Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 25.08.1988, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 25. ágúst 1988 Tíminn 7 Gunnar Óskarsson, hjá Fjárfestingarfélaginu: Margar órökstuddar kjaftasógur í gangi Umræður þær sem spunnist hafa í framhaldi af yfirlýsingum Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Al- þýðubandalagsins, um að ákveðin fjármögnunarfyrirtæki stæðu höllum fæti, hafa haft mismunandi áhrif á starfsemi þessara fyrirtækja. Við- skiptavinir þeirra hafa margir inn- leyst verðbréf sín og fór strax að bera á auknum innlausnum fyrir helgi. Flest fyrirtækin bera sig þó vel og hafa afgreitt þessar beiðnir samdægurs. Ávöxtun hf. hefur þó séð sig tilknúið að lengja innlausnartímann í kjölfar aukinna innlausna. „Við erum að losa fjármuni núna og það tekur sinn tíma. Þetta gerist allt svo skyndilega og við liggjum ekki með fjármuni í skúffunum," sagði Ár- mann Reynisson, hjá Ávöxtun hf. „Við erum að losa reiðufé vegna þess að það varð meiri innlausn heldur en við fáum greitt dagsdag- lega úr kröfum þannig að það riðlað- ist skipulagið. Þetta var þó farið að jafna sig strax á þriðjudaginn en auðvitað hrærir þetta upp í fólki, svona yfirlýsingar," sagði Ármann. Hann sagðist ekki hafa tölur um hversu miklu meiri innlausnirnar hafi verið síðustu daga en að gert yrði upp um mánaðamót. Hjá Ávöxtunarsjóði Hávöxtunar- félagsins hf. fengust þau svör að innlausnartími hafi ekki verið lengd- ur og sama var upp á teningnum hjá Fjárfestingarfélagi íslands hf. „Sem betur fer treystir þorri okkar viðskiptavina okkur það vel að það hafa ekki orðið vandamál út af þessu en ég get ekki neitað því að það hafi verið meiri innlausnir undanfarið en tíðkast dagsdaglega,“ sagði Gunnar Óskarsson, hjá Fjárfestingarfélag- inu, í samtali við Tímann í gær. „Innlausnartími hefur ekki lengst hjá okkur, það er allt afgreitt yfir borðið og í raun þolum við miklu Kjaftasögumar Gunnar sagði að mikið af kjafta- sögum væru í gangi þessa dagana í þjóðfélaginu um fjármögnunarfyr- irtækin. Ein slík segir að Fjárfesting- arfélagið eigi nú í miklum erfiðleik- um vegna þess að það hafi sett mikið fjármagn í fiskeldisfyrirtæki og ætti í erfiðleikum með að leysa það fjármagn út. „Þetta er kjaftasaga eins og svo margt sem gengur. Fjárfestingarfél- agið sjálft á hlutdeild í laxeldisfyrir- tæki en rekstur félagsins hefur aldrei nokkurn tímann gengið betur en á þessu ári. Hagnaður hefur aldrei verið meiri og rekstur laxeldisstöðv- arinnar gengur líka mjög vel, þannig að þetta er allt á misskilningi byggt. Því miður er allt of mikið af svona sögum í gangi í þjóðfélaginu sem eiga ekki við rök að styðjast. Fjárfestingarfélagið er hlutafélag í eigu ýmissa aðila, að mestu í eigu Verzlunarbankans, Eimskipafélags- ins, Flutningamiðstöðvarinnar og Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Gangi rekstur félagsins illa þá mundi það einungis hafa áhríf á hluthafa félagsins. Viðskipti félagsins í gegn- um verðbréfasjóði eða verðbréfa- miðlun er allt annar hlutur. Sjóðirnir eru algjörlega ótengdir þessari starf- semi. Það hefur virkað mjög vel að félagið hafi stuðning frá sínum sterku eigendum, hins vegar eru sjóðimir sjálfstæð félög líka og þeir hafa aldrei gengið betur. Þess vegna bregst maður svona við ónafngreind- um sögusögnum eins og komu upp um daginn. Ef einhvem tímann hefur allt verið í topp formi þá er það núna,“ sagði Gunnar. Hann sagði að verið væri að plata kúnna fyrirtækjanna með þessum sögusögnum og yfirlýsingum for- manns Alþýðubandalagsins. Gunn- ar nefndi dæmi um mann sem hafði komið á mánudagsmorgni, með áhyggjur vegna peninga sinna. „Hann hafði tekið söguna trúanlega kom og innleysti sín