Tíminn - 25.08.1988, Side 11
Fimmtudagur 25. ágúst 1988
Tíminn 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 25. ágúst 1988
Erlendir
frétta
punktar
• Forseti alþjóða Ólympíunef-
ndarinnar Juan Antonio Samaranch
hefur farið þess á leit við breska
frjálsíþróttasambandið að það leyfi
hlauparanum Sebastian Coe að
keppa á ÓL í Seoul, þrátt fyrir að
hann hafi ekki náð tilskildum árangri
á breska úrtökumótinu fyrir leikana.
Samaranch segir að framlag Coe til
Ólympíuhreyfingarinnar réttlæti að
hann fái að verja Ólympíutitil sinn í
1500 m hlaupi sem hann vann bæði
í Los Angeles og Moskvu. Breska
Ólympíunefndin styður þessa mála-
leitan Samaranch, en jákvæð við-
brögð hafa ekki komið frá breska
frjálsíþróttasambandinu. Næsta
skrefið hjá Samaranch er að leita til
alþj óða frj álsíþróttasambandsins
um stuðning.
• Enn um Coe. Ekki eru allir á eitt
sáttir um þá ósk Samaranch og fleiri
að leyfa Coe að keppa í Seoul.
Bresku hlaupararnir Alan Wells og
Steve Cram eru á móti því að Coe
njóti sérréttinda umfram aðra
breska íþróttamenn. Wells bendir á
að Bandaríkjamenn verði að skilja
grindahlauparann Greg Foster eftir
heima af sömu óstæðu og Coe. Well
telur að ekki eigi að veita fordæmi
fyrir að menn að komast á ÓL á
þann hátt sem er í tilfelli Coe.
• Síðustu fréttir í þessu máli herma
að Samaranch hafi hætt við frekari
aðgerðir til þess að Coe fái að keppa
í Seoul. Coe sjálfur segist sætta sig
við það að vonir hans um farseðil til
Seoul séu brostnar.
• Forráðamenn enska knattspymu-
sambandsins hafa gefið landsliðs-
þjálfara sínum Bobby Robson fullt
vald og traust til þess að stjórna
enska landsliðinu í undankeppni
HM sem nú er framundan, þrátt
fyrir slakan árangur enska landsliðs-
ins í Evrópukeppninni í Þýskalandi
í sumar. Samningur Robsons rennur
út eftir úrslit HM 1990.
• Meira um knattspyrnuþjálfara.
Franskir þjálfarar í 1. og 2. deild
vilja að þeir þjálfarar sem ekki hafa
tilskilin réttindi, fái ekki að sitja á
varamannbekkjum og stjórna liðum
sínum í leikjum. Slíkt mundi koma
sér illa fyrir erlenda þjálfara sem
starfa í Frakklandi, en 5 þeirra yrðu
þá að hverfa af bekknum. Þeir eru
Júgóslavarnir Ivic sem þjálfar efsta
liðið í frönsku 1. deildinni, Paris SG,
Blazevic sem þjálfar Nantes og Bjek-
ovic hjá Nice. Portúgalinn Artur
Jorge sem þjálfar Matra Racing og
Belginn Georges Heylens þjálfari
Lille gætu einnig orðið finna sér
önnur sæti í leikjum liða sinna.
Franski landsliðsþjálfarinn Henri
Michel styður þessa tillögu.
• Áfram með Henrí Michel og
franska knattspyrnu. „Hann er einn
af lélegustu þjálfurum í heimi og
ekki langt frá því að vera skítapoki,"
sagði franski landsliðsmaðurinn Eric
Cantona, eftir að Ijóst varð að hann
yrði ekki valinn í landsliðshópinn
fyrir leik gegn Tékkum. Hann var í
stað þess settur í 21 árs landsliðið,
en eftir ofangreind ummæli var hann
rekinn úr liðinu og reyndar öllum
landsliðum Frakka um sinn, eða þar
til málið hefur verið rannsakað.
Cantona sér eftir orðum sínum og
segist skammast sín fyrir ummælin.
