Tíminn - 15.09.1988, Síða 9
Fimmtudagur 15. september 1988
fíminn 9
VETTVANGUR
llilllilllllli
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri:
Kostir landsbyggðar
Erindi á fjórðungsþingi Norðlendinga
Þegar menn velta fyrir sér hverjir séu helstu kostir þess
samfélags sem landsbyggðina byggir kemur strax upp í
hugann hvað felst í orðinu kostur. Ymis merkileg orðasam-
bönd eru til þar sem orðið kostur kemur fyrir. Menn hafa
marga góða kosti, kostir manna batna og versna, nokkrir
sitja í kostum, aðrir fara á kostum og enn færri eru iausir
á kostunum. Hér í þessu erindi verður lagður sá skilningur
í merkingu orðsins að átt sé við góða kosti en ekki slæma
og að góðir kostir merki í senn góð lífskjör, lífsgæði og
Iífsskilyrði. Verulegur munur getur verið á raunverulegum
kostum og skynjuðum kostum. Einnig er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir því að það sem er kostur fyrir einn getur
verið ókostur fyrir annan.
Lífskjör og lífsgæði
Allir menn hafa þarfir og óskir
og til að fullnægja þeim er nauðsyn-
legt fyrir einstaklinga að starfa
saman. Enginn einstaklingur getur
einn og sér fullnægt öllum sínum
þörfum og óskum. Einstaklingur-
inn metur væntanlega lífsgæði og
lífskjör sín eftir því að hve miklu
leyti þörfum hans og óskum er
fullnægt.
Vísindamenn hafa fjallað um
þarfir manna út frá mismunandi
sjónarmiðum. Má nefna þá skil-
greiningu að þarfir manná séu af
tvennum toga, annars vegar tengd-
ar velverð og hins vegar stöðu í
samfélaginu. Með velferð er átt við
góð lífskjör, heilbrigði, öryggi,
þekkingu og skemmtilegheit. Með
stöðu í þjóðfélaginu er átt við þá
virðingu, kærleik og umhyggju er
við njótum frá samborgurunt.
Parfir manna má líka líta á út frá
þeim sjónarhóli að æðri þarfir
manna myndast jafnskjótt og þeim
lægri er fullnægt. • Frumþarfir
manna snerta mat, föt og húsa-
skjól. Næstu þarfir snerta öryggi
og þar næst þarfir sem tengjast
kærleik, ást, umhyggju og sam-
skiptum við fólk. Að þessu full-
nægðu er þörfin fyrir virðingu eða
stöðu í samfélaginu næst og að
lokum þötfin fyrir persónulega
fullnægingu, þ.e. að ná þeim árangri
í lífinu sem einstaklingurinn
telur sig hafa möguleika og hæfi-
leika til.
Eftir því sem samfélag manna
kemst á hærra þróunarstig þeim
mun meiri líkur eru á að mögulegt
sé að fullnægja æðri þörfum
manna. f>að tengist því að með
hærra þróunarstigi eykst þéttbýl-
ismyndunin hröðum skrefum. Inn
til stærstu þéttbýlisstaðanna
streymir atgerfisfólkið og fjár-
magnið og þessir staðir verða mið-
punktar alls samgöngu- og sam-
skiptakerfis í landinu. Þeir sem
hafa þörf fyrir virðingu eða stöðu í
þjóðfélaginu flytja því til höfuð-
borgarinnar. Einnig þeir sem hafa
þörf fyrir persónulega fullnægingu
á starfs- eða áhugasviðum sem
ekki er hægt að stunda með góðu
móti í dreifbýli, t.d. listamenn og
vísindamenn.
Atgerfisflóttinn frá landsbyggð-
inni til höfuðborgarinnar var lík-
lega mestur á tímabilinu frá síðari
heimsstyrjöldinni og fram yfir
1970. Síðustu 10-15 árin hefur
staða landsbyggðarinnar gagnvart
höfuðborginni batnað verulega,
bæði í atvinnulegu tilliti og hvað
samgöngur áhrærir. Kostir lands-
byggðarfólks hafa því batnað mik-
ið síðustu árin. Mat á þessum
kostum verður alltaf persónubund-
ið og tengist m.a. aldri og kyni.
Hér á eftir verður reynt að
leggja í stuttu máli mat á hverjir
séu raunverulegir kostir lands-
byggðar en þar á eftir rætt stuttlega
um skynjun, eða eftir atvikum,
vanskynjun kosta.
Raunverulegir kostir
Raunverulegir kostir búsetu á
landsbyggðinni tengjast í megin-
atriðum fimm þáttum:
1. Lífsrými og nálægð við náttúr-
una.
2. Mikil atvinna og góðar tekjur.
3. Landsbyggðin er Iaus við
ýmsa slæma fylgifiska borg-
anna.
4. Persónuleg einkenni fólks
hafa haldist á landsbyggðinni.
5. Ýmsir aldursbundnir kostir.
Með fyrsta þættinum er átt við
að möguleikar landsbyggðarfólks
til hvers konar útivistar eru meiri
en fólks á höfuðborgarsvæðinu. Er
það bæði vegna miklu meira land-
rýmis á einstakling og vegna meiri
nálægðar. Þetta er kostur sem
skiptir æ meira máli í nútíma-
samfélagi þar sem lögð er meiri
áhersla á útivist og holla hreyfingu
en áður var.
Atvinnulíf á landsbyggðinni hef-
ur verið mjög blómlegt síðustu
árin, nema e.t.v. í sveitum þar sem
kreppir að um stundarsakir. Tekj-
ur fólks á landsbyggðinni eru mis-
jafnlega góðar. Tekjur í landinu
eru hæstar í sjávarplássunum, all-
nokkru hærri en á höfuðborgar-
svæðinu, en lægstar eru þær í
sveitunum. Lífskjör í íslenskum
sjávarplássum eru betri en í nokkr-
um öðrum sjávarplássum við allt
norðanvert Atlantshaf. Þegar
harmagráturinn heyrist úr sjávar-
plássunum hér á landi eru menn að
miða sig við Reykjavík, sem er
ekki raunhæft. Menn ættu alveg
eins að bera sig saman við þorpin í
Lofoten í Noregi, í Færeyjum eða
á Nýfundnalandi. Ég kvíði ekki
niðurstöðum úr slíkum saman-
burði.
Ég hef farið víða um sveitahéruð
í Norður-Noregi, Norður-Finn-
landi og á Nýfundnalandi. íslensk-
ur landbúnaður hefur yfirburði yfir
landbúnað þessara svæða á öllum
sviðum. Við getum ekki miðað
okkur við landbúnað svæða sem
búa við miklu betri náttúrufarsskil-
yrði. Ég bendi á að það þarf ekki
að fara lengra en til Orkneyja til að
okkar náttúrufarslegu aðstæður
séu ekki lengur sambærilegar, hvað
þá heldur ef lengra er farið suður.
Það er nefnilega mikið sannleiks
kom í enska máltækinu „að menn
skuli bera saman epli og epli“, en
ekki epli og appelsínu.
í þriðja lagi nefni ég að lands-
byggðin er að verulegu leyti laus
við ýmsa slæma fylgifiska borgar-
lífs svo sem umferðarþunga, há-
vaða, streitu, mengun, glæpi, eit-
urlyfjaneyslu og ýmsa afbrigðilega
hegðun. Landsbyggðin býraðsjálf-
sögðu við sín félagslegu vandamál
en þau eru miklu minni í sniðum.
Mjög skortir á að nægar tölfræði-
legar upplýsingar séu til um ýmsa
félags- og heilsufarslega þætti
mannlífsins þannig að hægt sé að
framkvæma marktækan saman-
burð á milli höfuðborgar og lands-
byggðar. Á ég þar t.d. við langlífi,
ungbarnadauða, áfengissýki,
hjarta- og æðasjúkdóma, samkyn-
hneigð, atvinnusjúkdóma o.fl.
í fjórða lagi nefni ég það að
persónuleg einkenni fólks hafa
haldist á landsbyggðinni á meðan
einstaklingurinn rennur gjarnan
saman við fjöldann í hringiðu borg-
arlífsins. Ef spurt er hvað einkenn-
ir t.d. Skagfirðinga eða Eyfirðinga
hafa flestir svör á reiðum höndum.
