Tíminn - 20.10.1988, Síða 10
10 Tíminn
llllllllllllllllllllllllllll
Frankfurt. V-Þýski landsliðs-
maðurinn, Dieter Eckstein var í
fyrradag seldur frá Númberg til
Eintrakt Frankfurt fyrirum 1,9 millj-
ónir dala. Eckstein, sem gekk til liðs
við Nurnberg 1982, verður Iöglegur
með Eintrakt Frankfurt á laugardag-
inn, er liðið mætir Hamburg. Samn-
ingur Ecksteins rennur út 1991.
Franfurt hefur átt í viðræðum við
ítalska liðið Roma, um kaup á
V-Þjóðverjanum Rudi Völler.
London. Terry Venables fram-
kvæmdastjóri Tottenham hefur
fengið Mohamed AIi Amar leik-
mann Barcelona lánaðan til Lund-
únaliðsins í 1 ár, en í samningi
liðanna er gert ráð fyrir þvf að
Tottenham geti framlegt lánstfmann
um 1 ár til viðbótar. Tottenham
verður að greiða Barcelona andvirði
57 þúsund punda fyrir Amar. Ekki
veitir Tottenham af að reyna að lífga
uppá lið sitt, sem er nú í þriðja
neðsta sæti 1. deildarinnar.
London. í fyrrakvöld voru
nokkrir leikir í fyrstu umferð Evr-
ópukeppni félagsliða í körfuknatt-
leik. Úrslit urðu sem hér segir:
CSKA Sofía Búlgaríu...........77
Cukurovaspor Tyrklandi.......68
CSKA vann samanlagt 151-148
Uudenkaupungin Finnlandi ... 88
Hageby Svíþjóð ...............93
Uudenkaupungin vann samt.201-193
Pully Sviss..................114
Oporto Portúgal..............113
Pully vann samanlagt 222-195
Knattspyrna U-21 árs. í
fyrrakvöld voru nokkrir lcikir í Evr-
ópukeppni landsliða í knattspyrnu
skipuðum leikmönnum 21 árs og
yngri. Úrslit urðu sem hér segir:
Búlgaría-Rúmenía...........2-1
Sovétríkin-Austurríki......2-2
England-Svíþjóð............1-1
Skotland-Júgóslavía........0-2
Pólland-Albanía ...........0-0
V-Þýskaland-Holland........2-0
Grikkland-Danmörk .........2-2
Esch-Sur-Alzette. Lux-
emborgarar töpuðu fyrir Tékkum í
fyrrakvöld í leik liðanna í 7. riðli
undankeppi HM í knattspyrnu í
Luxemborg. Ivan Hasek gerði fyrra
markið á 25. mín. og 10 mín. síðar
bætti Jozef Chovanec öðru marki
við fyrir Tékka. Áhorfendur voru
2.500.
London. Heimsmeistarinn í vél-
hjólaakstri á 500 rúmsentmetra
hjólum, Eddie Lawson, er hættur að
aka fyrir Yamaha og mun á næsta
keppnistímabili aka fyrir Honda.
Lawson mun verða í sérstöku Honda
liði, og Wayne Gardner, sem er
áðalökumaður Honda, mun verða
aðalökumaðurinn í hinu liðinu.
Gardner, sem er frá Ástralíu varð
heimsmeistar 1987 og var aðal-
keppninautur Bandaríkjamannsins
Lawsons í ár. Lawson hefur ekið
Yamaha hjóli í sex ár og unnið 3
heimsmeistartitla.
Fimmtudagur 20. október 1988
Fimmtudagur 20. öktóber 1988
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna:
Sovétmenn scm lcika i sama riðli
og við íslcndingar í undankeppni
HM, unnu í gær Austurríkismenn,
2-0 í Moskvu.
Þar með hala Sovétmenn tekið
forystu í riðlinum, með 3 stig úr
tveimur leikjum. Alexei Mikhailic-
henko skoraði fyrra mark Sovét-
manna á 47. mín. og Alcxander
Zavarov bætti öðru við á 69. mín.
Pólskur sigur
Pólverjar unnu Albani með einu-
marki gegn engu í Chorzow í
gærkvöld í2. riðli HM keppninnar.
Það var Krzystof Warzycha sem
gerði sigurntarkið á 78. mín. að
viðstöddum 30 þúsund áhorfend-
um.
