Tíminn - 12.07.1988, Side 1
Endurskoðunhækkaði
um ríílega hundrað
prósent á einu ári
• Baksíða
Elding drap tvær
kýr á bænum Svarf-
hóli í Leirársveit
• Blaðsíða 2
VesU
fjarðakjálkanum
stefniríþrot
• Blaðsíða 5.
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár
ÞRIÐJUDAGUR 12. JULI 1988 - 156. TBL. 72. ARG.
Vildu átta milljarða af ódýru lánsfé í útlöndum:
Lánsfé verðlagt
út af markaðnum
ÓÐAVERÐBOLGA?
Látið spariféð ekki brenna upp á verðbólgubálinu
Seðlabankinn hcfur reiknað út
lánskjaravísitöluna fvrir júlímán-
uð og er hún 2154 stig. Hún hef-
ur því hækkað um 5% á einum
mánuði, sem svarar til 80 %
verðbólguhraða miðað við heilt
ár. Þó verðbólguhraðinn minnki
eitthvað á næstunni eru ennþá þó
nokkrar hækkanir í pípunum og
verður hann því áfram nokkuð
hár a.m.k. fram á haustið, eða
væntanlega 40-50%. Hins vegar
er óskandi að upp úr því takist að
hemja verðbólguna og ná betri
tökum á verðbólgudraugnum.
Vegna mikillar óvissu, m.a. um
hvort gnpa þurfi til cnn einnar
gengisfellingar í haust með til-
hcyrandi víxlhækkunum kaup-
gjalds og verðlags, er alls ekki
sjálfgefið að sú ósk rætist.
Eggið eða hænan fyrst?
í ljósi þeirrar óvissu sem er fram-
undan og hér hefur verið rakin,
Frh. i opnu
Fjárvana fyrirtæki hafa sótt um erlendar
lántökur upp á átta milljarða króna. Þetta
dæmi gengur aldrei upp því lántökur sem
heimilaðar verða eru ekki nema áttundi
hluti þess sem þegar hefur verið sótt um.
Einn milljarður er til skiptanna og sendu
innlánsstofnanir inn tillögur sínar um lán-
veitingar í lok síðasta mánaðar.
Lántökur erlendis eru hagstæðari kostur
en lánsfé það sem er á boðstólum innan-
lands og virðist sem lánsfé hér hafi verið
verðlagt út af markaðnum, þar sem ásókn-
in í erlent lánsfjármagn er svo mikil sem
raun ber vitni. Tillögur bankanna miðast
nær eingöngu við sjávarútvegsfyrirtæki
og iðnaðurinn hreinsar upp afganginn.
• Blaðsíða 5
Forsíða Verðbréfamarkaðsins, fréttabréfs Fjárfestingafélagsins, hún talar sínu máli.
Danir með stæla við Hafþór á Dohrnbanka:
Ætla þeir sér ao hirða
trvggingarfé án dóms?
Útgerð togarans Hafþórs RE hrökk heldur betur við þegar
orðsending barst frá grænlenskum yfirvöldum, þess efnis að
ekkert yrði af réttarhöldum vegna meintra ólöglegra veiða
togarans innan grænlenskrarfiskveiðilögsögu. Útgerðin reiddi
fram tryggingarfé að upphæð þrjár milljónir íslenskra króna og
virðist sem grænlensk yfirvöld líti svo á að tryggingarféð sé
þeirra og málið þar með úr sögunni.
K • Blaðsíða 3
.............ummm
.
9B