Tíminn - 04.08.1988, Qupperneq 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 4. ágúst 1988
Fimmtudagur 4. ágúst 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllilllllllllllilillllilllllillil^ ÍÞRÓTTIR
TÁKKi TRAUSTRA FLIJT NINGA
Skip Sambandsins
munu ferma til Islands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Varberg:
Annan hvern laugardag
Moss:
Annan hvern laugardag
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skip................ 1/8
Gloucester:
Jökulfell........... 5/8
Jökulfell...........26/8
Jökulfell.......... 19/9
New York:
Jökulfell........... 7/8
Jökulfell...........28/8
Jökulfell...........20/9
Portsmouth:
Jökulfell........... 7/8
Jökulfell...........28/8
Jökulfell...........20/9
i ‘ .-----17-
SK/PADE/LD
SAMBANDSiNS
v . . • . c > .
LINOAPGÖTU 9A • 101 REVKjAVÍK
SlMI 698100 •
A 1 A A Á A A A
ÞORSTEINN
FLAUG LENGST
Árlegt svifdrekamót, Potturinn,
var haldið á Húsafelli um helgina.
Mótið er um leið fjölskylduhátíð þar
sem svifdrekaáhugamenn koma •
saman og skemmta sér og fljúga
drekum sínum.
Sigurvegari í mótinu að þessu
sinni varð Þorsteinn Marel, en hann
flaug 40 km. Annar varð Jóhann
ísberg sem flaug 38 km og þriðji
varð Frosti Sigurjónsson með 27
km. Alls tóku 14 keppendur þátt í
mótinu sem heppnaðist vel. BL
Lendl fallinn
af toppnum
Fékkinn Ivan Lendl, sem verið
hefur í efsta sæti afrekalistans í
tennis undanfarnar 150 vikur, er nú
fallinn í 2. sætið, á eftir Svíanum
Stefan Edberg Wimblcdon sigurve-
gara.
Ástæða falls Lendl af toppnum, er
tap hans fyrir Roger Smith frá
Bahamaeyjum á alþjóðlega Stratton
tennismótinu á miðvikudag. Smith,
sem er í 150. sæti afrekalistans,
sigraði Lendl, 6-2 og 6-3. Það voru
einkun eldsnöggar uppgjafir Ba-
hama-búans sem komu Lendl í opna
skjöldu og mótlætið fór greinilega í
taugarnar á Lendl. „Það skiptir ekki
máli hvort ég er í fyrsta sæti eða því
fimmta, það sem skiptir máli er að
sigra á stórmótunum," sagði Lendl
eftir ósigurinn.
„Ég lék mjög vel og ef ég héld
áfram að leika svona í framtíðinni,
þá er allt mögulegt,“ sagði hinn 24
ára gamli Smith eftir sigurinn. BL
Frá Reykjavíkur maraþonhlaupinu í fyrra.
Skráning hafin
í Reykjavíkurmaraþon
Hið árlega Reykjavíkurmaraþon verður hlaupsins. Að venju er boðið uppá þrjár
haldið í fimmtaskipti þann 21. ágúst. Skráning vegalengdir, maraþon, hálfmaraþon og
íhlaupiðerhafinhjáferðaskrifstofunniúrvali skemmtiskokk, sem er 7 km. Verðlóunapen-
og væntanlegum þáttakendum er bent á að láta ingar verða afhentir öllum þeim sem ljúka
skrá sig sem fyrst til að auðvelda skipulagningu hlaupinu. BL
Farsíma til lengri og skemmri tíma
til einstaklinga og fyrirtækja
Sjónvörp í sumarbústaðinn og við önnur tæki-
færi, t.d. á sjúkrahús eða þegar tæki þitt bilar.
Video-myndatökuvélar.
Taktu mynd af fjölskyldunni, vinum og
ævintýrum sem aldrei koma aftur.
Sendum ef óskað er. Góð tæki - góð þjónusta.
Pöntunarsímar 651877 og 53776.
HLJÓÐRITI
Kristján Arason tekinn föstum tökum í landsleik í Laugardalshöll.
LEIGJUM UT
Handknattleikur:
Enn tap gegn Spáni
íslenska landsliðið í handknattleik
varð að sætta sig við fjögurra mark
ósigur, 19-23, þegar liðið mætti
Spánverjum í fyrsta leik sínum á
sterku móti í Irun á Spáni í gær.
