Tíminn - 25.08.1988, Page 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLÚTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
______® 28822
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Okeypis þjónusta
Tíminn
STRUMPARNIR
HRESSA
I Tíminn
„Leynivopnið"
í hendur ráðuneytis
Gísli Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn í dómsmálaráðu-
neytinu, hefur nú fengið nýja
ríkisbifrcið til umráða og til að
nota á ferðalögum sínum um
landið. Þetta væri e.t.v. ekki í
frásögur færandi ef þessi bíll
væri ekki nær eini sérsmíðaði
lögreglubíllinn á landinu og
líklega einn sá öflugasti og
sterkasti. Tíminn greindi frá
þessum bílakaupum fyrir
nokkru og gekk þessi nýi fars-
kjóti þá undir nafninu „leyni-
vopnið“. Vegna þessa máls
hafa lögreglumenn orðið afar
reiðir og benda Tímanum á að
t.d. í Reykjavík, þar sem
ástandið er hvað verst í bíla-
málum, séu þeir að keyra út
bílgarma sem eknir eru allt að
7-800 þúsund km áður en þeir
eru teknir úr notkun. Hinn
sérsmíðaði lögreglubíll dóms-
málaráðuneytisins er Volvo
240 GLT, með yfirstærð af vél
sem gefur 133 DIN hestöfl og
er hann styrktur á margan hátt
líkt og aðrir bílar fyrir lögregl-
una heima í framleiðslulandinu
Svíþjóð. Hann stendur nú án
nokkurra einkenna sem lög-
reglubíll fyrir utan dómsmála-
ráðuneytið, en er merktur sem
aðrar ríkisbifreiðar á fram-
hurðinni.
Bíllinn var sérstaklega pantaður
inn af umboðinu Velti hf. sem þá
var, og boðinn til reynslu á litlu
hærra verði en óbreyttir Volvobílar
lögreglunnar. Þetta var gert í sam-
ráði við innkaupayfirvöld ríkisins.
Þann 10. ágúst sl. gerðist það svo
að ráðuneytið sjálft skráði bílinn á
sitt nafn og hefur Innkaupastofnun
ríkisins t.d. ekki komið nærri kaup-
unum á þessum bíl, líkt og þegar
keyptir eru inn bílar til nota fyrir
„Leynivopnið,“ fyrir utan dómsmálaráðuneytið í gær. Því er nú ekið af skrifstofumanni, eins og lögregluþjónn
orðaði það, á meðan lögreglan.býr við alvarlegt ástand bílaflotans. Tímamynd: Pjeiur
lögreglulið vítt og breitt um landið.
Tíminn spurði Gísla um það af
hverju lögreglubíllinn hafi ekki
verið skráður inn til nota hjá
einhverju lögregluliðinu til að hægt
yrði að meta hann eftir því hvernig
hann stæði sig við erfiðar aðstæður.
Sagðist Gísli geta reynsluekið
honum sjálfur rétt eins og lögreglu-
menn, enda væri hann gamalreynd-
ur lögreglumaður. Hins vegar væri
það líklega réttast að mesta prófun
á bílinn fengist ef hann væri t.d. í
notkun í almennu deildinni hjá
Lögreglunni í Reykjavík eða þá
umferðardeild þeirra.
Hætta af prófunum Gísla
Benti einn lögreglumanna sem
Tíminn ræddi við um „Gíslamálið"
á þá hættu sem því getur verið
samfara ef Gísli er að reynsluaka
þessum bíl og taka hann til kost-
anna á vegum úti, án nokkurra
viðvörunarmerkja, sem lögreglu-
bílar eru útbúnir með.
Af þessum prófunum Gísla
Guðmundssonar gæti því skapast
óþarfa hætta fyrir ferðalanga eða
aðra ökumenn, ef hann væri í raun
að prófa bíllinn eins og hann ætti
að vera prófaður. Haldi Gísli sig
hins vegar innan ramma umferðar-
laganna á akstri sínum fyrir ráðu-
neytið, væri ekki mikil hætta á að
nýi „óeinkennisklæddi" lögreglu-
bíllinn þyrfti nokkru sinni að lenda í
öðru en venjulegum akstri óbreyttra
borgara. Það væri m.ö.o. engin
hætta á því að lögregluyfirvöld
verði nokkru nær um getu sérsmíð-
aða lögreglubílsins umfram venju-
lega fjölskyldubíla meðan Gísli
hefur hann til eigin nota í starfi og
leik.
Til frambúðar?
Yfirlögregluþjónninn í dóms-
málaráðuneytinu var því spurður
að því hvort ætlunin væri að hann
hefði hann til frambúðar eða að-
eins til reynslu næstu vikur eða
mánuði.
Sagðist Gísli hafa haft ágæta
ríkisbifreið áður en hann fékk
þennan bíl í hendurnar og var sú
af gerðinni Opel Rekord. Var
Rekordinn orðinn talsvert ekinn
hjá Gísla eða um 40 þúsund km á
tveimur árum. Sá bíll hafði verið
látinn fara til löggæslustarfa í Mos-
fellsbæ vegna þess að þar hafi
vantað bíl með stuttum fyrirvara,
eins og Gísli orðaði það. Ekki væri
ákveðið hversu lengi hann hefði
þennan nýjasta lögreglubíl, en
komið gæti að því að hann færi til
nota við löggæslu einhvers staðar á
landinu.
Lögreglan í Reykjavík annast
nú gæslu í Mosfellsbæ og nær
eftirlitsvæðið allar götur norður í
Hvalfjarðarbotn og austur á Mos-
fellsheiði. Er þetta eitt erfiðasta
eftirlitssvæði Reykjavíkurlögreglu
um þessar mundir. í viðtali við
Tímann fyrir skömmu greindi sett-
ur aðalvarðstjóri í Reykjavík frá
því að bíla- og tækjamál Reykja-
víkurlögreglu væru í miklum
molum. Tók hann þá Mosfellsbæj-
arsvæðið sérstaklega sem dæmi um
getuleysi lögreglunnar ef bílar bila
eða verða strand af einhverjum
ástæðum. Það væri sérstaklega erf-
itt að sætta sig við stefnu lögreglu-
yfirvalda í bílamálum þar sem hún
virtist vera sú að helst af öllu ætti
að keyra alla bíla út. Tók varðstjór-
inn sem dæmi að bíll í Árbæjar-
hverfi hafi ekki verið seldur úr
liðinu fyrir en eftir 800 þúsund km
akstur, enda var hann þá farinn að
bila á annarri hverri vakt.
Einn lögreglumannanna, sem
aka þarf nætur og daga og oft við
erfiðustu skilyrði að hraða sér á
slysa- eða afbrotastað, var sérstak-
lega hneykslaður á ráðstöfunum í
bílamálum Gísla Guðmundssonar.
Sagði hann það enga hemju „að
setja sterkasta og traustasta lög-
reglubíl landsins undir rassinn á
skrifstofumanni í dómsmálaráðu-
neytinu", meðan starfandi lög-
reglumenn á vöktum þyrftu jafnvel
að þiggja þau ökutæki sem sá sami
skrifstofumaður hefði misst áhug-
ann á að aka öllu lengur.
Jafnframt nefndi lögreglumað-
urinn, sem dæmi um alvarlegt
ástand bílaflota Reykjavíkurlög-
reglu, að nýlega hefðu átta bílar
verið teknir úr umferð við skyndi-
skoðun og sá níundi lent í umferð-
aróhappi og er sá óökufær. KB
Mikligarður sf. og KRON:
Sameining í áföngum
Jón Sigurðsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Miklagarðs,
frá og með deginum í gær, 24. ágúst. Þetta varð niðurstaðan á
stjórnarfundi Miklagarðs í gær og var komist að þessu samkomulagi
í sátt og samlyndi, að sögn Þrastar Ólafssonar, sem mun hafa
yfirumsjón með starfsemi KRON á meðan unnið er að sameiningu
á rekstri Miklagarðs og KRON.
Unnið dag
og nótt
Stefnt er að því að taka nýtt
húsnæði við Foldaskóla og Selás-
skóla og nýjan Vesturbæjarskóla
í notkun í haust. Jóhannes Bene-
diktsson, byggingastjóri hjá
Borgarverkfræðingi sagði, að um
níutíu menn ynnu dag og nótt til
að Vesturbæjarskólinn yrði til-
búinn á tilsettum tíma, um mán-
aðamótin.
Vesturbæjarskólinn er fyrir
börn frá sex til tólf ára og eru
tveir bekkir í hverjum árgangi.
Áætlaður kostnaður við byggingu
Vesturbæjarskóla er 120-140
milljónir. Jóhannes sagði, að
vinna við nýjan áfanga Selásskóla
gengi vel, og lyki henni um helg-
ina. SH
Hann var spurður hvort Jón léti af
störfum þar sem honum hafi ekki
verið veitt fullt vald til ákvarðana-
töku um daglegan rekstur, þegar til
tals kom að hann tæki við stjórn að
lokinni sameiningunni. „Ég held að
það þjóni ekki neinum tilgangi að
fara að rekja þær viðræður sem átt
hafa sér stað. Ég vil alls ekki stað-
festa þennan skilning þinn á afstöðu
Jóns eða okkar,“ sagði Þröstur í
samtali við Tímann í gær.
Hann var spurður um hvernig
unnið yrði að sameiningunni. „Við
höfum verið með tvær dagsetningar,
að hafa lokið einum áfanga samein-
ingarinnar um áramótin og síðan að
vera búnir að koma flestu í gegn sem
við ætlum að gera fyrir aðalfund
KRON í apríl á næsta ári. Þá
verðum við vonandi farnir að sjá
einhvern árangur," sagði Þröstur í
samtali viðTímann í gær. Hann vildi
ekki opinbera hvað fælist í þessum
fyrri áfanga.
„Markmiðið er náttúrlega að bæta
reksturinn og í öðru lagi að gera
reksturinn þannig úr garði að við
getum verið með sem lægst vöruverð
fyrir neytendur. Það hefur verið
mjög þungur rekstur síðustu 12 mán-
uði. Við opnun Kringlunnar um
miðjan ágúst á síðasta ári urðu
þáttaskil í verslunarmálum hérlend-
is, alveg eins og það hófst nýr
kapituli þegar Mikligarður var opn-
aður 1983. Við höfum misst mark-
aðshlutdeild og við viljum vinna
eitthvað af því til baka,“ sagði
Þröstur.
Hann sagði vinnuna við samein-
inguna stutt á veg komna. „Við
höfum verið að vinna ákveðna for-
vinnu sem þurfti að vinna og nú
verður farið að herða á þeirri vinnu
hægt og bítandi." Hann sagði engar
ákvarðanir liggja fyrir um stöðu
starfsfólks KRON og Miklagarðs og
hafa engar ákvarðanir um uppsagnir
verið teknar. JIH