Hann gæti jafnvel átt yfir höfði sér
keppnisbann í deildarkeppninni, en
málið er í rannsókn og ekki ólíklegt
að sættir takist.
• Mike Tyson heimsmeistarí í
þungavigt í hnefaleikum er handar-
brotinn, eftir að hann lenti í slags-
málum fyrir utan fataverslun í Harl-
em hverfi í New York s.l. þriðju-
dagsmorgun. Það var fyrrum hnefa-
leikakappinn Mitch Green sem réðst
að Tyson með ásökunum um að
heimsmeistarinn skuldaði sér pen-
inga. Tyson var óheppinn að hafa
hanskana ekki með sér því hann
braut á sér höndina, þegar hann rétti
Grenn einn á hann.
Arnar Marteinsson Bretlandsmeistari í axlartökum
í Laugardalshöll.
Stemmningin í Höllinni var stór-
kostleg og áhorfendur sem troðfylltu
hvern krók og kima, voru vel með á
nótunum og hvöttu okkar menn til
dáða.
Sovétmenn höfðu yfirhöndina
framan af og komust í 4-2. íslending-
ar gerðu næstu 5 mörk og breyttu
stöðunni í 7-4. Þessi góði kafli dugði
til þess að þriggja marka munur var
í hálfleik 13-10 fyrir ísland.
í síðari hálfleik náðu Sovétmenn
fljótlega að jafna muninn, 14-14, og
einu sinni komust þeir yfir, 16-15.
Aftur kom góður kafli hjá okkar
mönnum og þeir skoruðu 3 mörk í
röð. Undir lok leiksins, þegar staðan
var orðin 20-20 gaf Einar Þorvarðar-
son íslendingum tóninn, með að
loka markinu og varði meðal annars
vítakast frá Atawin. Mikil tauga-
spenna ríkti á lokamínútunum, en
íslensku strákarnir stóðust prófið og
héldu haus. Sovétmenn minnkuðu
muninn í 1 mark þegar 30 sek. voru
eftir, en í lokasókn Islands tókst
strákunum að halda boltanum og
skjóta ekki fyrr en á lokasekúndun-
um. Það tókst, Páll Ólafsson innsigl-
aði sigurinn og skoraði 23. markið
og tíminn var of skammur fyrir
Sovétmenn, þeir náðu ekki einu
sinni að byrja á miðju.
Það var allt annað að sjá til
íslenska liðsins í þessum leik, en
gegn Spáni í fyrrakvöld. Þeir bættu
sig á öllum sviðum handknattleiksins
og unnu verðskuldaðan sigur. Sér-
staklega munaði um að nú varði
báðum greinum og Karl varð í 3. sæti
bæði í Gouren og axlartökum í 62-68
kg flokki. Heimir sem keppti í 80-90 kg
flokki féll úr keppni vegna meiðsla.
Síðan var haldið til Énglands og nú
höfðu fleiri glímumenn bæst í hópinn.
Á Grasmere hátíðinni var keppt í
axlartökum.
Arnar Marteinsson náði þeim góða
* árangri að lenda í 3. sæti í opnum
flokki, en alls voru keppendur 36
talsins. Jóhannes Sveinbjörnsson var
óheppinn, tapaði í 2. umferð fyrir
sigurvegara keppninnar. Baldvin Vigg-
ósson var líka óheppinn, lenti á móti
Arnari í 1. umferð og var þar með úr
leik.
í keppni í undir 86 kg flokki töpuðu
allir íslensku keppendurnir í 1.
umferð, utan Hilmar Ágústsson sem
komst í 2. umferð. Sama var uppá
teningnum í öðrum þyngdarflokkum,
nema hvað Auðunn Jónsson lenti í 3.
sæti af 24 keppendum í undir 18 ára
flokki. Tryggvi Héðinsson varð í 4.
sæti af 19 keppendum í keppni 15 ára
og yngri.
Eldri keppendurnir héldu til Rothes-
ay og þar kom Arnar Marteinsson
heldur betur á óvart og varð Bretlands-
meistari í axlartökum í opnum flokki,
þar sem 7 keppendur tóku þátt. Þeir
Jóhannes Sveinbjörnsson og Baldvin
Viggósson urðu í 3.-4. sæti. Glæsilegur
árangur íslensku glímukappanna.
