Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 25. ágúst 1988 Eimskip lætur hanna hótel við Skúlagötu Að undanförnu hefur Eimskip látið vinna að gerð frumteikninga að hóteli á lóðum félagsins við Skúlagötu. Þar er gert ráð fyrir alþjóðahóteli í háum gæðaflokki. Gistiherbergi verði 200 talsins, en jafnframt verði þar veitingasalir, heilsurækt og aðstaða til ráðstefnu- halds. Alþjóðlegt hótelrekstrarfyrirtæki verður fengið til að annast og bera ábyrgð á rekstri þessarar þjónustumiðstöðvar ef af framkvæmd þessari verður. Þorkell Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim- skips sagði að ekki væri ákveðið hvenær byggingarframkvæmdir hæfust. „Það hefur einungis verið unnið að frumteikningum. Við þurf- um að endurskoða allar rekstrar- áætlanir og vinna að fjármögnun. Ákvarðanir um þetta verða ekki teknar fyrr en á seinni hluta þessa árs eða á næsta ári,“ sagði Þorkell. „Við höldum að það sé markaður fyrir svona hótel. Það er ekki rokið út í verkefni sem þetta. Horft er langt fram í tímann. Undirbúnings- tíminn er langur og hlutirnir breytast hratt. Þegar Hótel Borg var reist á sínum tíma sögðu menn að það væri allt of stórt, en svo hefur annað komið í ljós. Ferðamannastraumur- inn hefur aukist mikið.“ Gert er ráð fyrir,að um bygging- una yrði stofnað sérstakt eignarfélag í eigu fleiri aðila, en fjármögnun yrði bæði innlend og erlend. Eim- skipafélagið hefur þreifað fyrir sér um samstarf við alþjóðlega hótel- rekstraraðila, en hefur ekki enn verið gengið til samninga við slíkan aðila. Hönnunarfyrirtæki í London, RM and B Consultants Ltd. hefur lagt á ráðin um innra fyrirkomulag og atriði sem varða hagkvæmni í rekstri. Þorkell sagði í þessu sam- bandi að þeir hjá Eimskip hefðu hvorki „þekkingu, reynslu eða áhuga á því að reka hótel. Við teljum að það séu aðrir betur til þess fallnir og alþjóðleg fyrirtæki erlendis hafa sérhæft sig á þessu sviði og það er eðlilegt að notfæra sér þá þekk- ingu. Það hefur eflaust háð einhverj- um hér heima að þeir hafa ekki haft næga þekkingu til að reka hótel“. Garðar Halldórsson og Ingimund- ur Sveinsson, arkitektar hafa unnið að frumteikningunum og hafa fyrstu drög að teikningum verið lögð fyrir borgaryfirvöld í Reykjavík til um- fjöllunar. „Reykjavík er ein af fáum höfuð- borgum sem hefur ekki alþjóðlegt hótel og þetta er liður í að bæta úr því,“ sagði Þorkell að lokum. SH Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aar'nus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Varberg: Annan hvern miðvikudag Moss: Annan hvern laugardag Við afhjúpun málverksins af Helga Hjörvar. Við myndina eru f.v. Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, Helgi Hjörvar, sem afhjúpaði myndina af afa sínum, og Úlfur Hjörvar, rithöfundur. Nefnd í bjórvarnir Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra hefur, að höfðu samráði við dóms- og kirkjumálaráðherra, skipað nefnd, sem falið er sam- kvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 38/1988, um breytingu á áfengislögum, nr. 82/1969, þar sem heimiluð er bruggun og sala á áfengu öli, að gera tillögur er stuðlað gætu að þvf að draga úr heildarneyslu áfengis. Er nefndinni m.a. falið að fjalla um verðlagn- ingu áfengis og leiðir til þess að vara við hættum, sem fylgja neyslu þess. Einnig að gera tillögu um sérstaka fræðsluherferð um áfeng- ismál, einkum meðal skólafólks, er hefjist eigi síðar en 1. febrúar n.k. Er nefndinni ætlað að skila tillög- um til ráðuneytisins fyrir n.k. ára- mót. f nefndinni eiga sæti: Hafsteinn Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri, formaður, Aldís Yngvadóttir, námsstjóri, Höskuldur Jónsson, forstjóri, Ólafur W. Stefánsson, skrif- stofustjóri, og Óttar Guðmundsson, yfirlæknir. Starfsmaður og ritari nefndar- innar verður Árni Einarsson, er- indreki. MÁLVERK AF HELGA HJÖRVAR Þess var minnst við athöfn í Ut- varpshúsinu sl. laugardag, 20.ágúst, að þann dag voru 100 ár liðin frá fæðingu Helga Hjörvar, fyrsta for- manns útvarpsráðs og skrifstofu- stjóra þess í tæpa þrjá áratugi. Erfingjar Helga Hjörvar afhentu Ríkisútvarpinu að gjöf málverk af Helga, sem Sigurður Sigurðsson, listmálari, hefur málað. Markús Örn Antonsson, útvarps- stjóri, Úlfur Hjörvar, rithöfundur og Andrés Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri, fluttu ávörp við at- höfnina en aðrir viðstaddir voru ættingjar og afkomendur Helga Hjörvar, stjórnendur Ríkisútvarps- ins og samstarfsmenn Helga hjá stofnuninni. -gs Larvik: Alla laugardaga Kór Langholtskirkju: Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Skip................ 9/9 Gloucester: Jörn Dede...........29/8 Skip............... 19/g New York: Jörn Dede...........31/8 Skip................20/9 Portsmouth: Jörn Dede...........31/8 Skip................20/9 ----^rr SKIPADEILD SAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVfk SlMI 698100 ■ A A A A AA 1 A TAKN TRAU8TRA FLIJTNINGA Vetrarstarfið hefst í sept. Kór Langholtskirkju hcfur vetrar- starfið nú í byrjun september. Fyrsta verkefni vetrarins verða Bruckner- tónleikar sem haldnir verða, um miðjan nóvember. Þar flytur kórinn og 15 blásarar flestar mótettur hans og að auki Messu í e-moll fyrir kór. Hugmyndin að þessum tónleikum kom fram fyrir um ári, er Jóni Stefánssyni, kórstjóra, var færður að gjöf fagur tónsproti er Bruckner átti og notaði er hann starfaði við St. Florian klaustrið. Jólasöngvar kórsins verða að vanda seinasta föstudag í aðventu. Þessir tónleikar eru árlegur viðburð- ur. Eftir jól verður tekið til við æfing- ar á Kantötu Gunnars Reynis Sveinssonar við texta Birgis Sigurðs- sonar, „Á jörð ertu kominn“, en flutningur hennar féll niður á Lista- hátíð s.l. sumar vegna veikinda tón- skáldsins. Verkið er samið fyrir kór, einsöngvara, blásarakvintett og jass- sveit. Starfinu lýkur svo á tónleikaferð út á land í vor. í þeirri ferð verða flutt verkefni frá Brucknertón- leikunum og úr Jasskantötu Gunnars Reynis auk fleiri verka sem æfð eru sérstaklega fyrir þessa ferð. Vonast er til að komast til Grímseyjar í þessari tónleikaferð. S.l. vor hófst undirbúningur að næstu utanlandsferð kórsins, en fyrirhugað er að halda til Bretlands- Fulltrúarúr stjórn kórs Langholtskirkju ásamt stjórnanda. F.v. Sigrún Stefánsdóttir, Jón Stefánsson, stjómandi, Halldór Torfason og Þorvaldur Friðriksson. eyja vorið 1990. Raddþjálfari verður eins og undanfarin ár Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir. Hægt er að bæta við nokkrum félögum í allar raddir. Þeir sem áhuga hafa, þurfa að hafa góðar raddir og einhver tónlistarþekking er æskileg, en ekki skilyrði. Sækja þarf um fyrir l.september í síma 84513, Jón Stefánsson eða í síma 71089, Sigrún Stefánsdóttir. (Frcttatilkynning)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.