Tíminn - 05.11.1988, Side 5
Laugardagur 5. nóvember 1988
Tíminn 5
Ólafur Ragnar telur aö skoöa þurfi sjálfvirkt peningastreymi úr félagsmálaráðuneytinu vegna reiknisgleði gjaldþrota fyrirtækja:
Ótakmarkaðar launakröfur
greiddar út í ríkisábyrgð
Félagsmálaráðuneytið greiðir út verulegar upphæðir í
hverjum mánuði vegna ríkisábyrgðar þeirra launa, sem
starfsmenn fá ekki greidd við gjaldþrot fyrirtækja sinna.
Engin takmörk eru fyrir því hvað launagreiðslurnar geta
verið háar, en einu skilyrðin eru þau að launakröfurnar í
þrotabú séu viðurkenndar af viðkomandi skiptaráðanda.
Auk þess eru þau takmörk sett að ríkisábyrgð nær ekki
nema til sex síðustu mánaða sem fyrirtæki starfaði. Eru til
dæmi þess að félagsmálaráðuneytið hafí borgað launakröf-
ur er nema hátt á þriðja hundraö þúsund krónur á mánuði.
Starfsmenn ráðuneytisins segjast ekki þekkja jafn háar
almennar launagreiðslur innan ráðuneytis, enda virðist
gjaldþrota fyrirtæki yfirleitt hafa getað reiknað út rífleg
laun fram á síðasta dag.
Óeðlilega há laun
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, segist hafa fengið
upplýsingar um að þarna væru
jafnvel á ferðinni óeðiilcga há laun
miðað við það sem gerist nteðal
almennra launþega. „Hg tel að
skoða þurfi hvaða viðmiðanir eigi
að nota í þessum efnum. Það er
munur á því að ábyrgjast einhver
laun sem eru á bilinu 150-250
þúsund á mánuði og greiða þau.
eða hvort verið sé að tala um
einhverja eðlilega launatryggingu.
Þær tölur sem ég hef heyrt, finnst
mér ekki vera í samrænti við þá
almennu réttlætisvitund scm menn
hafa gagnvart því að ríkið ábyrgist
laun við gjaidþrot fyrirtækja,"
sagði Ólafur Ragnar. Segir hann
að ákveða þurfi hvort ríkið taki að
sér að ábyrgjast hin háu forstjóra-
laun, cða hvort miða ætti ábyrgð-
ina við eðlileg meðal framfærslu-
laun.
Skammlíf lítil
þjónustufyrirtæki
Óskar Hallgrímsson er sá starfs-
maður félagsmálaráðuneytisins,
sem sér um að grciða út laun
samkvæmt ákvæðum um ríkis-
ábyrgð. Scgir hann að sér viröist
sent flest fyrirtækin sem ekki geta
greitt laun starfsmanna sinna síð-
ustu mánuði fyrir gjaldþrot hafi
verið í þjónustugreinum. Starfs-
mannafjöldi þeirra hafi yfirleitt
ekki verið yfir fimm manns. „Það
er svo merkilegt að gjaldþrota
fyrirtæki virðast hafa borgað góð
laun. Okkur sýnist á kröfugerðun-
um að launin hafi æði oft veriö í
efri kantinum í þessum þjónustu-
fyrirtækjum sem hafa orðið gjald-
þrota að undanförnu," sagði
Óskar. Ekki vildi hann nefna neina
launatölu vegna stöðu sinnar, en
sagði að miðað við það sem sam-
starfsfólk sitt þekkti í stjórnarráð-
inu þættu þctta frekar ríflegar
tölur. Þetta ætti einkum við unt lítil
þjónustufyrirtæki sem sprottið
hafa upp og lifað skamman tíma.
Eigendur líka
með launakröfur
Tíminn hcfur fyrir því árciðan-
legar heimildir að ekki hafi verið
skorið við nögl í útreikningi launa
í mjög mörgum tilfellum þar sent
þó hafi verið yfirvofandi gjaldþrot.
Laun í fámennum þjónustufyrir-
tækjuni, sem ríkisábyrgð nær nú
yfir, hefur sjaldnar verið undir 200
þúsund krónum miðað við mánuð,
en yfir þeirri viömiðun. í mörgum
tilfellum itefur verið greitt inn á
laun viðkomandi starfsmanna frant
að gjaldþroti, en ógreidd launin
safnast saman. Ekki eróalgengt að
nokkur hundruð þúsund krónur
renni til fyrrverandi launþega í
gegnum ríkisábyrgð og tölur hafa
verið nefndar vel á aöra milljón
króna. Gildir þar einu hvort um er
að ræða hina gjaldþrota eigcndur
sjálfa, ef launakröfur þeirra fást á
annað borð viðurkenndar af
skiptaráöanda. Launagreiðslur
eru, sent kunnugt er, undanskildar
þeim fjármununt sent lánadrottnar
þrotabús geta gert kröfur til af
eignum þeirra sent verða fyrir
gjaldþroti.
f eldri lögum unt ríkirábyrgð var
ákveðin viðntiðun unt hámark
þessara greiðslna. Var hún þreföld
tckjutrygging almannaryggingar-
kerfisins. Það mun hafa verið
vegna erfiðleika við að reikna út
þrefalda tekjutrygginguna, sent
hætt var aö styðjast við það þak
snemma á þessunt áratug. Grund-
völlur tekjutryggarinnar hafði þá
breyst verulega frá lagasetningunni
sem var um 1972. KB
Jón „Úri“ Garðarsson og Gunnar „Stóri“ Brynjólfsson starfsmenn og áhugamenn um Arctic Cat sleða sitja hér á
El Toger ExT. Tímamynd Pjetur
Ný árgerð af Arctic Cat snjósleðum kynntir áhugamönnum:
Skaffi guð snjóinn
sköff um við sleðana
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
bauð í gær fjölda áhugafólks um
vélsleða og fjallaferðir til kynningar
á nýrri árgerð á Arctic Cat snjósleð-
um. Gísli Guðmundsson forstjóri B
& L sagði að gaman væri að sjá
samankomin svo fríðan flokk manna
og kvenna, sem hefðu það eitt
sameiginlegt að verða að hafa nægan
snjó og almennilega sleða til að aka
á. „Því get ég lofað ykkur, ef guð
skapar snjóinn, þá getum við skaffað
sleðana,“ sagði Gísli í ávarpi til
gesta á kynningunni.
