Tíminn - 04.08.1988, Síða 12
Fimmtudagur 4. ágúst 1988
12 Tíminn
Flugkappanum á Rauða
torginu gefið frelsi
Matthíasi Rust, flugkappinn ungi sem lenti Cessnavél sinni
á Rauða torginu í Moskvu í maímánuði í fyrra hefur verið
náðaður af Hæstarétti Sovétríkjanna og mun ganga út í frelsið
á ný innan skamms. Rust hlaut á sínum tíma dóm upp á
fjögurra ára þrælkunarvist fyrir tiltækið sem féll illa í
jarðveginn hjá sovéskum stjórnvöldum en vakti aðdáun
flestra annarra.
Óstaðfestar fregnir herma að Rust
verði afhentur sendiráðsmönnum
Vestur-Þýskalands í Lefortovo fang-
elsinu í Moskvu innan skamms.
Rust er ekki nema tvítugur að
aldri. Hann flaug flugvél sinni frá
Finnlandi, yfir sovésku landamærin
og alla leið til Kremlarmúra, án þess
að Sovétmenn lyftu litla fingri, hvað
þá meira. Vakti þetta mikla athygli
og undrun á sínum tíma og fékk
Sergei Sokolov þáverandi varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna að
hirða pokann sinn með skömm eftir
atvikið ásamt yfirmönnum loftvarna
Sovétmanna, enda flaug Rust yfir
viðkvæmustu hernaðarmannvirki
Sovétmanna.
Sovésk yfirvöld hafa ekkert látið
frá sér fara í kjölfar náöunarinnar.
en Hans-Dietrich Genscher utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands fagn-
aði náðuninni. Hann var reyndar í
Moskvu um síðustu helgi og fundaði
með Eduard Shevardsnadze utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna um bætt
samskipti þjóðanna.
Náðun Rust kemur ekki allsendis
á óvart, því vonast hafði verið að
flugkappinn yrði náðaður í tengslum
við för Helmuts Kohls kanslara til
Sovétríkjanna nú í haust og heim-
sókn Gorbatsjofs til Vestur-Þýska-
lands næsta vor.
Friöarviöræðurnar um Angóla og Namibíu:
FRÉTTAYFIRLIT
NIKÓSÍA — íranar sögðust,
hafa skotið niður írakska orr-i
ustuþotu sem tók þátt í loftá-
rásum á verksmiðjur í Busehr
héraði. íranska fréttastofan
IRNA sagði að írakskar flug-
vélar hafi einnig ráðist á verk-
Ismiðjur í Khuzestanhéraði og;
valdio miklum skemmdum.
BAGDAD - Ráðherrar Ar-
ababandalagsins hafa , lýst
stuðningi sínum við kröfu Iraka
um beinar viðræður milli íraka
og Irana. í yfirlýsingu Araba-
bandalagsins sem sjö utanrík-
isráðherrar arabaríkja undirrit-
uðu sagði að beinar viðræður
væru eina leiðin til að benda
enda á Persaflóastríðið.
1
NÝJA DELHI - Hæstirétt-
ur Indlands breytti dauðadómi'
Shíka sem dæmdur hafði verið
fyrir aðild að morðinu á Indiru
Gandhi forsætisráðherra
Indlands. Hins vegar úrskurð-
aði rétturinn að tveir aðrir Shík-
ar skuli hanga.
JERÚSALEM - Hægri
menn í Israel þrýsta nú mjög á
ríkisstjórnina aó innlima her-
numdu svæðin á vesturbakka
Jórdan og Gaza til að fylla það
tómarúm sem þar er orðið eftir
að Jórdanar slitu efnahags-
tengsl við þessi svæði. I Amm-
an skoruðu Palestínumenn á
PLO að taka upp viðræður við
Jórdana um framtíð hernumdu
svæðanna.
JÓHANNESARBORG-
Hópur hvítra ungmenna í Suð-
ur-Afríku hefur neitað að
gegna herþjónustu á þeim
forsendum ao hernum sé beitt
til að viðhalda óréttlátri kyn-
þáttastefnu. Á blaðamanna-
fundum sem haldnir voru í
fjórum borgum samtímis lýstu
143 menn því yfir að þeir muni
ekki gegna herþjónustu. Þeir
eiga því yfir höfði sér sex ára
fangelsisvist.
AÞENA — Grikkir hafa
ákveðið að loka stærstu her-
flugstöð Bandaríkjamanna í
landinu, Hellenikon herstöð-
inni, rétt utan við Aþenu. Við-
ræður Grikkja og Bandaríkja-
manna um nýjan herstöðvar-
samning hafa verið í hnút frá j
því í nóvember.
BANGKOK - Ríkisútvarp-
ið í Burma lýsti því yfir að
herlög tækju gildi í höfuðborg-
inni Rangoon. Ekki var tekið
fram í yfirlýsingunni af hverju
lýst hafi verið yfir neyðará-
standi.
Kúbanir hafna boði
Suður-Afríkumanna
Angólumenn og Kúbanir munu
hafna hinu óvænta friðartilboði Suð-
ur-Afríkustjórnar þar sem gert var
ráð fyrir vopnahléi og sjálfstæði
Namibíu. Þetta kom fram hjá Kúbu-
mönnum þrátt fyrir að tilboðið hafi
ekki enn verið rætt í friðarviðræðun-
um sem standa yfir í Genf.
Hermaður
skotinn á
Norður-
írlandi
Blóðbaðið á Norður-írlandi
heldur nú áfram. Maður sem
starfar að hluta til sem hermaður
í Heimavarnarliði Ulsterhéraðs
var skotinn til bana úr fyrirsát á
Norður-írlandi í gær, skammt frá
þeim stað þar sem sex liðsmenn
Heimavarnarliðs Ulsters særðust
í sprengjutilræði á þriðjudag. Á
þriðjudag var einn lögreglumað-
ur og einn liðsmaður Heimavarn-
arliðs Ulsters drepnir og á mánu-
dag lést breskur hermaður í
sprengjutilræði IRA í skemmu í
London.
Það er Irski lýðveldisherinn
sem ber ábyrgð á þessum drápum
og hafa samtökin varað almenn-
ing við að halda sig nærri breskum
hermönnum vegna herferðar
þeirrar sem IRA stendur nú fyrir
gegn breskum hermönnum.
Morðið á liðsmanni Heima-
varnarliðs Ulster á þriðjudaginn
var sérstaklega grimmilegt.
Byssumenn réðust að manninum
þar sem hann kom út úr verslana-
miðstöð og skutu hann með köldu
blóði fyrir augum konu hans og
tveggja ára dóttur.
Nýjasta herferð IRA hefur nú
staðið í átta mánuði og hafa
liðsmenn samtakanna drepið
sautján óbreytta borgara á þeim
tíma. þá hafa tíu liðsmenn heima-
vamarliðs Ulsters verið drepnir á
þessu ári.
í tilkynningu Kúbana vegna til-
boðsins sagði að þó tilboð Suður-
Afríkumanna hafi ekki enn verið
rætt í samningaviðræðunum í Genf,
þá gætu sendinefndir Kúbu og Ang-
ólu ekki sæst á skilyrði sem því
fylgja. Hins vegar var tekið skýrt
fram að Kúbumenn og Angólumenn
vilja ekki slíta þeim friðarviðræðum
sem hófust í London í maímánuði
og hefur verið framhaldið í Kaíró,
New York og Genf.
Tilboð Suður-Afríkumanna fól í
sér að þeir myndu hefja brottflutning
herliðs frá Namibíu þann 1. nóvem-
ber og að því yrði lokið 1. júní, en
þá yrðu kosningar í þessu landi sem
Suður-Afríkumenn hafa stjórnað í
sjötíu ár. Hins vegar var gert ráð
fyrir að Kúbanir kölluðu 50 þúsund
manna herlið sitt í Angólu heim fyrir
þann tíma og að Angólustjórn loki
sjö herstöðvum Afríska þjóðarráðs-
ins sem berst gegn aðskilnaðarstefnu
Suður-Afríkustjórnar.
Flugvél hins unga þýska flugkappa Matthíasar Rust á Rauða torginu í
Moskvu. Rust hefur nú verið náðaður.
íranska farþegaþotan sem skotin var niður af bandarískri freigátu:
Afsakið, mannleg mistök!
Mannleg mistök áttu mestan þátt
í því að bandaríska freigátan Vinc-
ennes skaut niður íranska farþega-
þotu yfir Hormuzsundi í síðasta
mánuði með þeim afleiðingum að
. 290 manns létu lífið. Þetta mun
koma fram í óbirtri skýrslu banda-
rískrar rannsóknarnefndar sem nú
hefur lokið störfum.
„Þetta voru mannleg mistök“
sagði í frétt bandarísku ABC sjón-
varpsstöðvarinnar. „Þegar hin opin-
bera skýrsla um skotárásina á Iran
air flug 655 verður birt almenningi
mun þetta vera eina skýringin“.
Sjónvarpsstöðin fullyrðir að rann-
sóknarnefnd flotans hafi komist að
þeirri niðurstöðu að radarvarnar-
kerfi Vincennes hafi verið í full-
komnu lagi þegar skotárásin var
gerð og því sé ekki hægt að kenna
tækninni um.
Þá mun hafa komið fram við
rannsókninna að skipherra Vincenn-
es hafi verið tjáð að flugvél stefndi á
fullri ferð að freigátunni eins og um
F-14 orrustuþotu væri að ræða, þrátt
fyrir að radarkerfi skipsins hafi gefið
annað í skyn.
Gögn í radarkerfinu sýna að flug-
vélin var að hækka flugið, en ekki að
lækka það og að flughraðinn var
mun hægari en eðlilegur flughraði
F-14 orrustuþotu ætti að vera.
„Það mun ekki vera ljóst hvort
starfsmenn í radarklefa Vincenne
hafi mislesið tákn radarkerfisins
eða hvort upplýsingar hafi brenglas
á leið til skipherrans" sagði einnig
frétt sjónvarpsstöðvarinnar.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj
anna hafði ekki tjáð sig um þess;
frétt ABC sjónvarpsstöðvarinnar
gær.
Varð fyrir lest
eftir eldsvoða
Belgískur öldungur slapp í gær
með naumindum frá heimili sínu
sem stóð í ljósum logum, en lést
skömmu seinna er hann varð fyrir
lest. Maðurinn sem var áttatíu og
tveggja ára gamall hélt frá heimili
sínu og gekk inn á járnbrautarteina
er liggja nærri húsi hans. Þar ók lest
yfir öldunginn. Talsmaður saksókn-
arans í Aalst, þar sem atburður þessi
gerðist, sagði að maðurinn hefði
látist samstundis. Ekki væri ljóst
hvort um slys hafi verið að ræða, eða
hvort öldungurinn hafi viljað binda
endi á líf sitt eftir að hafa tapað