Tíminn - 14.06.1988, Síða 15
Þriðjudagur 14. júní 1988
Tíminn 15
Skyldi aldrei
vera...
Hefur páfinn raunverulega hitt
þjóðarleiðtogana Reagan og
Gorbastjof nýlega? Nei, það er
ekki allt sem sýnist. Ron nokkur
Smith hefur gert það að sérgrein
sinni að leigja út fólk sem líkist
frægu fólki og hefur víst bara vel
upp úr tiltækinu. Hann fann þessa
þremenninga eftir langa leit í 15
borgum í Bandaríkjunum. Hvað
skyldi svo fólkið gera, annað en
bara að líkjast einhverjum?
Það kemur fram í sjónvarpi,
auglýsingahcrferðum og á ráð-
stefnum víða um heim.
Ekki svo
vitlaust
Ofurmennið Christopher
Reeves hefur sagt, að í fyrstu hafi
honum fundist hlutverk „Super-
mans“ bláft áfram asnalegt, en
þegar fram leið fór hann að bera
virðingu fyrir því. - Superman
gegnir mikilvægu hlutverki og er
persónugervingur hugrekkis, innri
styrks og þess að menn hafi mögu-
leika á að láta drauma sína rætast.
- Margt fólk hefur haft samband
við mig vegna Supermans. Margir
segjast hafa fundið styrk sinn fyrir
hans tilstilli og þess vegna get ég
ekki horft framhjá mikilvægi hans,
segir Christopher. Svo má heldur
ekki gleyma, að einmitt þetta hlut-
verk breytti hinum óþekkta Christ-
opher í ríka og fræga stjörnu.
Verði ykkur
að góðu
Æ fleiri stórstjörnur komast nú
að raun um að í híbýlum þeirra er
herbergi, sem þær hafa varla vitað
til hvers ætti að nota; sem sagt
eldhúsið. Ein þeirra sem undanfar-
ið hafa ráðið leyndardóma eldhúss-
ins, er Emma Samms, sú sem
leikur nýju Fallon í Ættarveldinu.
Hún fór á þriggja mánaða nám-
skeið í eldamennsku og segist hafa
notið hverrar mínútu. - Það verður
aldeilis notalegt að bjóða heim
vinum og kunningjum og bera
fram eigin mat á fallegu borði.
Hingað til hef ég bara boðið upp á
aðkeyptan, tilbúinn mat. Nám-
skeiðinu lauk með vel heppnaðri
og bragðgóðri ferð til sælkeraborg-
arinnar Parísar.
Kökulist
David MacCarfre varð leiður á
að baka venjulegt kaffibrauð, svo
hann setti sig niður í Hollywood
sem kökulistamaður. Ekki skortir
hann verkefnin, því alltaf er veiið
að halda upp á eitthvað sérstakt
þar í bæ. Nú er þessi 23 ára
bakarasveinn búinn að opna sér-
staka verslun og fær allt að 100
þúsund krónur fyrir sjö hæða tertu.
Öllu hærri var þó talan, þegar hann
bakaði Joan Collins í fullri líkams-
stærð. Ekki er þess getið, hvert
tilefnið var.
Hans konunglega ótukt Prince
nýtur þess að hafa andúð á hlutun-
um og það nýjasta sem hann aflaði
sér andúðar á, er skíðaíþróttin.
Einhverjir kunningjar hans töldu
hann á að koma með sér til Aspen
í Colorado, skíðastaðar ríka og
fræga fólksins. Prinsinn fjárfesti í
nýjum skíðaútbúnaði fyrir upp und-
ir hálfa milljón króna, en strax eftir
fyrstu ferð niður brekku, var hann
orðinn hundleiður á þessu sporti
og naut þess að hata það. Til að
verða sem allta fljótastur heim, gaf
hann allt nýja dótið á staðnum og
stökk upp í næstu flugvél. Því
miður eigum við ekki mynd af
Prince á skíðum, en honum hefði
allt eins getað dottið í hug að klæða
sig svona.
Fimm ára skírlífi
Corbin Bernsen í „Lagakrók-
um“ er 33 ára og hefur „dæmt“
sjálfan sig til fimm ára skírlífis.
Það er furðulegt, þegar tekið er
tillit til alls kvenfólksins sem hópast
að honum, bæði í þáttunum og
utan þeirra. - Ég er hættur að lifa
kynlífi, fullyrðir hann. - Næstu
fimm árin ætla ég að lifa eins og
munkur hvað það varðar. - Allt
þetta kvennafargan hefur gert að
verkum, að ég á erfitt með að læra
hlutverkin og auk þess er ég log-
andi hræddur við alnæmi. Þau
sambönd, sem ég hef verið í, hafa
ekkert skilið eftir nema tómleika
’og innri ófullnægju. Þess vegna
ætla ég að einbeita mér að vinnunni
og leggja hitt á hilluna.
Svo mörg voru þau orð, en hvað
þá um bresku fegurðardísina
Amöndu Pays, sem Corbin var
sagður yfir sig ástfanginn af bara
rétt um daginn?
Sæmileg
ritlaun
Hver gæti verið betur fallinn til
að skrifa morðsögu en Perry
Mason? Greinilega hefur ein-
hverjum dottið það í hug, því
maðurinn sem hefur blásið Perry
lífsanda í nasir í sjónvarpinu,
Raymond Burr, er nú sestur nið-
ur til að skrifa bók - um morð.
Hann fær einar átta milljónir
fyrir vikið, auk 50% af þeim
gróða, sem verða kann af sölunni.
Hans konunglega
ótukt Prince
nýtur sín ekki í
skíðabrekkum.