Tíminn - 11.10.1988, Síða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 11. október 1988
Þriðjudagur 11. október 1988
Tíminn 11
I ÍÞRÓTTIR
Körfukriattleikur
Jón Orn fór í gang
þegar mest lá á
ÍR-ingar unnu nauman sigur á
Tindastólsmönnum frá Sauðárkróki
í leik liðanna í Flugleiðadeildinni í
körfuknattleik í Seljaskóla á sunnu-
daginn.
Leikurinn var ekki í háum gæða-
flokki, en var þó spennandi fyrir
áhorfendur. Nokkuð var um mistök
hjá báðum liðunum og hittni leik-
manna var ekki burðug.
Það voru gestirnir sem skoruðu
fyrstu körfuna, en liðin skiptust
nokkuð á um að hafa forystuna í
fyrri hálfleiknum. Það voru þó ÍR-
ingar sem höfðu 1 stig forystu í
hálfleik, 34-33, eftir að Jóhannes
Sveinsson skoraði síðustu körfu hálf-
leiksins.
Tindastólsmenn leiddu nær allan
síðari hálfleikinn, þó var tvívegis
jafnt, 50-50 og 58-58. ÍR-ingar kom-
ust fyrst yfir í síðari hálfleik, 62-61
þegar tæpar 4 mín. voru til leiksloka.
Valur Ingimundarson, þjálfari
Tindastóls, sem var potturinn og
pannan í sóknarleik sinna manna,
brást á lokamínútunum og skot hans
voru varin af varnarmanni ÍR, Ragn-
ari Torfasyni. Valur gerði þó 4
síðustu stig sinna manna, en á meðan
sigu ÍR-ingar framúr, mest fyrir
tilstilli Jóns Arnar Guðmundssonar
sem fór í gang á lokamínútunum og
skoraði 5 síðustu stig liðs síns og
tryggði því sigur.
Lokatölurnar urðu 69-65 fyrir fR.
ÍR-ingar áttu mjög slæman dag á
sunnudaginn, en fráköstin héldu og
þokkalegur varnarleikur hélt liðinu
inní leiknum. Tindastólsmenn tóku
28 fráköst í leiknum, sem er þokka-
legt í einum leik, en leikmenn ÍR
hirtu nákvæmlega tvöfalt fleiri, eða
56, sem er örugglega nálægt því að
vera met hérlendis. í liðinu eru mjög
öflugir frákastsmenn, og ekki er
fjarri lagi að telja að ÍR-Iiðið sé
sterkasta frákastalið deildarinnar.
Það dugar hins vegar skammt, ef
sóknarleikurinn er lélegur, en ÍR-
liðið slapp með skrekkinn í leiknum
á sunnudag. Erfitt er að taka ein-
staka leikmenn út úr í liðinu, en Jón
Örn Guðmundsson tók leikinn
hreinlega í sínar hendur undir lokin
og var öðrum fremur maðurinn á
bak við sigurinn. Karl Guðlaugsson,
hinn hluti bakvarðadúettsins geð-
þekka, fékk nú tækifæri, var í byrj-
unarliðinu í fyrsta sinn í vetur og
skilaði sfnu með sóma. Þriggja stiga
skotin voru á sfnum stað eins og fyrri
daginn, þó í minni skömmtum væri
og öruggt má telja að fleiri þriggja
stiga körfur eiga eftir að líta dagsins
Ijós í vetur frá Karli, en sú eina sem
skilaði sér á sunnudaginn. Sturla,
Ragnar, Bragi, Jóhannes og Björn
Steffensen voru mennirnir á bak við
fráköstin, en Björn var mjög daufur
í sóknarleiknum. Jóhannes átti góð-
an leik í sókninni ásamt þeim Ragn-
ari og Braga, en var óheppinn með
villurnar og varð að yfirgefa völlinn
þegar 6 mín. voru eftir, með 5 villur.
Hjá Tindastól var Valur Ingi-
mundarson allt í öllu. Þrátt fyrir
stigin 37 er varla hægt að segja að
hann hafi átt stjörnuleik. Eins og
áður segir klikkaði hann á lokamín-
útunum og hefði að ósekju mátt
leika meira uppá samherja sína.
Eyjólfur Sverrisson er greinilega
ekki kominn í nægjanlega góða æf-
ingu, enda nýbyrjaður að æfa. Hann
á samt örugglega eftir að vaxa í vetur
og verða mörgum skeinuhættur.
Gamla kempan Kári Marísson var
traustur, en full ákafur í vörninni og
fékk 5 villur áður en yfir lauk. Sömu
sögu er að segja um Sverri Sverris-
son. Haraldur Leifsson er leikmaður
í liði Tindastóls, sem vert er að veita
athygli. Þegar hann hefur vanist því
hvernig er að leika í hörkunni í
Flugleiðadeildinni, á hann eftir að
verða Sauðkrækingum dýrmætur.
Tindastólsmenn voru óheppnir að
tapa þessum leik, með meiri leik-
reynslu á liðið væntanlega eftir að
hirða stig af liðunum í Evrópuriðlin-
um og tveir síðustu leikir liðsins
benda einmitt til þess.
Dómarar í leiknum voru þeir Jón
Otti Ólafsson og Leifur Garðarsson
og dæmdu þeir leikinn nokkuð vel.
BL
Leikun R-UMFT Lið: UMFT
Nifn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST SUt,
Kári 4-2 1-0 2 7 10 7 7 4
Sverrir 5-1 2-1 - - 4 - 3 5
Eyjólfur 9-4 4-0 1 2 4 2 4 13
Pétur 4-0 - 3 2 2 - 1 0
Bjöm 6-1 1-0 - 2 - - 2 2
Haraldur 2-0 - - 1 _ _ 1 0
Guðbrandur 1-1 - - - 2 - 2 2
JL JL JL j JL
Leikur: R-UMFT Lið: ÍR
Nótn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stiq
Bjöm St. 5-1 - 3 4 3 1 2 2
Kari 6-4 4-1 - - 1 3 4 12
Sturla 6-4 - 2 10 7 3 4 10
Ragnar 10-6 - 5 8 4 1 2 12
Jóhannes 10-5 - 4 8 5 1 - 10
Bragi 10-4 - 4 4 3 - 3 8
- 2 2 j. JL - 1L
Körfuknattleikur:
Oruggur sigur UMFN
á Grindvíkingum
Frá Frimanni Ólafssyni fréttamanni Tfmans:
Leikur UMFG og UMFN hófst á
skemmtilegri kynningu lcikmanna.
Leikmenn UMFG hlupu um göng
sem klappstýrur mynduðu, en klapp-
stýrurnar settu skemmtilegan svip á
leikinn og eru þær skemmtileg nýj-
ung í íslenskum körfuknattleik.
Teitur Örlygsson skoraði fyrstu
stigin fyrir Njarðvík með þriggja
stiga körfu. Jafnræði var með liðun-
um fyrstu mínúturnar í hröðum og
skemmtilegum leik sem lofaði góðu.
Eftir 7 mín. var staðan 14-12 fyrir
UMFN. Þá var eins og botninn dytti
úr liði UMFG sem skoraði ekki
körfu í tæpar 5 mín. meðan Njarðvík
skoraði grimmt og staðan breyttist í
23-12. Þessi munur hélst á liðunum
og í hálfleik varstaðan 44-38 UMFN
í vil.
Njarðvíkingar byrjuðu seinni hálf-
leik með tveimur körfum í röð, á
meðan Grindvíkingar misstu bolt-
ann án þess að ógna körfu Njarðvík-
inga. Njarðvíkingar juku við muninn
jafnt og þétt og komust í 72-59 um
miðjan seinni hálfleik. Þá tóku
Grindvíkingar smá kipp og náðu
muninum niður í 7 sig. Njarðvíking-
ar bættu síðan við og juku muninn,
sem var mestur 19 stig, og unnu
öruggan sigur með 95 stigum gegn 83
stiguum Grindvíkinga.
Leikurinn olli hinum 476 áhorf-
endum vonbrigðum, því hann var
aldrei sú skemmtun sem leikir þess-
ara liða hafa oft verið. Lið Njarðvík-
inga virkaði allan tímann sem hinn
öruggi sigurvegari, með heiisteypt-
ara lið en Grindavík. Teitur Örlygs-
son var bestur Njarðvíkinga, var
drífandi allan leikinn og gafst aldrei
upp og ísak Tómasson var drjúgur
að vanda. Mesta athygli í liði Njarð-
víkinga vakti án efa Friðrik Rúnars-
son sem kom inná í fyrri hálfleik og
skoraði 13 stig á 5 mín. og 24 stig
alls, þar af 4 þriggja stiga körfur.
Aðrir stóðu fyrir sínu.
Guðmundur Bragason var yfir-
burðámaður í liði Grindvíkinga
skoraði grimmt og hirti fjölda frá-
kasta og er erfitt að sjá liðið án hans.
Jón Páll Haraldsson og Ástþór Inga-
son áttu einnig ágætan leik. Lið
Grindvíkinga virkaði þungt í leikn-
um og náði sér ekki á strik, það má
eflaust rekja til þess að þjálfaramál
liðsins leystust seint og menn mættu
því ekki nógu vel undirbúnir fyrir
mótið. Efniviðurinn er hins vegar
nægur og Doug Harvey bíður það
verkefni að pússa liðið saman.
Dómaramir Gunnar Valgeirsson
og Kristinn Albertsson dæmdu ágæt-
lega auðdæmdan leik.
| Leikun UMFG4JMFN Uð: UMFN I
Helgi 6-3 - 4 3 1 2 6
Friðrik Rún 8-6 8-4 - - 7 1 _ 24
Hreiðar 13-7 - 3 6 3 4 T" 15
FriðrikR. 3-2 - - - 3 2 _ 4
Kristinn 8-6 1-1 4 6 4 J 16
Teitur 11-6 3-1 2 6 4 5 _ 18
ísak 10-5 3-0 - 1 1 2 12
Leikur: UMFG-UMFN Lið: UMFG
Nófn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stiq
Sveinbjöm 3-0 - - - - 1 _ 0
Guðmundur 23-10 1-0 5 15 3 1 _ 24
Hjálmar 2-2 - 3 - 3 1 - 5
Rúnar 12-4 1-0 4 1 2 - _ 8
Guðlaugur 6-1 - - 1 - 3 _ 3
JónPáli 9-4 5-2 4 3 4 _ _ 18
Eyjóifur 1-1 1-1 2 1 2 1 _ 5
Ólafur 2-0 - - 1 1 2 _ 2
Ástþór 9-4 8-3 - - 1 2 _ 18
Steinþór 23-0 2-0 2 3 3 - - 0
Teitur Örlygsson
Ragnar Torfason ÍR-ingur verður áþreifanlega var við varnarmann Tindas-
tóls í leik liðanna í Flugleiðadeildinni á sunnudag. Tímamynd Gunnar.
Keppni í 1. deild kvenna i körfu-
knattleik er hafin. Á fimnitudag
var fyrsti lcikurinn, ÍBK vann
Hauka 71-60 og á laugardaginn
vann Njarðvík nauman sigur á KR
38-37 i Hagaskóla. Á sunnudaginn
léku síðan IR og Grindavík í Selja-
skóla. IR stúlkurnar, sem eru ný-
komnar til landsins eftir sigur á
alþjóðlegu móti í Skotlandi, unnu
öruggan sigur 57-53.
í 1. deild karla er keppni einnig
hafin. ÚÍA sigraði Skallagrím 81-
46 og Reynir vann UMFL 59-42 i
Sandgerði. BL
IIÉIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIIIIIIHIIIIII IÞRÓTTIR
Körfuknattleikur:
KR-ingar í litlum
erfiðleikum með
lélegt lið Hauka
- Haukar án sigurs í Flugleiðadeildinni
KR-ingar voru ekki i miklum vandræð-
um mcð að afgreiða lélegt lið íslandsmeist-
ara Hauka í leik liðanna í Flugleiðadeild-
inni í körfuknattleik á sunnudagskvöldið.
Lokatölurnar voru 72-68, eftir að staðan í
hálfleik var 46-30 KR-ingum í vil.
„Við töpuðum þessum leik strax í fyrri
hálfleik, við erum bara ekki komnir í gang
ennþá, en fall er fararheill og nú verðum
við að byrja að einbeita okkur fyrir leikinn
á móti IR á fimmtudaginn," sagði Pálmar
Sigurðsson eftir leik Hauka og KR á
sunnudagskvöldið.
Pálmar hafði lög að mæla, Haukarnir
töpuðu leiknum strax í fyrri hálfleik, nánar
tiltekið þegar á upphafsmínútunum. Þeir
gerðu þó fyrstu körfu leiksins, en KR-ingar
svöruðu með næstu 12 stigum. Munurinn
jókst og staðan breyttist í 42-24 og 46-30
þegar blásið var til leikhlés.
í síðari hálfleik tókst Haukum að
minnka muninn nokkuð, en villuvandræði
komu í veg fyrir að þeim tækist að jafna.
fvar Ásgrímsson og Ingimar Jónsson fóru
báðir út af með 5 villur um miðjan síðari
hálfleikinn og Reynir Kristjánsson fór út
af af sömu ástæðu þegar um 5 mín. voru
eftir. í síðari hálfleiknum sáust tölur eins
og 53-42, 57-50, 64-59, 67-61, 69-66. Það
var fyrst og fremst ívar Webster sem hélt
KR-ingum á floti í leiknum og illa hefði
farið ef fvar hefði ekki hitt eins vel úr
bónusvítaskotunum og raun var. ívar var
maðurinn á bak við sigur KR-inga af þessu
sinni og lokatölurnar urðu 72-68.
Jóhannes Kristbjörnsson lék vel í fyrri
hálfleik og gerði þá 15 stig, en hann var
slakur í síðari hálfleiknum. Auk ívars voru
þeir Matthías Einarsson og Ólafur Guð-
mundsson góðir í liði KR. KR-liðið hafði
Körfuknattleikur
Stúdentar féllu
í framlengingu
Frá Jóhanncsi Bjarnasyni fréttamanni Tímans:
Það var harður slagur milli þeirra
tveggja liða sem spáð hefur verið botnbar-
áttu Flugleiðadeildar íslandsmótsins í
körfuknattleik í vetur.
Þórsararnir kreistu fram sigur í framlen-
gingunni eftir að hafa glutrað leiknum í
jafntefli í venjulegum leiktíma. Ekki fá
leikmenn háa einkunn frá fagurfræðilegu
sjónarmiði, en þess í stað var barátta og
leikgleði í góðu lagi. Þórsarar byrjuðu af
krafti og komust í 11-2, en þá vöknuðu
Stúdentar og leikurinn var í járnum allan
tímann. Þórsarar leiddu lengst af, nema
um miðbik síðari hálfleiks og þeir leiddu
með þriggja stiga mun þegar 5 sekúndur
voru eftir. Jóhann Sigurðsson tók frákast
og í stað þess sýna yfirvegun og rólegheit
grýtti hann knettinum í hendur Stúdenta
og Páll Arnar skoraði glæsilega þriggja
stiga körfu um leið og leiktíminn rann út.
í framlengingunni voru Stúdentar lengst af
yfir. Þegar 55 sekúndur voru til leiksloka
var staðan 98-95 þeim í vil. Þegar 8 sek.
voru eftir og eftirlifandi og staðan var
98-97 fyrir Stúdenta, reyndu Þórsarar skot
sem ekki rataði rétta boðleið, en Guð-
mundur Björnsson náði frákastinu og skor-
aði úrslitakörfuna. Páll Arnar reyndi skot
á síðustu sekúndu af löngu færi sem var
ótrúlega nálægt því að fara niður, en
Stúdentar báru harm sinn með hljóðum.
Konráð Óskarsson bar af sem gull af eiri
í herbúðum Þórara, en aðrir leikmenn
voru mistækir. Jóhann Sigurðsson var
sterkur undir körfunum, en hann ætti að
verða sér úti um aukaæfingu þar sem lítið
annað en vítaskot verða tekin fyrir. Guð-
mundur Björnsson var sprækur í fyrri
hálfleik, en afleitur í þeim seinni. Hjá ÍS
voru Valdimar Guðlaugsson og Páll Arnar
yfirburðamenn, en aðrir leikmenn eru
ekki til afreka líklegir. Páll Arnar átti
sórgóðan leik og skoraði meðal annars 7
þriggja stiga körfur. Valdimar átti og
snjallan leik.
Dómarar voru þeir Bergur Steingríms-
son og Sigurður Valur. Dómgæsla þeirra
var í samræmi við gæði leiksins. JB/BL
Pá I Amar
Leikun ÞÓR-ÍS Uð: ÍS
Nófn Skof 3.SK SFK VFK BT BN ST Stij)
Sólmundur _ - - 3 3 - - 0
Páll 17-4 10-7 - 1 2 - - 34
Bjami 2-1 - - 1 3 - 1 2
Héðinn 2-1 - 1 - - 1 - 2
Þorsteinn 5-2 - - - - - 4
Valdimar 17-11 3-0 2 1 5 4 - 30
Ámi 2-1 - - 2 - - - 6
Hafþór 2-2 - 2 - 2 - - 7
Jón 7-5 - - 3 4 - - 13
Heimir 1-0 - - - - - - 0
ótrúlega lítið fyrir þessum sigri, en hvar
væri liðið statt án ívars Websters?
íslandsmeistarar Hauka börðust hetju-
legri baráttu í síðari hálfleiknum, en
mótspyrnan fór í skapið á þeim og þeir
brutu oft klaufalega af sér. Villuvandræðin
voru þeim dýrkeypt í síðari hálfleiknum
eins og áður segir. ívar Ásgrímsson stóð
uppúr í Hauka-liðinu að þessu sinni, en
aðrir leikmenn liðsins náðu sér ekki á strik.
Jón Arnar Ingvarsson var stigahæstur með
13 stig, en hann er aðeins 16 ára gamall.
Hann átti þó alls ekki góðan leik. Pálmar
Sigurðsson var algjörlega heillum horfinn
og mörg skot hans voru ekki nálægt því að
fara ofaní körfuna.
Það blæs ekki byrlega fyrir íslandsmeist-
urunum þessa stundina, tveir leikir og tvö
töp, en liðið á væntanlega eftir að komast
betur á skrið og hala inn stig í deildinni.
Leikur Hauka gegn ÍR á fimmtudaginn
verður þeim mjög mikilvægur, þeir bók-
staflega verða að vinna til þess að komast
af botni Evrópuriðils Flugleiðadeildarinn-
ar.
Dómarar voru þeir Sigurður Valgeirsson
og Kristján Möller og vöktu margir dómar
þeirra furðu, svo og það sem þeir slepptu.
BL
Leikun KR-Haukar Lic t: Hau car
Nófn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Henning 94 1-1 - - 1 2 1 12
Ólafur 4-3 - - 1 - 1 - 6
Skarphéðinn - - - 1 1 1 - 0
JónAraar 7-5 - 1 - 3 - - 13
Ingimar 2-1 - 2 6 2 - - 2
Tryggvi 3-2 - 2 2 - - _ 9
ívar 7-5 - 3 1 - 1 _ 11
Pálmar 8-6 7-1 - 2 1 1 - 9
Reynir 5-3 - - 3 3 - - 6
Leikun KR-Haukar Lið: KR
Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Gauti - 1-1 _ _ 1 _ _ 0
Jóhannes 10-8 4-2 - - 5 0 1 17
LámsV. 3-1 - 1 4 2 - - 2
Ólafur 6-3 - - _ 2 - 1 9
LárusÁ. 2-1 2-1 1 - 1 - - 6
Matthias 8-5 - - - 2 - 1 10
Birgir 3-1 - _ 3 3 2 1 3
Ivar 11-7 - 1 14 - 1 2 25
Arai 1-0 - 1 - 1 - 1 0
Árni Guðmundsson KR-ingur ■ baráttu
við ívar Ásgrímsson og Reyni
Kristjánsson.
Staðan í
Flugleiða-
deildinni
Evrópuriðill
KR ...... 3 3 0 217-205 6
ÍBK...... 2 2 0 179-145 4
ÍR....... 2 1 1 129-130 2
Haukar.... 2 0 2 146-154 0
Tindastóll .3 0 3 209-246 0
Ameríkuriðill
UMFN .... 2 2 0 176-160 4
UMFG .... 3 2 1 287-215 4
Valur..... 2 1 1 192-128 2
Þór....... 2 1 1 166-195 2
fS........ 3 0 3 193-306 0
Gæðamerki sem veiði-
menn eru öruggir með.
Fyrirliggjandi í ýmsum
stærðum.
Kaupfélögin um land allt
og sportvöruverslanir í
Reykjavík
Vinningstölurnar 8. október 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.225.496,-
Fimm tölur réttar kr. 1.946.217,- skiptast á 7 vinningshafa, kr.
48.282,- á mann.
BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 337.974,- skiptast á 7
vinningshafa, kr. 48.282,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 583.010,- skiptast á 173 vinningshafa, kr
3.370,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.358.295,- skiptast á 5455 vinningshafa,
kr. 249,- á mann.
VINNUR ÞÚ
Á LAUGARDÖGUM?
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111