Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn V-T- I - r :''Tf i Oi ' 1 i Vi Fimmtudagur 25. ágúst 1988 lllllllllllllllll DAGBÓK Aðalfundur Aðalfundur FUF Skagafirði verður haldinn í Framsóknarhúsinu, Suðurgötu 3, Sauðárkróki laugardaginn 27. ágúst og hefst kl. 16 stundvíslega. Dagskrá. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ferð á afmælisþing SUF á Laugarvatni Fulltrúi SUF flytur ávarp. Ungt framsóknarfólk í Skagafirði er hvatt til að mæta. Stjórnin. Skagfirðingar - Nærsveitamenn Héraðsmót Framsóknarfélaganna í Skagafirði verður haldið í Mið- qarði laugardaginn 27. ágúst og hefst kl. 21.00. Avarp flytur Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Óperusöngvararnir Sigurður Björnsson og Sieglinde Kahmann syngja einsöngva og dúetta. Jóhannes Kristjánsson skemmtir. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Nefndin. Franski orgelleikarinn Loic Maliié heldur fyrstu tónleika sína í tónleikaferð um landið í Prestsbakkakirkju á Síðu á sunnudag. Þing Sambands ungra framsóknarmanna og fimmtíu ára afmælisþing sambandsins verður haldið á Laugarvatni helgina 2.-4. september 1988. Drög að dagskrá: Föstudagur 2. sept. Kl. 16.00 Setning. Gissur Pétursson. Kl. 16.20 Ávarp. Steingrímur Hermannsson. Kl. 16.45 Ávarp. Petra Kelly. Kl. 17.10 Starfsmenn kosnir. Kl. 17.20 Skýrsla stjórnar. Kl. 18.20 Lögð fram drög að ályktunum. Kl. 19.00 Kvöldverður. Kl. 20.00 Áframhald umræðna. Kl. 21.30 Skipan í starfshópa. Laugardagur 3. sept. Kl. 9.00 Vinna í starfshópum. Kl. 10.00 Umræður og afgreiðsla mála. Kl. 12.00 Hádegisverður. Kl. 13.00 Áframhald umræðna og afgreiðsla mála. Kl. 14.30 Hlé - útivera. Kl. 16.00 Stjórnmálaályktun afgreidd. Kosningaúrslit. Kl. 19.00 Hátíðarfundur hefst - ávörp gesta. Allir ungir framsóknarmenn eru hvattir til að fjölmenna. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins af Agli og Þórunni í síma 91-24480. Ath.: Barnapössun verður á staðnum. S.U.F. TÖLVUNOTENDUR Viö í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 Franskur orgelleikari á tónleikaferð Franski orgelleikarinn Loic Mallié er hér á landi um þessar mundir í boði Alliance Frangaise. Hann heldur hér þrcnna tónleika. Þeir fyrstu verða í Prestsbakkakirkju á Síöu sunnudaginn 28. ágúst. Þriðjudaginn 30. ágúst leikur hann í Akureyrarkirkju. Þriðjuogsíðustu tónleikarnir verða svo í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 1. september kl. 20.30. Efnisskráin verður breytileg í samræmi við möguleika hljóðfæranna í kirkjunum þremur, cn búast má við verkum eftir Jóhann Sebastian Bach og Olivier Mes- siaen. í Dómkirkjunni mun Loic Mallié einnig leika verk eftir sjálfan sig en hann er afkastamikið tónskáld og hefur samið allmörg verk, bæði fyrir einleik og stórar hljómsveitir. I lok allra tónleikanna leikur hann af fingrum fram.. Loic Mallié fæddist í La Baule við ósa Loire-fljóts í Frakklandi árið 1947. Hann stundaði nám í tónsmíðum og í píanó- og orgelleik við tónlistarháskólann í París þar scm frægasti kennari hans var Mes- siaen. Jafnframt tónlistarnáminu lauk hann námi í lögurn (þ.e.a.s. lögfræði!). Hann hefur unnið til fjölda verðlauna. Loic Mallié er prófessor við tónlistar- háskólann í Lyon þar sem hann er starfsbróðir Eddu Erlendsdóttur píanó- leikara. Hann cr orgellcikari við kirkju heilags Péturs í Neuilly og hefur haldið tónleika víða um lönd við frábærar við- tökur og hástemmt lof gagnrýnenda. Félag eldri borgara Opið hús í dag, fimmtudag í Goðheim- um, Sigtúni 3. Kl. 14: Frjáls spila- mennska. Kl. 19.30: Félagsvist, hálft kort. Kl. 21: Dans. SÍBS og Samtök gegn astma og ofnæmi fara í sína árlegu sumarferð sunnudaginn 28. ágúst til Þingvalla. Grillveisla verður í Hrafnagjá. Farið verður frá Suðurgötu 10, kl. 11. Upplýsingar veittar á skrifstofunni, í síma 22150. Með sr. Gunnari í Skálholtsferð Stuðningsmenn sr. Gunnars Björns- sonar, fríkirkjuprcsts, efna til skemmti- ferðar austur í Skálholt í Biskupstungum sunnudaginn 28. ágúst n.k. Lagt veröur af stað frá Fríkirkjunni í Rcykjavík kl. 13.00 og ckið í rútu austur að Geysi í Haukadal. Þar verður drukkið síðdegis- kaffi á nýja hótelinu við Geysi. Þá verður ekið heim í Skálholt og sótt guðsþjónusta í dómkirkjunni