í 86 kg flokknum í Rothesay urðu
þeir Arngrímur Jónsson og Heimir
Eðvarðsson í 3.-4. sæti og Karl Erlings-
son var sömuleiðis í 3.-4. sæti í 76 kg
flokki.
Yngri hópurinn keppti í Burton. Jón
Birgir Valsson lenti í 5.-6. sæti í opnum
flokki, en keppendur voru 18 talsins.
Arngeir Friðriksson keppti einnig í
opna flokknum, en tapaði fyrir Jóni
Birgi í 1. umferð. Arngeir keppti
einnig í 80 kg flokki og gekk betur,
varð í 3. sæti af 15 keppendum.
Tryggvi Héðinsson og Sævar Sveinsson
féllu báðir úr keppni í 1. umferð.
í keppni í 16-18 ára flokki kepptu
alls 25 glímumenn og íslensku kepp-
endurnir röðuðu sér í efstu sætin.
Auðunn Jónsson varð í 2. sæti, Arngeir
í 3. sæti og Jón Birgir og Ingibergur
Sigurðsson lentu í 4.-5. sæti. Tryggvi
og Sævar voru báðir slegnir út af
Arngeiri, en Hilmar meiddist í 1.
umferð.
Tryggvi Héðinsson náði síðan að
sigra í flokki 15 ára og yngri, en þar
voru keppendur 15. Góður árangur
það.
Yngri hópurinn hélt síðan til Alland-
ale þennan sama dag og tók þátt í
keppni í 14-17 ára flokki. Auðunn varð
í 2. sæti. Ingibergur í 3. og Sævar í 5.
sæti af 22 keppendum. Tryggvi, sem er
yngstur íslensku keppendanna, tapaði
í 2. umferð fyrir Auðuni.
Ekki létu kapparnir þar við sitja
þrátt fyrir þreytu. Þeir enduðu daginn
á því að heyja landskeppni við Eng-
lendinga (Cumberland) í axlartökum
18 ára og yngri. í hvorri sveit voru 5
keppendur. Þreytan eftir erfiðan dag
sagði til sín og Englendingar sigruðu
16-9. Jón Birgir hlaut 4 vinninga,
Auðunn 3 og Ingibergur 2. Sævar og
Tryggvi töpuðu sínum viðureignum.
Það er ljóst eftir þessa miklu keppn-
isferð íslenska landsliðsins I glímu, að
þessi þjóðaríþrótt fslendinga er langt
frá því að vera að leggjast af, eins og
útlit var fyrir nokkrum árum. Þvert á
móti er mikil uppsveifla í íþróttinni og
árangurinn í þessari ferð sannar að
samskipti við aðrar þjóðir eru raunhæf
og nauðsynleg í glímunni, sem öðrum
íþróttum, þótt við verðum að keppa á
annan hátt en hérna heima. BL
Einar Þorvarðarson eins og berserk-
ur og virkaði það eins og vítamín-
sprauta á liðið. Bjarki Sigurðsson
átti stórleik og skoraði meðal annars
2 mörk er hann stökk upp fyrir utan
og þrumaði knettinum í markið.
Alfreð Gíslason og Guðmundur
Guðmundsson áttu einnig frábæran
leik. Kristján Arason var sterkur í
vörninni og er allur að koma til í
sókninni, þó nokkuð sé enn í land.
„Það sáu allir breytinguna á liðinu
frá því í leiknum gegn Spáni og Sviss
og það var gaman að vinna Rússana.
Það verður aftur á móti erfiðar að
leggja þá í Seoul eftir þetta, þó allt
geti gerst," sagði Guðjón Guð-
mundsson liðsstjóri eftir leikinn.
Sovétmenn sigruðu á mótinu en
ísland varð f 3. sæti.