En ef spurt er hvað einkennir
mannlífið í Kópavogi vefst mörg-
um áreiðanlega tunga um tönn. Af
þessu tilefni langar mig að lesa
örstutta lýsingu á Eyfirðingum og
Skagfirðingum úr Ferðabók Egg-
erts Ólafssonar og Bjarna Pálsson-
ar frá miðri 18. öld. Það er mín
skoðun að lýsingar þessar eigi jafn-
vel enn við í dag að nokkru leyti:
„En mikill er samt munur
manna úr hinum einstöku sýslum
Norðurlands, og eru þeir, sem
þaðan koma, dæmdir í öðrum
landshlutum eftir því, sem fram-
koma þeirra er. Skagfirðingar
eru taldir framhleypnir og digur-
mæltir, Eyfirðingar kyrrlátir og
siðugir, en Húnvetningar séu bil
beggja eða mitt á milli þeirra.
Um Þingeyinga er ekkert sagt,
af því að þeir ferðast lítið til
annarra héraða, en mest er talað
um Skagfirðinga, af því að þeir
eru mest á ferðinni til Suður-
Vesturlandsins, því að bæði hafa
þeir fleiri hesta en aðrir og
hallærin hafa dunið mest á þeim.
í slíkar ferðir eru einkum sendir
þeir menn, sem skjótastir eru í
förum. Eru það oft ungir menn,
andvaralausir og óskammfeilnir,
svo að þeir lenda oft í illdeilum
við menn þá, er þeir skipta við,
og einkum þegar þeir eru ölvað-
ir, og hrokast þeir upp af þessum
löstum. Þetta hefir einkum gefið
efni til hins illa orðróms um
Skagfirðinga. Því verður ekki
neitað, að margir þessara ferða-
langa eru hneigðir til drykkjar
og lasta þeirra og óreiðu, sem
sigla í kjölfar drykkjuskaparins.
Eigi verður heldur borið á móti
því, að meðal hinna mörgu góð-
bænda Skagafjarðar eru rnargir
búskussar, sem eru meira
hneigðir fyrir að flakka fram og
aftur en sitja heima að búum
sínuni. Þeir halda því reiðhest-
um sínum stríðöldum, meðan
kostur er, en láta kýrnar horast
niður. Mest reynir þó þessi bú-
skussaháttur þeirra á konur
þeirra og börn.“
„Eyfirðingar líkjast Borgfirð-
ingum í hugarfari, búskap og
háttum. Þeir eru mjög kyrrlátir
menn að eðlisfari og gætnir,
starfsamir, sparneytnir, en um-
gengnisgóðir bæði sín á milli og
gagnvart ókunnugum. Nábúar
þeirra í Þingeyjarsýslu líkjast
þeim, en þeir, sem búa nyrst og
austast, líkjast helst þeim, sem
búa á norðanverðum Vestfjörð-
um.“
f fimmta lagi nefni ég hér að
framan ýmsa aldursbundna kosti
búsetu á landsbyggðinni. Ljóst er
að það fylgja því miklir kostir fyrir
börn að alast upp á landsbyggðinni.
Þegar unglingsárum er náð verða
kostirnir miklu færri og unglingum
oft nauðsyn á að fara’að heiman til
skólagöngu. Ungt fólk sem lokið
hefur skólagöngu og er í þann
mund að stofna heimilí á ýmsra
góðra kosta völ á landsbyggðinni.
Þar er næg atvinna, góðir tekju-
möguleikar og gott að ala upp
börn. Þegar fólk kemst á miðjan
aldur og börnin fara að tínast að
heiman, e.t.v. í framhaldsskóla,
þá versna kostir landsbyggðarfólks
og ýmsir jafnvel flytja í fótspor
barna sinna. Aðstæður aldraðra á
landsbyggðinni eru misjafnar en
fara að nokkru leyti eftir því hver
þjónusta er í boði og hvar börnin
hafa sest að. Ljóst er þó að á
heildina litið eru kostir aldraðra á
landsbyggðinni lakari en á höfuð-
borgarsvæðinu. Um það vitna m.a.
miklir búferlaflutningar aldraðra
utan af landi til höfuðborgarinnar.
Skynjun eða
vanskynjun kosta
Það er einkenni metnaðarfullra
þjóða að standa sífellt í mann-
jöfnuði og hvers kyns samjöfnuði
varðandi lífskjör og lífsgæði. Hinn
sífelldi samjöfnuður Iandsbyggð-
arfólks við Reykjavíkursvæðið hef-
ur að mínu mati brenglað dóm-
greind þess um ágæti sinnar heima-
byggðar. Dregnir eru gjarnan fram
þeir þættir þar sem samnburðurinn
við höfuðborgina er óhagstæðastur
og síðan velta menn sér upp úr
óánægjunni. Menn skynja oft ekki
kosti sinnar heimabyggðar.
Hin hliðin á málinu er sú að þeir
sem búa á höfuðborgarsvæðinu
skynja oft ekki ýmsa kosti lands-
byggðarinnar. Einkum er algengt
að menntað fólk á höfuðborgar-
svæðinu sé uppfullt af fordómum
gagnvart búsetu úti á landi sem
kemur m.a. fram í því að erfitt er
að fá menntað fólk til starfa á
landsbyggðinni.
Dæmi um það að menn skynja
oft ekki kosti sinnar heimabyggðar
er gamla tuggan um hátt orkuverð
víða á landsbyggðinni. Þegar ég
flutti úr Breiðholtinu í Reykjavík
til Skagastrandar fyrir nokkrum
árum síðan hélst orkukostnaður
heimilisins óbreyttur. Hækkun á
húshitunarkostnaði við flutninginn
norður var svipuð þeirri upphæð
sem sparaðist í bensínkostnaði við
að hætta daglegum akstri úr Breið-
holtinu í miðbæinn til vinnu. Um-
ræðan um hátt orkuverð hefur þvf
miður skapað slæma ímynd fyrir
landsbyggðina og jafnvel fælt fólk
frá því að flytja út á land.
Hitt dæmið um fordóma mennt-
aðs fólks gagnvart búsetu á lands-
byggðinni er að mínu mati alvar-
legt mál. I fyrsta lagi hefur þjóðin
öll kostað menntun þessa fólks, en
að nárni loknu neitar það að vinna
nema í þágu helmings þjóðarinnar.
f öðru lagi er menntakerfið byggt
upp sem eftirlíking af menntakerf-
um fjölmennra iðnaðarþjóða.
Besta námsfólkinu af landsbyggð-
inni hefur verið safnað saman í
skóla til að nema námsgreinar sem
mennta það burt frá sínum heima-
högum. Þetta fólk fer síðan til
starfa í eyðslugreinunt, svo sem
heilbrigðisþjónustu, innflutningi,
fjölmiðlun, fjármálaþjónustu o.fl.,
en þeir sem eru minna menntaðir
fara í undirstöðugreinarnar, eins
og sjávarútveg, þar sem aðstæður
til menntunar eru lakastar.
Ef fagfólk, eins og t.d. í heil-
brigðisþjónustu, fer til starfa úti á
landi að námi loknu, getur því
reynst erfitt að fá störf í Reykjavík
eftir að hafa þjónað landsbyggð-
inni í 10-20 ár vegna fordóma sem
þeim mæta.
Það sérmenntað fólk sem gefur
kost á sér til starfa á landsbyggðinni
gerir gjarnan kröfur um hærri laun
en í Reykjavík og að sjálfsögðu að
því sé útvegað húsnæði. Ef ekkert
slíkt er í boði er viðhorfið gjarnan
það að betra sé að vera fátækur í
Reykjavík en á landsbyggðinni.
Lokaorð
Þegar metnir eru kostir lands-
byggðar yerður mat hvers og eins
persónubundið. Það er háð gildis-
mati, menntun, aldri, kyni, fjöl-
skyldustöðu, atvinnu og ýmsum
þáttum sem móta okkar daglega
líf. Ég hef reynt að gefa heillega
mynd af skoðunum mínum um
þetta mál og þær byggja á minni
reynslu.
Niðurstaða mín er sú að búseta
á landsbyggðinni hafi marga raun-
verulega kosti, sem þó eru ekki
alltaf skynjaðir af íbúunum.
Landsbyggðin á hins vegar við að
etja vandamál sem lúta að fordóm-
um, skorti á góðri ímynd og trú
fólks á framtíð sinnar heimabyggð-