Tíminn - 01.11.1988, Qupperneq 15
Þriðjudagur 1. nóvember 1988
Þetta er sú sýn sem umhverfismálaráðherra Breta vill sjá sem víðast um heiminn, því hann telur kjarorkuver einu
leiðina til að draga úr mengun sem veldur gróðurhúsaáhrifum á jörðinni. Þessi mynd er frá Sellafield kjarnorkuverinu
í Skotlandi, en það hefur séð til þess að Irlandshaf er geislavirkasta haf heimsins.
Umhverfismálaráöherra Bretlands:
Telur að kjarnorkuver
leysi umhverfisvanda
Bygging miklu fleiri kjarnorkuvera er iausnin á mengunar-
málum heimsins, ef marka má orð umhverfísmálaráðherra
Bretlands Nicholas Ridley á sunnudag. „Ef við viljum ná
tökum á gróðurhúsaáhrifunum, þá ættum við að einbeita
okkur, eins og Frakkar gera, að auknum byggingum kjarn-
orkuvera,“ sagði Ridley í sjónvarpsviðtali í BBC.
Vísindamenn hafa talið, að vegna
mengunar muni á næstu árum fara
að gæta gróðurhúsaáhrifa á jörðinni
svo hitastig hækki, sem aftur á móti
leiðir til hækkandi sjávarborðs og
breytts loftslags, sem mun hafa í för
með sér alvarlegar afleiðingar fyrir
lífríki heimsins.
„Kjarnorkuver gefa ekki frá sér
brennistein né koltvísýrling, svo þau
eru ... hreinasta form orkufram-
leiðslu," sagði Ridley. Það eru ein-
mitt þessi efni sem valda gróður-
húsaáhrifunum þegar þau komast í
efstu lög lofthjúpsins og hindra að
geislar sólu nái jörðu. Sagði Ridley
að hundruð kjarnorkuvera þyrfti að
reisa um víða veröld.
Vinir Jarðarinnar, sem eru bresk
umhverfissamtök voru ekki lengi að
bregðast við þessum viðhorfum um-
hverfismálaráðherrans, en umhverf-
issamtök hafa barist mjög gegn notk-
un kjarnorku. Vinir Jarðarinnar
bentu á að Ridley hefði ekki getað
bent á hvað ætti að gera við geisla-
virkan úrgang frá kjarnorkuverum,
en að það sé að verða eitt mesta
umhverfisvandamál heimsins, að
annarri mengun ólastaðri. Töldu
samtökin vandann ekki leystan með
kjarnorku heldur yrði að finna aðrar
leiðir til að draga úr mengun og
gróðurhúsáhrifum.
Sovétríkin:
Sakharov fram-
bjóðandi í
þingkosningum
Geimskot
Evrópu
frá N-
Noregi?
Fiskiþorpið Normela á eyjunni
Andöya í Norður-Noregi gæti
fengið háfleygt hlutverk í evr-
ópsku samstarfi í framtíðinni,
því til greina kemur að þar verði
byggður geimflaugaskotpallur
sem nýttur yrði til að skjóta
gervitunglum Evrópuríkja á
braut um jörðu. Þá yrði þessi litli
bær miðstöð evrópskra geim-
rannsókna sem segja má að sé
kröftug nýsköpun.
Þetta er nú mögulegt þar sem
Noregur hefur gerst aðili að
Geimrannsóknarsamtökum Evr-
ópu, ESA, en aðstæður á Andöya
eru tilvaldar fyrir starfsemi sem
þessa. Ef af verður mun Noregur
því skipa veglegan sess í geim-
áætlun Evrópuríkja.
Nýlega hefur alþjóðleg nefnd
sem rannsakað hefur allar að-
stæður á Andöya skorið úr um að
Normela væri hentugasti staður-
inn fyrir þessa starfsemi og mun
tillaga um endanlega staðsetn-
ingu skotpalls á eyjunni verða
tilbúin upp úr áramótum. Þá mun
ESA endanlega ákveða hvort
Andöya verði valin fyrir geim-
flaugaskotpallinn.
norinform
Andrei Sakharov, hinn kunni sov-
éski andófsmaður, hefur verið út-
nefndur sem frambjóðandi til sov-
ésku þingkosninganna sem fram fara
í Sovétríkjunum í aprílmánuði á
næsta ári. Þá mun verða grundvall-
arbreyting á valdssviði og starfsemi
Æðsta ráðsins sem hingað til hefur
aðeins starfað nokkrar vikur á ári og
í raun aðeins haft það hlutverk að
staðfesta ákvarðanir stjórnarnefnd-
ar sovéska kommúnistaflokksins.
Hið nýja Æðsta ráð mun hafa víð-
tækt vald til lagasetningar og mun
starfa allan ársins hring, líkt og
þjóðþing á vesturlöndum.
Sakharov var útnefndur til fram-
boðs af sovéskum mannréttinda-
samtökum sem héldu sexhundruð
manna ráðstefnu um helgina, en
mannréttindasamtök þessi munu
gegna töluverðu hlutverki í komandi
kosningum, sem eru að mörgu leyti
prófsteinn á umbótastefnu Mikhails
Gorbatsjovs. Samtök sem þessi til-
nefna fulltrúa á hið nýja Þjóðarþing,
en á því munu sitja 2250 fulltrúar, en
úr þeim hópi verður Æðsta ráðið
valið.
