Tíminn - 15.09.1988, Síða 4

Tíminn - 15.09.1988, Síða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 15. september 1988 Fokkerverksmiðjurnar kynna Flugleiðum nýjan hugsanlegan farkost í innanlandsflugi: Fokker-50 falur fyrir hálfan milljarð króna Ánægðir farþegar stíga út úr Fokker 50 á Reykjavíkurflugvelii. Merki og stöfum Flugleiða var þrykkt á stél og hiið vélarinnar tii þess að gripurinn iiti sem eðlilegast út! Spurningunni um hvort Fokker 50 leysir gamla Fokkerinn af hólmi á árinu 1992, verður væntanlega svarað næsta sumar. Tímamynd: Ámí Bjama. Fyrir dyrum stendur endurnýjun á flugflota Flugleiða í innanlandsflugi. Ætlunin er að nýjar vélar verði komnar í gagnið á vordögum 1992. Stefnt er að því að ákvörðun um kaup á nýjum flugvélum liggi fyrir næsta sumar. Þrjár gerðir skrúfu- þotna koma til álita í vali á nýjum vélum í innanlandsflugi og flugi til Færeyja og Grænlands, í stað Fokk- ervélanna fimm sem þjónað hafa Flugleiðum með prýði mörg undan- farin ár. Um er að ræða hollenska Fokker-50, kanadíska Dash og fransk-ítalska ATR-42 flugvél. Einn þessara kosta, Fokker 50, var kynntur forsvarsmönnum Flug- leiða og flugáhugafólki í kynningar- flugi milli Akureyrar og Reykjavík- Friðlýst svæði á íslandi eru nú 69 talsins og þar af eru tveir þjóðgarðar, 29 friðlönd, 29 náttúruvætti og 9 fólkvangar. Þetta kemur fram í Nátt- úruminjaskrá 1988 sem er þessa dagana að koma út hjá Náttúru- vemdarráði í fimmta sinn. Með skránni fylgir kort sem sýnir stað- setningu allra svæða sem talin eru upp í skránni. Skráin skiptist í aðalatriðum í tvo hluta. í fyrsta lagi er um friðlýst svæði að ræða, sem skiptast í þjóð- garða, friðlönd, náttúruvætti og fólkvanga. Um þessi svæði gilda ákveðnar reglur sem samið hefur verið um, við landeigendur á hverj- um stað, auk þess sem mörk og reglur hafa verið auglýstar í Stjórn- artíðindum. Þá hafa einnig nokkur svæði verið friðuð með sérstökum lögum og reglugerðum. { öðru lagi eru það náttúmminjar, sem eru svæði sem ekki eru friðlýst, en eru talin hafa mikið náttúru- verndargildi, þannig að sérstakt tillit þurfi að taka til þess við skipulag og Dökku svæðin á kortinu sýna friðlýst svæði, þ.e. þjóðgarða, friðlönd, náttúruvætti og fólkvanga. Ljósu svæðin sýna náttúruminjar. ur á dögunum. Hér er um að ræða nokkuð breytt- an Fokker. í þessari nýju vél eru hreyflarnir allt aðrir en í F-27 vél- inni. Hreyflarnir, sem eru 6 blaða loftskrúfur af gerðinni Dowty Rotol, eru mun sparneytnari en þeir gömlu. Gluggavirki Fokker 50 er mjög breytt frá gamla F-27. í nýju vélinni eru gluggarnir 42 að tölu eða um helmingi fleiri en í F-27. Þá er flughraði Fokker 50 um 5% meiri en hjá F-27 og flugdrægi um 60% meira. Þetta helgast af spar- neytni hreyflanna. I vélinni eru 50 farþegasæti en með smá tilfæringum er hægt að fjölga þeim í 58. Gamli Fokker Friendship tekur hinsvegar 44 manns mannvirkjagerð. Skráin yfir náttúm- minjar er að stærstum hluta unnin út frá tillögum náttúruverndarsam- taka, náttúmverndarnefnda og nátt- í sæti. Farþegarnir ganga út og inn fremri dyr vélarinnar, upp og niður innbyggðar tröppur. Aftari dyr vinstra megin eru fyrir eldhúsþjón- ustu. Tvennar dyr hægra megin á vélinni eru fyrir farangur og fragt. Það sem sérstaka athygli vekur við flug í Fokker 50, er hversu hljóðlát vélin er. Mælingar hafa leitt í ljós að hávaði í farþegarými Fokker 50 er minni en í algengum gerðum skrúfuþotna. Einnig er hávaði frá vélinni nokkm minni en frá F-27 vélum Flugleiða. En hvað kosta svo öll herlegheit- in? Tíminn fékk þær upplýsingar að fullbúin kostaði Fokker 50 um 11 milljónir Bandaríkjadollara. Um- reiknað í íslenskrar krónur er kostn- úrufræðinga um allt land. í náttúruminjaskránni kemur fram að 31 plöntutegund er friðlýst á íslandi, svo og dropasteinar í aðurinn rúmur hálfur milljarður. Að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flugleiða, er ekki ákveðið hvort ráðist verður í kaup á fimm flugvélum í stað þeirra fimm Fokkervéla sem nú eru notaðar í innanlandsflugið. Hann segir að lið- ur í ákvörðun um flugvélakaupin sé heildarúttekt á innanlandsfluginu, sem kunni e.t.v. að leiða í Ijós þörf á færri vélum en til þessa. Rétt er að ítreka að Flugleiðir hafa ekki tekið ákvörðun um kaup á Fokkervélum en það mátti þó merkja á svipbrigðum og tali Flug- leiðamanna að aflokinni reynsluflug- ferðinni, að Fokker 50 kemur mjög sterklega til álita sem arftaki gömlu Fokkeranna, F-27. óþh öllum hellum landsins. Náttúruverndarskránni er dreift ókeypis, og fæst hún á skrifstofu Náttúruvemdarráðs. -ABÓ Mótmælir skerðingu á kjörum Fulltrúaráð Kennarasambands íslands mótmælir harðlega þeirri skerðingu á kjörum launafólks sem fólst í því að greiða ekki samnings- bundna 2,5% launahækkun sem koma átti til framkvæmda 1. sept- ember sl., segir í ályktun sem fulltrúaráðið hefur samþykkt. í ályktuninni segir að svo virðist sem stjórnvöld telji það eina mögu- leikann til að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar að vega að kjörum og lífsafkomu opinberra starfsmanna og annars launafólks sem tekur laun samkvæmt umsömdum töxt- um. Þá hafi einnig komið til tvær gengisfellingar á fyrri hluta ársins, nauðungarsamningar um launa- hækkanir sem dugðu ekki til að bæta langvarandi kjaraskerðingu, auk annarra aðgerða sem allar bitna fyrst og fremst á almennu launafólki. „Ekkert hefur komið fram um á hvern hátt ríkisstjórnin hefur hugsað sér að bæta launafólki kjaraskerðinguna, hins vegar ligg- ur í loftinu að enn fleiri árásir á lífsafkomu þess séu í undirbún- ingi,“ segir í ályktuninni. Fulltrúaráðið hvetur samtök launafólks að bregðast sameigin- lega við árásum ríkisvaldsins á kjör þess. -ABÓ Vilja ekki útlent öl Ungmennafélag íslands skorar á Alþingi og ríkisstjórn að leyfa ekki, a.m.k. til að byrja með sölu á sterkum bjór sem framleiddur er erlendis og benda á þá hættu sem óbeinar auglýsingar öflugra erlendra bjórframleiðenda geta haft á neyslu sterks öls. Þetta kemur fram í tilkynningu sem UMFÍ hefur sent frá sér og samþykkt var á 5. fundi stjórnar félagsins sem haldinn var í Djúpuvík á Ströndum í byrjun mánaðarins. -ABÓ Mótmælir hugmyndum um minnkun sérkennslu Stjórn Kennarasambands Islands hefur sent ráðherrum menntamála og fjármála bréf, þar sem lýst er áhyggjum af þeim vanda sem skóla- starfi er búinn, ef takmarkaðar fjár- veitingar sem ætlaðar eru skólastarf- inu verði enn minnkaðar, eins og óskað hefur verið eftir. í bréfinu kemur fram, að eins og jafnan áður þegar um niðurskurð er að ræða, sé mest hætta á að þeir sem minnst mega sín og síst geti borið hönd fyrir höfuð sér verði fyrir barðinu á slíkum aðgerðum. „Nú hafi borist fréttir af því að stórlega verði dregið úr því tímamagni sem ætlað er nemendum með sérkennslu- þarfir," segir í bréfinu og jafnframt bent á að það tímamagn sé ærið takmarkað fyrir og fullnægi hvergi nærri þeirri þörf sem greind hafi verið. Stjórnin mótmælir harðlega öllum hugmyndum og áformum um að skerða þjónustu skólanna við nem- endur og skorar á stjórnvöld að standa vörð um jafnréttisákvæði grunnskólalaganna með því að tryggja að virt verði greind og rök- studd þörf þeirra nemenda sem þurfa á sérkennslu að halda. -ABÓ FRIÐLÝST SVÆÐI OG NÁTTÚRUMINJAR Á ISLANDI Protected oreas and sites of spocial interest in lceland mr Ný náttúruminjaskrá, fimmta útgáfa komin út: 69 SVÆDIFRIÐLÝST Á ÍSLANDI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.