N-írar láu í Búdapest
Ungvcrjar fcngu N-íra í heim-
sókn til Búdapest í 6. riðii HM í
' gær. Gcstgjafarnir fór með sigur af
hólnú, 1-0, eftir ntarklausan fyrri
hálfleik. Istvan Vincze gerði sigur-
markið á 84. mín. leiksins. Áhorf-
endur voru 18 þúsund talsins. N-
írar h/da forystu í riðlinum með 3
stig eftir 3 leiki, en hin liðin hafa
aðeins leikið 1 leik.
Povlsen jafnaði
í Aþenu
Grikkir ogDanir gerðu jafnteíli,
1-1, í 1. riðli HM í Aþenu. Grikkir
komust yfir á 41. mtn. með ntarki
Tasos Mitropoulos, en Flemming
Povlsen jafnaði fyrir Dani á 56.
mín. Áhorfendur voru 45 þúsund.
Rúmenskur sigur
í Sofia
í 1. riðli léku einnig Rúmenar og
Búlgarir í Sofía. Rúmenar fóru
með sigur af hólmi, 3-1 eftir aö
staðan var jöfn f hálfleik 1-1.
Dorin Mateuc kom Rúmenum yfir
á 25. mfn. en Hristo Kolev jafnaöi
á 31. mín. Rodion Camataru skor-
aði síðan á 79. mín. og 89. mín. og
tryggði Rúmenum þar með sigur-
inn.
Staðan í 1. riðli er þannig eftir I
umferð að Rúmenar eru efstir með
2 stig.
Jafntefli í Swansea
Walesbúar og Finnar gerðu 2-2
jafntefli í 4. riöli. Öll mörkin voru
gerð í fyrri háifleik. Finnar komust
yfir mcð marki Kari Ukkonen á 8.
mín. en Dean Saunders jafnaði á
24. mín. Sjálfsmark Aki Lathinen
kom Walesbúum yfir á 40. mín. en
á síðustu mín. fyrri hálfleik tókst
Finnum að skora í rétt niark og
jafna leikinn. Þar var að vcrki
Mika Paalelainen. Dean Saunders
mistókst að gera út urn leikinn á
82. mín. er hann misnotaði víta-
spyrnu. Áhorfendur voru 5 þúsund
talsins.
Júkkar jöfnuðu
í Glasgow
Júgóslavar og Skotar gerði jafn-
tefli, 1-1, í Glasgow í 5. riðli í gær.
Bæði mörkin koniu í fyrri háifleik.
Maurice Johnston kom Skotunt
yfir á 17. mín. en Srecko Katanec
jafnaði fyrir Júkkana á 36. mín.
Áhorfendur voru tæplega 43
þúsund.
Skotar hafa forystu í 5. riöli með
3 stig.
Belgía vann Sviss
Belgar unnu Svisslendinga mcð
einu marki gegn engu í Brussel í 7.
riðli. Sigurmarkið gerði Patrick
Vervoort á 30. ntfn. leiksins.
Áhorfendur voru 14.450.
Markalaust á Wembley
Englendingar og Svíar gerðu
marklaust jafntefli á Wembley
leikvangnum í Londin í gær, í 2.
riðli. Viðstaddir voru tæplega 66
þúsund áhorfendur.
Markalaust í Múnchen
V-Þjóðverjar og Hollendingar
gerðu líka markalaust jafntefli er
þjóðirnar mættust í 4. riðli í gær.
Viðstaddir voru 73 þúsund áhorf-
endur. Eftir 2 umferðir leiða V-
Þjóðverjar í riðlinum með 3 stig á
betra markahlutfalli en Hollend-
ingar sem hafa einnig 3 stig.
'. •>'s/ ■ ■ •••
:•
Gunnar Gíslason í skallaeinvígi í leik fslands og Svíþjóðar á Laugardalsvellinum í haust.
Tímamynd Pjetur.
íslenskur ósigur
í skugga múrsins
íslendingar biðu sinn fyrsta ósigur
í undankeppni heimsmeistarakeppn-
innar í luiattspyrnu að þessu sinni í
gær þegar leikið var gegn A- Þjóð-
verjum í A-Berlín. Þjóðverjarnir
sigruðu 2-0, eftir að staðan í hálfleik
var 1-0.
A-Þjóðverjarnir voru nær einráðir
á vellinum allan fyrri hálfleikinn og
strax í upphafi leiksins munaði
minnstu að þeir fengju óskabyrjun.