Mörkin ísland: Alfreð 6/1, Sigurð-
ur Sveinsson 3/2, Guðmundur
Guðmundsson 3, Bjarki Sigurðsson
3, Kristján Arason 3, Sigurður
Gunnarsson 2, Páll Ólafsson 1, Geir
Sveinsson 1 og Atli Hilmarsson 1.
Sovétríkin: Atawin 8/4, Tuchkin 4,
Tjumentsvev 2, Scharowarow 2,
Karschakevich 1, Nesterov 1 og
Gopin 1.
Þýsku dómararnir voru áberandi
slakir. Þeir réðu ekki við erfitt
verkefni sitt. BL
f slenska landsliðið í glímu tók nýver-
ið þátt í fangbragðamótum í Frakk-
landi, Englandi og Skotlandi. Keppt
var í axlartökum og Gouren, sem eru
bretönsk lausatök.
Þetta er í fyrsta sinn sem Glímusam-
band íslands sendir landslið í keppni
erlendis, en Glímusambandið gekk í
nóvember s.l. í alþjóðasamtök kelt-
neskra fangbragðamanna IFCW.
Þá fóru glímumenn úr KR í sýning-
arferð til Noregs í nóvember s.l. og var
sú ferð fyrsta utanferð íslenskra gíímu-
manna í 12 ár.
Með inngöngunni í IFCW er stefnt
að því að á næstu tveimur árum verði
öflug samskipti milli íslendinga og
annarra aðildarþjóða sambandsins,
með náskeiðahaldi, kennslu og keppni.
íslendingar hafa lært fangbrögð hinna
þjóðanna og íslenska glíman hefur
verið sýnd erlendis. í framtíðinni er
meiningin að þegar íslenskir glímu-
menn keppa við erlenda kollega sína,
þá verði keppt í tveimur greinum.
Arnar Marteinsson var Bretlandsmeistari
mótherja sinna í keppninni í Rothesay.
„Eg hélt ég þyrfti
meiri reynslu til
þess að sigra“
„Áxlartökin eru öðruvísi en
glíman, en mjög skemmtileg þegar
maður cr farinn að kunna eitthvað i
þessu,“ sagði Tryggvi Héðinsson
yngsti íslenski keppandinn, en hann
sigraöi í axlartökum í flokki 15 ára
og yngri í Burton í Englandi.
„Ég hélt ég þyrfti að hafa meiri
reynslu til þess að sigra, en ég vissi
samt að cg gæti vel sigrað eins og
hinir“,
„Þaö kom berlega í Ijós í þessari
keppni, þeta eðli íslendinga að gef-
ast aldrei upp, þótt við erflðan
andstæðing sé að etja. Viljastyrkur-
inn var kunnáttunni yfirsterkari,
sagði Árni Unnsteinsson fararstjóri
íslenska liðsins“. BL
axlartökum. Hér leggur hann einn
axlartökum eða Gouren annars vegar
og íslenskri glímu hins vegar.
Góðar líkur eru taldar á því að
Meistaramót IFCW muni fara fram á
íslandi 1990 og yrði íslenska glíman
þar meðal keppnisgreina. Þá munu
franskir þjálfarar vera væntanlegir til
íslands í febrúar til að halda námskeið
í axlartökum.
Á meistaramóti IFCW, sem fram fór
í Frakklandi kepptu 5 íslendingar, þeir
Arnar Marteinsson, Arngeir Friðriks-
son, Jón Birgir Valsson, Karl Erlings-
son og Heimir Eðvarðsson. Keppend-
ur voru frá Frakklandi, Skotlandi,
Englandi og Hollandi, auk íslands.
Keppendur voru 4-5 í hverjum flokki.
Arnar náði bestum árangri íslensku
keppendanna. Hann gerði sér lítið
fyrir og sigraði í sínum flokki í Gouren
og varð annar í axlartökum. Arnar
keppti í 90-100 kg flokki. Jón Birgir
keppti í 74-80 kg flokki og varð í 3. sæti
í Gouren og 2. sæti f axlartökum. í
68-74 kg flokki lenti Arngeir í 4. sæti í
íslenska landsliðið í glímu og axlart ikum, sem tók þátt í fangbragðamótum í Frakklandi
glandi og Skotlandi.