þar kl. 17.00. Að því búnu haldið heim á leið. Væntanlegir þátttakendur geta skráð sig til ferðarinnar í símum 29105 , 39723 cða 83870 fyrir laugardagsmorguninn 27. ágúst. BÍLALEIGA meö utibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar HÁSPENNA - LÍFSHÆTTA! Rafmagnseftirlit ríkisins sendir frá sér eftirfarandi viðvörun: ★ Óhöppum og tjónum af völdum háspennu fer fjölgandi. Flest slík óhöpp verða fyrir vangá eða hugsunarleysi. ★ ÖKUMENN: Hafið gát á háspennulínum ef þið eruð með hátt loftnet eða með háfermi á bílnum. Reisið ekki bílpall upp í línur, eins og mörg dæmi eru um við vegagerð og aðrar framkvæmdir. ★ GRÖFU- OG KRANASTJÓRAR: Fylgist vandlega með öllum hreyfingum tækjanna og farið með sérstakri gát, ef þið cruð að störfum í nánd við háspennu- línur. Ef ökutæki eða vinnuvél snertir há- spennuFnu er sjálfsagt að reyna strax að komast undan línunni og meta síðan aðstæður áður en reynt er að komast út úr ökutækinu. Ef sýn þykir að spenna liggi á tækinu, er öruggast að hreyfa sig hvergi fyrr en tryggt er að spenna sé ekki lengur á línunum. Ef eldur kemur upp í tækinu kann að vera eina björgunarvonin að stökkva út. Ef tækið snertir enn háspennulínu verður að varast að sncrta samtímis tækið og jörðu. ★ STJÓRNENDUR FLUGDREKA: Leikið ykkur ekki í nágrenni við há- spennulínur. Nylonlína getur leitt há- spennt rafmagn í röku veðri. Sleppið línunni, ef flækja við raflínur er fyrirsjá- anleg. ★ IÐKENDUR FALLHLÍFAR- STÖKKS: Metið aðstæður, vinda og veður, áður en lagtertilstökks þarsem háspennulínur geta verið í sviflínu. Málverkasýning í Þrastalundi í Þrastalundi hefur Magnús Ingvarsson frá Mosfellsbæ opnað sölusýningu á landslagsmálvcrkum. Þetta er hans 6. sýning, auk tveggja samsýninga á vegum Myndlistarklúbbs Mosfellsbæjar, sem er undir handleiöslu Jóns Gunnarssonar myndlistarmanns frá Hafnarfiröi. Magn- ús hefur starfaö meö klúbbnum um árabil. Sýningin veröur opin til 4. septcrríber. (Bjjútivist. ———* Simar 14606 og 23732 ÚTIVIST Helgarferðir 26.-28. ágúst: 1. Þórsmörk-Goðaland. Góð gisting í Utivistarskálunum Básum. Gönguferðir fyrir unga sem aldna. 2. Núpsstaðarskógar. Gist í tjöldum við skógana. Gönguferðir m.a. að Tvílitahyl og Súlutindum. Brottför kl. 18. Helgarferð út í bláinn 2.-4. sept. Farið á nýjar áhugaverðar slóðir. Gist í húsum. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni í Gróftnni 1, símar 14606 og 23732. Útivist ÚTIVIST Sunnudagsferðir 28. ágúst: Kl. 8. Þórsmörk - Goðaland. Einsdags- ferð. Stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Berja- tínsla. Verð 1.200 kr. Kl. 9. Línuvegurinn - Hlöðufell. Ekið um Línuveginn norðan Skjaldbreiðar á Hlöðuvelli og gengið þaðan á fellið. Verð 1.300 kr. Kl. 13. Strandganga í landnámi Ingólfs, 20. ferð. Herdísarvík - Strandarkirkja. Skemmtileg gönguleið um greiðfæra hraun- og sandströnd. Strandarkirkja skoðuð. Verð900 kr., frítt fyrirbörn með fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Útivist Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnu- daginn 28. ágúst: 1) Kl. 08 Þórsmörk - dagsferö. Verð kr. 1.200. 2) Kl. 10. Síldarmannagötur - gömul þjóðleið. Gengið frá Hvalfirði upp Síldarmanna- brekkur, yfir Botnsheiði í Skorradal. Skemmtileg þjóðleið milli byggða í Hval- firði og Skorradal, en í lengra lagi. Verð kr. 1.200. 3) Kl. 10. Sveppa- og berjaferð í Skorra- dal - Uxahryggir. Til baka verður ekið um Uxahryggi og Þingvelli til Reykjavíkur. Verð kr. 1.200. 4) KI. 13. Ketilsstígur - Sveifluháls - Vatnsskarö. Ekið að Lækjarvöllum, gengið um Ketilsstíg upp á Sveifluháls, síðan gengið norður eftir hálsinum að Vatnsskarði. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafelag íslands Ferðafélag íslands: Helgarferðir 26. ágúst- 28. ágúst: 1) ÓVISSUFERÐ. Áhugaverð ferð fyrir þá sem hafa gaman af að ferðast. Gist í húsum. 2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála/ Langadal. Gönguferðir um Mörkina. 3) Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laug- um. Ekið í Eldgjá og gengið að Ófæru- fossi. Brottför í ferðirnar er kl. 20.00 föstu- dag. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3. Ferðafélag íslands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.