Tíminn - 04.08.1988, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 4. ágúst 1988
Olíuleki í Reykjavíkurhöfn:
GAT Á GAS-
OLÍULEIÐSLU
Nú er búið að finna út hvað olli
olíuflekknum sem sást á ytri höfn-
inni í Reykjavík á laugardagsmorg-
un.
Um er að ræða smágat sem kom á
gasolíuleiðslu frá Olís í Sundahöfn
og hafa viðgerðir staðið yfir frá því
á laugardag.
Sigurður Þorgrímsson, yfirhafn-
sögumaður, sagði að sáralítið magn
olíu hefði farið í höfnina, enda hefði
gatið uppgötvast mjög fljótt.
„Það er ekki erfitt að sjá að olía
hafi lekið, erfiðleikarnir eru fólgnir
í að finna hvaðan og hvernig," sagði
Sigurður.
Hann sagði að slíkir olíulekar
væru sem betur fer sjaldgæfir hér á
landi.
í gær var búist við að búið yrði að
gera við gatið með kvöldinu. -SÓL
Fötluð börn:
Fræðsla fyrir
aðstandendur
Félögin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Styrktarfélag vangefinna og Sjálfsbjörg landssamband fatl-
aðra, munu standa fyrir námskeiðahaldi fyrir foreldra og
aðstandendur fatlaðra barna, eitt af hverri gerð námskeið-
anna verður haldið í september og október n.k. í Reykjadal
í Mosfellssveit.
Fyrsta námskeiðið verður haldið
helgina 24.-25. september, og er það
ætlað fyrir foreldra fatlaðra ung-
linga. Annað námskeiðið verður svo
haldið dagana 29.-30.október, en
það er fyrir aðstandendur cða for-
eldra fatiaðra barna á forskólaaldri.
Þetta eru helgarnámskeið og ekki
er gert ráð fyrir barnagæslu eins og
á fyrri námskeiðum. Hámarksþátt-
taka foreldra er 15, og það er
reiknað með að foreldrar gisti á
staðnum.
Einnig er reiknað með 3-4 foreldr-
um utan aflandi,ogerþeimgreiddur
ferðakostnaður.
Námskeiðin skiptast á um að vera
fyrirlestrar sérfræðinga og hópvinna
foreldra.
Skráning og upplýsingar eru í
síma 91-32961 hjá Kristínu Jónsdótt-
ur þroskaþjálfa milli kl.17:30 og
19:30. -gs
Áhrif kjarnorkustyrjaldar á veðurfar:
NÝJUSTU
NIÐURSTÖÐUR
KYNNTARí
HÁSKÓLA
„Það hefur verið mikið rætt og reynt að rýna í áhrif
kjarnorkustyrjalda á veðurfar undanfarin ár. Vegna mikils
reyks og reykjarmóðu myndi kólna verulega, sérstaklega ef
þetta ætti sér stað að sumri til,“ sagði Páll Bergþórsson
veðurfræðingur í samtali við Tímann.
Sunnudaginn 7.ágúst næstkom-
andi stendur til að haldinn verði
fundur um áhrif kjarnorkustyrjalda
á veðurfar. Fundurinn verður hald-
inn í Odda, hefst klukkan 15.00 og
er öllum opinn.
Tveir fyrirlesarar, sovéskur og
bandarískur, hafa verið fengnir til
að flytja erindi um efnið, þeir Alan
Robock frá Maryland háskóla og
Stenchikov frá reiknimiðstöð sov-
ésku vfsindaakademíunnar í
Moskvu.
Að fyrirlestrunum loknum verða
pallborðsumræður þar sem Robock
og Stenchikon munu ræða efnið við
þá Henning Rodhe frá veðurfræði-
deild háskólans í Stokkhólmi, Arnt
Eliassen prófessor í Osló, Tómas
Jóhannesson frá samtökum eðlis-
fræðinga gegn kjarnorkuvá og Pál
Bergþórsson veðurfræðing. Jafn-
framt munu þcir allir svara fyrir-
spurnum áheyrenda.
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
sagði Tímanum að fyrirlesararnir
myndu væntanlega greina frá ný-
justu niðurstöðum rannsókna varð-
andi áhrif kjarnorkustyrjalda á
veðurfar.
„Það erekki vitað hversu alvarleg
áhrif þetta hefði. Menn telja að
þetta hefði ekki eins mikil áhrif að
vetri til eins og að sumri, því að vetri
er kalt hvort eð er og skýjahulan
gerði þá ekki eins mikið til. Tölur
varðandi það hve mikil kólnun
myndi eiga sér stað eru hins vegar
nokkuð óábyggilegar og því ekki
annað að gera en að bíða og sjá hvað
Robock og Stenchikov segja um
nýjustu athuganir á því,“ sagði Páll.
IDS
Búið er að rétta bifreiðina við ofan í gryfjunni og beðið eftir að kranabflstjóri mæti á vettvang með stóran
giussakrana. Þegar hann var svo loksins kominn tókst að hífa bflinn upp, en hann hafði þá dvalið í gryfjunni í
tæpa tvo tíma. Timamyndir: Pjetur
Hér gerir kranabfllinn árangurslausa tilraun til að ná sendiferðabflnum upp úr gryfjunni, en þangað hafði bifreiðin
oltið eftir árekstur við fólksbíl.
Árekstur á Fjallkonuvegi í Grafarvogi:
VALT í GRYFJU
EFTIR ÁREKSTUR
Sendiferðabíll valt ofan í 3,5
metra djúpa gryfju við Fjallkonu-
veg í Grafarvogi á ellefta tímanum
í fyrrakvöld, eftir að hafa lent í
árekstri við fólksbíl.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að á Fjallkonuvegi er nú
verið að grafa undirgöng við barna-
skólann og hafði því verið lagður
vegarspotti við hlið ganganna. í
krappri beygju þar mættust bílarnir
og skullu saman. Við það missti
ökumaður sendiferðabílsins stjórn
á ökutækinu með þeim afleiðingum
að hann valt ofan í gryfjuna við
undirgöngin, en þau eru 3,5 metra
djúp.
Fólksbíllinn skemmdist lítið, en
sendiferðabíllinn skemmdist tölu-
vert á þeirri hlið sem hann lenti
ofan í gryfjunni. Ökumaðurinn var
fluttur á slysadeild Borgarspítalans
og var hann að minnsta kosti
handleggsbrotinn. Tímanum er
ekki kunnugt um frekari meiðsli.
Götum í næsta nágrenni var
lokað skömmu eftir áreksturinn,
þar sem forvitnir vegfarendur
hindruðu aðkomu sjúkrabifreiðar
og var götunum lokað í rúma
klukkustund.
Ekki tókst að ná sendiferðabíln-
um upp með tveimur kranabifreið-
um og þurfti að falast eftir aðstoð
kranabílstjóra sem hafði yfirráð
yfir stórum glussakrana. Tókst síð-
an á endanum að ná bifreiðinni
upp og voru þá tæpar tvær klukku-
stundir frá því að bifreiðin valt.SÓL