Gunnar Gíslason brá einum leik-
manna A-Þjóðverja í vítateignum,
en norski dómarinn sleppti Islend-
ingum við vítaspyrnu, sem réttilega
hefði mátt dæma. Bjarni Sigurðsson
var mjög góður í íslenska markinu
og varði tvívegis í fyrri hálfleiknum
mjög vel, fyrst frá Ulf Kirsten og
síðan eftir að A-Þjóðverjar fengu
aukaspyrnu rétt utan vítateigs
íslands. Stuttu síðar áttu Þjóðverj-
arnir hættulegt skot í hlaðarnet ís-
lenska marksins. Á 35. mín. fengu
A-Þjóðverjar hornspyrnu. Boltinn
kom fyrir markið og eftir að íslensk-
um varnarmönnum var hrint frá
boltanum, barst hann til Andreas
Thom sem skoraði með föstu skoti,
óverjandi fyrir Bjarna í markinu.
Þarna yfirsást norska dómaranum
heldur betur ljót bakhrinding A-
Þjóðverja, 1-0.
í síðari hálfleik komu íslensku
leikmennirnir mun meira inní leik-
Ólympíuleikar fatlaðra:
Enn ein verðlaunin
í höfn á leikunum
Ólafur Eiríksson ÍFR, vann bronsverð-
laun í 100 m flugsundi á Ólympíuleikum
fatlaðra í gær.
Ólafur synti á 1,14,73 mín. sem er nýtt
íslandsmet. Þetta eru önnur verðlaun
Ólafs á leikunum.
Sigrún Pétursdóttir ÍFR, lenti í 5. sæti í
100 m baksundi í gær. Hún synti á 2,57,40
mín. sem er nýtt íslandsmet, en 5 fyrstu
keppendur í sundinu syntu allir á tíma
undir gildandi heimsmeti.
Kristín Rós Hákonardóttir ÍFR, varð í
5. sæti í sínum flokki í 100 m baksundi,
setti nýtt Islandsmet og synti á 1,37,37
mín. Sömu sögu er að segja úr þessu sundi
og hjá Sigrúnu. 5 fyrstu keppendurinr
syntu undir heimsmetstíma, en Kristín,
sem átti að keppa í CP7 flokki, gat það
ekki þar sem hann var felldur niður, hún
keppti því í CP8 flokki. Tími Kristínar er
betri en gildandi heimsmet í CP7 flokki, og
nú er verið að reyna að fá heimsmet
hennar dæmt gilt.
Gunnar V. Gunnarsson varð 8. í 100 m
baksundi á 1,30,33 mín. en hann setti
íslandsmet í undanrásum, er hann synti á
1,29,52 mín.
Halldór Guðbergsson keppti einnig í
100 m baksundi, synti á 1,33,80 mín. og
hafnaði í 11. sæti af 12 keppendum.
Halldór átti við meiðsl að stríða í sundinu.
Elvar Thorarensen keppti í gær í borð-
tenniskeppni Ólympíuleikanna. Mótherj-
ar hans voru frá S-Kóreu og Svíþjóð.
Elvari tókst ekki að klekkja á þeim og
tapaði báðum leikjunum. í dag keppir
hann gegn borðtennismanni frá írlandi.
íslensku sundmennirnir og frjálsíþrótta-
mennirnir keppa flest allir í dag, þar á
meðal Haukur Gunnarsson í úrslitum í 100
m hlaupi karla. Haukur keppir síðan á
laugardaginn í 400 m hlaupi.
Ef að líkum lætur munu íslensku kepp-
endurnir halda áfram að safna verðlaunum
á morgunn og um helgina og gaman er að
sjá að flestir ef ekki allir íþróttamennirnir
bæta sinn fyrri árangur á leikunum. BL
Knattspyrna:
Cascarino með 2
mörk gegn Túnis
Irar unnu Túnisbúa 4-0 í vináttulunds-
leik » knattspyrmi í Dublin í gærkvöld.
Tony Cascarino gerði lyrsta mark íra
á 27. mín. eftlr undirbúning Ray Hought-
on. Cascarino var aftur á ferðinni á 44.
mín. Hann skoraði þá eftir fyrirgjöf
nýliðans Stephen Staunton. John Aldr-
idge gerði sitt fyrsta ntark fyrir íra rétt
fyrir leikhlé eftir að hafa fengið scndingu
frá félaga sínum Ray Houghton. Kevin
Sheedy misnotaði tvö góð færi í lyrri
hálfleik, en bætti fyrir það á 87. mín. er
hann gerði 4. mark íra.