bréf og borgaði innlausnargjald eins og gerist í þess- um viðskiptum. í dag kom þessi sami maður inn með peningana og keypti sömu bréfin aftur, þegar hann áttaði sig á því að þetta var bara kjaftasaga." JIH 7' TOSHIBA örbylgjuofnarnir 10GERÐIR Verð viðallrahæfí Bnar Farestvert: t Co hf. Laið 4 stoppar við dymar llllllllll veiðihornið ' > Umsjón Eggert Skulason fjóra daga í röð Eftir að veiði á urriðasvæðinu i Laxá í Mývatnssveit hafði byrjað vel datt hún niður síðari hluta sumars. Er þar helst um að kenna leirlosi sem verið hefur í Mývatni. Fátt er svo með öllu illt.... osfrv, því „Norðlingagengið" þeir Þor- geir og Sveinn Jónssynir og veiði- félagi þeirra Vigfús Jónsson fóru um miðjan mánuðinn til veiða. Sveinn og Þorgeir tóku kvóta alla dagana og Vigfús veiddi vel þann stutta tíma er hann var við veiðar. Veiðin hjá þeim bræðrum hófst 11. ágúst og stóð fram undir hádegi þann 14. Á þessum tíma tóku þeir upp hvorki fleiri né færri en sextíu falíega Laxárurriða. Allurvarþessi flskur, utan tveir eða þrír, veiddur á fluguna „Brown Rat“ númer 16. Svo ótrúlega vel reyndist flugan að Þorgcir veiddi á eftir Sveini og fékk fjóra væna urriða í beít þar sem Sveinn var búinn að berja með hinunt og þessum flugum án þess að fá svo mikið sem högg. Sveinn var svo lánsamur að Þorgeir átti tvær slíkar flugur f fórum sfnum, sem enskur sport- veiðimaður hafði hnýtt fyrir hann. Hófu nú báöir bræður að berja með rottunni og mokveiddu. „Ég veiddi með þessari einu flugu fram á síðasta dag. Þá var hún gersamlega búin að vera og vart var að finna á henni stingandi strá. Sfðasta fiskinn tók ég á ber- strípaðan öngulinn.“ sagði Þorgeir í samtali við Tímann. Vissulega spilaði hcppni inn í þessa veiði hjá þeim bræðrum því leirlosið hætti þá daga er þeir voru við veiðar. Þó verður hluti þessa Ijóss er kom í svartnættið að skrif- ast á hyggjuvit þeirra bræðra. Þeir veiddu nefnilega ekki á hefð- bundnu veiðistöðunum sem hafa verið barðir í allt sumar. „Við veiddum þctta allt á milli staða.“ sagði Þorgcir. Minnstu fiskamir sem þeir hirtu voru 40 sentimetra langir en það er 5 sentimetrum lengra en veiðilðg í Laxá leyfa mönnum að hirða. Sex punda var stærsti urriðinn. Þeir tóku kvótann alla dagana og geri aðrir betur. Illa beygðir önglar Veiðihomið hefur heyrt margar sögur af löxum sem hafa sloppið fyrir þær sakir að önglar hafa verið illa smíðaðir. Undirritaður lenti f því um síðustu helgi að setja í góðan lax í Vatnsá við Vfk í Mýrdal. Eftir viðureign f einarfimm mínút- ur var skyndilega allt iaust. Þegar línan var skoðuð kom í Ijós að hnúturinn hafði skroppið úr aug- anu. Farið var að skoða þá öngla sem keyptir höfðu verið og á einum þrem þeirra var augað illa beygt. Það vora því ófagrar hugs- anir sem sendar voru til Veíði- mannsins fyrir að selja slfkt rusl. Þegar reiðin hafþi rénað áttaði undirrítaður sig á því að sökin var að hluta til hjá honum sjálfum. Auðvitað á að kanna vel þann öngul scm settur er á áður en kastað er. Þetta atvik barst í tal og könnuð- ust margir við slíkar sögur ogbættu við að einnig virtist sem hefði nokkuð borið á þvf að augu á önglum hefðu hreinlega hrokkið í sundur. Með fullri virðingu fyrir Veiði- manninum og öðram veiðarfæra- verslunum, verður að gera þá kröfu að fylgst sé með framlciðslunni og hún sé á hverjum tíma sú besta sem fáanleg er. Nóg er vfst borgað fyrir veiðileyfin og útbúnaðinn, þó ekki þurfi að hafa sífelldar áhyggjur af þeim útbúnaði sem verið er með í höndunum og menn nota f bestu trú. Á Bakkastæði við Tryggvagötu kostar klukkutíminn 30 kr. og 40 kr. í Kolaporti. Á Tollbrú kostar , hálfur dagur 80 kr. 1 og heill dagur 150kr. Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.