Ekki eru liðnir nema tíu dagar frá
því að Sakharov var kjörinn í stjórn
sovésku vísindaakademíunnar,
tveimur árum eftir að Gorbatsjof
leysti hann persónulega úr útlegð,
en þá hafði Sakharov nauðugur eytt
sex árum í Síberíu vegna mannrétt-
indabaráttu sinnar.
Sakharov hefur síður en svo lagt
mannréttindabaráttuna á hilluna og
hvatti hann samstarfsfólk sitt í
mannréttindasamtökunum að beina
ekki aðeins sjónum sínum að mann-
réttindaglæpum sem drýgðir voru
undir stjórn Stalíns, en grimmdar-
verk hans hafa að undnförnu verið
dregin fram í dagsljósið í Sovétríkj-
unum, heldur að draga einnig fram
mannréttindabrot þeirra leiðtoga
sem hafa komið á eftir Stalín.
En ráðstefna mannréttindasam-
takanna ályktaði einnig um annan
andófsmanna og baráttumann fyrir
mannréttindum í Sovétríkjunum,
'nóbelskáldið Solzhenitsyn, en hann
býr nú í Bandaríkjunum. Hvöttu
mannréttindasamtökin til þess að
Solzhenetsín fengi að nýju sovéskan
ríkisborgaararétt og leyfi til að snúa
heim að nýju, sýnist honum svo.
Tíminn 15
Kjördæmisþing
Framsóknarfélaganna
í Vesturlandskjördæmi
29. þing K.S.F.V.
verður að Vesturgötu 38, 3. hæð (Kiwanishús), Akranesi 5.
nóvember 1988
Kl. 10.00 Þingsetning: Guðrún Jóhannsdóttir
Kjörnir starfsmenn þingsins:
a) Þingforsetar
b) Ritarar
c) Kjörbréfanefnd
d) Uppstillinganefnd
Skýrsla stjórnar og reikningar: Guðrún Jóhannsdóttir
Reikningar Magna: Davíð Aðalsteinsson
Umræða og afgreiðsla.
11.00 Bvöóðamál: Guðmundur Malmquist, forstöðumaður
Byggðastofnunar
Ávörp gesta:
SigurðurGeirdal, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
Fulltrúi L.F.K.
Gissur Pétursson formaður SUF
Hádegisverður
Stjórnmálaviðhorfið:
Steingrímur Hermannsson
Alexander Stefánsson
Almennar umræður
Kaffihlé
16.20 Drög að stjórnmálaályktun lögð fram
Framhald almennra umræðna
17.00 Nefndastörf
17.45 Afgreiðsla mála
Kosningar
19.00 Þingslit
Kl.
Kl.
Kl.
Kl.
Kl.
Kl.
Kl.
Kl.
12.15
13.30
16.00
Kjördæmisþing framsóknarmanna
á Norðurlandi eystra
verður haldið að Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, dagana 4.-5. nóv.
Þingið hefst föstudaginn 4. nóv. kl. 20.
Sérmál þingsins: Áhrif efnahagsstjórnunar á þróun byggðar.
Erindi flytja:
Ásgeir Daníelsson hagfr. Þjóðhagsstofnunar
Erna Indriðadóttir deildarstj. RÚVAK
Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri
Vilhjálmur Egilsson framkv. stj. Verslunarráðs islands.
Gestir þingsins:
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
Þórdís Bergsdóttir L.F.K.
Kristinn Halldórsson S.U.F.
Þinginu lýkur með samkvæmi á vegum Framsóknarfélags Mývatns-
sveitar.
Skrifstofan að Hafnarstræti 90 Akureyri er opin frá kl. 15-18 virka
daga, sími 21180.
Stjórn KFNE.
Dagskrá
29. ÞINGS KJÖRDÆMISSAMBANDS FRAMSÓKNARFÉLAG-
ANNA Á SUÐURLANDI, HALDIÐ í HALLARLUNDI, VEST-
MANNAEYJUM, DAGANA 4.-5. NOVEMBER 1988.
Föstudagur 4. nóvember:
Kl. 19.30 Þingsetning
Kjörnir starfsmenn þingsins
Skýrsla formanns K.S.F.S.
Skýrsla gjaldkera K.S.F.S.
Skýrsla Þjóðólfs
Umræður um skýrslur og reikninga
Álit kjörbréfanefndar
Ávörp gesta:
Inga Þyri Kjartansdóttir frá L.F.K.
Gissur Pétursson frá S.U.F.
Mál lögð fyrir þingið:
Jón Helgason
Lísa Thomsen
Tillögur o.fl.
Umræður
Kl. 22.30 Nefndarstörf
Fundi frestaö
Laugardagur 5. nóvember:
Kl. 09.30 Nefndastörf
Kl. 10.30 Fundi framhaldið
Kl. 11.30 Ávarp Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra
Kl. 12.00 Hádegisverður
Kl. 13.00 Afgreiðsla mála
Kosningar
önnur mál
Þingslit
Kl. 16.00 Opinn fundur með sjávarútvegsráðherra
Kl. 20.00 Árshátíð
Með fyrirvara um breytingar.
Borgnesingar - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 4. nóv.
kl. 20.30.
Góð verðlaun. Mætum vel.
Framsóknarfélag Borgarness