Norðmenn láu í Pescara
ítalir sigruðu frændur okkar Norð-
nienn í vináttulandsleik í gærkvöld, 2-1.
Giuseppe Giannini kom Itölum yfír úr
vítaspyrnu á 18. mín. og Riccardo Ferri
bætti öðru marki við á 29. mín. Branhaug
hinn norski, minnkaði muninn úr víta-
spyrnu á 41. mín.
Áhorfendur 10.800. BL
Körtuknattleikur:
Þrír leikir
í kvöld í
Flugleiða-
deildinm
j kvöld verður mikið um að vera í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik. 3
leikir eru á dagsskrá. Haukar fá ÍS í
heimsókn í Hufnarfjörðinn. KR-ingar og
Gríndvíkingar leika í Hagaskóla og í
Keflavík fá heimamenn Þórsara frá Ak-
ureyri í heimsókn. Allir leikirnir hefjast
kl. 20.00.
I 1. deild kvenna eru einnig 3 leikir.
Haukar leika gegn UMFG í Hafnarfírði.
KR og ÍS leika í Hagaskóla og ÍBK og
UMFN leika í Keflavík. Þessir leikir
hefjast kl.21.30. BL
inn, en sóknir A-Þjóðverja voru sem
fyrr fleiri og hættulegri. Bjarni Sig-
urðsson var öruggur í markinu og
A-Þjóðverjum tókst ekki að skora
um miðjan hálfleikinn, þegar fyrir-
gjöf kom fyrir íslenska markið frá
hægri og Stenman potaði knettinum
framhjá markinu.
íslendingar voru mjög fastir fyrir
í leiknum og stundum brutu þeir
heldur mikið á Þjóðverjunum. Þegar
Ólafur Þórðarson var gróflega felld-
ur þegar um 20 mín. voru eftir af
leiknum, veittust hann og Sævar
Jónsson að Þjóðverjanum, sem lét
sig detta í jörðina með tilþrifum.
Norski dómarinn beit á agnið og
sýndi Sævari Jónssyni rauða
spjaldið. Hreint fáránlegur dómur.
Þjóðverjarnir nýttu sér það að vera
einu marki yfir og að íslendingar
spiluðu af hörku, til að tefja leikinn
með alls konar fíflalátum. Þeir létu
sig detta í tíma og ótíma og norski
dómarinn hafði ekki rænu á að gefa
þeim áminningu fyrir leikaraskap.
Eftir að Sævar fór út af óx íslend-
ingum nokkuð fiskur um hrygg og
sóknirnar urðu hættulegri. Arnór
Guðjónsen fékk góða sendingu frá
Ásgeir Sigurvinssyni undir lok leiks-
ins, en fast skot hans fór framhjá
marki A-Þjóðverja. Þar fór besta
færi íslendinga í leiknum í súginn.
Tveimur mín fyrir leikslok bætti
Avderas Thom öðru marki við fyrir
A-Þjóðverja, með föstu skoti rétt
utan vítateigs. Markið kom gegn
gangi leiksins, en greinilegt var að
Sævars var sárt saknað í vörninni.
Sigur A-Þjóðverja var sanngjarn í
leiknum, en með smá heppni hefði
íslenska liðið getað náð jafntefli.
Bestir íslendinga voru þeir Arnór
Guðjónsen og Ásgeir Sigurvinsson,
en Bjarni Sigurðsson átti einnig
góðan leik í markinu. Atli Eðvalds-
son og Guðni Bergsson voru sterkir
í vörninni og Sævar stóð sig vel þann
tíma sem hans naut við. Ólafur
Þórðarson barðist vel að vanda og
hinir leikmenn íslands stóðu sig
þokkalega.
Ekki er öll nótt úti enn í HM,
þrátt fyrir ósigurinn í skugga múrsins
í A-Berlín í gær. A-Þjóðverjarnir
eiga eftir að mæta í Laugardalinn og
þaðan fara þeir áreiðanlega ekki
með bæði stigin.
Lið íslands: Bjarni Sigurðsson,
Atli Eðvaldsson, Gunnar Gíslason,
Sævar Jónsson, Guðni Bergsson,
Ólafur Þórðarson, Ómar Torfason,
Guðmundur Torfason (Ragnar
Margeirsson), Ásgeir Sigurvinsson,
Arnór Guðjónsen og Sigurður Grét-
arsson.