Páll Ólafsson og Alfreð Gíslason
fagna sigri yfir Sovétmönnum í
gærkvöld. Páll skoraði síðasta
markið og innsiglaði sigur íslands
23-21. Sovétmaður stendur álúturj
hjá. Tímamynd Pjetur
Glíma:
Handknattleikur:
Sovéska landsliðið í handknatt-
leik, sem af flestum er talið það
besta í heimi, tapaði í gærkvöld
sínum fyrsta leik síðan í nóvember
Knattspyrna:
1987, þegar íslenska landsliðið lagði
það að velli 23-21 á Flugleiðamótinu
Sigur á Færeyingum
í lélegum landsleik
Frá Adalsteini Víglundssyni á Akranesi
íslcndingar sigruðu lið Færeyja
1-0 í lélegum landsleik í knattspyrnu
á Akranesi í gær. Það var lítið sem
gladdi augað, mikið um miðjumoð
og fá marktækifæri. Vel útfærð rang-
stöðutaktík Færeyinganna setti
sterkan svip á leikinn og veiddu þeir
íslensku sóknarmennina trekk í
trekk í gildru sína.
Fyrsta marktækifæri leiksins kom
á 6. mínútu þegar Arnljótur Davíðs-
son átti lausan skalla frá markteig
sem færeyski markmaðurinn varði.
Á 12. mínútu slapp Ómar Torfason
einn inn fyrir vörn Færeyinga eftir
sendingu frá Ólafi Þórðarsyni en var
of seinn og missti af boltanum. Á 20.
mínútu var Ómar aftur á ferð með
skalla rétt yfir markið eftir horn-
spyrnu.
Færeyingar komust fyrst inn í
leikinn þegar um hálftími var liðinn
af leiknum og áttu ágæta spretti fram
að hálfleik. Þá slapp einn sóknar-
maður þeirra inn fyrir vörnina eftir
gífurleg varnarmistök íslendinga en
Guðmundur bjargaði vel í horn.
Nánast það sama átti sér stað tveim-
ur mínútum síðar.
Það var svo á 31. mínútu sem
Ómar skoraði sigurmarkið. Þá kom
löng aukaspyrna yfir á Atla sem
skallaði aftur fyrir á Ómar sem
skallaði í netið.
Seinni hálfleikur var ákaflega
daufur og ekki nem tvö færi sem um
er talandi. Á 55. mínútu kom löng
sending frá Þorvaldi Örlygssyni, sem
kom inná í hálfleik, inn fyrir vörnina
á Rúnar Kristinsson sem átti skot
rétt framhjá. Þegar 10 mínútur voru
svo til leiksloka varði færeyski mark-
vörðurinn skot frá Ómari og rúllaði
boltinn eftir marklínunni án þess að
Arnljóti tækist að afgreiða hann í
netið.
íslendingar voru meira með bolt-
ann í leiknum en varð lítið ágengt
gegn vel útfærðri rangstöðutaktík
Færeyinganna. Enginn stóð upp úr í
liðinu, að frátöldum Guðmundi
Hreiðarssyni, markverði, sem gerði
það sem þurfti vel. Færeyingar lögðu
áherslu á varnarleikinn en áttu
nokkra fljóta og sterka leikmenn.
Islendingar fóru þó með sigur af
hólmi þrátt fyrir það að Færeyingar
hafi mætt með Járnskóinn, en hann
skilaði hvorki eftir sig far á vellinum
né í leiknum.
Lið Islands: Guðmundur Hreið-
arsson, Ólafur Þórðarson, Atli Eð-
valdsson (Ágúst Már Jónsson), Sæv-
ar Jónsson (Ormar Örlygsson), Við-
ar Þorkelsson, Kristinn Jónsson,
Pétur Arnþórsson, Ómar Torfason,
Rúnar Kristinsson, Ragnar Mar-
geirsson (Þorvaldur Örlygsson), og
Arnljótur Davíðsson.
Sovéski gírkassinn bilaði
ÚLPUP
BUXUP
peysup
1.995.-
1.290.'
995.-
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT!