Tíminn - 15.09.1988, Qupperneq 9

Tíminn - 15.09.1988, Qupperneq 9
Fimmtudagur 15. september 1988 fíminn 9 VETTVANGUR llilllilllllli Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri: Kostir landsbyggðar Erindi á fjórðungsþingi Norðlendinga Þegar menn velta fyrir sér hverjir séu helstu kostir þess samfélags sem landsbyggðina byggir kemur strax upp í hugann hvað felst í orðinu kostur. Ymis merkileg orðasam- bönd eru til þar sem orðið kostur kemur fyrir. Menn hafa marga góða kosti, kostir manna batna og versna, nokkrir sitja í kostum, aðrir fara á kostum og enn færri eru iausir á kostunum. Hér í þessu erindi verður lagður sá skilningur í merkingu orðsins að átt sé við góða kosti en ekki slæma og að góðir kostir merki í senn góð lífskjör, lífsgæði og Iífsskilyrði. Verulegur munur getur verið á raunverulegum kostum og skynjuðum kostum. Einnig er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að það sem er kostur fyrir einn getur verið ókostur fyrir annan. Lífskjör og lífsgæði Allir menn hafa þarfir og óskir og til að fullnægja þeim er nauðsyn- legt fyrir einstaklinga að starfa saman. Enginn einstaklingur getur einn og sér fullnægt öllum sínum þörfum og óskum. Einstaklingur- inn metur væntanlega lífsgæði og lífskjör sín eftir því að hve miklu leyti þörfum hans og óskum er fullnægt. Vísindamenn hafa fjallað um þarfir manna út frá mismunandi sjónarmiðum. Má nefna þá skil- greiningu að þarfir manná séu af tvennum toga, annars vegar tengd- ar velverð og hins vegar stöðu í samfélaginu. Með velferð er átt við góð lífskjör, heilbrigði, öryggi, þekkingu og skemmtilegheit. Með stöðu í þjóðfélaginu er átt við þá virðingu, kærleik og umhyggju er við njótum frá samborgurunt. Parfir manna má líka líta á út frá þeim sjónarhóli að æðri þarfir manna myndast jafnskjótt og þeim lægri er fullnægt. • Frumþarfir manna snerta mat, föt og húsa- skjól. Næstu þarfir snerta öryggi og þar næst þarfir sem tengjast kærleik, ást, umhyggju og sam- skiptum við fólk. Að þessu full- nægðu er þörfin fyrir virðingu eða stöðu í samfélaginu næst og að lokum þötfin fyrir persónulega fullnægingu, þ.e. að ná þeim árangri í lífinu sem einstaklingurinn telur sig hafa möguleika og hæfi- leika til. Eftir því sem samfélag manna kemst á hærra þróunarstig þeim mun meiri líkur eru á að mögulegt sé að fullnægja æðri þörfum manna. f>að tengist því að með hærra þróunarstigi eykst þéttbýl- ismyndunin hröðum skrefum. Inn til stærstu þéttbýlisstaðanna streymir atgerfisfólkið og fjár- magnið og þessir staðir verða mið- punktar alls samgöngu- og sam- skiptakerfis í landinu. Þeir sem hafa þörf fyrir virðingu eða stöðu í þjóðfélaginu flytja því til höfuð- borgarinnar. Einnig þeir sem hafa þörf fyrir persónulega fullnægingu á starfs- eða áhugasviðum sem ekki er hægt að stunda með góðu móti í dreifbýli, t.d. listamenn og vísindamenn. Atgerfisflóttinn frá landsbyggð- inni til höfuðborgarinnar var lík- lega mestur á tímabilinu frá síðari heimsstyrjöldinni og fram yfir 1970. Síðustu 10-15 árin hefur staða landsbyggðarinnar gagnvart höfuðborginni batnað verulega, bæði í atvinnulegu tilliti og hvað samgöngur áhrærir. Kostir lands- byggðarfólks hafa því batnað mik- ið síðustu árin. Mat á þessum kostum verður alltaf persónubund- ið og tengist m.a. aldri og kyni. Hér á eftir verður reynt að leggja í stuttu máli mat á hverjir séu raunverulegir kostir lands- byggðar en þar á eftir rætt stuttlega um skynjun, eða eftir atvikum, vanskynjun kosta. Raunverulegir kostir Raunverulegir kostir búsetu á landsbyggðinni tengjast í megin- atriðum fimm þáttum: 1. Lífsrými og nálægð við náttúr- una. 2. Mikil atvinna og góðar tekjur. 3. Landsbyggðin er Iaus við ýmsa slæma fylgifiska borg- anna. 4. Persónuleg einkenni fólks hafa haldist á landsbyggðinni. 5. Ýmsir aldursbundnir kostir. Með fyrsta þættinum er átt við að möguleikar landsbyggðarfólks til hvers konar útivistar eru meiri en fólks á höfuðborgarsvæðinu. Er það bæði vegna miklu meira land- rýmis á einstakling og vegna meiri nálægðar. Þetta er kostur sem skiptir æ meira máli í nútíma- samfélagi þar sem lögð er meiri áhersla á útivist og holla hreyfingu en áður var. Atvinnulíf á landsbyggðinni hef- ur verið mjög blómlegt síðustu árin, nema e.t.v. í sveitum þar sem kreppir að um stundarsakir. Tekj- ur fólks á landsbyggðinni eru mis- jafnlega góðar. Tekjur í landinu eru hæstar í sjávarplássunum, all- nokkru hærri en á höfuðborgar- svæðinu, en lægstar eru þær í sveitunum. Lífskjör í íslenskum sjávarplássum eru betri en í nokkr- um öðrum sjávarplássum við allt norðanvert Atlantshaf. Þegar harmagráturinn heyrist úr sjávar- plássunum hér á landi eru menn að miða sig við Reykjavík, sem er ekki raunhæft. Menn ættu alveg eins að bera sig saman við þorpin í Lofoten í Noregi, í Færeyjum eða á Nýfundnalandi. Ég kvíði ekki niðurstöðum úr slíkum saman- burði. Ég hef farið víða um sveitahéruð í Norður-Noregi, Norður-Finn- landi og á Nýfundnalandi. íslensk- ur landbúnaður hefur yfirburði yfir landbúnað þessara svæða á öllum sviðum. Við getum ekki miðað okkur við landbúnað svæða sem búa við miklu betri náttúrufarsskil- yrði. Ég bendi á að það þarf ekki að fara lengra en til Orkneyja til að okkar náttúrufarslegu aðstæður séu ekki lengur sambærilegar, hvað þá heldur ef lengra er farið suður. Það er nefnilega mikið sannleiks kom í enska máltækinu „að menn skuli bera saman epli og epli“, en ekki epli og appelsínu. í þriðja lagi nefni ég að lands- byggðin er að verulegu leyti laus við ýmsa slæma fylgifiska borgar- lífs svo sem umferðarþunga, há- vaða, streitu, mengun, glæpi, eit- urlyfjaneyslu og ýmsa afbrigðilega hegðun. Landsbyggðin býraðsjálf- sögðu við sín félagslegu vandamál en þau eru miklu minni í sniðum. Mjög skortir á að nægar tölfræði- legar upplýsingar séu til um ýmsa félags- og heilsufarslega þætti mannlífsins þannig að hægt sé að framkvæma marktækan saman- burð á milli höfuðborgar og lands- byggðar. Á ég þar t.d. við langlífi, ungbarnadauða, áfengissýki, hjarta- og æðasjúkdóma, samkyn- hneigð, atvinnusjúkdóma o.fl. í fjórða lagi nefni ég það að persónuleg einkenni fólks hafa haldist á landsbyggðinni á meðan einstaklingurinn rennur gjarnan saman við fjöldann í hringiðu borg- arlífsins. Ef spurt er hvað einkenn- ir t.d. Skagfirðinga eða Eyfirðinga hafa flestir svör á reiðum höndum. En ef spurt er hvað einkennir mannlífið í Kópavogi vefst mörg- um áreiðanlega tunga um tönn. Af þessu tilefni langar mig að lesa örstutta lýsingu á Eyfirðingum og Skagfirðingum úr Ferðabók Egg- erts Ólafssonar og Bjarna Pálsson- ar frá miðri 18. öld. Það er mín skoðun að lýsingar þessar eigi jafn- vel enn við í dag að nokkru leyti: „En mikill er samt munur manna úr hinum einstöku sýslum Norðurlands, og eru þeir, sem þaðan koma, dæmdir í öðrum landshlutum eftir því, sem fram- koma þeirra er. Skagfirðingar eru taldir framhleypnir og digur- mæltir, Eyfirðingar kyrrlátir og siðugir, en Húnvetningar séu bil beggja eða mitt á milli þeirra. Um Þingeyinga er ekkert sagt, af því að þeir ferðast lítið til annarra héraða, en mest er talað um Skagfirðinga, af því að þeir eru mest á ferðinni til Suður- Vesturlandsins, því að bæði hafa þeir fleiri hesta en aðrir og hallærin hafa dunið mest á þeim. í slíkar ferðir eru einkum sendir þeir menn, sem skjótastir eru í förum. Eru það oft ungir menn, andvaralausir og óskammfeilnir, svo að þeir lenda oft í illdeilum við menn þá, er þeir skipta við, og einkum þegar þeir eru ölvað- ir, og hrokast þeir upp af þessum löstum. Þetta hefir einkum gefið efni til hins illa orðróms um Skagfirðinga. Því verður ekki neitað, að margir þessara ferða- langa eru hneigðir til drykkjar og lasta þeirra og óreiðu, sem sigla í kjölfar drykkjuskaparins. Eigi verður heldur borið á móti því, að meðal hinna mörgu góð- bænda Skagafjarðar eru rnargir búskussar, sem eru meira hneigðir fyrir að flakka fram og aftur en sitja heima að búum sínuni. Þeir halda því reiðhest- um sínum stríðöldum, meðan kostur er, en láta kýrnar horast niður. Mest reynir þó þessi bú- skussaháttur þeirra á konur þeirra og börn.“ „Eyfirðingar líkjast Borgfirð- ingum í hugarfari, búskap og háttum. Þeir eru mjög kyrrlátir menn að eðlisfari og gætnir, starfsamir, sparneytnir, en um- gengnisgóðir bæði sín á milli og gagnvart ókunnugum. Nábúar þeirra í Þingeyjarsýslu líkjast þeim, en þeir, sem búa nyrst og austast, líkjast helst þeim, sem búa á norðanverðum Vestfjörð- um.“ f fimmta lagi nefni ég hér að framan ýmsa aldursbundna kosti búsetu á landsbyggðinni. Ljóst er að það fylgja því miklir kostir fyrir börn að alast upp á landsbyggðinni. Þegar unglingsárum er náð verða kostirnir miklu færri og unglingum oft nauðsyn á að fara’að heiman til skólagöngu. Ungt fólk sem lokið hefur skólagöngu og er í þann mund að stofna heimilí á ýmsra góðra kosta völ á landsbyggðinni. Þar er næg atvinna, góðir tekju- möguleikar og gott að ala upp börn. Þegar fólk kemst á miðjan aldur og börnin fara að tínast að heiman, e.t.v. í framhaldsskóla, þá versna kostir landsbyggðarfólks og ýmsir jafnvel flytja í fótspor barna sinna. Aðstæður aldraðra á landsbyggðinni eru misjafnar en fara að nokkru leyti eftir því hver þjónusta er í boði og hvar börnin hafa sest að. Ljóst er þó að á heildina litið eru kostir aldraðra á landsbyggðinni lakari en á höfuð- borgarsvæðinu. Um það vitna m.a. miklir búferlaflutningar aldraðra utan af landi til höfuðborgarinnar. Skynjun eða vanskynjun kosta Það er einkenni metnaðarfullra þjóða að standa sífellt í mann- jöfnuði og hvers kyns samjöfnuði varðandi lífskjör og lífsgæði. Hinn sífelldi samjöfnuður Iandsbyggð- arfólks við Reykjavíkursvæðið hef- ur að mínu mati brenglað dóm- greind þess um ágæti sinnar heima- byggðar. Dregnir eru gjarnan fram þeir þættir þar sem samnburðurinn við höfuðborgina er óhagstæðastur og síðan velta menn sér upp úr óánægjunni. Menn skynja oft ekki kosti sinnar heimabyggðar. Hin hliðin á málinu er sú að þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu skynja oft ekki ýmsa kosti lands- byggðarinnar. Einkum er algengt að menntað fólk á höfuðborgar- svæðinu sé uppfullt af fordómum gagnvart búsetu úti á landi sem kemur m.a. fram í því að erfitt er að fá menntað fólk til starfa á landsbyggðinni. Dæmi um það að menn skynja oft ekki kosti sinnar heimabyggðar er gamla tuggan um hátt orkuverð víða á landsbyggðinni. Þegar ég flutti úr Breiðholtinu í Reykjavík til Skagastrandar fyrir nokkrum árum síðan hélst orkukostnaður heimilisins óbreyttur. Hækkun á húshitunarkostnaði við flutninginn norður var svipuð þeirri upphæð sem sparaðist í bensínkostnaði við að hætta daglegum akstri úr Breið- holtinu í miðbæinn til vinnu. Um- ræðan um hátt orkuverð hefur þvf miður skapað slæma ímynd fyrir landsbyggðina og jafnvel fælt fólk frá því að flytja út á land. Hitt dæmið um fordóma mennt- aðs fólks gagnvart búsetu á lands- byggðinni er að mínu mati alvar- legt mál. I fyrsta lagi hefur þjóðin öll kostað menntun þessa fólks, en að nárni loknu neitar það að vinna nema í þágu helmings þjóðarinnar. f öðru lagi er menntakerfið byggt upp sem eftirlíking af menntakerf- um fjölmennra iðnaðarþjóða. Besta námsfólkinu af landsbyggð- inni hefur verið safnað saman í skóla til að nema námsgreinar sem mennta það burt frá sínum heima- högum. Þetta fólk fer síðan til starfa í eyðslugreinunt, svo sem heilbrigðisþjónustu, innflutningi, fjölmiðlun, fjármálaþjónustu o.fl., en þeir sem eru minna menntaðir fara í undirstöðugreinarnar, eins og sjávarútveg, þar sem aðstæður til menntunar eru lakastar. Ef fagfólk, eins og t.d. í heil- brigðisþjónustu, fer til starfa úti á landi að námi loknu, getur því reynst erfitt að fá störf í Reykjavík eftir að hafa þjónað landsbyggð- inni í 10-20 ár vegna fordóma sem þeim mæta. Það sérmenntað fólk sem gefur kost á sér til starfa á landsbyggðinni gerir gjarnan kröfur um hærri laun en í Reykjavík og að sjálfsögðu að því sé útvegað húsnæði. Ef ekkert slíkt er í boði er viðhorfið gjarnan það að betra sé að vera fátækur í Reykjavík en á landsbyggðinni. Lokaorð Þegar metnir eru kostir lands- byggðar yerður mat hvers og eins persónubundið. Það er háð gildis- mati, menntun, aldri, kyni, fjöl- skyldustöðu, atvinnu og ýmsum þáttum sem móta okkar daglega líf. Ég hef reynt að gefa heillega mynd af skoðunum mínum um þetta mál og þær byggja á minni reynslu. Niðurstaða mín er sú að búseta á landsbyggðinni hafi marga raun- verulega kosti, sem þó eru ekki alltaf skynjaðir af íbúunum. Landsbyggðin á hins vegar við að etja vandamál sem lúta að fordóm- um, skorti á góðri ímynd og trú fólks á framtíð sinnar heimabyggð-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.