Áhorfendur voru 12.000. BL
Sagt eftir leikinn:
„Dómarinn á móti
okkur í leiknum'1
„Þessi úrslit eru nokkur von-
brigði fyrir okkur. Fyrra markið
kom cftir brot A-Þjóðverja; dóm-
arinn dæmdi líka á móti okkur í
leiknum,“ sagði Sigfried Held
landsliðsþjálflari íslands í samtali
við fréttamenn Reuters eftir leik-
„Við höfum sigrað í okkar fyrsta
leik í keppninni og það er mikl-
ivægast eins og stendur,“ sagði
Bernd Stange þjálfari A-Þjóð-
verja. BL
Skíði:
Mahre tvíburarnir
aftur í brekkurnar
Phil Mahre á fullri ferð ■ skíðabrekkunni á árum áður. Nú ætla þeir Mahre
bræður að hefja keppni að nýju.
Bandarísku skíðatvíburarnir,
Steve og Phil Mahre, hafa ákveðið
að snúa sér aftur að keppni í skíðaí-
þróttum, en þeir létu skíðin á hilluna
síðla árs 1984.
„Það eru liðin fjögur ár síðan við
tókum þátt í skíðakeppni og þetta á
eftir að verða mjög gaman fyrir
okkur báða. Við teljum að endur-
koma okkar eigi eftir að verða
íþróttinni til góðs og vonumst til að
geta haldið áfram að keppa á skíðum
lengi enn,“ sagði Phil Mahre í gær.
Á sfðasta degi Ólympíuleikana í
Sarajevo fyrir fjórum árum voru
þeir Mahre bræður mjög í sviðsljós-
inu. Phil vann gullið í svigi og Steve
vann silfrið. Þeir hættu síðan báðir
keppni síðar á árinu.
Phil vann til silfurverðlauna á
Ólympíuleikunum 1980 og varð
heimsbikarmeistari frá 1981-1983.
Steve vann til gullverðlauna í stór-
svigi í heimsmeistarakeppninni
1982.
Samvinna þeirra tvíburabræðr-
anna hefur verið mikil og góð í
gegnum árin, og venja er hjá þeim,
að um leið og annar þeirra hefur
rennt sér niður brekkuna, þá hefur
hann talstöðvarsamband við hinn og
læturhannvitahvernigfæriðer. BL
Knattspyrna:
Sovéskur sigur
Tíminn 11
York. Á þriðjudagskvöld voru
leiknir 3 leikir í bandarísku NHL-ís-
hokkídeildinni. Pittsburgh Penguins
unnu Philadelphia Flyers 4-2, Det-
roit Red Wings unnu Chicago Black-
hawks 4-3 eftir framlengingu. New
York Islanders unnu Vancouver
Canucks 3-2.
Oakland. Lið Oakland Athlet-
ics vann Los Angeles Dodgers í
þriðja leik liðanna um bandaríska
meistartitilinn í hafnabolta, 2-1.
Dogers unnu tvo fyrstu leikina, sem
fóru fram á hcimavelli þcirra í Los
Angeles. Nú náðu Athletics að
minnka muninn, en greinilegt er að
heimavöllurinn skiptir miklu máli í
úrslitunum (World Series)
Brussel. Belgíski landsliðsmað-
urinn Leo Van Der Elst fær ekki að
leika með Charleroi í Belgíu í vetur,
þar sem ólöglegt er að skipta tvisvar
um félag á sama keppnistímabilinu
þar í landi. Van Der Elst gekk í
sumar til liðs við franska liðið Metz,
en þar hefur hann ekki náð að festa
sig í sessi. Hann lék áður með Club
Brugge í Belgíu og hefur leikið 13
landsleiki fyrir Belgíu.
París. Tour de France hjólreiða-
keppnin, sem er aðalkeppni ársins
hjá hjólreiðamönnum, mun hefjast í
miðbæ Luxemborg þann 1. júlí á
næsta ári. 21 áfangi verður í
keppninni sem er alls 3215 km löng
og lýkur í París þann 23. júlí.
London. I gær var leikið í
Evrópukeþpni félagsliða í körfu-
knattleik. Hér var um síðari leikina
í fyrstu-umferð að ræða. Úrslit urðu
þessi:
Torpan Pojat Finnlandi.......103
Cuva Houthalen Belgíu .........95
Torpan Pojan vann samanlagt 190-
188
Slovnaft Tékkóslóvakíu ........86
Liverno Italíu.................81
Slovnaft vann samanlagt 161-155
I kvennaflokki:
Sparta Prag Tékkósióvakíu ... 89
Riento Turku Finnlandi ........55
Sparta vann samanlagt 173-108