Svo virðist sem Spánverjar hafi
tak á íslendingum, því okkar mönn-
um hefur gengið mjög illa gegn þeim
á stórmótum á síðustu árum.
íslendingar höfðu frumkvæðið
mest allan fyrri hálfleik og voru yfir
í hálfleik, 11-10. í síðari hálfleik
snérist dæmið við og Spánverjar
náðu undirtökunum. Þeir náðu í
fyrsta sinn tveggja marka forystu,
16-14, um miðjan hálfleikinn og
komust síðan í 22-18. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir íslendinga til að
minnka muninn í lokin tókst það
ekki og Spánverjar sigruðu 23-19.
Að sögn Júlíusar Jónassonar
landsliðsmanns, sem hvíldi í leikn-
um í gær, var leikurinn illa leikinn af
beggja hálfu og greinilegt að bæði
liðin voru mjög þreytt. í síðari
hálfleiknum misnotuðu íslendingar
mörg dauðafæri og sendingar fóru
forgörðum. Júlíussagði aðgreinilegt
væri að liðin hefðu verið í stífri
þjálfun að undanförnu og leikurinn
eftir því. „Við höfum æft mjög stíft
síðan við lékum við V-Þjóðverja
heima og menn eru mjög þungir.
Mér líst svona þolanlega á leikinn
gegn A-Þjóðverjum á morgun, við
verðum að leika með hjartanu í
þeim leik,“ sagði Júlíus.
Einar Þorvarðarson stóð í mark-
inu mest allan leikinn í gær bg varði
þokkalega í fyrri hálfleik, en hann
náði sér ekki á strik í þeim síðari.
Brynjar Kvaran kom inná undir
lokin og varði nokkur skot.
Um frammistöðu annarra leikmanna
er það að segja, að enginn stóð
uppúr og leikur íslendinga í heild
slakur.
Mörk íslands skoruðu: Alfreð
Gíslason 5, Atli Hilmarsson 4,
Bjarki Sigurðsson 2, Sigurður Gunn-
Körfuknattleikur:
arsson 2, Geir Sveinsson 2, Kristján
Arason 2, Þorgils Óttar Mathiesen
1, Jakob Sigurðsson 1, og Guðmund-
ur Guðmundsson 1. Fyrir Spán voru
markahæstir: Munoz 5, Serena 4,
Guig 4 og Ruis 4. BL
Babcock þjálfar
Grindvíkinga
Úrvalsdeildarlið Grindvíkinga í
körfuknattleik hefur ráðið Banda-
ríkjamanninn Arthur Babcock sem
þjálfara iiðsins næsta keppnistíma-
bil.
Babcock er 32 ára gamall og hefur
þjálfað í 3 ár í Frakklandi og 1 ár í
Vestur-Þýskalandi. Síðastliðinn vet-
ur þjálfaði hann hins vegar lið Cand-
en High School í New York.
„Ég er mjög ánægður með þessi
málalok og gott að þessi mál eru
komin í höfn,“ sagði Eyjólfur Guð-
laugsson formaður körfuknattleiks-
deildar UMFG í samtali við Tímann
í gær.
„Við vorum ásakaðir fyrir að
reyna að kaupa einn af leikmönnum
ÍBK til okkar, en hið rétta er að við
buðum honuni þjálfarastöðu hjá
okkur, rétt eins og nokkur önnur lið
hafa gert að undanförnu,“sagði Eyj-
ólfur.
Grindvíkingar munu verða í vand-
ræðum í Reykjanesmótinu, þar sem
þrír af bakvörðum liðsins verða þá
staddir erlendis í keppnisferð með
knattspyrnuliði UMFG. Þeir munu
ekki verða komnir heim fyrr en
örfáum dögum fyrir fyrstu leiki úr-
valsdeildarinnar.
Þar með hafa öll 10 lið deildarinn-
ar ráðið sér þjálfara fyrir komandi
tímabil.
BL
Frjálsar íþróttir:
Jón Arnar braut stöngina
og varð að hætta keppni
Jón Arnar Magnússon HSK,
varö fyrir því óbappi að stangar-
stökksstöng hans brotnaði og
hrökk í hendi hans þannig að hann
varð að hætta keppni, þar sein
hcndin bólgnaði upp. Þetta átti sér
stað á heimsmeistaramóti unglinga
í Sudbury i Kanada um helgina.
Jón keppti i tugþraut á mótinu,
en hann varð fyrir skömmu
Norðuriandameistari unglinga í
þeirri grein. Jón Arnar átti tveimur
greinum óiokið þegar óhappið varð
og var þá í 6. sæti, af 25 sem hófu
keppnina. Þrátt fyrir að geta ekki
lokið keppni, hafnaði hann í 16.
sæti. Árangur hans var sem hér
segir: 100 m hlaup 10,93 sek.
langstökk 6,73 m, kringiukast
34,64 m, kúluvarp 11,23 m, há-
stökk 1,92 m 400 m 50,93 sek, 110
m grindarhiaup 16,15 sek. Hann
stökk 4 m í stangarstökkinu, en var
að reyna við 4,10 m, sem hefði
verið persónulegt met, þegar
óhappið varð. Hann gat ekki keppt
í 1500 m hlaupi og spjótkasti.
Súsanna Helgadóttir úr FH
keppti einnig á niótinu og varð 14.
í langstökki, stökk 5,94 m, sem er
hcnnar besti árangur til þessa,
áður hafði hún stokkið 5,89 m.
Þrátt fyrir meiðslin ætlar Jón
Arnar að keppa í bikarkeppninni í
frjáisum íþróttum um næstu helgi,
enda skiptir hvert stig þar mikiu
máli í hinni hörðu baráttu sem
búast má við milli ÍR, HSK og FH.
BL
Landsliðið í knattspyrnu:
Pétur í sátt
Sigi Held landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu hefur vaiið landsliðshópinn
sem mætir Búlgörum á sunnudag.
Athygli vekur að Pétur Pétursson er
nú kominn í ný í landsliðshópinn.
Liðið sem mætir Búlgörum er
þannig skipað:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson..... B 1909
Guðmundur Hreiðarsson . Víkingi
Aðrir leikmenn:
Atli Eðvaldsson ..............Val
Guðni Bergsson ...............Val
Halldór Áskelsson.............Þór
Ólafur Þórðarson ......... f A
Ómar Torfason................Fram
Pétur Amþórsson..............Fram
Pétur Ormslev ...............Fram
Pétur Pétursson ...............KR
Ragnar Margeirsson............ÍBK
Sigurður Grétarsson .... Luzern
Sigurður Jónsson .... Sheff.Wed
Sævar Jónsson ................Val
Viðar Þorkelsson.............Fram
Þorvaldur Örlygsson ...........KA
Það er ljóst að með þessu vali er
lítil breyting gerð á liðinu frá síðustu
leikjum, þrátt fyrir að um vináttu-
landsleik sé að ræða, á móti Búlgör-
um. Sterkir leikmenn svo sem Ásgeir
Sigurvinsson, ArnórGuðjohnsen og
Guðmundur Torfason komast ekki í
þennan leik. Aftur á móti komast
leikmenn sem hafa staðið sig vel í
deildarleikjum hér heima ekki í liðið
að þessu sinni. Sérstaklega vekur
athygli að Birkir Kristinsson mark-
vörður Fram er ekki valinn, þrátt
fyrir að hann hafi aðeins fengið á sig
2 mörk í 1. deildinni í sumar. Valið
Friðriks Friðrikssonar vekur athygli
þar sem hann dvelur í Danmörku,
fjarri augum þeirra sem velja liðið.
Þá fá leikmenn eins og Ormarr
Örlygsson Fram og Karl Þórðarson
ÍA ekki tækifæri þrátt, fyrir að hafa
leikið mjög vel í sumar. Pétur Pét-.
ursson KR er nú aftur valinn í liðið,
eftir misklíð á síðasta ári. Hann er
því kominn í sátt við forráðamenn
KSÍ.
„Ég tel þetta allt vera efnilega og
sterka leikmenn," sagði Sigi Held
landsliðsþjálfari á blaðamannafundi
í gær, þegar val liðsins var tilkynnt.
„Ég vel liðið í samráði við Guðna
Kjartansson og við erum að leita að
sterkasta liðinu fyrir leikinn gegn
Sovétmönnum þann 31. ágúst.
Þegar Held var spurður um hugs-
anlega möguleika Islands í leiknum
gegn Búlgörum sagði Held. „Ég veit
ekki í hvernig æfingu þeir eru núna,
en þeir hafa verið með eitt af 10
bestu liðum í Evrópu á síðustu
árum. Við fáum stuttan tíma til að
undirbúa liðið, því leikið er í 1.
deildinni í kvöld og annað kvöld, en
við munum reyna að leika til sigurs.
Til þess að við getum leikið sóknar-
knattspyrnu verðum við að hafa
knöttinn og geta haldið honum“.
Ljóst er að við ramraan reip
verður að draga gegn Búlgörum,
þeir léku í úrslitum HM 1986 og
voru aðeins einu marki frá því að
komast í úrslit Evrópukeppninnar í
V-Þýskalandi í sumar.
Leikurinn á sunnudag er fyrsti
leikur fslendinga og Búlgara, en
183. landsleikur fslands. Leikurinn
hefst á Laugardalsvellinum kl 19.00
á sunnudagskvöld. BL
Bikarkeppni í frjálsum íþróttum:
FH-ingum spáö sigri
Bikarkeppnin í frjálsum íþróttum
verður haldin um næstu helgi.
Keppni í 1. deild fer fram á Laugar-
dalsvelli, en í 1. deild keppa ÍR, FH,
HSK, Uf A, UMSB og KR.
ÍR-ingar hafa sigrað í bikarkeppn-
inni síðastliðin 16 ár, en nú er búist
við mjög harðri keppni um sigurinn
milli ÍR, HSK og FH.
Nokkrir af helstu spámönnum
frjálsíþróttahreyfingarinnar voru
fengnir til að spá fyrir um úrslit í
keppninni. Þeir eru Þorsteinn Þórs-
son ÍR-ingur og Gunnar Páll
Jóakimsson þjálfari fR, Stefán Jó-
hannsson þjálfari Ármanns, Þráinn
Hafsteinsson þjálfari HSK og Krist-
ján Harðarson FH.
Spá þeirra fer hér á eftir:
Þorsteinn og Gunnar Páll ÍR
1. ÍR................153 stig 10 gull
2. FH ...............153 stig 9 gull
3. HSK ..............153 stig 7 gull
4. UÍA...................... 127 stig
5. UMSB.............................72 stig
6. KR .........................56 stig
Stefán Jóhannsson
1. HSK........ 155 stig 10 gull 10 siiiur
2. FH ........ 155 stig 10 gull 8 silfur
3. ÍR..............................146 stig
4. UÍA.............................123 stig
5. UMSB.............................81 stig
6. KR .........................49 stig
Þráinn Hafsteinsson
1. FH .........................165 stig
2. ÍR..........................151 stig
3. HSK ........................143 stig
4. UÍA.........................122 stig
5. UMSB..............................73 stig
6. KR ..........................63 stig
Kristján Harðarson
1. FH .......................153 stig
2. ÍR............................151 stig
3. HSK ......................148 stig
4. UÍA............................126 stig
5. UMSB............................47 stig
6. KR ........................43 stig
BL
Enska knattspyrnan:
Samningar í augsýn
Ekkert mun verða úr því að
nokkur öflugustu félögin í ensku
knattspyrnunni dragi sig út úr
deildakeppninni og stofni sérstaka
úrvalsdeild.
Það voru samningar um sjón-
varpsútsendingar, sem komu deil-
um félaganna af stað. Stóru félögin
vildu fá meira í sinn hlut, þar sem
meira er sýnt frá leikjum þeirra en
lakari neðri deildar liðanna. Nú er
aftur á móti í býgerð samningur
allra 92 félaganna í deildakeppn-
inni við ITV, sem mun vera um 11
milljóna punda virði og til fjögurra
ára. Þá hefur enska knattspyrnu-
sambandið gert samning við BBC
og BSB um sjónvarpssendingar frá
leikjum í bikarkeppninni og mun
samningurinn vera uppá um 20
milljónir punda og til 5 ára. Áður
höfðu BBC og BSB, sem eru
ríkisreknar stöðvar, hætt viðræð-
um við félögin um sendingar frá
leikjum í deildakeppninni, þarsem
hin einkarekna ITV stöð gat boðið
betur en ríkið.
Með þessum samningum er ljóst
að ekkert verður úr klofningu í
enska knattspyrnusambandinu og
sjónvarpssendingar frá leikjum í
Énglandi verða í góðu lagi þegar
keppni hefst síðar í mánuðinum.
BL
Maraþon: