.
Frakkland:
Úrslit kosninganna
komu öllum á óvart
Óvissa ríkir nú í Frakklandi vegna
kosningaúrslitanna úr þingkosning-
unum á sunnudag. Enginn flokkur
hlaut þann meirihluta sem þarf til að
mynda ríkisstjórn á eigin spýtur en
til þess þarf 289 sæti á franska
þjóðþinginu. Fyrir kosningarnar
hafði þvf verið spáð að Sósíalista-
flokkur Francois Mitterrands, for-
seta Frakklands, myndi hljóta hrein-
an meirihluta í kosningunum og
komu úrslitin því á óvart.
Sósíalistar hlutu 276 þingmenn en
kosningabandalag Sameiningar-
flokks lýðveldisins og Lýðræðis-
bandalagsins sem kallaði sig URC
hlaut 271 þingmann. Sósíalistar
verða því stærsti flokkurinn á
franska þinginu. Kommúnistarhlutu
27 sæti en voru áður með 35 þingsæti.
Mestan ósigur í kosningunum beið
Þjóðfylkingin, flokkur hægri öfga-
manna með Le Pen í broddi fylking-
ar. Þjóðfylkingin hlaut 1 þingsæti en
hafði áður 32 og dettur því nánast út
af þinginu. Le Pen sem hlaut meira
en 4 milljónir atkvæða í forsetakosn-
ingunum í apríl síðastliðnum var að
vonum óánægður með úrslit kosn-
inganna. Hann blótaði franska kosn-
ingakerfinu og sagði það vera bæði
óréttlátt og ólýðræðislegt. En Frakk-
ar kusu nú eftir nýju kosningakerfi
þar sem einfaldur meirihluti ræður
hver fær þingsæti í tilteknu kjör-
dæmi. Verulegt fylgi í ákveðnum
kjördæmum skilar sér því ekki ef
annar frambjóðandi fær fleiri at-
kvæði, ólíkt því sem gerist þegar
kosið er eftir hlutfallskosningakerfi
eins og áður var gert.
„Hvað sem gerist er það eitt víst
að óstöðugleika hefur nú verið kom-
ið fyrir í hjarta franskra stjórnmála,"
var sagt í frönsku dagblaði eftir að
kosningaúrslitin höfðu verið
kunngjörð. „Svipað ástand mun nú
ríkja í Frakklandi og ríkti á tímum
fjórða lýðveldisins þar sem hver
ríkisstjórnin tók við af annarri en
féll jafnóðum aftur,“ voru ummæli
annars dagblaðs eftir kosningarnar.
Búist hafði verið við lítilli kjör-
sókn í þessum þingkosningum vegna
kosningaleiða sem virtist hafa gripið
um sig meðal Frakka eftir að hafa
verið kallaðir að kjörborðinu þrisvar
sinnum á sex vikum. Þessi spá reynd-
ist á rökum reist þar sem aðeins um
það bil 70 prósent kjósenda neyttu
kosningaréttar síns og er það 5
prósentum minna en í fyrri umferð-
inni.
Skoðanakannanir sem fram-
kvæmdar voru í Frakklandi eftir
sigur Mitterrands í forsetakosning-
unum í vor, bentu til þess að sósíal-
istar hlytu yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða í þessum þingkosningum.
Le Pen gagnrýndi hart kosningakerf-
ið eftir að flokkur hans, Þjóðfylking-
in, var nær þurrkaður út af franska
þinginu.
Eftir úrslitin í fyrri umferð kosning-
anna þann 5. júní voru vonir sósílista
um sterkan meirihluta hins vegar
brostnar og að sama skapi tilraunir
Mitterrands til að bola hægri mönn-
um út af þinginu. Hann stendur nú
frammi fyrir erfiðum ákvörðunum
þar sem hefðbundnu stjómmála-
flokkarnir skipa nú svo til jafn mörg
sæti á þinginu en hingað til hafa
samsteypustjórnir ekki þekkst í
Frakklandi. IDS
Francois Mitterrand og flokkur hans unnu ekki þann sigur sem búist hafði
verið við í þessum þingkosningum í Frakklandi.
EITT AF ALVARLEGUSTU
SLYSUM FLUGSÖGUNNAR
Tuttugu og tveir létust er DC-9
þota argentínska flugfélagsins
Austral fórst í þoku skammt frá
borginni Posadas í Argentínu á
sunnudag. Slysið er talið vera með
þeim verstu sem átt hafa sér stað í
flugsögu landsins. Fimmtán farþegar
voru um borð í vélinni auk sjö
manna áhafnar og komst enginn lífs
af. Talið er að fjórir farþeganna hafi
verið erlendir ferðamenn. Þrír
þeirra frá Austur-Asíu og einn frá
Evrópu.
Posadas, sem er 700 mílum fyrir
norðan Buenos Aires, er höfuðborg
héraðsins Misiones. Flugvélin var á
leið frá Buenos Aires og hrapaði í
skógi er hún var að búa sig til
lendingar á flugvellinum í Posadas.
Brak úr vélinni dreifðist yfir stórt
svæði um fimm kílómetra frá flug-
vellinum.
„Brakið af vélinni varð eldi að
bráð á um það bil tíu mínútum,“ er
haft eftir einum sjónarvotta. Tankar
vélarinnar voru næstum fullir af
bensfni þar sem slysið átti sér stað
skömmu eftir að vélin hafði verið
fyllt.
Meðal þeirra sem fórust í flugslys-
inu voru þjálfari argentínska rúgbý-
liðsins og eiginkona hans.
Ekkert hefur enn verið upplýst
um orsakir slyssins en rannsókn þess
stendur yfir. IDS