Gísli sagði að sleðarnir hefðu
aldrei verið betri og glæsilegri en
einmitt núna, enda hefði framleiðsl-
an og eftirspurnin aukist jafnt og
þétt frá því að verksmiðjan var
endurreist 1984. Allt frá því að
B & L tók við umboðinu haustið
1985 hefur verið lögð áhersla á að
hafa góða varahluta og viðgerða-
þjónustu.
Boðið er upp á sex gerðir af Arctic
Cat snjósleðum. Fyrst skal nefndur
Á.C. Jag A.F.S.. Jag-inn er nú
kominn með hina frægu Arctic Cat
armafjöðrun, búinn 440 cc. Suzuki
vél sem skilar um 45 hestöflum. í>á
er A.C. Cougar sem búinn er 56
hestafla loftkældri Suzukí vél. Þriðja
skal nefna A.C. Cheetah Touring,
hann er búinn sömu vél og Cougar.
Innifalið er bakkgír og rafstart.
Fjórði snjósleðinn sem kynntur var
er A.C. Pantera sem búinn er 72
hestafla vél, bakkgír og rafstarti.
A.C. E1 Tiger ExT er helsta nýjung-
in í ár. Hann er útbúinn 530 cc vél
en úr henni eru aðeins tekin 74
hestöfl í stað 93 áður. Hér er því um
að ræða mjög hagkvæman sleða við
ýmsar aðstæður. Að lokum er það
A.C. Wildcat, flaggskip Arctic Cat
sleðanna. Hann er útbúinn um 110
hestafla vél. -ABÓ
Fangi sem fluttur var á slysadeild réöist á
lögregluþjóna er gættu hans:
Sló lögreglu-
mann í góK ið
Fangi, sem í fylgd tveggja rann-
sóknarlögreglumanna, fór á slysa-
deild Borgarspítalans í gærmorgun
réðist skyndilega á annan lögrcglu-
manninn og sló hann heiftarlega í
magann. Lögreglumaðurinn hné
niður og uppi voru grunsemdir um
innvortis blæðingar af völdum hnefa-
höggsins. Eftir töluverðar ryskingar
tókst að yfirbuga fangann.
Rannsóknarlögreglumennirnir
tveir sóttu fangann í Síðumúlafang-
elsið, þar sem hann afplánar dóm
fyrir tékkafals og stuld á greiðslu-
kortum.
Ætlunin var að skipta um umbúðir
á hendi fangans, en hann er með sár
á handlegg, er hann sjálfur veitti sér
með því að naga sig í handlegginn.
Fanginn var hinn rólegasti á leið
upp á slysadeild Borgarspítalans.
Þar stigu fánginn og lögreglu-
mennirnir út og varð eigi vart við að
fanginn skipti skapi fyrr en komið
var inn í biðsalinn. Par var sem
fanginn trylltist. Sneri hann sér leift-
ursnöggt og sló annan lögreglu-
manninn þungu hnefahöggi undir
bringspalirnar. Lögreglumaðurinn
var lítt viðbúinn og hné í gólfið.
Félagi hans réðist þegar til atlögu við
fangann og eftir talsverðar ryskingar
hafði hann að hemja fangann.
Rannsóknarlögreglumaðurinn er
sleginn var, kenndi sér meins inn-
vortis og var á tíma álitið að hann
hefði hlotið inovortisblæðingar.
Rannsókn á Borgarspítalanum
leiddi í ljós að svo var ekki. Þegar
Tíminn hafði síðast fregnir af líðan
lögreglumannsins var góð, en ekki
var ákveðið hvort hann gisti nóttina
á spítalanum eða færi heim í gær-
kvöldi.
Lögreglumaðurinn sem réðist á
fangann, slapp ekki fullkomlega
heill. Kom í ljós að hann hafði
tognað á vöðva og reyndist marinn
og blár víða á skrokkinn.
Ekki fer sögum af líðan fangans
eftir þessi viðskipti, en líklegt er að
hann eigi eftir að naga sig í handa-
bökin vegna stundarreiði. Líkast til
munu viðkomandi lögreglumenn,
eða Rannsóknarlögreglustjóri höfða
mál á hendur fanganum vegna lík-
amsárásar. -ES
Haröur árekstur í Melasveit:
Tveir á
sjúkrahús
Harður árekstur varð þegar jeppi
og fólksbíll, báðir af Dodge gerð
lentu framan á hvor öðrum skammt
frá bænum Skipanesi í Melasveit um
klukkan fjögur í gær. Ökumennirnir
sem voru einir í bílunum voru báðir
fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi tölu-
vert slasaðir og var ákveðið að flytja
ökumann jeppans á sjúkrahús í
Reykjavík. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var fengin til að flytja hann og
var hún lent við Borgarspítalann
klukkan 6.20.
Talið er að rekja megi áreksturinn
tjl hálku. Báðir bílarnir eru taldir
ónýtir. -ABÓ